Bandarískir hermenn flykkjast burt frá Afganistan Bandarískir hermenn eru nú á heimleið frá Afganistan í þúsundatali, afturköllun hermannanna er liður í friðarsamningi Bandaríkjanna og Talíbana sem undirritaður var í lok síðasta mánaðar. Erlent 10. mars 2020 00:20
Tveir sóru embættiseið sem forseti Afganistans Deilur standa enn yfir um hver er lögmætur forseti Afganistans. Ashraf Ghani, sitjandi forseti, og Abdullah Abdullah, helsti keppinautur hans, sóru báðir embættiseið í dag. Erlent 9. mars 2020 14:34
ICC mun rannsaka meinta stríðsglæpi í Afganistan Alþjóðasakamáladómstóllinn (ICC) hefur úrskurðað að rannsókn á meintum stríðsglæpum og glæpum gegn mannkyninu í Afganistan megi fara fram. Erlent 5. mars 2020 10:42
Fyrstu loftárásirnar gegn Talibönum í ellefu daga Bandaríkin gerðu í dag fyrstu loftárásina gegn Talibönum í Afganistan í ellefu daga. Fylkingarnar skrifuðu nýverið undir friðarsamkomulag en loftárásin í dag er sögð hafa verið varnarlegs eðlis. Erlent 4. mars 2020 12:21
Talibanar boða frekari árásir þrátt fyrir friðarsamning Snurða virðist þegar hlaupin á þráðinn í samkomulagi sem Bandaríkjastjórn gerði við talibana um helgina. Talibanar ætla ekki að taka þátt í frekari viðræðum fyrr en afgönsk stjórnvöld sleppa 5.000 liðsmönnum þeirra sem forseti landsins kannast ekki við að hafa fallist á. Erlent 2. mars 2020 16:51
Afganski forsetinn hafnar samkomulagi um fangaskipti Forseti Afganistan segir það ekki rétt að ríkið hafi lofað að frelsa 5000 Talíbana úr fangelsum ríkisins líkt og haldið er fram í friðarsamningi milli Bandaríkjanna og Talíbana. Erlent 1. mars 2020 09:58
Bandarískir hermenn úr landi eftir 14 mánuði Bandaríkin og bandamenn þeirra heita því að draga allan herafla sinn frá Afghanistan eftir fjórtán mánuði standi Talibanar við loforð sem gefin eru í nýjum samningi sem undirritaður var í dag. Erlent 29. febrúar 2020 14:04
Hafa samið við Talibana um frið Bandaríkin hafa gert samkomulag við Talibana um að draga úr átökum í ríkinu stríðshrjáða á næstu sjö dögum. Svo verði skrifað undir friðarsáttmála að því tímabili loknu. Erlent 21. febrúar 2020 13:04
Ashraf Ghani áfram forseti Ashraf Ghani bar sigur úr býtum í forsetakosningunum í Afganistan og verður því áfram forseti landsins. Erlent 18. febrúar 2020 13:25
Mannfall í skotbardaga á milli bandarískra og afganskra hermanna Nokkrir bandarískir hermenn eru sagðir látnir eftir skotbardaga í Afganistan í kvöld. Enn er óljóst hvað gerðist en skotbardaginn var á milli bandarískra hermanna og afganskra. Erlent 8. febrúar 2020 22:59
Staðfesta að herflugvél fórst í Afganistan Ekkert liggur fyrir varðandi jdauðsföll en blaðamaður á svæðinu segist hafa séð tvö lík og að talið sé að tveir hafi lifað slysið af. Erlent 27. janúar 2020 19:00
Enn margt á reiki varðandi meint flugslys Bandaríski herinn hefur blandað sér í rannsókn á flugslysi sem sagt er hafa átt sér stað í Afganistan í dag. Lítið sem ekkert liggur fyrir um afdrif flugvélarinnar. Erlent 27. janúar 2020 14:52
Farþegaþota sögð hafa hrapað í Afganistan Farþegaþota á vegum Ariana, ríkisflugfélags Afganistans, er sögð hafa hrapað til jarðar skömmu eftir hádegi að staðartíma í morgun. Erlent 27. janúar 2020 10:50
Ghani virðist hafa unnið nauman sigur í Afganistan Endanleg úrslit úr forsetakosningunum í september liggja þó enn ekki fyrir. Erlent 22. desember 2019 09:47
Trump fór í óvænta heimsókn til Afganistan Bandarískir hermenn sem fagna þakkagjörðarhátíðinni á Bagram herstöðinni í Afganistan fengu óvæntan gest Bandaríkjaforseti sjálfur, Donald Trump, heiðraði herliðið með nærveru sinni. Erlent 28. nóvember 2019 21:06
Tveimur gíslum Talibana sleppt úr haldi eftir rúm þrjú ár Talibanar hafa sleppt tveimur vestrænum gíslum sem hafa verið í haldi þeirra frá 2016. Það var gert í skiptum fyrir þrjá leiðtoga Talibana sem var sleppt var úr haldi ríkisstjórnar Afganistan. Erlent 19. nóvember 2019 11:47
Trump náðar hermenn sakaða um og dæmda fyrir stríðsglæpi Hvíta húsið tilkynnti í gærkvöldi að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði gripið inn í mál þriggja hermanna sem hafa verið sakaðir og jafnvel dæmdir fyrir stríðsglæpi. Forsvarsmenn herafla Bandaríkjanna voru hins vegar á móti aðgerðunum. Erlent 16. nóvember 2019 19:05
Afganskar hersveitir sakaðar um stríðsglæpi Í nýrri skýrslu Human Rights Watch er því haldið fram að afganskar hersveitir hafi framið ódæði í landinu síðustu misseri sem jafnist á við stríðsglæpi. Erlent 31. október 2019 09:01
Einn æðsti leiðtogi al-Qaeda drepinn í aðgerðum Bandaríkjanna og Afganistan Einn æðsti leiðtogi al-Qaeda var drepinn í sameiginlegri hernaðaraðgerð Afganistan og Bandaríkjanna í síðasta mánuði. Þetta segir í tilkynningu frá leyniþjónustu Afganistan (NDS). Erlent 8. október 2019 18:51
Ghani og Abdullah lýsa báðir yfir sigri Höfuðandstæðingarnir í afgönsku forsetakosningunum hafa báðir lýst yfir sigri í forsetakosningunum sem fram fóru í landinu á laugardag. Erlent 30. september 2019 13:40
Efast um trúverðugleika kosninganna Þrátt fyrir að Talibanar hafi hótað árásum á kjörstaði og víðar vegna forsetakosninga í Afganistan, er útlit fyrir að ásakanir um svindl og misferli komi frekar niður á kosningunum. Erlent 28. september 2019 17:34
Afganir kjósa sér forseta í skugga ofbeldis Talibanar hótuðu kjósendum illum afleiðingum ef þeir tækju þátt í forsetakosningunum í dag. Þeir hafa staðið fyrir nokkrum minni árásum í dag en kjörsókn er sögð hafa verið lítil. Erlent 28. september 2019 12:09
Óttast árásir Talíbana á kjörstaði Forsetakosningar fara fram í Afganistan á morgun. Ashraf Ghani gefur kost á sér til endurkjörs. Erlent 27. september 2019 18:45
Á fjórða tug brúðkaupsgesta féll í aðgerðum hersins Árás stjórnarhersins beindist að næsta húsi þar sem talibanar voru sagðir þjálfa sjálfsmorðsárásarmenn. Erlent 23. september 2019 16:09
Afgana saknað eftir að drónaárás felldi þrjátíu bændur Bandarískur erindreki staðfesti árásina en ekki tölu látinna. Erlent 19. september 2019 19:00
Þrjátíu féllu í drónaárás Bandaríkjahers í Afganistan Vinnufólk á hnetufuruekru er sagt hafa orðið fyrir drónaárás Bandaríkjahers fyrir misgáning. Árásin hafi átt að beinast að felustað Ríkis íslams. Erlent 19. september 2019 11:22
Sprengdi sig í loft upp á kosningafundi forsetans Minnst 24 eru látnir og 31 særður eftir að maður á mótorhjóli sprengdi sig í loft upp á kosningafundi Ashraf Ghani, forseta Afganistan, í norðurhluta landsins í morgun. Erlent 17. september 2019 10:21
Bandaríkjaforseti staðfestir að sonur bin Laden hafi verið drepinn Í yfirlýsingu Donald Trump Bandaríkjaforseta kemur fram að Hamza bin Laden, sonur stofnanda Al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé látinn. Erlent 14. september 2019 14:00
Sagði Trump hafa viljað horfa í augun á Talibönum Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, mætti í fimm spjallþætti á fréttastöðvum Bandaríkjanna í dag og verði bæði þá ákvörðun Trump að bjóða Talibönum til Bandaríkjanna og það að hætta við fundinn og stöðva friðarviðræður. Erlent 8. september 2019 18:35
Hætti við leynilega heimsókn Talibana til Bandaríkjanna Forsetinn segist einnig hafa stöðvað friðarviðræður í Afganistan vegna árásar Talibana þar sem bandarískur hermaður og ellefu almennir borgarar féllu. Erlent 7. september 2019 23:30