Demókratar í þröngri stöðu fá liðsauka frá repúblikönum Hópur repúblikana sem er andsnúinn Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, ætlar að lýsa yfir stuðningi við nokkra sitjandi þingmenn demókrata sem sjá fram á erfiðan endurkjörsslag í þingkosningum á næsta ári. Erlent 14. október 2021 14:33
Vilja vindorkugarða við nær alla strandlengju Bandaríkjanna Ríkisstjórn Joes Biden vill láta reisa vindorkuver við nærri alla strandlengju Bandaríkjanna á næstu árum. Stefnt er að því að vindorkuframleiðendur geti byrjað að sækja um leyfi til að reisa vindtúrbínur fyrir utan ströndina fyrir árið 2025. Erlent 14. október 2021 10:39
Það verða að vera afleiðingar segir refsiglaður dómari Dómari í Washington-borg Bandaríkjanna hefur farið þá leið að dæma sakborninga sem ákærðir voru fyrir þátttökuí áhlaupinu á þinghús Bandaríkjanna í janúar til þyngri refsingar en ákæruvaldið hefur sóst eftir. Dómarinn segir að hegðun áhlaupsmanna verði að hafa afleiðingar. Erlent 13. október 2021 21:28
Verkfall í kvikmynda- og þáttagerð gæti hafist eftir helgi Um 60.000 félagar í stéttarfélagi kvikmynda- og þáttagerðafólks í Bandaríkjunum gæti hafist á mánudag ef samningar nást ekki við framleiðendur áður. Vinna við kvikmyndir og þætti í Hollywood og víðar myndi að líkindum stöðvast að miklu leyti. Viðskipti erlent 13. október 2021 15:44
William Shatner er elsti geimfari jarðarinnar Geimskot Blue Origin þar sem níræði leikarinn William Shatner varð elsti maður jarðarinnar til að fara út í geim, heppnaðist vel. Eftir að vera skotið á loft frá Texas lentu geimfararnir nýju heilu og höldnu annarsstaðar í ríkinu. Erlent 13. október 2021 15:00
Skortur sagður koma niður á framleiðslu iPhone 13 Apple mun líklega draga úr fjölda iPhone 13 sem til stendur að framleiða vegna heimslægs skorts á hálfleiðurum. Skorturinn er að koma niður á helstu tekjulind tæknirisans. Viðskipti erlent 13. október 2021 13:28
Bandaríkin opna landleiðina og flugleiðina fyrir bólusetta Stjórnvöld í Bandaríkjunum hyggjast opna landamærin að Kanada og Mexíkó í nóvember fyrir fullbólusetta einstaklinga. Þau höfðu áður tilkynnt að landið yrði opnað ferðalöngum flugleiðina einhvern tímann í næsta mánuði. Erlent 13. október 2021 11:22
Rannsaka mögulegt tilfelli Havana-heilkennisins í Kólumbíu Bandarísk yfirvöld rannsaka nú möguleg tilfelli Havana-heilkennisins í bandaríska sendiráðinu í Kólumbíu aðeins nokkrum dögum áður en utanríkisráðherra Bandaríkjanna á að ferðast þangað. Erlent 13. október 2021 11:14
Staðfesta dánarorsök Petito Dánarstjóri í Wyoming-ríki Bandaríkjanna hefur úrskurðað að dánarorsök Gabrielle Petito, ungrar konu sem fannst myrt í ríkinu, lést af völdum kyrkingar. Erlent 12. október 2021 21:42
„Ég vil horfa á þennan hnött og meta fegurð hans“ Leikarinn William Shatner fer út í geim á morgun. Það mun hann gera með þremur öðrum geimförum um borð í geimfarinu NS-18. Hinum níræða Shatner og geimförunum verður svo skotið á loft af starfsmönnum Blue Origins. Erlent 12. október 2021 15:49
Spænskir hægrimenn fýldir yfir gagnrýni á Kólumbus Kergja ríkir nú á meðal spænskra hægrimanna vegna gagnrýni á nýlendustefnu þeirra og Kristófer Kólumbus. Þeir eru einnig ósáttir við að Bandaríkjaforseti hafi viðurkennt voðaverk gegn frumbyggjum Ameríkanna. Erlent 12. október 2021 14:58
Loksins laus við gúmmídekk eftir tvö erfið ár Dýralífsyfirvöld í Colorado-fylki í Bandaríkjunum segja að gúmmídekk sem hefur verið fast utan um háls skógarhjartar í tvö ár hafi loksins náðst af honum. Vandinn fólst ekki í að ná dekkinu af heldur að klófesta sjálfan hjörtinn sem hefur runnið úr greipum yfirvalda á svæðinu oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Erlent 12. október 2021 09:00
Nýi Súpermann er tvíkynhneigður DC Comics myndasagnarisinn hefur tilkynnt að nýjasta útgáfan af persónu Súpermann verði tvíkynhneigð. Í næsta hefti myndasögunnar verður ofurhetjan ástsæla sýnd í ástarsambandi við karlmann. Menning 12. október 2021 08:36
Ríkisstjóri Texas bannar að gera bólusetningu að skyldu Greg Abbott, ríkisstjóri Texas í Bandaríkjunum, hefur gefið út tilskipun þess efnis að hér eftir verði öllum félögum, fyrirtækjum og skólum í ríkinu bannað að gera bólusetningu gegn kórónuveirunni að skyldu. Erlent 12. október 2021 06:56
Ánægð með árangurinn í keppni við sjálfan Bond Kvikmyndin Dýrið var sýnd í hátt í 600 kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum um helgina og þénaði ríflega eina milljón Bandaríkjadali í gegnum miðasölu á fyrstu þremur dögunum í sýningu. Dýrið, eða Lamb eins og hún heitir á alþjóðavísu, er því tekjuhæsta íslenska kvikmyndin sem sýnd hefur verið í Bandaríkjunum. Bíó og sjónvarp 11. október 2021 12:40
Kampakát Kim kom á óvart í SNL Kim Kardashian West þykir hafa staðið sig merkilega vel í Saturday Night Live um helgina. Hún var fengin til að stýra þættinum og gerði hún meðal annars stólpagrín að sjálfri sér og fjölskyldu sinni. Bíó og sjónvarp 11. október 2021 10:34
Bannað að fjarlægja verju í miðjum klíðum Ólöglegt er nú að fjarlægja smokk án samþykkis samkvæmt nýjum lögum sem ríkisstjóri Kaliforníu í Bandaríkjunum staðfesti í síðustu viku. Kalifornía varð þá fyrsta ríkið til að banna slíkt hátterni Erlent 11. október 2021 09:07
Bandaríkin aðstoði Afgani en viðurkenni ekki yfirráð Talibana Talibanar, sem nú fara með stjórn í Afganistan, segja að fulltrúar bandarískra stjórnvalda hafi samþykkt að veita Afgönum mannúðaraðstoð, að loknum fyrstu viðræðum aðilanna frá því Talibanar tóku völd í landinu í ágúst. Erlent 10. október 2021 23:45
Afhentu FBI ríkisleyndarmál í samloku og tyggjópakka Bandarísk hjón hafa verið handtekin og ákærð vegna gruns um njósnir og sölu á leyndarmálum í tengslum við kjarnakljúfa í kafbátum sem bandarísk yfirvöld hafa yfir að ráða. Hjónin töldu sig hafa átt í samskiptum við fulltrúa ríkisstjórnar erlends ríkis, sem var í raun útsendari bandarísku alríkislögreglunnar, FBI. Erlent 10. október 2021 19:50
Talibanar ætli ekki að starfa með Bandaríkjamönnum gegn ISIS Talibanar, sem nú fara með völdin í Afganistan, hafa hafnað hugmyndum um að vinna að því í samstarfi við Bandaríkjamenn að kveða í kútinn öfgasamtökin sem kenna sig við íslamskt ríki, ISIS. Samtökin hafa sótt í sig veðrið í landinu frá því Bandaríkjaher yfirgaf það í ágúst og hafa þau lýst yfir ábyrgð á fjölda mannskæðra árása í landinu að undanförnu. Erlent 9. október 2021 20:00
Bandaríkjamenn og Talibanar funda um brottflutning og kvenréttindi Fulltrúar Talibana og Bandaríkjastjórnar funda í dag og á morgun um áframhald á brottflutningi erlendra ríkisborgara og afganskra borgara sem unnu fyrir alþjóðlega herliðið eða stjórnvöld sem Talibanar hröktu fá völdum í ágúst. Erlent 9. október 2021 13:55
Þungunarrofslögin taka aftur gildi í Texas Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum heimilaði í gær Texasríki að halda lögum um þungunarrof til streitu, en tveimur dögum áður hafði alríkisdómari fellt lögin úr gildi. Erlent 9. október 2021 11:37
Þýska lögreglan rannsakar tilfelli Havana-heilkennisins í bandaríska sendiráðinu Lögreglan í Berlín rannsakar nú dularfull tilfelli Havana-heilkennisins svokallaða meðal starfsmanna bandaríska sendiráðsins í borginni. Rannsóknin hófst í ágúst og miðar að því að kanna hvort örbylgjuárás hafi verið gerð á sendiráðsstarfsmenn. Erlent 9. október 2021 09:03
Nýtt lag frá ZÖE í lokaþætti Truth Be Told Í dag gefur tónlistarkonan ZÖE út smáskífuna Blood in the Water. Lagið mun verða áberandi í lokaþætti Apple+ þáttaraðarinnar Truth Be Told sem sem skartar stórstjörnum á við Octaviu Spencer, Kate Hudson, Aaron Paul og Lizzy Caplan. Lokaþátturinn verður frumsýndur á streymisveitunni í dag. Lífið 8. október 2021 17:01
Dýrið frumsýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum í dag Íslenska kvikmyndin Dýrið. eða Lamb eins og hún heitir erlendis, verður sýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum í dag. Aldrei áður hefur íslensk kvikmynd fengið jafn mikla almenna dreifingu vestanhafs. Lífið 8. október 2021 16:31
Lukkudýr Seahawks klóraði stuðningsmann í höfuðið Stuðningsmaður NFL-liðsins Seattle Seahawks komst í full mikið návígi við lukkudýr liðsins á meðan leiknum gegn Los Angeles Rams stóð. Sport 8. október 2021 15:01
Chappelle sakaður um transfóbíu Forsvarsmenn Netflix eru undir þrýstingi um að fjarlægja nýjustu sýningu grínistans Dave Chappelle af streymisveitunni vegna ummæla hans um trans-fólk. Í sýningunni, sem heitir The Closer, lýsir Chappelle yfir stuðningi við rithöfundinn JK Rowling, sem hefur einnig verið sökuð um transfóbíu, og sagði kyn vera staðreynd. Erlent 8. október 2021 14:48
Mælt með að nauðgunarmáli gegn Ronaldo verði vísað frá Dómari í Bandaríkjunum mælir með því að einkamál konu gegn Cristiano Ronaldo vegna nauðgunar verði vísað frá dómi. Lögmaður knattspyrnumannsins fagnar tillögunni. Erlent 8. október 2021 12:05
Óvænt símtal um einangrun á síðustu stundu framlengdi draumafríið á Íslandi Draumafrí bandarísku hjónanna John og Kimberly Moran hér á landi var óvænt framlengt um tvær vikur, eftir að þau greindust með Covid-19 rétt áður en þau áttu að fara í flug heim. Innlent 8. október 2021 10:53
Kínverjar fámálir um fregnir af bandarískum hermönnum í Taívan Kínverjar kölluðu eftir því í morgun eftir því að Bandaríkin slitu hernaðarleg tengsl sín við Taívan. Það er eftir fréttaflutning um að bandarískir landgönguliðar og sérveitarmenn hafi verið staðsettir á Taívan í meira en ár. Erlent 8. október 2021 10:22