Hæsta krafan í Kaupþing nemur 200 milljörðum 4. janúar 2010 15:20
Hæsta krafan í Kaupþing nemur 200 milljörðum kr. en sú lægsta nemur 250 kr. Kröfur í Kaupþing hafa borist frá 111 löndum en flestar þeirra koma frá Þýskalandi.Í tilkynningu frá slitastjórn Kaupþings segir að sex mánaða frestur til að lýsa kröfum í Kaupþing banka rann út 30. desember sl. Í dag hafa 23.000 kröfur verið skráðar en slitastjórn Kaupþings áætlar að í heild hafi borist um 27- 29.000 kröfur innan kröfulýsingarfrestsins.Slitastjórn ráðgerir að ljúka skráningu á næstunni og birta kröfuskrá á vefsvæði fyrir kröfuhafa 22. janúar næstkomandi. Kröfuskráin verður einnig aðgengileg kröfuhöfum á skrifstofu slitastjórnar að Borgartúni 26. Fundur verður haldinn með kröfuhöfum 29. janúar á Hilton Hotel Nordica þar sem kröfuskráin og afstaða slitastjórnar til lýstra krafna, að svo miklu leyti sem hún liggur fyrir, verður til umræðu.Á síðustu vikum hafa allt að 30 manns unnið fyrir slitastjórn Kaupþings við móttöku, skráningu og yfirferð krafna. Lægsta krafan sem þegar hefur verið skráð er að fjárhæð 250 krónur (lægri en 2 evrur) en sú hæsta sem skráð hefur verið hljóðar upp á um 200 milljarða króna. Af þeim kröfum sem þegar hafa verið skráðar hafa flestar borist frá Þýskalandi en alls hafa skráðar kröfur í bankann borist frá 111 löndum, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira