Dótturfélag Icelandair leigir Boeingþotu til Síberíu 6. nóvember 2008 15:58
Í dag var undirritaður samningur milli Loftleiða Icelandic, dótturfélags Icelandair Group, og Yakutia Air Company í sjálfstjórnarlýðveldinu Sakha í Síberíu í Rússlandi um leigu á þriðju Boeing 757-200 farþegaþotunni til Yakutia. Þotan sem um ræðir kemur úr flota áætlunarflugfélagsins Icelandair en vegna versnandi efnahagsástands hefur félagið minnkað framboð. Icelandair hefur áfram yfirumsjón með viðhaldi þotanna í gegnum viðhaldsþjónustu sína, Icelandair Technical Services. Samningurinn er sá fjórði sem Loftleiðir Icelandic hefur undirritað á stuttum tíma um flugvélaleigu við samstarfsaðila í fjórum heimsálfum. Heildarverðmæti þessara samninga nemur um 125 milljónum dollara eða um 14 milljarða kr.. Um er að ræða leigu á samtals sex þotum, einni Boeing 767-300ER og fimm Boeing 757-200 þotum, og er lengd samninganna frá sex mánaðum til sex ára. „Samningurinn við Yakutia sýnir þann sveigjanleika sem við búum yfir. Þegar samdráttur dregur úr þörf fyrir þotu hjá einu félaginu, í þessu tilfelli Icelandair, nær systurfélagið Loftleiðir Icelandic að koma henni í arðbært verkefni," segir Sigþór Einarsson aðstoðarforstjóri Icelandair Group í tilkynningu um málið. „Það er mikill styrkur fyrir Icelandair Group að vera í viðskiptum við trausta aðila í öllum heimsálfum. Um 75% af tekjum samstæðunnar koma af alþjóðamarkaði, en 25% frá Íslandi. Verkefnastaðan í alþjóðlegri leiguflugsstarfsemi fyrirtækja innan Icelandair Group er góð um þessar mundir og gjaldeyristekjugrunnur félagsins því traustur. Loftleiðir Icelandic er nú með sjö þotur í verkefnum og áætlanir eru um að bæta þeirri áttundu við snemma á næsta ári. Auk Loftleiða Icelandic eru í alþjóðlegu leiguflugi innan Icelandair Group flugfélögin SmartLynx í Lettlandi, Travel Service í Tékklandi, Bluebird Cargo á Íslandi."
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira