Fleiri
Vilja að stjórn Seðlabanka víki Óbreyttir vextir á óvissutíma. 5.11.2008 18:00 Sjá næstu 50 fréttir
Lífeyrissjóðirnir tapa tugum milljarða króna á bankabréfum Allt útlit er fyrir að lífeyrissjóðirnir muni tapa tugum milljarða króna á eign sinni í skuldabréfum banka og sparisjóða hér á landi. Áður en bankakerfið hrundi lágu lífeyrissjóðirnir með 80-90 milljarða króna í þessum skuldabréfum í eignasöfnum sínum. 10.11.2008 13:00
Tíðni makaskiptasamninga í fasteignaviðskiptum stóreykst Tíðni makaskiptasamninga í fasteignaviðskiptum hefur stóraukist undanfarna mánuði samkvæmt gögnum frá Fasteignamati ríkisins. Með makaskiptasamningi er átt við kaupsamning þar sem hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. 10.11.2008 11:57
Samþykktu að selja allt stofnfé SPM til Nýja Kaupþings Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum á föstudaginn var að taka tilboði frá Nýja Kaupþingi í allt stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar Nýja Kaupþings. 10.11.2008 11:02
Ísland er ekki á dagkrá IMF þessa vikuna Samkvæmt heimasíðu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) er Ísland ekki á dagkrá þar á bæ þessa vikuna. Hins vegar mun stjórn IMF ræða málefni Al Salvador, Líbanons, Seychelles-eyja og Armeníu í vikunni. 10.11.2008 10:39
Viðskiptablaðið segir öllum upp og óskar eftir greiðslustöðvun Vegna viðvarandi rekstrarerfiðleika hafa eigendur Viðskiptablaðsins afráðið að draga saman útgáfu blaðsins og einskorða hana hér eftir við eitt tölublað í viku. Jafnframt hefur útgáfufélag blaðsins, Framtíðarsýn hf. óskað eftir greiðslustöðvun og öllum starfsmönnum félagsins hefur verið sagt upp. 10.11.2008 10:23
Össur hækkar einn í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri hefur hækkað um 0,97 prósent í sex viðskiptum upp á 38 milljónir króna í Kauphöllinni í dag. Þetta er eina hreyfingin á íslenskum hlutabréfamarkaði frá því viðskipti hófust fyrir tæpum tuttugu mínútum. 10.11.2008 10:19
Illa gengur að selja Sterling Skiptaráðanda í þrotabúi danska flugfélagsins Sterling, sem var í eigu íslendinga, gengur illa að selja félagið, en stefnt var að því að sölu lyki fyrir helgi. 10.11.2008 07:11
Fiskvon á Patreksfirði greiddi hæstu meðallaunin í fyrra Útvegsfyrirtækið Fiskvon á Patreksfirði greiddi hæstu meðallaun í sjávarútvegi í fyrra, en fyrirtækið gerir út dragnótabátinn Þorstein BA. 10.11.2008 07:07
FME gat ekki komið í veg fyrir Icesave vanda Fjármálaeftirlitið gat ekki knúið Landsbankann til þess að færa Icesave reikningana úr útibúi þess á Íslandi yfir í dótturfélag í Bretlandi. Engu að síður hafði eftilitið mælst til þess við Landsbankann að svo yrði gert. Þetta kemur fram í svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn Vísis varðandi Icesave. 9.11.2008 22:49
Ræddi ekki við Björgvin um Icesave-vanda í vor Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segist ekki hafa rætt sérstaklega um málefni Icesave-reikninganna og að væri að breytingum félagsins í dótturfélag eða gerð samkomulags við breska Fjármálaeftirlitið um umgjörð reikninganna við viðskiptaráðherra í vor. 9.11.2008 19:01
Pálmi tjáir sig ekki um milljarðana þrjá frá FL Sumarið 2005 lét Hannes Smárason, þá stjórnarformaður FL, flytja án heimildar þrjá milljarða króna af reikningum FL til Kaupþings í Lúxemborg, til þess að hjálpa Pálma Haraldssyni við að greiða fyrir kaupin á lággjaldaflugfélaginu Sterling í Danmörku. Þetta kemur fram í grein Agnesar Bragadóttur blaðamanns í Morgunblaðinu í dag. 9.11.2008 13:02
Vissi ekki af vanda Icesave í mars Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og yfirmaður bankamála hér á landi segist ekki hafa vitað um vanda Icesave í mars á þessu ári líkt og Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings hélt fram í Markaðnum í morgun. Björgvin segist fyrst hafa vitað af málinu í blálokin á ágúst. 8.11.2008 20:25
Landsbankinn segist hafa átt fyrir Icesave innistæðum Fyrrverandi stjórnendur Landsbankans segja eignir bankans hafa verið vel umfram innistæður á svokölluðum Icesave reikningum í Bretlandi. Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings sagði í Markaðnum á Stöð 2 í morgun að eignir Landsbankans hefðu ekki dugað fyrir innistæðunum. 8.11.2008 18:14
Icesave viðvörunarbjöllur byrjuðu að hringja í mars Viðvörunarbjöllur varðandi Icesave í Bretlandi fóru að hringja í marsmánuði ef marka má orð Sigurðar Einarssonar fyrrum stjórnarformanns Kaupþings í Markaðnum á Stöð 2 í morgun. Hann segir vanta svör við ýmsu tengdu Icesave sem hann segir að hafi komið niður á Kaupþingi í Bretlandi. 8.11.2008 17:00
Stærstu mistökin voru að fara ekki úr landi Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings segir stjórn Seðlabanka Íslands gjörsamlega hafa brugðist þegar ekkert var gert eftir að nefnd sem hann var formaður skilaði af sér skýrslu árið 2003. Þar var varað við ástandinu en ekkert var að gert. Þetta sagði Sigurður í viðtali við Markaðinn á Stöð 2 í morgun. 8.11.2008 15:32
Segir Davíð Oddsson hafa hótað því að taka Kaupþing niður Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings segir að þeim Davíði Oddssyni hafi lent illilega saman á fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington í fyrra. Davíð hafi meðal annars hótað Sigurði að taka bankann niður ef þeir hættu ekki við umsókn sína um að fá að gera upp í evrum. Hann segir samskipti Seðlabankans við yfirstjórn Kaupþings hafa snarminnkað eftir að Davíð varð seðlabankastjóri. 8.11.2008 12:24
Mistök að fara inn í Glitni Tryggvi Þór Herbertsson fyrrverandi efnahagsráðgjafi Ríkisstjórnarinnar segir að þeir Geir H. Haarde hafi ekki verið sammála um hvaða leiðir ætti að fara. „Ég lagði til aðrar leiðir, stundum var hlustað og stundum ekki,“ sagði Tryggvi í Markaðnum hjá Birni Inga á Stöð 2 fyrir stundu. Hann segir neyðarlögin hafa verið skrifuð nóttina áður en þau voru sett og myndi ekki snerta á pólitík með tveggja metra löngu priki. 8.11.2008 12:00
Valdi ekki Icesave sem viðskipti ársins Ólafur Ísleifsson hagfræðingur og lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík segir í bréfi til þingmannsins Bjarna Harðarsonar í Morgunblaðinu í dag að hann hafi ekki setið í nefnd sem valdi Icesave ein af viðskiptum ársins, líkt og Bjarni hefur haldið fram á heimasíðu sinni. 8.11.2008 09:34
SPRON frestar uppgjöri vegna fjármálakreppu SPRON hf. hefur ákveðið að fresta birtingu uppgjörs fyrir þriðja ársfjórðung vegna áframhaldandi óvissu á íslenskum fjármálamarkaði. 7.11.2008 19:59
Samson fer fram á gjaldþrotaskipti Stjórn Samson eignarhaldsfélags hefur óskað eftir við Héraðsdóm Reykjavíkur að félagið verði tekið til gjaldþrotaskipta. 7.11.2008 18:02
Össur steig hæst í Kauphöllinni í dag Gengi hlutabréfa í stoðtækjafyrirtækinu Össuri hækkaði um 3,56 prósent í Kauphöllinni í dag. Þetta er mesta hækkun dagsins. Þá hækkaði gengi bréfa í Atorku um 1,82 prósent, Eimskipafélagsins um 1,5 prósent og Marel Food Systems um 1,33. 7.11.2008 16:51
Stór sölusamningur um ker í nýja síldarverksmiðju í Rússlandi Promens Dalvík ehf. hefur gert samning um framleiðslu á um 1000 fiskikerum og lokum fyrir nýja og fullkomna síldarverksmiðju í Rússlandi. 7.11.2008 13:54
Fjármálaráðuneyti Póllands staðfestir lán Pólska fjármálaráðuneytið segir í yfirlýsingu á heimasíðu sinni að þarlend yfirvöld muni lána Íslendingum 200 milljónir dollara. Vitnað er til yfirlýsingarinnar í virtum erlendum fréttamiðlum, þar á meðal hjá AFP-fréttaveitunni og Reuters. 7.11.2008 12:46
Óvissa um vaxtastig og frekari stýrivaxtahækkanir framundan Mikil óvissa er nú um skammtímavaxtastig hérlendis á næstunni í kjölfar áherslubreytinga Seðlabankans, og er hætt við að vaxtamyndun á skuldabréfamarkaði verði óskilvirkari og sveiflukenndari fyrir vikið á næstunni. 7.11.2008 12:00
Segir stöðu VBS góða þrátt fyrir erfiðleika á byggingarmarkaði Jón Þórisson, forstjóri VBS fjárfestingarbanka, segir stöðu félagsins góða þrátt fyrir að félagið hafi lánað nokkuð til framkvæmda á byggingarmarkaði þar sem nú ríkir nánast algjör stöðnun. 7.11.2008 11:03
Össur og Marel hækka í morgunsárið Gengi hlutabréfa í Össuri hækkaði um 0,85 prósent í Kauphöllinni dag og í Marel Food Systems um 0,8 prósent. Þetta eru einu hækkanir dagsins. 7.11.2008 10:18
Sjóðseigendur hjá Byr fá 95 prósent af fé sínu Byr sparisjóður hefur ákveðið að greiða út fjármuni úr peningarmarkaðssjóði sínum og er útgreiðsluhlutfall til sjóðsfélaga nærri 95 prósent miðað við síðasta skráða viðskiptagengi sjóðsins þann 6. október. 7.11.2008 09:31
Kröfuhafar í þrotabú Kaupþings telja að 6,6% fáist út búinu Niðurstaðan úr uppboðinu á skuldatryggingum Kaupþings í gærdag er að kröfuhafar í þrotabú bankans reikna með því að fá 6,6% af kröfum sínum í búið. 7.11.2008 09:11
Atorka og Össur hækkuðu ein í dag Gengi hlutabréfa í Atorku Group hækkaði um tíu prósent í dag og í Össuri um 0,34 prósent. Þetta er eina hækkun dagsins á annars rauðum degi. 6.11.2008 16:59
Dótturfélag Icelandair leigir Boeingþotu til Síberíu Í dag var undirritaður samningur milli Loftleiða Icelandic, dótturfélags Icelandair Group, og Yakutia Air Company í sjálfstjórnarlýðveldinu Sakha í Síberíu í Rússlandi um leigu á þriðju Boeing 757-200 farþegaþotunni til Yakutia. 6.11.2008 15:58
Segir að IMF sé búinn að staðfesta lánið til Íslands Í frétt á vefsíðunni E24.no segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sé búinn að staðfesta lánveitingu sína til Íslands upp á 2,1 milljarða dollara. E24.no hefur þetta eftir NTB-fréttaveitunni. 6.11.2008 14:27
Straumur segir mun á eignum og áhættu vera einn milljarð evra Straumur hefur unnið að því að minnka efnahagsreikning og áhættu bankans, vernda eigið fé og bæta lausafjárstöðu. Þann 31. október sl. voru heildareignir Straums undir 5 milljörðum evra og áhættugrunnur bankans undir 4 milljörðum evra. Munurinn er því einn milljarður evra eða 166 milljarðar kr.. 6.11.2008 14:16
Landic Ísland leigir Miðbæjarhótelum Aðalstræti 6 og 8 Samningur hefur verið undirritaður milli Landic Ísland og Miðbæjarhótela/Centerhotels um leigu á rúmlega 3000 fermetrum í Aðalstræti 6 og 8 í Reykjavík. Um er að ræða hluta jarðhæðar, og aðra, þriðju og fjórðu hæð. 6.11.2008 14:04
Funda um framtíð deCode í Nasdaq-kauphöllinni DeCODE hefur farið fram á fund með nefnd á vegum Nasdaq-kauphallarinnar til þess að kynna áætlun félagsins um hvernig það hyggst mæta kröfum Nasdaq um lágmarksverðmæti hluta. 6.11.2008 13:12
Mögulegt að verðbólgumarkmið Seðlabankans heyri sögunni til Seðlabankinn hefur vikið verðbólgumarkmiði sínu til hliðar til bráðabirgða og mun einbeita sér að því að skapa stöðugleika í gengi krónu næsta kastið. Mögulegt er að tímar peningamálastefnu sem byggir á flotkrónu og verðbólgumarkmiði séu nú að baki fyrir fullt og allt. 6.11.2008 12:49
Reiknað með að skuldatryggingar Kaupþings skili 5,6% Skuldatryggingar Kaupþings fara undir hamarinn nú eftir hádegið á þriðja og síðasta uppboði trygginga íslensku bankanna. Fyrirfram er reiknað með að tryggingarnar skili 5,6% af nafnverði skuldabréfa í bankanum og er það jafnframt hlutfallið sem kröfuhafar telja að þeir af kröfum sínum úr þrotabúi bankans. 6.11.2008 12:33
Alfesca hefur áhyggjur af erfiðri greiðslumiðlun til og frá landinu Alfesca hefur áhyggur af því að erfiðleikar við greiðslumiðlun til og frá landinu muni hafa áhrif á greiðslu félagsins á skuldabréfi þann 15. nóvember n.k..Þetta kemur fram í greinargerð til Fjármálaeftirlitsins. 6.11.2008 11:29
Norræni lánapakkinn á lokastigum Háttsettur maður í Seðlabanka Svíþjóðar segir að verið sé að leggja lokahönd á lánapakka frá Norðurlöndunum til Íslands. Fundað var Stokkhólmi í gær og sat Ingimundur Friðriksson seðlabankastjóri fundinn fyrir hönd Íslands. Í samtali við Reuters fréttastofuna segir Mattias Persson að búið sé að ákveða hvernig lánapakkinn verði samsettur, aðeins eigi eftir að ljúka nokkrum smáatriðum. 6.11.2008 11:01
Hætta rannsókn á sölu Moderna á Carnegie-hlut Efnahagsbrotadeild lögreglunnar í Svíþjóð hefur ákveðið að hætta rannsókn sinni á sölu Moderna Finance, dótturfélags Milestone sem er félag Karls Wernerssonar og fjölskyldu, á um það bil 7,5 prósentum af hlut sínum í sænska fjárfestingarbankanum Carnegie í síðasta mánuði. 6.11.2008 10:18
Century Aluminum fellur um sex prósent Gengi hlutabréfa í Century Aluminum hefur fallið um 6,38 prósent frá því viðskipti hófust á hlutabréfamarkaði í Kauphöllinni í dag. Þá hefur gengi bréfa í Marel Food Systems lækkað um 0,65 prósent. Aðrar hreyfingar eru ekki í Kauphöllinni. 6.11.2008 10:12
Óvissa um IMF-lánið Óvissa ríkir um lánafyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til íslenskra stjórnvalda, vegna þess að fulltrúar Breta í sjóðnum setja sem skilyrði fyrir lánveitingunni, að fyrst verði samið við Breta vegna Icesave-reikninganna. 6.11.2008 08:32
Fundað um lán til Íslands í Stokkhólmi Fulltrúar norrænu Seðlabankanna og fjármálaráðuneyta landanna funduðu í Stokkhólmi í dag um hugsanlega aðstoð hinna norrænu ríkjanna við Ísland í kreppunni. Eftir því sem fram kemur á fréttavef breska blaðsins Financial Times sat Ingimundur Friðriksson, einn seðlabankastjóra, fundinn fyrir hönd Íslands. 5.11.2008 23:43
Veiking krónunnar hefur lítil áhrif á lausafjárstöðu Straums Sú þróun sem átt hefur sér stað á alþjóðafjármálamörkuðum, eftir 30. Júní, hefur haft mikil áhrif á fjármálastofnanir og fyrirtæki, þar á meðal Straum Fjárfestingabanka hf. (Straumur). Straumur hefur gert allt innan eðlilegra marka til að upplýsa hluthafa og lánveitendur um áhrif þessarar þróunar. 5.11.2008 22:18
Telja 2-3% nást upp í erlendar skuldir bankanna Alþjóðlegir uppboðshaldarar á skuldatryggingum íslensku bankanna í útlöndum, telja að aðeins muni fást tvö til þrjú prósent upp í skuldirnar, sem eru taldar vera um sex þúsund milljarðar króna, eða þrettánfaldar árstekjur ríkissjóðs. 5.11.2008 18:45