Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Breytingar hafa orðið á leikjadagskránni í Bestu deild kvenna sem gera að verkum að Breiðablik gæti mögulega orðið Íslandsmeistari á mánudaginn með sigri á Stjörnunni í leik sem hefst klukkan 17. Íslenski boltinn 16.10.2026 23:01
Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ „Það bara sýður á mér. Ég á eiginlega ekki að standa hérna í viðtali því að ég er alveg brjálaður yfir þessu,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, eftir 1-2 tap gegn Víkingum á Eikarvellinum í Kópavogi í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 16.10.2026 22:11
Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Rauða spjaldið fór fjórum sinnum á loft og Sveinn Margeir Hauksson skoraði glæsilegt sigurmark í svakalegum slag á Kópavogsvelli þegar Víkingar unnu fjendur sína í Breiðabliki, 2-1, í næstsíðustu umferð Bestu deildarinnar. Lætin og mörkin má sjá á Vísi sem og það helsta úr 3-1 sigri ÍBV gegn FH. Íslenski boltinn 16.10.2026 21:57
Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Íslenski boltinn 16.10.2026 18:31
Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Íslenski boltinn 11.10.2026 18:32
Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Fótboltamaðurinn Kristinn Steindórsson, sem uppalinn er hjá Breiðabliki og hefur leikið með liðinu stóran hluta ferilsins, mun kveðja félagið nú í haust. Íslenski boltinn 7. október 2026 08:37
Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Mörkin úr ótrúlegri endurkomu Breiðabliks gegn Þrótti og úr 5-0 stórsigri FH gegn ÍBV má nú sjá á Vísi. Íslenski boltinn 4. október 2026 20:16
„Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var hetja Breiðabliks þegar liðið vann ótrúlegan 5-4 sigur á Þrótti í Kópavogi. Hrafnhildur skoraði þrennu og sigurmarkið á 90. mínútu eftir að Blikar höfðu lent 4-1 undir. Íslenski boltinn 4. október 2026 17:10
Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Breiðablik var 4-1 undir í hálfleik gegn Þrótti og hafði misst FH upp fyrir sig í toppsæti Bestu deildar kvenna í dag. Liðið sneri taflinu við og fann ótrúlegan 5-4 sigur. Íslenski boltinn 4. október 2026 15:50
Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Czarni vann síst of stóran 1-0 sigur á Breiðabliki í síðari leik liðanna í Evrópubikar kvenna í fótbolta í Póllandi í dag. Tvöföld vítavarsla Taylor Kane stóð upp úr í bragðdaufri frammistöðu Blika sem eru úr leik eftir 6-2 tap í fyrri leiknum. Fótbolti 30. september 2026 18:55
Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Hin 16 ára gamla Bríet Fjóla Bjarnadóttir var stjarna helgarinnar í Bestu deild kvenna en hún skoraði þrennu fyrir bikarmeistara Þróttar í 5-1 sigri á Stjörnunni. Breiðablik náði þriggja stiga forskoti á FH í titilbaráttunni. Öll mörkin má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 28. september 2026 16:16
Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Líf Joostdóttir van Bemmel heldur upp á 19 ára afmæli sitt í Króatíu í næstu viku því hún hefur nú í fyrsta sinn verið valin í íslenska A-landsliðið í fótbolta. Það toppar stórkostlegt sumar hjá þessum leifturhraða, hollenskættaða leikmanni Breiðabliks. Fótbolti 28. september 2026 09:04
Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Breiðablik vann mikilvægan 2–1 sigur á ÍBV á Hásteinsvelli í Bestu deild kvenna í dag eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Allison Patricia Clark kom Eyjakonum yfir en Agla María Albertsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir tryggðu Blikum sigurinn með mörkum í síðari hálfleik. Með sigrinum tryggði Breiðablik sér þrjú mikilvæg stig í titilbaráttunni og komst í 43 stig á toppi deildarinnar. ÍBV situr áfram í þriðja sæti með 30 stig. Íslenski boltinn 26. september 2026 13:16
„Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ „Ég veit ekki við hverju við bjuggumst. Á þessu stigi keppninnar eru öll liðin hörkugóð og við fengum að finna fyrir því í dag,“ sagði Kristín Dís Árnadóttir eftir áfallið sem Breiðablik varð fyrir með 6-2 tapi á heimavelli gegn pólsku meisturunum í Czarni í dag. Fótbolti 23. september 2026 18:30
Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Ballið er svo gott sem búið hjá Íslandsmeisturum Breiðabliks í Evrópu þetta árið eftir skelfilegt tap gegn pólsku meisturunum í Czarni á heimavelli í dag, 6-2. Íslenski boltinn 23. september 2026 17:45
Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Þórdís Elva Ágústsdóttir, leikmaður Breiðabliks, er kokhraust fyrir komandi Evrópuleik liðsins gegn pólsku meisturunum í liði Czarni Sosnowiec í Evrópubikarnum í dag. Ekki sé tilefni til að stíga af bensíngjöfinni núna. Íslenski boltinn 23. september 2026 12:31
„Sjáum veikleika í þeirra leik“ Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, sér veikleika í pólsku meistaraliði sem Breiðablik tekur á móti í 32-liða úrslitum Evrópubikars kvenna í fótbolta í dag. Blikar munu reyna að nýta sér þá. Fótbolti 23. september 2026 11:31
Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Breiðablik varð á dögunum fyrsta íslenska félagið til þess að eiga lið í hinum geysivinsæla EA FC tölvuleik. Þetta er mikill heiður og viðurkenning á því góða starfi sem unnið hefur verið í Kópavogi. Stelpurnar í liðinu eru farnar að spila leikinn. Íslenski boltinn 23. september 2026 08:31
Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Nóg var skorað er fjórir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Alls voru mörkin 18 talsins. Íslenski boltinn 21. september 2026 13:31
Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum ÍA vann öruggan 4-1 sigur á Breiðabliki á Akranesi í 24. umferð Bestu deildar karla. Sigurinn var síst of stór en með honum jafnaði Skaginn Blika að stigum. Íslenski boltinn 20. september 2026 18:30
Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað Á meðal nýrra liða sem hægt er að velja í nýjustu útgáfu FC-tölvuleiksins, vinsælasta fótboltatölvuleiks heims, eru núverandi Íslandsmeistarar kvenna, Blikakonur. Íslenski boltinn 20. september 2026 09:00
Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik Breiðablik tók á móti Grindavík/Njarðvík í kvöld þegar fyrsta umferð í úrslitakeppni efri hluta Bestu deild kvenna hóf göngu sína. Breiðablik gerði út um leikinn í fyrri hálfleik og fóru að lokum með öruggan 4-1 sigur af hólmi. Íslenski boltinn 17. september 2026 22:10
Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Víkingar geta orðið Íslandsmeistarar á laugardaginn, annað árið í röð, eftir að nýkrýndir bikarmeistarar Breiðabliks unnu Fram 3-1 í gærkvöld. Mörkin í Úlfarsárdalnum má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 16. september 2026 08:32
Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Breiðablik vann góðan 3-1 útisigur á Fram í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Ekki var að sjá þreytu eftir bikarúrslitaleik helgarinnar. Leikið var á Lambhagavelli í fyrstu umferð Efri hluta Bestu deildar karla. Íslenski boltinn 15. september 2026 22:00
Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Gabríel Snær Hallsson var mikill örlagavaldur fyrir sína menn í Breiðablik í kvöld. Hann lagði upp fyrsta markið sem Breiðablik skoraði og skoraði annað markið en Blikar unnu Fram á útivelli 3-1 og sýndu engin merki um bikarþynnku. Íslenski boltinn 15. september 2026 21:43
Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, segir það ekki til marks um minni metnað í fótbolta kvenna hér á landi að liðið hafi neyðst til að skipta markverði inná sem útileikmanni í Evrópuleik í sumar. Um einstakt tilvik hafi verið að ræða. Íslenski boltinn 15. september 2026 15:02