RARIK hækkar raforkuna hjá sér um 10% 4. janúar 2010 11:29
Verðskrá RARIK fyrir dreifingu á raforku hækkar um 10% að jafnaði hinn 1. janúar 2010. Þá hækkar virðisaukaskattur á almenna raforkunotkun úr 24,5% í 25,5%.Í tilkynningu segir að hækkun RARIK er svolítið mismunandi eftir verðskrárliðum og er hækkunin heldur minni hjá stærri notendum en hjá smærri notendum. Hækkunin er fyrst og fremst tilkomin vegna verðlagshækkana, hækkana á aðföngum og gengisþróunar.Þrátt fyrir þessa hækkun verðskrár fullnýtir RARIK sér ekki þær tekjuheimildir sem fyrirtækið hefur skv. lögum. Hjá þeim viðskiptavinum sem njóta niðurgreiðslna úr ríkissjóði verður hækkunin meiri, þar sem niðurgreiðslur, sem ákvarðaðar eru í fjárlögum, hafa ekki verið auknar undanfarin ár.Þannig mun reikningur fyrir dreifingu raforku til heimila á hitaveitusvæðum í þéttbýli sem nota 4.000 kWst á ári hækka um 11% eða um 350 krónur á mánuði. Dreifingarkostnaður til heimila í dreifbýli sem eru með niðurgreidda rafhitun og nota 40.000 kWst á ári hækkar um 2.350 krónur á mánuði, eða 21%.Við gengisfall krónunnar á árunum 2008 og 2009 urðu öll aðföng dýrari vegna endurnýjunar og reksturs rafdreifikerfa. Erlend lán stórhækkuðu einnig og ekki útlit fyrir að þau lækki í bráð, en slík lán nema um 40% af langtímalánum fyrirtækisins. Þetta varð til þess að RARIK tókst ekki að uppfylla öll ákvæði sumra lánasamninga, sem við það komust í uppnám.Á árinu 2009 var því gripið til verulegs niðurskurðar í rekstrarkostnaði og fjárfestingum m.a. til að ná að uppfylla ákvæði lánasamninga. Nú er ljóst að þessi ákvæði verða uppfyllt vegna ársins 2009 og náðst hefur samkomulag við lánardrottna um lánasamningana.Ráðstafanir til lækkunar rekstrarkostnaðar sem RARIK hefur gripið til eru meðal annars lækkun launakostnaðar og niðurskurður í aðkeyptri vinnu og þjónustu. Gerðir voru samningar við starfsmenn fyrirtækisins um lækkun á launum eða tekjum og þannig komist hjá uppsögnum starfsmanna.Almenn skerðing launakostnaðar var nálægt 100 milljónum kr. sem samsvarar um 6% af heildarlaunum, mest hjá þeim sem hæst hafa launin. Lækkun annars kostnaðar var samanlagt um 150-200 milljónum kr. Beitt var aðhaldi á öllum sviðum rekstrar og sérstaklega dregið úr fjárfestingum þar sem aðkeypt aðföng og verktakavinna var stór hluti verksins.Stjórn RARIK hefur nú samþykkt aðhaldssama rekstraráætlun fyrir árið 2010. Gert er því ráð fyrir að rekstrarkostnaður verði óbreyttur í krónutölu frá árinu 2008, þegar orkuflutningur og töp í dreifikerfinu eru undanskilin. Það er sami rekstrarkostnaður og gert var ráð fyrir í áætlun fyrir árið 2009. Þetta samsvarar um 20% lækkun almenns rekstrarkostnaðar á milli áranna 2008 og 2009 á föstu verðlagi og lækkun milli áranna 2009 og 2010 sem nemur verðlagshækkunum. Þessar ráðstafanir ásamt hækkun gjaldskrár tryggja að afkoma fyrirtækisins verði með þeim hætti að ákvæði lánasamninga verði uppfyllt.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira