Mourinho um Terry: Það eru allir leikmenn Chelsea meira en ánægðir að fá að spila Fyrirliðinn var ónotaður varamaður gegn Arsenal í deildinni en verður í byrjunarliðinu í deildabikarnum í kvöld. Enski boltinn 23. september 2015 09:30
„Ferguson er bara vel við þá sem hlýða honum“ Sir Alex Ferguson og Mino Raiola, umboðsmaður Paul Pogba og Mario Balotelli, eru engir vinir eins og kemur fram í nýrri bók Fergusons. Enski boltinn 23. september 2015 08:45
Stuðningsmenn West Ham reglulegir gestir á húðflúrsstofum undanfarnar vikur Stuðningsmenn West Ham hafa verið reglulegir gestir á húðflúrsstofum Bretlands eftir góða byrjun liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 22. september 2015 23:30
Ólafur Páll: Liverpool er með flottasta framherjaparið í deildinni Hjörvar Hafliðason og sérfræðingar hans í Messunni tóku fyrir gengi Liverpool í gær en lærisveinar Brendan Rodgers hafa aðeins náð í samtals tvö stig út úr síðustu fjórum leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 22. september 2015 22:45
Gylfi og félagar úr leik í enska deildarbikarnum | Úrslit kvöldsins Ensku úrvalsdeildarliðin Manchester City, Stoke City og Aston Villa komust öll áfram í fjórðu umferð enska deildabikarsins í kvöld en Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea City eru úr leik. Enski boltinn 22. september 2015 21:05
Diego Costa dæmdur í þriggja leikja bann Spænski framherjinn Diego Costa mun missa af næstu leikjum Chelsea eftir að enska knattspyrnusambandið dæmdi hann í þriggja leikja bann í kvöld fyrir framkomu sína í sigurleiknum á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Enski boltinn 22. september 2015 19:06
Eva búin að fá nóg af Jose Mourinho | Hætt hjá Chelsea Eva Carneiro, hinn 42 ára gamli læknir knattspyrnuliðs Chelsea, hefur ákveðið að yfirgefa félagið aðeins sex vikum eftir að knattspyrnustjórinn Jose Mourinho gagnrýndi hana opinberlega. Enski boltinn 22. september 2015 17:21
Alex Ferguson: Var bara með fjóra heimsklassa leikmenn í United-liðunum mínum Sir Alex Ferguson var knattspyrnustjóri Manchester United í 26 ár og United vann þrettán sinnum enska meistaratitilinn undir hans stjórn. Skotinn segist þó aðeins hafa verið með fjóra heimsklassa leikmenn í United-liðunum sínum. Enski boltinn 22. september 2015 16:45
Gabriel ekki á leið í bann Brasilíski miðvörðurinn Gabriel Paulista fer ekki í leikbann þrátt fyrir að hafa fengið að líta rauða spjaldið þegar Arsenal tapaði 2-0 fyrir Chelsea á laugardaginn. Enski boltinn 22. september 2015 16:17
Þorvaldur: Óþolandi að mæta framherjum eins og Costa Strákarnir í Messunni ræddu hegðun Diego Costa í leik Chelsea og Arsenal um helgina en hann var í gær kærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir að slá miðvörð Arsenal í leiknum. Enski boltinn 22. september 2015 16:00
Yaya Toure: Ekki hægt að leika eftir afrek Arsenal Yaya Toure telur að það sé ekki lengur hægt fyrir félög að fara taplaus í gegn um ensku úrvalsdeildina líkt og bróðir hans afrekaði með Arsenal fyrir rétt rúmum tíu árum síðan. Enski boltinn 22. september 2015 15:30
Hjörvar: Ný stjarna fædd í enska boltanum Strákarnir í Messunni ræddu frammistöðu franska framherjans Anthony Martial sem hefur slegið í gegn strax á fyrstu vikum sínum í herbúðum Manchester United. Enski boltinn 22. september 2015 15:00
Benteke sendur í myndatöku vegna meiðslanna Christian Benteke var í dag sendur í myndatöku til þess að fá úr því skorið hversu alvarleg meiðslin eru sem hann varð fyrir í leik Liverpool og Norwich um helgina. Enski boltinn 22. september 2015 13:30
Ferguson: Mistök hjá Moyes að reka Phelan David Moyes hefði ekki átt að reka Mike Phelan úr starfi aðstoðarþjálfara þegar hann tók við Manchester United sumarið 2013. Þetta segir Sir Alex Ferguson í nýrri bók sinni, Leading sem kemur út á morgun. Enski boltinn 22. september 2015 11:30
Neymar: Coutinho myndi henta Barcelona vel Brasilíski framherjinn Neymar vonast til þess að landi sinn, Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool leiki með Barcelona einn daginn því hann henti liðinu vel. Enski boltinn 22. september 2015 08:00
Ferguson ræddi við Guardiola um að taka við Manchester United Skoski knattspyrnustjórinn ræddi við Pep Guardiola um að taka við enska stórveldinu Manchester United en Ferguson greinir frá þessu í nýrri bók sem hann er að gefa út. Enski boltinn 22. september 2015 07:30
Zouma: Við vitum að Costa reynir að svindla Kurt Zouma, franski miðvörður Chelsea, segir að leikmenn liðsins viti af því að Diego Costa reyni að svindla í leikjum í von um að andstæðingarnir missi einbeitinguna. Enski boltinn 21. september 2015 20:30
Martínez: Howard á nóg eftir Roberto Martínez, knattspyrnustjóri Everton, segir að markvörðurinn Tim Howard eigi nóg eftir og muni spila áfram með Bítlaborgarliðinu á næstu árum. Enski boltinn 21. september 2015 19:45
Costa og Gabriel ákærðir | Fer Costa í þriggja leikja bann? Enska knattspyrnusambandið staðfesti í dag að Diego Costa, leikmaður Chelsea, yrði ákærður af enska knattspyrnusambandinu fyrir hegðun sína í leik Chelsea og Arsenal um helgina. Enski boltinn 21. september 2015 16:30
Mourinho myndi taka við öllum leikmönnum Arsenal Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, skaut föstum skotum að kollega sínum hjá Arsenal, Arsene Wenger, eftir leik liðanna um helgina. Enski boltinn 21. september 2015 14:00
Carragher: Ólíklegt að Rodgers verði rekinn Fyrrum varnarmaður Liverpool, Jamie Carragher, á ekki von á öðru en að félagið muni standa við bakið á Brendan Rodgers, knattspyrnustjóra liðsins. Enski boltinn 21. september 2015 08:30
Van Gaal: Martial hefur verið frábær Louis Van Gaal, knattspyrnustjóri Manchester United, var að vonum sáttur með Anthony Martial, nýjustu stjörnu liðsins, eftir 3-2 sigur liðsins gegn Southampton um helgina. Enski boltinn 21. september 2015 07:30
Rodgers: Ég er vonsvikinn og svekktur Liverpool gerði 1-1 jafntefli á heimavelli gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 20. september 2015 23:30
Mark Ings dugði ekki til gegn Norwich | Sjáðu mörkin Liverpool og Norwich skildu jöfn, 1-1, í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Enski boltinn 20. september 2015 17:00
Martial í stuði í sigri Man Utd | Sjáðu mörkin Manchester United komst upp í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 2-3 sigri á Southampton á útivelli í dag. Enski boltinn 20. september 2015 16:45
Son tryggði Spurs annan sigurinn í röð | Sjáðu markið Suður-Kóreumaðurinn Son Heung-Min byrjar vel í búningi Tottenham en í dag tryggði hann liðinu 1-0 sigur á Crystal Palace í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 20. september 2015 14:15
Smalling: Van Gaal hefur hjálpað mér að bæta mig Chris Smalling, miðvörður Manchester United, segir að Louis van Gaal, knattspyrnustjóri liðsins, eigi stóran þátt í þeim framförum sem hann hefur sýnt á þessu tímabili. Enski boltinn 20. september 2015 11:26
United á erfiðan útileik og nær Liverpool að stöðva taphrinuna í deildinni? Sjöttu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu lýkur í dag með þremur leikjum, en stórleikur dagsins er leikur Southampton og Manchester United á St. Mary's. Leikurinn hefst klukkan 15.00. Enski boltinn 20. september 2015 08:00
Pochettino: Erum með stóran hóp til að takast á við komandi verkefni Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, hefur fulla trú á því að leikmannahópur hans hjá Tottenham sé nægilega stór til að takast á við þau verkefni sem framundan eru. Enski boltinn 19. september 2015 22:30
Fyrsta tap City í deildinni staðreynd | Sjáðu mörkin Manchester City tapaði sínum fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni þetta tímabilið þegar liðið beið í lægri hlut á heimavelli gegn West Ham 2-1. Enski boltinn 19. september 2015 18:15