Margir komust á blað 30. desember 2009 04:30 Framkvæmdastjóri LS Retail hefur ástæðu til að brosa en fyrirtæki hans landaði stærstu hugbúnaðarsölu Íslandssögunnar á árinu. Markaðurinn/Vilhelm
Aðkoma erlendra fjárfesta hér og og alþjóðlegar tengingar Frónbúa við umheiminn voru dómnefnd Markaðarins ofarlega í huga að þessu sinni í vali á viðskiptum ársins. Það er enda skiljanlegt í skugga strangra gjaldeyrishafta sem reist hafa mörlandanum múr og lokað inni með íslenskar krónur í vasanum. Þeir eru eftirfarandi í stafrófsröð: Marel og nýir hluthafartækin skoðuð Hlutafjárútboð Marel og aðkoma erlendra fjárfesta er á meðal bestu viðskipta ársins að mati dómnefndar Markaðarins.Markaðurinn/GVAKaup bandaríska fjárfestasjóðsins Columbia Wanger Asset Management, dótturfélags Bank of America, á rúmum fimm prósenta hlut í Marel í september komust á blað sem viðskipti ársins. Kaupin voru á genginu 59 krónur á hlut, jafnvirði 1,9 milljarða króna, sem verður að teljast hagstætt fyrir báða aðila. Gefin voru út ný hlutabréf í Marel í tengslum við viðskiptin auk þess sem Horn, fjárfestingafélag Landsbankans, seldi úr eignasafni sínu. Við kaupin jókst hlutur erlendra aðila í Marel úr ellefu prósentum í sextán. Til samanburðar áttu erlendir aðilar ekkert í Marel í byrjun árs 2006. Þá komst hlutafjáraukning Marel í lok nóvember á blað en í henni skiptu íslenskir lífeyrissjóðir og innlendir fagfjárfestar stórum hluta af tveimur skuldabréfaflokkum félagsins í hlutafé upp á sjö milljarða króna. Magma energy og HS OrkaFrá reykjanesi Magma Energy er sagt hafa fengið gott verð fyrir fjörutíu prósenta hlut í HS Orku.Markaðurinn/ValliKaup kanadíska félagsins Magma Energy á HS Orku á Reykjanesi undir lok árs fékk stig hjá dómnefndinni. Félagið eignaðist 41 prósents hlut í HS Orku með kaupum á hlut Geysis Green Energy, Orkuveitu Reykjavíkur, Hafnarfjarðar og Sandgerðis fyrir samtals fimmtán milljarða króna. Magma Energy greiðir 6,2 milljarða út en afganginn á þremur árum. „Félagið fékk frábæra fjármögnun frá seljendum og verðið virðist mjög sanngjarnt,“ sagði einn dómnefndarmanna. Sala LS Retail til microsoftKaup bandaríska hugbúnaðarrisans Microsoft á hugbúnaðarlausninni LS Retail AX frá LS Retail í september komst á blað sem ein af stærstu viðskiptum ársins. Hugbúnaðurinn er notaður í verslunarkerfum sem nefnast Dynamics AX og notað í um 140 löndum. Kaupverð hefur aldrei verið gefið upp að öðru leyti en því að þetta hafi verið einhver stærsta sala á hugbúnaði í Íslandssögunni. Greint var frá því í fjölmiðlum eftir viðskiptin að þegar mest var hafi um tvö hundruð manns komið að því að ljúka sölunni. VogunarsjóðirKaup ýmissa vogunarsjóða á skuldabréfum gömlu bankanna eiga fyllilega rétt á sér sem bestu viðskipti ársins. Vogunarsjóðirnir keyptu skuldabréf Glitnis, Kaupþings og Landsbankans á útsöluverði nokkru eftir hrun bankanna í fyrrahaust. „Þeir sem keyptu í upphafi árs hafa grætt mikið,“ sagði einn um viðskipti sjóðanna. Dæmi eru um að skuldabréf Landsbankans hafi selst með 99,9 prósenta afslætt en hinna bankanna með um 98 prósenta afslætti. Afslátturinn þá jafngilti því að eigendur skuldabréfanna byggjust við að fá um tvö prósent krafna upp í skuldir úr þrotabúi bankanna. Heimtur hafa reynst talsvert betri en gert er ráð fyrir að kröfuhafar Kaupþings fái 23 prósent til baka, Glitnis 21 prósent og Landsbankans 4,5 prósent. Þetta jafngildir því að þeir sem keyptu kröfur Landsbankans hafi hagnast um 4.400 prósent en hinna bankanna beggja í kringum eitt þúsund prósent. Viðskiptablaðið greindi frá því fyrir skömmu að veltan með skuldabréf bankanna undanfarið ár hafi verið á bilinu tólf til fjórtán milljarðar evra, jafnvirði 2.200 milljarða króna. Með samningi kröfuhafa frá í haust eignast þeir nú hlut, mismikinn þó, í nýju bönkunum. Kröfuhafar Glitnis eignast 95 prósent í Íslandsbanka, en kröfuhafar Landsbankans nítján prósent.
Mest lesið Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Sjá meira