Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Eiður Þór Árnason skrifar 5. maí 2026 18:03 Helga Rún Jóhannsdóttir, eigandi Padel Palma, og Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, eftir að samkomulag var gert um notkun íþróttahússins. Helga stóð óvænt ein í upphafi og þurfti að kalla til ættingja og alla smiði sem hún þekkti. Aðsend/samsett Helga Rún Jóhannsdóttir þurfti að taka málin í sínar eigin hendur þegar seinkun á afhendingu vörugáms leiddi til þess að hópur erlendra verkamanna gat ekki sett upp padelvöllinn hennar á Reyðarfirði. Hann verður sá fyrsti á Íslandi utan höfuðborgarsvæðisins. Helga starfaði áður erlendis fyrir eitt stærsta fjárfestingarfyrirtæki heims en vill núna sinna verkefnum sem þjóna betur samfélaginu.
Hún kemur úr Kópavogi, sem mætti kalla padelhöfuðborg Íslands, og segir vini sína hafa furðað sig á því að til stæði að setja upp padelvöll í litla samfélaginu á Austfjörðum. „Ég held að það sé bara brjálaður markaður fyrir padel, það elska allir þessa íþrótt,“ segir Helga í samtali við Vísi. Padel hefur verið lýst sem ört vaxandi íþrótt sem sameini þætti úr tennis og skvass. Alla jafna spila fjórir leikmenn í einu á svæði sem er minna en tennisvöllur og afgirt með fjögurra metra háum veggjum. Verkefnið tekið mikið á „Ég er bara ein með þetta verkefni en ég fæ bróður minn [Kristin Ómar Jóhannsson] til að hjálpa og fékk alla smiði fjölskyldunnar til að koma. Þannig að ég græja þetta þannig,“ segir Helga. Það var þó ekki alltaf planið. Hún hafði gert ráð fyrir því að njóta ríkulegrar aðstoðar teymis frá Rúmeníu sem sérhæfir sig í uppsetningu padelvalla en þegar vörugámnum með vellinum seinkaði um viku voru góð ráð dýr. „Þannig að erlenda vinnuaflið gat ekki komið. Þetta var smá óvænt svo ég þurfti að læra allt um þetta og verða verkstjóri verkefnisins. Ég ætlaði að fá einhvern fagmann í þetta en svo gekk þetta miklu betur en við héldum.“ Ein af fjölmörgum glerplötum á leið inn í húsið. Hver þeirra er um 200 kílógrömm að þyngd, að sögn Helgu.aðsend Það hafi reyndar komið henni á óvart hversu þungt allt efnið var. „Eitt gler er tvö hundruð kíló og að tæma gáminn var ekkert grín. Það tók lengri tíma en búist var við og allt var svo rosalega þungt. Vinnumenn voru bara algjörlega búnir á því.“ „Þetta virtist ekkert svo flókið í uppsetningu en þetta var líkamlega mjög erfitt verkefni. Við höfðum ekki hugmynd um það. Allt, gervigrasið, glerið, allt stálið í kring, það kom alveg á óvart.“ Vildi síður sitja áfram á skrifstofu Þegar Helga flutti aftur til Íslands eftir um þrjú ár á Bretlandseyjum vildi hún prófa eitthvað nýtt og helst gera eitthvað annað en að sitja á skrifstofu. „Ég var með hugmynd um að gera eitthvað sem hjálpar öðrum, heilsuklúbb eða eitthvað þannig. Svo er ótrúlega mikill markaður fyrir padel.“ Ísak Ármann sem tók þátt í verkefninu í gámnum umtalaða.aðsend „Svo var ég að heimsækja bróður minn sem býr hérna fyrir austan og það var einhver sem heyrði þessa hugmynd sem leist svo ótrúlega vel á og tengdi mig við bæjarráðið hérna í Fjarðabyggð.“ Þar hafi verið mikill áhugi á verkefninu og fljótlega hafi allt byrjað að smella. Ákveðið var að setja upp padelvöll í gamla íþróttahúsinu á Reyðarfirði sem er í miðjum bænum og nálægt grunnskólanum. Verkefninu er ætlað að blása lífi í húsið sem hefur verið í takmarkaðri notkun, að sögn Helgu. „Þetta tengist ótrúlega mikið inn í íþróttastarfið hérna fyrir austan af því að þetta er á sama stað og fótboltavöllur og líka þar sem krakkarnir fara á körfuboltaæfingar. Þetta er allt á sama svæðinu svo það er geggjað.