Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lán færð í 110% af virði eigna Landsbankinn kynnir úrræði fyrir fólk með húsnæðislán hjá bankanum. 5.1.2010 00:01
Business.dk: Ísland gæti orðið efnahagslegt svarthol „Ákvörðunin gæti steypt Íslandi niður í efnahagslegt svarthol," segir m.a. í umfjöllun á vefsíðunni business.dk um þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands að hafna Icesave frumvarpinu. Fyrirsögnin á frétt business.dk um málið er eitthvað á þá leið að Ísland gæti endað sem fjárhagslegur útkjálki í heiminum (finansparia). 5.1.2010 13:21
Seinagangur eitt þúsund kröfuhafa Slitastjórn Kaupþings hafa borist rúmlega eitt þúsund kröfur eftir að sex mánaða frestur til að lýsa kröfum í bankann rann út fyrir tæpri viku. Þrátt fyrir rúman tíma til að senda inn kröfurnar eru mörg bréfanna dagsett á milli jóla og nýárs. Leiða má líkum af því að slæmt veður víða í Evrópu undanfarnar vikur hafi haft áhrif á að umrædd bréf bárust ekki fyrr en fresturinn var runnin út. Samkvæmt heimildum fréttastofu er að megninu til ekki um að ræða háar kröfur. 4.1.2010 21:11
Tilraunir þrotabús Baugs gætu haft þveröfug áhrif Tilraunir þrotabús Baugs til að lækka kröfu Straums í þrotabúið gætu að endingu haft þveröfug áhrif. Þrotabúið kallaði eftir nýju verðmati á íslensku hugbúnaðarfyrirtæki sem gerði risasamning við Microsoft sem reyndist svo vera lægra en upphaflegt mat. Baugur var aðaleigandi fyrirtækisins áður en Straumur tók það yfir. 4.1.2010 19:00
Slitastjórnin höfðar hugsanlega mál gegn stjórnendum Kaupþings Slitastjórn Kaupþings er að kanna hvort forsendur séu fyrir skaðabótamáli gegn fyrrverandi stjórnendum bankans, meðal annars Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra og Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni. Beðið er eftir hvort niðurstaða rannsóknar endurskoðunarfyrirtækisins PriceWaterhouseCoopers leiði í ljós hvort þeir hafi brotið hlutafélagalög. 4.1.2010 18:34
Nauðasamingar SPM hafa öðlast gildi Nauðasamningar Sparisjóðs Mýrasýslu (SPM) sem hérðasdómur Vesturlands staðfesti þann 15. desember s.l. var ekki áfrýjað til Hæstaréttar og hafa þeir því öðlast gildi. 4.1.2010 17:25
Sement hækkar um 8 prósent Sement hækkar um átta prósent en samkvæmt tilkynningu sem Sementserksmiðjan hf. sendi frá sér þá er ástæðan miklar verðhækkanir á erlendum aðföngum og nýsamþykktar auknar skattaálögur á íslenskt atvinnulíf sem hafa umtalsverð áhrif á framleiðslukostnað og dreifingu sements. Í ljósi þess hefur Sementsverksmiðjuna hf. hækkað sementsverð um 8% frá og með mánudeginum 4. janúar 2010. 4.1.2010 16:10
Veltan í Kauphöllinni 11,2 milljarðar á dag í fyrra Heildarvelta 2009 hjá Kauphöllinni var 2.776 milljarðar kr. sem jafngildir 11,2 milljarða kr. veltu á dag. Rúm 98% veltunnar var með skuldabréf og er því meðal dagsveltan með skuldabréf tæpir 11 milljarðar kr. 4.1.2010 15:57
Hæsta krafan í Kaupþing nemur 200 milljörðum Hæsta krafan í Kaupþing nemur 200 milljörðum kr. en sú lægsta nemur 250 kr. Kröfur í Kaupþing hafa borist frá 111 löndum en flestar þeirra koma frá Þýskalandi. 4.1.2010 15:20
Glitnir áfrýjar upplýsingaúrskurði varðandi risalán án veða Skilanefnd Glitnis hefur áfrýjað úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar Íslands um að bankanum sé skylt að afhenda Vilhjálmi Bjarnasyni, lektor og fjárfesti, upplýsingar um 24 milljarða króna veðlaust lán Glitnis til fjárfestingarfélagsins Fons. Þrotabú Fons þarf hins vegar ekki að afhenda Vilhjálmi sambærileg gögn. 4.1.2010 14:50
Lánasjóður sveitarfélaga vill afla 7-9 milljarða til nýrra útlána Áætluð útgáfa skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga árið 2010 til fjármögnunar nýrra útlána er 7 til 9 milljarðar króna. 4.1.2010 14:04
NSA kaupir 35% af hlutafé í Kerecis ehf. Lækningavörufyrirtækið Kerecis ehf. og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA) tilkynntu í dag um undirritun fjárfestingarsamnings. Samkvæmt samningnum mun NSA kaupa 35% í Kerecis í formi hlutafjár og jafnframt veita fyrirtækinu lán með breytirétti. Fjárfestingin verður í nokkrum áföngum næstu 12 mánuði og eru áfangagreiðslur háðar framgangi þróunarverkefna Kerecis. 4.1.2010 13:00
Landsbankinn: Íbúðalán færð niður í 110% af markaðsvirði eignar Viðskiptavinum Landsbankans stendur nú til boða að færa íbúðalán bæði í erlendri mynt og íslenskum krónum með einföldum hætti niður í 110% af markaðsvirði eignar. Það þýðir að skuldir eru lagaðar að virði eignar lántaka og eftirstöðvar upphaflegs láns, umfram 110% af markaðsvirði fasteignar, eru felldar niður. 4.1.2010 11:52
RARIK hækkar raforkuna hjá sér um 10% Verðskrá RARIK fyrir dreifingu á raforku hækkar um 10% að jafnaði hinn 1. janúar 2010. Þá hækkar virðisaukaskattur á almenna raforkunotkun úr 24,5% í 25,5%. 4.1.2010 11:29
Fjárfestir gripinn með fulla tösku af peningum á Leifsstöð Fyrrum stjórnarformaður Byr og fjárfestirinn Jón Þorsteinn Jónsson, var stöðvaður á Keflavíkurflugvelli með tösku fulla af peningum rétt fyrir jól samkvæmt DV í dag. 4.1.2010 09:28
Staða ríkisbréfa tvöfaldast milli ára Staða ríkisbréfa nam 317,8 milljörðum kr. í lok nóvember s.l., samanborið við 167,5 milljarða kr. í sama mánuði árið áður. 4.1.2010 08:07
Eignir lánafyrirtækja hækkuðu um 9,4 milljarða milli mánaða Eignir ýmissa lánafyrirtækja námu um 1.302,8 milljarða kr. í lok nóvember og hækkuðu um 9,4 milljarða kr. milli mánaða. 4.1.2010 08:03
Skipti fénu niður á fjölskylduna Fyrrum stjórnarformaður Byrs og fjárfestirinn Jón Þorsteinn Jónsson fékk að fara með 2,5 milljónir króna í evrum út úr landinu þann 22. desember þrátt fyrir að reglur um gjaldeyrismál kveði á um að ekki sé heimilt að fara með hámark 500 þúsund krónur úr landi í hverjum almanaksmánuði. 4.1.2010 10:04
Darling varar við mun erfiðari stöðu verði Icesave fellt Alistar Darling fjármálaráðherra Breta tjáði blaðamönnum í morgun að ef Íslendingar stæðu ekki við Icesave-samkomulagið yrði „staðan mun erfiðari". Fjallað er um málið á Bloomberg fréttaveitunni þar sem greint er frá töfinni sem orðin er á ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta eða fella Icesave frumvarpið. 4.1.2010 10:43
Breska fjármálaeftirlitið reyndi ekki að stöðva innlánasöfnun Breska fjármálaeftirlitið, FSA, aðhafðist ekkert til þess að hindra það að Kaupþing setti á fót Edge reikningana í Bretlandi átta mánuðum áður en bankinn hrundi. Ástæðan er sú að FSA taldi að með því að safna innlánum gæti bankinn bætt lausafjárstöðu sína. Frá þessu er sagt á vef Daily Telegraph í kvöld. 2.1.2010 23:32
Um 21 þúsund kröfur þegar skráðar í Kaupþing Búið er að skrá inn 21 þúsund kröfur í þrotabú Kaupþings, samkvæmt upplýsingum frá slitastjórn bankans. Heildarkröfur eru þó töluvert fleiri Kröfulýsingarfrestur rann út 30. desember síðastliðinn kröfulýsingarfresturinn. Kröfulýsingarskrá verður síðan birt 22. janúar. 2.1.2010 16:04
AT&T lætur af stuðningi við Woods AT&T ætlar að hætta að styrkja golfleikarann Tiger Woods sem tilkynnti í byrjun desember að hann myndi taka sér frí frá íþróttinni. 1.1.2010 11:19
Lánshæfismat ríkissjóðs batnar, horfum breytt í stöðugar Matsfyrirtækið Standard & Poors hefur endurmetið lánshæfismat sitt á ríkissjóði og breytt horfum úr neikvæðum og í stöðugar. Matið sjálft er óbreytt í BBB-. Tekið er fram í frétt frá Standard & Poors um málið að hér skipti afgreiðsla Alþingis á Icesave samkomulaginu mestu máli. 31.12.2009 15:10
Kaupþingi í Lúx skipt upp í tvö félög Kaupþingi í Lúxemborg var skipt upp í tvö félög við endurskipulagningu bankans. Öll lán til viðskiptavina, m.a. íslenskra útrásarvíkinga sem voru hluthafar í bankanum sjálfum, fóru inn í nýtt félag sem nú er stýrt af kröfuhöfum gamla bankans sem reyna hvað þeir geta til að hámarka endurheimtur sínar. 31.12.2009 12:32
Velta skuldabréfa nam 7,8 milljörðum í dag Heildarvelta skuldabréfa á markaði í dag nam 7,79 milljörðum króna. Þar af var velta með verðtryggð íbúðabréf 1,66 milljarðar og velta með óverðtryggð ríkisbréf nam 6,13 milljarða króna. 30.12.2009 17:18
Aflabrögð Granda með ágætum á árinu Aflabrögð hjá togaraflota HB Granda voru með miklum ágætum á árinu sem nú er að líða. Í frétt á heimasíðu fyrirtækisins kemur fram að alls hafi afli togaranna numið tæplega 47.700 tonnum og aflaverðmætið var rúmir 9,3 milljarðar króna samkvæmt upplýsingum Birkis Hrannars Hjálmarssonar, rekstrarstjóra togaranna. 30.12.2009 15:44
Landsvirkjun kaupir Þeystareyki Landsvirkjun og Norðurorka hafa gert samning um kaup Landsvirkjunar á 32% hlut Norðurorku í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. Eftir kaupin á Landsvirkjun 64% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur og Þingeyjarsveit. 30.12.2009 13:12
Íbúðaverð hefur ekki náð botninum Greining Íslandsbanka segir að íbúðaverð hafi ekki enn náði boði. Það sem af árinu, það er frá desember í fyrra til nóvember síðastliðins, hefur verð á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 10% að nafnvirði miðað við vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, að fram kemur í Morgunkorni bankans. 30.12.2009 13:09
Farice ehf. með 9 milljarða í vanskilum, samið við kröfuhafa Eignarhaldsfélagið Farice er nú með um 9 milljarða kr. af heildarskuldum sínum í vanskilum. Af þessum sökum hefur verið samið við kröfuhafa félagsins um að greiða ekki gjaldfallnar afborganir af skuldum sínum fram til loka febrúar á næsta ári. Á meðan verður rekstur Farice endurskipulagður. 30.12.2009 11:52
Össur með nýjan samning um viðskiptavakt í kauphöllinni í Köben Össur hf. hefur í dag gert samning við SEB Enskilda Equities um viðskiptavakt á hlutabréfum félagsins í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn. Í tilkynningu frá félaginu segir að samningnum sé ætlað að auka viðskipti með hlutabréf Össurar í kauphöllinni í Kaupmannahöfn og stuðla að skilvirkri og gegnsærri verðmyndun á hlutabréfum félagsins. 30.12.2009 09:40
Kaup á Árvakri verstu viðskipti ársins Einungis fern viðskipti féllu í flokk með verstu viðskiptum ársins. Engir tveir þátttakendur í könnun Markaðarins völdu sömu viðskiptin utan ein, sem allir nema einn nefndu. 30.12.2009 07:00
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka: Að líta á björtu hliðarnar Það er einkenni á öllum uppsveiflum að fólk hneigist til of mikillar bjartsýni og veitir aðeins jákvæðum fréttum athygli en þeim neikvæðu er ýtt til hliðar. Af þeim sökum hleypur fólk oft fram úr sér á þenslutímum. Öfgarnar eru 30.12.2009 06:00
Ari Edwald, forstjóri 365 miðla: Ár millibilsástands Árið 2009 var að mínu mati óttalegt leiðindaár. Ekki ár hörmunganna sjálfra, því bæði krónuhrunið og bankahrunið áttu sér stað á árinu 2008, eins og kunnugt er. En því miður varð árið 2009 ekki heldur það ár samstöðu og forystu til framtíðar sem er forsenda enduruppbyggingar íslensks efnahagslífs. Vonandi göngum við vasklegar til móts við árið 2010. 30.12.2009 06:00
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra: Verk að vinna Árið 2009 var um margt ágætt ár, að minnsta kosti sé tekið tillit til þeirrar vöggugjafar sem það fékk frá forverum sínum. Á líðandi ári skýrðist smám saman við hvaða vanda við Íslendingar eigum að etja í efnahagsmálum og hverjar rætur hans eru. Jafnframt kom í ljós hvað gera þarf til að leysa vandann. 30.12.2009 06:00
Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Nýja Landsbankans (NBI): Byggt á nýjum grunni Sennilega er þetta eitt furðulegasta ár síðari tíma. Ár sem einkenndist af upplausn, hófst með kröftugum mótmælum sem ekki eiga sinn líka og leiddu til afsagnar ríkisstjórnar Geirs Haarde, nýrrar ríkisstjórnar og kosninga. 30.12.2009 06:00
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar: Ekki gera ekki neitt Í upphafi ársins 2009 voru miklar vonir bundnar við það að fljótt og örugglega yrði unnið úr þeim aðkallandi verkefnum sem lágu fyrir eftir efnahagshrunið haustið 2008. 30.12.2009 06:00
Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital: Hugsum til lengri tíma Ég tel að ársins 2009 verði fyrst og fremst minnst sem árs aðgerðarleysis og doða. Að sumu leyti er það skiljanlegt; áfallið sem dundi yfir haustið 2008 var stórt og því er eðlilegt að það taki tíma að ná áttum. Nú er hins vegar kominn tími til að taka á sig rögg og horfa til framtíðar því við stöndum frammi fyrir einstöku tækifæri til að byggja upp á nýjum grunni og setja okkur nýja og skýra framtíðarsýn. 30.12.2009 06:00
Ódýrari endurfjármögnun bankanna Endurfjármögnun stóru viðskiptabankanna þriggja reyndist talsvert ódýrari en óttast var í fyrstu. Við upphaf árs var reiknað með að ríkissjóður gæti þurft að leggja þeim til 385 milljarða króna. Um miðjan september samþykktu kröfuhafar Glitnis hins vegar að taka 95 prósenta hlut í 30.12.2009 06:00
Ár rekstrarmannanna runnið upp Þetta hefur verið ár íslenskra framleiðslufyrirtækja eftir mörg erfið undanfarin ár. Svo tók einn dómnefndarmanna til orða í rökstuðningi sínum fyrir vali á manni ársins í íslensku viðskiptalífi. 30.12.2009 06:00
Ingólfur H. Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka: Ár endurreisnar í íslenskri hagsögu Ársins 2009 verður eflaust minnst fyrir að vera ár endurreisnar í íslenskri hagsögu. Eftir að gjaldeyris- og bankakreppan brast á árið 2008 voru fjölmörg verkefni sem biðu úrlausnar á árinu 2009. Í efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og íslenskra stjórnvalda sem gerð var í nóvember 2008 voru lagðar línurnar í þessum verkum þar sem stefnt var að því að ná gengi krónunnar stöðugu, styrkja stöðu ríkissjóðs og að endurreisa íslenskt bankakerfi. 30.12.2009 06:00
Á krossgötum Eins og flesta morgna vaknaði ég snemma með dóttur minni. Fyrir mér lá meðal annars að skrifa stuttan pistil í áramótablað Markaðarins og skila honum fyrir hádegi. Þegar ég hellti AB-mjólkinni með suðrænum ávöxtum í skálina handa henni fór ég að velta því fyrir mér hvað ég ætti að skrifa um við þessi tímamót. Fljótlega staðnæmdust hugsanir mínar við hvað þessi unga dama mundi spyrja mig um þegar áhugi hennar vaknaði síðar meir á sögunni, þjóðfélaginu og hagfræði. 30.12.2009 06:00
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyris Invest: Ár uppbyggingar fram undan Árið 2009 og seinni hluti 2008 eru eitt erfiðasta tímabil sem íslenskt atvinnu- og efnahagslíf hefur gengið í gegnum um langt árabil. Á árinu hefur landsframleiðsla dregist saman, kaupmáttur rýrnað og atvinnuleysi aukist verulega. 30.12.2009 06:00
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: Samstaða um úrlausnir Árið sem nú er að líða er án nokkurs vafa eitt mesta umbrotaár í seinni tíð á Íslandi. Í einu vetfangi breyttust efnahagslegar forsendur fyrir fjölskyldur og fyrirtæki í landinu. Í ljósi þessa hefur helsta viðfangsefni Íslandsbanka á árinu snúið að því að leita úrlausna fyrir viðskiptavini bankans. 30.12.2009 06:00
Skráning Össurar í Kaupmannahöfn viðskipti ársins Níu viðskipti komust á blað sem viðskipti ársins, að mati dómnefndar Markaðarins. Dómnefndin viðurkenndi að valið væri erfitt. Sumir sögðu mörg viðskipti hafa verið góð, aðrir að engin gætu fallið í þann flokk. 30.12.2009 05:00
Margir komust á blað Aðkoma erlendra fjárfesta hér og og alþjóðlegar tengingar Frónbúa við umheiminn voru dómnefnd Markaðarins ofarlega í huga að þessu sinni í vali á viðskiptum ársins. Það er enda skiljanlegt í skugga strangra gjaldeyrishafta sem reist hafa mörlandanum múr og lokað inni með íslenskar krónur í vasanum. 30.12.2009 04:30