Fleiri fréttir Hilmari Björnssyni sagt upp Hilmari Björnssyni, dagskrárstjóra Skjás eins, var sagt upp störfum í gær. Hann hafði verið dagskrárstjóri frá því um mitt ár 2011 og þar áður sjónvarpsstjóri á sjónvarpsstöðinni Sýn og á Stöð 2 Sport. 11.7.2013 07:00 Arðgreiðslunni ekki rift - þarf ekki að endurgreiða fjóra milljarða Pálmi Haraldsson var sýknaður í fjórum málum þrotabúss Fons gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hæsta upphæðin sem skiptastjóri þrotabúsins vildi að yrði rift, og endurgreidd að auki, voru fimm greiðslur upp á rúma fjóra milljarða til Matthews Holding SA. 10.7.2013 16:04 Græn framtíð endurnýtir fyrir stærsta tryggingafélag Skandinavíu Græn framtíð hefur samið við Mondux, eitt stærsta tryggingafélag Skandinavíu, um endurnýtingu á smáraftækjum sem viðskiptavinir skila inn vegna tjóna. 10.7.2013 15:16 Fyrstur Íslendinga til að hljóta Microsoft vottun Gísli Guðmundsson, kerfisstjóri hjá Advania, er fyrstur Íslendinga til að fá "Microsoft Most Valuable Professional“ (MVP) vottunina sem Microsoft veitir árlega notendum hugbúnaðar frá Microsoft. 9.7.2013 15:15 Bensínlítrinn hækkar um fjórar krónur Olíufélögin hækkuðu verð á olíu og bensíni í morgun, hvora tegund um fjórar krónur á lítrann. Bensínlítrinn er aftur kominn yfir 250 króna markið, eða í 251,10 og dísillítrinn er kominn hátt í 249 krónur. 9.7.2013 10:37 Sérstakur saksóknari ákærir Wernersbræður Kaup Milestone á hlut Ingunnar Wernersdóttur í félaginu eru talin umboðssvik af sérstökum saksóknara. Bræður hennar, Karl og Steingrímur, hafa verið ákærðir ásamt Guðmundi Ólasyni forstjóra og þremur endurskoðendum. 9.7.2013 07:30 Bleikjueldið vex hjá Þingeyingum Umhverfisstofnun veitti fyrirtækinu Haukamýri í Norðurþingi starfsleyfi fyrir 450 tonna bleikjueldi í gær. Nú þegar framleiðir fyrirtækið 200 tonn árlega. Nær öll framleiðslan er til útflutnings. 9.7.2013 07:00 Volkswagen í Danmörku kaupir helminginn í Heklu
Sjá næstu 50 fréttir
Hilmari Björnssyni sagt upp Hilmari Björnssyni, dagskrárstjóra Skjás eins, var sagt upp störfum í gær. Hann hafði verið dagskrárstjóri frá því um mitt ár 2011 og þar áður sjónvarpsstjóri á sjónvarpsstöðinni Sýn og á Stöð 2 Sport. 11.7.2013 07:00
Arðgreiðslunni ekki rift - þarf ekki að endurgreiða fjóra milljarða Pálmi Haraldsson var sýknaður í fjórum málum þrotabúss Fons gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hæsta upphæðin sem skiptastjóri þrotabúsins vildi að yrði rift, og endurgreidd að auki, voru fimm greiðslur upp á rúma fjóra milljarða til Matthews Holding SA. 10.7.2013 16:04
Græn framtíð endurnýtir fyrir stærsta tryggingafélag Skandinavíu Græn framtíð hefur samið við Mondux, eitt stærsta tryggingafélag Skandinavíu, um endurnýtingu á smáraftækjum sem viðskiptavinir skila inn vegna tjóna. 10.7.2013 15:16
Fyrstur Íslendinga til að hljóta Microsoft vottun Gísli Guðmundsson, kerfisstjóri hjá Advania, er fyrstur Íslendinga til að fá "Microsoft Most Valuable Professional“ (MVP) vottunina sem Microsoft veitir árlega notendum hugbúnaðar frá Microsoft. 9.7.2013 15:15
Bensínlítrinn hækkar um fjórar krónur Olíufélögin hækkuðu verð á olíu og bensíni í morgun, hvora tegund um fjórar krónur á lítrann. Bensínlítrinn er aftur kominn yfir 250 króna markið, eða í 251,10 og dísillítrinn er kominn hátt í 249 krónur. 9.7.2013 10:37
Sérstakur saksóknari ákærir Wernersbræður Kaup Milestone á hlut Ingunnar Wernersdóttur í félaginu eru talin umboðssvik af sérstökum saksóknara. Bræður hennar, Karl og Steingrímur, hafa verið ákærðir ásamt Guðmundi Ólasyni forstjóra og þremur endurskoðendum. 9.7.2013 07:30
Bleikjueldið vex hjá Þingeyingum Umhverfisstofnun veitti fyrirtækinu Haukamýri í Norðurþingi starfsleyfi fyrir 450 tonna bleikjueldi í gær. Nú þegar framleiðir fyrirtækið 200 tonn árlega. Nær öll framleiðslan er til útflutnings. 9.7.2013 07:00
Drómi gæti talist brotlegur Fjármálaeftirlitið vinnur nú að sérstakri athugun sem snýr að viðskiptaháttum Dróma og hvort félagið brjóti lög með því að krefja lántakendur um mismun á láni sem áður hefur verið endurreiknað. 9.7.2013 07:00
Furðuleg íslensk símaauglýsing vekur athygli "Við gleðjumst yfir þessari velgengni, þetta hefur farið fram úr okkar björtustu vonum,“ segir Sveinn Tryggvason, rekstrarverkfræðingur og framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu Tæknivörum sem standa að baki Samsung-auglýsingu sem hefur vakið heimsathygli. 8.7.2013 16:08
FME skoðar viðskiptahætti Dróma Frosti Sigurjónsson formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis upplýsir á heimasíðu sinni að Fjármálaeftirlitið vinni nú að sérstakri athugun sem snúi meðal annars að viðskiptaháttum Dróma hf. 8.7.2013 15:56
Fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍLS: Skýrslan full af slúðri og Gróusögum Guðmundur Bjarnason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir höfunda rannsóknarskýrslu um Íbúðalánasjóð hafa fallið í þá gryfju að fylla skýrsluna af slúðri, Gróusögum og hálfsannleik. 8.7.2013 15:43
Uppfærslan kostar 2,4 milljarða Landsvirkjun hefur samið við portúgalska fyrirtækið Efacec Energia um framleiðslu á vélaspennum í Búrfellsvirkjun.Í umfjöllun á fréttavef Electric Light & Power er samningurinn verðmetinn á 19 milljónir Bandaríkjadala, eða sem svarar 2,4 milljörðum króna. 8.7.2013 07:00
Lífeyrisjóðirnir hugleiða kaup á Hampiðjureitnum Nokkrir lífeyrissjóðir kanna nú hvort fýsilegt sé að fjárfesta í leiguíbúðarhúsnæði á Hampiðjureitnum. Um er að ræða 139 íbúðir og hljóðar fjárfestingin upp á 4,3 milljarða króna. Fjármálafyrirtækið Centra hefur gert samning um kaupin og eru bjartsýnirum að lífeyrissjóðirnir eigi eftir að kom með fjármagn inní verkefnið. 8.7.2013 07:00
Búið að laga stjórnskipulag Eirar Í nýrri skýrslu Deloitt um hjúkrunarheimilið Eir eru gerðar alvarlegar athugasemdir við stjórnskipulag og stjórnarhætti Eirar. Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Eirar, segir fátt hafa komið á óvart í þeim ábendingum. 8.7.2013 07:00
"Það felst ranglæti í því að fólk borgar mismunandi fasteignagjöld" Hafnarfjarðarbær hefur orðið af hundruðum milljóna vegna rangrar skráningar fasteignagjalda og íbúum og fyrirtækjum er mismunað í innheimtu. Varabæjarfulltrúi segir eftirlit hafa brugðist. 7.7.2013 18:45
Tveir voru með allar tölur réttar Tveir heppnir voru með allar tölur réttar í lottóinu og fá fyrir vikið rúmar 28 milljónir króna hvor. 6.7.2013 19:47
Rannsókn lögreglu víkkuð út Í nýrri skýrslu Deloitte eru sagðar líkur á að greiðslur til fyrrverandi stjórnenda Hjúkrunarheimilisins Eirar hafi verið óeðlilegar. Sérstakur saksóknari kallaði í vor eftir frekari gögnum vegna eigin rannsóknar á Eir. 6.7.2013 07:00
Landsbankinn búinn að leiðrétta endurreikning Landsbankinn hefur lokið við leiðrétta endurreikning meginþorra þeirra gengistryggðu húsnæðislána sem fordæmi Hæstaréttardóma eiga við um, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum. 5.7.2013 16:24
Tilboðum tekið fyrir þrjá milljarða Tilboðum var tekið fyrir þrjá milljarða króna í útboði Arion banka á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa sem lauk í dag. Flokkurinn nefnist "Arion CBI 19“. 5.7.2013 16:24
Arion banki lýkur skuldabréfaútboði Arion banki hf. lauk í dag útboði á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa, Arion CBI 19. Í heild bárust tilboð upp á 3.720 milljónir kr. og tekið var tilboðum fyrir 3.000 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 2,84%. 5.7.2013 16:22
Ekki búið að taka ákvörðun hvort forsvarsmenn Eirar verði kærðir "Það er búið að breyta skipulaginu, stjórn Eirar hefur samþykkt það og nú bíður það samþykktar hjá sýslumanninum á Sauðárkróki,“ segir Sigurður Rúnar Sigurjónsson, starfandi framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Eirar. 5.7.2013 14:50
Forstjórinn stökk úr flugvél til að kynna 4G þjónustuna Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone, kom í gær svífandi niður í fallhlíf við bæinn Jórvík rétt við Selfoss en mastur í eigu fyrirtækisins er við bæinn. Með því fagnaði hann þeim áfanga að 4G kerfi fyrirtækisins var formlega tekið í notkun. 5.7.2013 14:45
Svört skýrsla um Eir: Sagðir hafa eytt milljónum í utanlandsferðir Í skýrslu sem endurskoðunarfyrirtækið Deloitte gerði um rekstur hjúkrunarheimilsins Eirar kemur meðal annars fram að forstjóri heimilisins Sigurður Helgi Guðmundsson, auk fjármálastjórans, hafi nýtt tæplega þrjár milljónir króna af fé heimilisins í flugferðir, gistingu og veitingar erlendis. 5.7.2013 14:00
Suð dregur úr fyrirsjáanleika Vísbendingar eru um árstíðabundnar sveiflur á gengi krónunnar, að því er fram kemur í nýjum Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka. 5.7.2013 12:40
Seldum gistinóttum fjölgar Sextán prósenta aukning var milli ára á fjölda seldra gistinátta á hótelum landsins í maí. Þær voru 161.300 á þessu ári, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. 5.7.2013 09:30
Fengu milljarða lán hjá Íbúðalánasjóði þrátt fyrir að uppfylla ekki skilyrði Eigendur Fasteignafélags Austurlands ehf. greiddu sér 430 milljóna króna arð vegna uppbyggingar á Austurlandi án þess að verkefnið sjálft væri arðbært. Félagið lýsti sig gjaldþrota og skildi Íbúðalánasjóð eftir í 2,2 milljarða króna skuld. 5.7.2013 09:30
Hagnaður eykst hjá 365 miðlum Hagnaður 365 miðla ehf. jókst um 22% á milli ára, eða 305 milljónir króna fyrir árið 2012. 4.7.2013 19:18
Íbúðaverð hækkar - er á pari við húsnæðisverð árið 2004 Íbúðaverð á landinu hækkaði um 0,86% að nafnvirði og 0,3% að raunvirði milli maí og júní samkvæmt nýlegum tölum Hagstofunnar. Hefur húsnæðisverð þá hækkað um 3,4% á öðrum ársfjórðungi og raunverðið um 2,7%. Þetta kemur fram í morgunkorni Íslandsbanka. 4.7.2013 13:54
Vilja flytja inn erfðaefni nauta Þegar á að hefjast handa um að skapa aðstöðu til að flytja inn nýtt erfðaefni til innblöndunar í íslenska holdanautastofninn. Þetta er meðal þess sem starfshópur um eflingu nautakjötsframleiðslunnar leggur til. 4.7.2013 13:28
Engin verktakaflétta síðustu þrjú ár Verktakar hafa ekki nýtt sér galla í reglum Íbúðalánasjóðs til þess að græða á byggingu íbúða frá árinu 2010 samkvæmt upplýsingum frá Íbúðalánasjóði. 4.7.2013 13:21
Gallaðar reglur voru gróðaleið verktaka Umgjörð um lánamál Íbúðalánasjóðs til leigufélaga er stórgölluð og gerir verktökum kleift að græða. Sjóðurinn veitti milljarða lán til leigufélaga án þess að kanna jarðveg slíkra fjárfestinga. Verktakar græddu á því að reisa tómar íbúðir. 4.7.2013 13:00
Segir ótta um Hellisheiðarvirkjun óþarfan Formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis segir það ekki koma á óvart að framleiðslugeta Hellisheiðarvirkjunar sé undir væntingum og óþarfi að óttast það. 4.7.2013 11:51
Lesendur vilja íslenskan skáldskap Landsmenn vilja íslenskar kiljur í sumarfríinu samkvæmt samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar sem tekur saman vinsælustu kiljurnar þessa stundina. 4.7.2013 10:08
Traust almennings á fjármálafyrirtækjum eykst verulega Um 59% Íslendinga eru jákvæðir gagnvart sínum aðalviðskiptabanka og um 56% jákvæðir gagnvart sínu aðaltryggingafélagi. Þetta sýna niðurstöður könnunar sem markaðsrannsóknafyrirtækið MMR gerði fyrir Samtök fjármálafyrirtækja í júní. 4.7.2013 09:59
Vöruskiptahalli 1,1 milljarður í maí Vöruskipti við útlönd í nýliðnum mánuði voru óhagstæð um 1,1 milljarð króna, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. 4.7.2013 09:14
Kostir fleiri en gallar fyrir níu af tíu Aðild að ESB yrði ekki vandamál fyrir sjávarútveginn að því gefnu að lokað yrði á rányrkju og skilyrði sett um ráðstöfun arðs. Doktor í stjórnmálahagfræði segir mesta andstöðu við aðild koma frá þeim sem lifi af styrkjum og njóti tollverndar. 4.7.2013 07:00
"Afl kaupfélagsins var svo gífurlegt, allsráðandi, að maður varð að millifæra þessa peninga“ Kristján Hjelm, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Hólahrepps lýsir því í rannsóknarskýrslu Alþingis um Íbúðalánasjóðs, að honum hafi verið hótað brottrekstri ef hann millifærði ekki fé sem Íbúðalánasjóður hafði lagt inn á reikning sparisjóðsins, en upphæðin voru rúmar 16 milljónir króna. 3.7.2013 16:21
Lárus og Guðmundur segjast ekki hafa samþykkt lánið Birkir Kristinsson tók 3,8 milljarða lán til að kaupa hlutabréf í Glitni, svo að bankinn gæti gert upp framvirkan samning við Gnúp, sem Birkir átti 28% í. Lárus Welding segist ekki hafa komið nálægt lánveitingunni. 3.7.2013 13:00
Birkir og Elmar sendir í leyfi Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson hafa verið settir í leyfi frá störfum sínum í Íslandsbanka samkvæmt heimildum fréttastofu. 3.7.2013 12:35
Viðskiptavinir Dróma í mikilli óvissu Hópur viðskiptavina Dróma er í mikilli fjárhagslegri óvissu vegna fyrirvara sem fyrirtækið hefur gert við endurútreikning gengistryggðra lána og heldur jafnvel eftir veðrétti í eignum viðskiptavina sem greitt hafa upp lán að loknum endurútreikningum. 3.7.2013 12:10
Enn deilt um virði Hörpunnar - dómkvaddir matsmenn komnir í málið Héraðsdómur hefur fallist á kröfu rekstrarfélags Hörpu um að hlutlausir matsmenn verði kvaddir til þess að meta verðmæti Hörpunnar. Niðurstaða matsmanna getur skipt sköpum um fasteignagjöld Hörpu sem í dag eru að sliga reksturinn. 3.7.2013 11:33
Birkir samdi við slitastjórn Glitnis Birkir Kristinsson samdi við slitastjórn Glitnis um að endurgreiða tugmilljóna hagnað sinn af hlutabréfaeign í bankanum, sem saksóknari telur ólögmætan. Honum hefur því ekki verið stefnt til greiðslu skaðabóta eins og tveimur öðrum sakborningum. 3.7.2013 11:30
Ákærðu enn við störf hjá Íslandsbanka Þeir Birkir Kristinsson og Elmar Svavarsson, starfa báðir enn hjá Íslandsbanka, þrátt fyrir að þeir hafi verið ákærðir ásamt tveimur öðrum mönnum, fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum um ársreikninga í tengslum við 3,8 milljarða króna lánveitingu Glitnis til félags í eigu Birkis. 3.7.2013 11:25
Sumarbústaðaeigendur fá 4G háhraðanet Bæði Nova og Vodafone munu bjóða upp á 4G háhraðanetsamband í Skorradal og Grímsnesi í sumar. 3.7.2013 10:14