Microsoft í Bandaríkjunum heiðrar TM Software 12. mars 2010 10:21 Microsoft teymi TM Software.
Microsoft í Bandaríkjunum hefur veitt íslenska hugbúnaðarfélaginu TM Software viðurkenningu sem mikilvægasti samstarfsaðili þess í tæknilausnum í almannaöryggi. Magnús Ingi Stefánsson hjá TM Software tók við viðurkenningunni á ráðstefnu um almannaöryggi sem haldin var í höfuðstöðvum Microsoft í Redmond í Bandaríkjunum.Í tilkynningu segir að viðurkenning TM Software er fyrir upplýsingavefgátt sem félagið hefur þróað fyrir Sameinuðu þjóðirnar í samvinnu við Microsoft. Vefgáttin, sem nefnist oneresponse.info, er notuð til þess að samræma hjálparstarf, neyðaraðstoð og þróunarstarf á vegum Sameinuðu þjóðanna og samstarfsaðila.Lausnin var meðal annars notuð af heilbrigðisyfirvöldum í Mexíkó í kjölfar útbreiðslu H1N1 veirunnar á síðasta ári og við samræmingu á hjálparstarfi vegna jarðskjálfta á Haíti í upphafi ársins.Gísli Ólafsson, tæknilegur ráðgjafi hjá Microsoft Corporation, sem jafnframt er í alþjóðlegu neyðaraðstoðarteymi Microsoft, segir að TM Software hafi á síðustu árum unnið náið með Microsoft við að aðstoða stjórnvöld og alþjóðastofnanir víða um heim við að samhæfa viðbrögð við náttúruhamförum og farsóttum með aðstoð upplýsingatækni.„TM Software hefur mikla þekkingu í uppsetningu á slíkum samskiptalausnum og vakið athygli fyrir öguð vinnubrögð og fagmennsku í sínum störfum. Það er því mikill heiður að veita TM Software slíka viðurkenningu sem þakklæti fyrir þeirra óeigingjarna starf," segir Gísli.TM Software er hluti af Nýherja samstæðunni.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Sjá meira