“ Snýst ekki bara um að græða Fyrir stuttu lifði Helga mjög ólíku lífi og starfaði í London og Dublin fyrir Fidelity, eitt stærsta fjárfestingafyrirtæki heims. „Ég var í fjárfestingaheiminum og var að vinna við fjármál en þetta er það sem drífur á daga mína í dag,“ segir Helga og líkir þessum andstæðum við svart og hvítt. Í dag hafi hún gert fyrirtæki sitt Padel Palma að sínu aðalstarfi og flutt austur á land. „Mig langaði alltaf að verða fjárfestir og vinna við fjármál en mér finnst þetta eiginlega skemmtilegra. Þetta er aðeins persónulegra. Hitt snýst svolítið mikið um hver græði mest.“ Völlurinn farinn að taka á sig mynd.aðsend Helga segir augljóst að padel sé að sækja í sig veðrið á Íslandi en Reyðarfjörður hafi ekki endilega verið augljós staðsetning fyrir fyrsta völlinn utan höfuðborgarsvæðisins. Alls voru 1.470 íbúar skráðir í Reyðarfirði um síðustu áramót og 5.230 í sveitarfélaginu Fjarðabyggð sem telur einnig nærliggjandi firði. „Þetta er aðeins öðruvísi markaður heldur en á höfuðborgarsvæðinu. Þetta þarf að blandast vel við það sem er þegar hérna.“ Aðalatriðið sé að byggja upp samfélag í kringum íþróttina. Opnar formlega á föstudaginn Helga segir að íbúar á Reyðarfirði hafi tekið vel í hugmyndina og allir sem hún hafi hitt séu mjög áhugasamir um verkefnið. Ekki er enn búið að opna völlinn formlega en Helga er byrjuð að bjóða grunnskólanemendum í padelkennslu í íþróttatímum. „Það geta allir svo auðveldlega lært þessa íþrótt. Þannig að þetta allavega fer mjög vel af stað.“ Hún leggur áherslu á að um nokkurs konar samfélagsverkefni sé að ræða en ekki hvern annan viðskiptarekstur. Eitt markmiðanna sé að fá fólk á mismunandi aldri til að spila saman. Helga stefnir á formlega opnun í lok þessarar viku eftir að búið er að ganga frá öllum smáatriðum en hún var með kíttið og dúkahnífinn á lofti á meðan hún lýsti fyrirætlununum fyrir blaðamanni. „Ég er á lokasprettinum og það er mjög lítið eftir.“ Til standi að opna formlega föstudaginn 8. maí. Helga segir að stúka sé í íþróttahúsinu sem henti vel fyrir padelmót og aðra viðburði. Þá verði setustofu komið fyrir í húsinu. Stofnaði fyrirtæki sem flytur inn og setur upp padelvelli Helga kynntist padel fyrst í fjölskyldufríi á Spáni og fór síðar í padelkennaranám í Mexíkó sem er vagga íþróttarinnar. „Ég elska Mexíkó og ég elska þessa íþrótt. Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri. Það er geggjað að fá að spila þetta heima og fá að þjálfa þetta líka.“ Fyrirtæki hennar Padel Palma sérhæfir sig í innflutningi og uppsetningu padelvalla. Fleiri verkefni eru fram undan en Padel Palma hefur einnig fest kaup á öðrum velli sem eftir á að setja upp. Helga segir ekki enn liggja fyrir hvar sá völlur verði. Eftir að nýi völlurinn á Reyðarfirði verður formlega opnaður mun fólk geta bókað sér tíma á vefsíðu Padel Palma. Þá verður hægt að gerast meðlimur til að fá ákveðið marga tíma á mánuði og um leið aðgang að viðburðamótum, að sögn Helgu. Alla jafna sé algengt að hópar bóki fasta tíma í padel og spili reglulega saman.
Fjarðabyggð Padel Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira