Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vikuveltan á fasteignamarkaði 1.6 milljarður Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 5. mars til og með 11. mars 2010 var 52. Þar af voru 36 samningar um eignir í fjölbýli, 12 samningar um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.596 milljónir króna og meðalupphæð á samning 30,7 milljónir króna. 12.3.2010 13:33
Skortstaða bankanna gegn krónunni nam 1.000 milljörðum Ein af niðurstöðunum í skýrslu Bjarna Kristjánssonar, sem starfaði sem gjaldeyrissérfræðingur hjá Landsbankanum, er að skortstaða íslensku bankanna gegn krónunni rétt fyrir hrunið 2008 hafi numið vel yfir 1.000 milljörðum kr. 12.3.2010 13:01
Vikur eða mánuðir í nýjan bankastjóra hjá Arion banka Nýr bankastjóri verður ekki skipaður í Arion banka fyrr en ný stjórn bankans verður skipuð og það gætu verið vikur ef ekki mánuðir í það. FME þarf fyrst að staðfesta hæfi stjórnarmanna í Kaupskilum, móðurfélagi Arion banka, og þegar því er lokið verður lögð fram tillaga að nýrri stjórn Arion banka. 12.3.2010 12:18
Algjört brjálæði að borga nafnvexti af niðurfærðum lánum Það er algjört brjálæði að bankarnir rukki vexti af nafnverði lána, þegar búið er að færa lán til heimila niður um helming í bókum bankanna, segir Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Það sé algjört réttlætismál að heimilin fái leiðréttingu á skuldum og þingmönnum beri skylda til að taka á þessum málum. 12.3.2010 12:14
Millibankamarkaður hrökk í gang, krónan styrkist Millibankamarkaðurinn með gjaldeyri hrökk óvænt í gang í gærdag og það er áfram líf á honum í dag. Þetta hefur haft þær jákvæðu afleiðingar að gengi krónunnar hefur styrkst og nemur styrkingin í dag ríflega 0,5%. 12.3.2010 11:32
VÍ vill harðari reglur í frumvarpi um fjármálafyrirtæki Viðskiptaráð Íslands (VÍ) hvetur til aukins eftirlits og eftirfylgni með hertari bankareglum og vill að hluta til ganga lengra en nýlegt frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögumum fjármálafyrirtæki gerir ráð fyrir. 12.3.2010 10:56
Greining spáir 8,5% verðbólgu í mars Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,6% í mars. Gangi spáin eftir hækkar verðbólga úr 7,3% í 8,5%. 12.3.2010 10:41
Microsoft í Bandaríkjunum heiðrar TM Software Microsoft í Bandaríkjunum hefur veitt íslenska hugbúnaðarfélaginu TM Software viðurkenningu sem mikilvægasti samstarfsaðili þess í tæknilausnum í almannaöryggi. Magnús Ingi Stefánsson hjá TM Software tók við viðurkenningunni á ráðstefnu um almannaöryggi sem haldin var í höfuðstöðvum Microsoft í Redmond í Bandaríkjunum. 12.3.2010 10:21
Norrænir ráðherrar rífast um Icesave Mikil óeining er komin upp meðal norrænna ráðamanna um hvort standa eigi fast við þá kröfu að Icesave deilan verði leyst áður en Norðurlöndin reiða fram fjárhagsaðstoð sína til Íslands í gegnum áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). 12.3.2010 09:47
Gistinóttum fjölgaði um 6,6% í fyrra Heildarfjöldi gistinátta var 2,9 milljónir árið 2009, en það er um 6,6% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum fjölgaði milli ára á öllum tegundum gististaða nema hótelum og gistiheimilum, en þar var fjöldi gistinátta svipaður. 12.3.2010 09:23
Sparifé í íslenskum bönkum hleðst upp Sparifé hefur aukist jafnt og þétt síðustu árin og frá mars 2007 til desember 2009 tvöfaldaðist það. Um áramótin voru tæplega sextánhundruð milljarðar á ýmis konar reikningum, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum. 12.3.2010 00:01
Gengi Össurar í hæstu hæðum Gengi hlutabréfa Össurar hækkaði um 2,82 prósent í Kauphöllinni í gær og endaði í 182 krónum á hlut. Gengið hefur aldrei verið hærra í krónum talið. Það hefur hins vegar verið hærra miðað við Bandaríkjadal. 12.3.2010 00:01
Gengi bréfa Bakkavarar féll um tíu prósent Gengi hlutabréfa í Bakkavör féll um tíu prósent í Kauphöllinni í dag en þetta er mesta lækkunin á hlutabréfamarkaði í dag. Á eftir fylgdi gengi hlutabréfa í Century Aluminum, móðurfélagi Norðuráls, sem lækkaði um 0,48 prósent, og gengi bréfa Færeyjabanka, sem lækkaði um 0,32 prósent. 11.3.2010 16:32
Skuldabréfaviðskipti fyrir 7,4 milljarða Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,05% í dag í 7,4 milljarða viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 3 milljarða viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 4,4 milljarða viðskiptum. 11.3.2010 16:11
Mikill hugur í fulltrúum sprotafyrirtækja 300 manns sóttu ársfund Nýsköpunarmiðstöðvar sem haldinn var á Hilton Reykjavík Nordica í morgun. Mikill hugur var í fulltrúum sprotafyrirtækja á fundinum og sögðu fimm frumkvöðlar á frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar frá góði gengi, þar á meðal leikjafyrirtækið Dexoris en Iphone tölvuleikur fyrirtækisins, Audiopuzzle, hefur verið valinn næstbesti tónlistarleikur ársins 2009. 11.3.2010 15:14
Búðarhálsvirkjun - lægsta boð 300 milljónum undir áætlun Sjö tilboð bárust í framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun þegar tilboð voru opnuð í dag. Landsvirkjun gerir ráð fyrir að kostnaður við verkið sem boðið var út sé um átta hundruð milljónir króna. 11.3.2010 15:06
Björn Óli Hauksson ráðinn forstjóri Flug-Kef. Stjórn Flug-Kef ohf. hefur ákveðið að ráða Björn Óla Hauksson forstjóra Keflavíkurflugvallar ohf. sem forstjóra sameinaðs opinbers hlutafélags um rekstur Flugstoða og Keflavíkurflugvallar. 11.3.2010 14:06
Lánastofanir eiga nær 1.500 fasteignir og lóðir Lánastofnanir eiga nú nálægt 1.500 fasteignir og lóðir um allt land. Þar af á Íbúðalánasjóður 384 fasteignir sem að stórum hluta hafa verið yfirteknar frá því bankarnir hrundu í október 2008. 11.3.2010 14:01
VÍ segir fjármagnstekjuskatt hamla endurreisninni Viðskiptaráð Íslands (VÍ) hefur birt nýja skoðun á vefsíðu sinni þar sem hækkun á fjármagnstekjuskatti er gagnrýnd og sögð hamla endurreisn atvinnulífsins. Stjórnvöld séu að vinna hugmyndafræðilega sigra frekar en að leita eftir hagfelldustu leið til lausna. 11.3.2010 13:39
Kortanotkun bendir til að jafnvægi sé að nást í einkaneyslu Ef marka má greiðslukortanotkun landsmanna virðist einkaneysla landans vera að ná einhvers konar tímabundnu jafnvægi eftir mikinn samdrátt undanfarin misseri. 11.3.2010 12:12
Langtímaatvinnulausum heldur áfram að fjölga Í lok febrúar voru alls 16.574 einstaklingar atvinnulausir og hafði um 47% þeirra verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur sem er svipað hlutfall og verið hefur síðustu mánuði. Líkt og við mátti búast þá heldur áfram að fjölga í hópi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en ár. Í lok febrúar voru þeir 4.365 en voru 4.005 í lok janúar. 11.3.2010 11:38
Svikamyllur í Nígeríu nota nafn Íslands til fjársvika Þekktar tölvupóstsvikamyllur sem eiga uppruna sinn í Nígeríu nota nú nafn Íslands til fjársvikatilrauna sinna. Fjallað er um málið á bloggsíðum Reuters. 11.3.2010 11:18
Skipti hf. ræðir við lánadrottna um hraðari endurgreiðslur Skipti hf. (móðurfélag Símans) eiga í viðræðum við lánardrottna félagsins sem miða að því að Skipti greiði lán félagsins hraðar upp en gert er ráð fyrir í lánasamningum. 11.3.2010 10:30
Störe opnar fyrir norskt lán án Icesavesamkomulags Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs hefur dregið úr kröfum sínum gagnvart Íslandi og opnar nú fyrir þann möguleika að Norðmenn láni Íslendingum, í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS), án þess að lausn sé komin í Icesave deilunni. 11.3.2010 09:54
Kvótabreytingum mótmælt á 8 heilsíðum í Viðskiptablaðinu Athygli vekur að átta heilsíðuauglýsingar eru birtar í Viðskiptblaðinu í dag þar sem mótmælt er fyrirhugðum breytingum á kvótakerfinu, það er svokallaðri fyrningarleið. 11.3.2010 09:13
Heildarvelta kreditkorta eykst um 10% milli ára Heildarvelta kreditkorta í febrúar var 24,4 milljarða kr. samanborið við 22,1 milljarða kr. í sama mánuði á síðasta ári, er það rúmlega 10% aukning milli ára. 11.3.2010 08:16
Hagnaður Íslandssjóða 269 milljónir í fyrra Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2009 nam 269 milljónum kr. samanborið við 673 milljónir kr. árið 2008. 11.3.2010 08:11
Björgólfur Thor fallinn af lista Forbes - Mexikani er ríkastur Björgólfur Thor Björgólfsson er ekki lengur á lista Forbes yfir auðugustu menn heims. Mexíkóskur símakóngur er ríkasti maður heims að mati tímaritsins. 11.3.2010 07:02
Lánveitingar Byrs til sérstaks saksóknara Forsvarsmenn sparisjóðsins Byrs hafa sent skýrslu um lánveitingar sparisjóðsins frá árinu 2005 til sérstaks saksóknara og Fjármálaeftirlitsins. Þeir óska eftir því að athugað verði hvort tilefni sé til formlegrar rannsóknar á meintum brotum fyrrverandi stjórnarmanna og lykilstarfsmanna Byrs. 10.3.2010 18:29
Össur hækkaði um 2,61% Hlutabréf í Össuri hækkuðu um 2,61% í Kauphöllinni í dag í átta viðskiptum sem námu alls 44 milljónum króna. 10.3.2010 19:06
Skilanefnd Kaupþings fær tæpa 11 milljarða í Svíþjóð Skilanefnd Kaupþings mun á næstunni fá greiddar 600 milljónir sænskra kr. eða tæplega 11 milljarða kr. Um 80% viðskiptavina Acta Kapitalforvalting hafa fallist á tilboð Kaupþings um endurgreiðslur lána vegna kaupa á skuldabréfum í Lehman Brothers. 10.3.2010 14:26
Um 14.000 viðskiptavinir nýta sér lausnir Arion Banka Samtals hafa um 14000 viðskiptavinir Arion banka nýtt sér lausnir bankans eða opinberu úrræðin sem eru í boði. 10.3.2010 13:48
Forsetinn þrýstir á Breta með Norðurskautsleiðinni Viðskiptablaðið Financial Times segir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands þrýsti nú á Breta að gefa eftir í Icesavedeilunni með því að vísa í fyrirsjáanlega opnun Norðurskautsleiðarinnar. 10.3.2010 12:25
Atvinnuleysið komið í 9,3% Skráð atvinnuleysi í febrúar 2010 var 9,3% eða að meðaltali 15.026 manns og eykst atvinnuleysi um 2,2% að meðaltali frá janúar eða um 321 manns. Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 8,2% eða 13.276 að meðaltali. 10.3.2010 12:01
Áfram er mikil eftirspurn eftir leiguhúsnæði Í febrúar síðastliðnum var alls 744 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst sem er fækkun um tæplega 9% frá sama mánuði í fyrra þegar 815 leigusamningum var þinglýst. Eins og kunnugt er hefur sókn í leiguhúsnæði aukist gríðarlega í kjölfar bankahrunsins. 10.3.2010 11:52
Loðnuvertíðin gaf HB Granda hátt í tvo milljarða Lauslega reiknað gaf loðnuvertíðin HB Granda hátt í tvo milljarða kr. í afurðaverðmæti. Loðnukvóti skipa HB Granda á þessari stuttu loðnuvertíð var um 20.500 tonn. 10.3.2010 10:14
ÍLS eykur útgáfu íbúðabréfa um 8 milljarða í ár Endurskoðuð áætluð útgáfa íbúðabréfa Íbúðalánasjóðs (ÍLS) fyrir árið 2010 til fjármögnunar nýrra útlána er 42 - 50 milljarðar króna sem er hækkun um 8 milljarða kr. frá fyrri tölum. Hækkunin er í samræmi við fyrirhuguð kaup sjóðsins á íbúðalánasafni samanber tilkynningu til Kauphallar frá 5. mars 2010. 10.3.2010 08:22
Hrein eign lífeyrissjóða orðin tæpir 1.800 milljarðar Hrein eign lífeyrissjóða var 1.797 milljarðar kr. í lok janúar sl. og hækkaði um 10,9 milljarða kr. í mánuðinum eða 0,6%. Sé miðað við janúar 2009 hefur hrein eign hækkað um 241 milljarða kr. 10.3.2010 08:09
Erlendar eignir Seðlabankans aukast og skuldir minnka Erlendar eignir Seðlabanka Íslands námu 480 milljarða kr. í lok febrúar samanborið við 475 milljarða kr. í lok janúar 2010. Erlendar skuldir Seðlabanka Íslands voru 201,6 milljarðar kr. í lok febrúar en voru 204 milljarðar kr. í lok janúar 2010. 10.3.2010 08:03
Skilanefnd vann mál og fær aðgang að 100 milljörðum Skilanefnd Landsbankans hefur með dómi í Amsterdam fengið full yfirráð yfir 100 milljarða króna útibúi Landsbankans í Hollandi. Féð á að ganga upp í Icesave. 9.3.2010 18:45
Fá líklegast endurálagningu frá skattyfirvöldum Þúsundir einstaklinga og fyrirtækja sem áttu í afleiðuviðskiptum við gömlu bankana munu að öllum líkindum fá endurálagningu frá skattyfirvöldum, sem nemur tugum milljarða króna. 9.3.2010 21:21
Björgólfsfeðgar segjast hafa greitt lán sín að fullu árið 2005 og tekið ný lán Lán sem Samson fékk frá Búnaðarbanka Íslands hf. vegna kaupa á Landsbanka Íslands hf. var greitt að fullu ásamt áföllnum vöxtum á gjalddaga í apríl árið 2005 eða fyrir nærri 5 árum, segja Björgólfsfeðgar í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér nú undir kvöld. 9.3.2010 20:57
Spánverjar fjölmenna til Íslands með skemmtiferðaskipi Von er á 3.600 spænskum ferðamönnum til Íslands í júlí og ágúst en þá kemur spánska skemmtiferðaskipið Grand Mistral tvisvar sinnum til Reykjavíkur og stoppar í fyrra skiptið í 3 sólarhringa og síðan hefur skipið tveggja daga viðdvöl. 9.3.2010 15:29
Gengi hlutabréfa Bakkavarar féll um rúm sex prósent Gengi hlutabréfa Bakkavarar féll um 6,25 prósent í Kauphöllinni í dag en það er mesta gengislækkun dagsins. Á eftir fylgdi gengi hlutabréfa Færeyjabanka, sem lækkaði um 2,48 prósent, og Marels, sem lækkaði um 1,27 prósent. 9.3.2010 16:28
Skuldabréf aftur í uppsveiflu Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 6,1 milljarða kr. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,1% í 1,8 milljarða kr. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 4,2 milljarða kr. viðskiptum. 9.3.2010 15:52