Mögulegt að verðbólgumarkmið Seðlabankans heyri sögunni til 6. nóvember 2008 12:49
Seðlabankinn hefur vikið verðbólgumarkmiði sínu til hliðar til bráðabirgða og mun einbeita sér að því að skapa stöðugleika í gengi krónu næsta kastið. Mögulegt er að tímar peningamálastefnu sem byggir á flotkrónu og verðbólgumarkmiði séu nú að baki fyrir fullt og allt. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Glitnis. Þar segir að af gengisspá bankans má ráða að hann miði við að gengi krónu gagnvart evru verði komið í námunda við 130 þegar komið er fram á næsta ár og verði á þeim slóðum næstu misserin. Segir Seðlabankinn að í ljósi þeirra aðstæðna sem nú ríkja í hérlendu efnahagslífi hafi bankinn fallið frá því að birta stýrivaxtaferil sem sérfræðingar hans telja að stuðli að framgangi verðbólgumarkmiðs á næstu misserum, og mun stýrivöxtum, sem og öðrum stjórntækjum bankans, fyrst og fremst verða beitt í því skyni að styðja við krónuna eftir megni. „Þó ber ekki að líta á hina nýju stefnu sem fastgengi, heldur má gera ráð fyrir að Seðlabankinn muni miða stefnu sína við það hvernig mál þróast á næstunni og aðlaga hana að þróun mála hérlendis sem erlendis," segir í Morgunkorninu. Stýrivextir Seðlabanka eru óbreyttir í 18% eftir vaxtaákvörðun morgunsins og virðist nú ríkja eins konar millibilsástand í peningamálum uns stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) hefur lagt blessun sína yfir aðgerðaáætlun ríkisstjórnar og sjóðsins. Þessa skoðun byggir greiningin á því að ekki var haldinn fundur fyrir fjölmiðla í því skyni að kynna vaxtaákvörðun og nýjar spár bankans heldur kom fram í fréttatilkynningu bankans að stefnan í peningamálum verði kynnt í kjölfar birtingar á aðgerðaráætlun ríkisstjórnar og IMF. Gereiningin telur líklegt að nýtt fyrirkomulag peningamála fyrir næstu mánuði verði kynnt eftir helgi, jafnvel strax á mánudag. Athygli vekur að bankinn segir að hið nýja fyrirkomulag muni gilda til bráðabirgða meðan unnið er að því að gera annað tveggja: - Leitast við að snúa á ný til fyrra fyrirkomulags með fljótandi gengi og verðbólgumarkmið - Finna aðra langtímalausn á gengis- og peningamálum þjóðarinnar Erfitt er að túlka seinni leiðina öðruvísi en svo að þar sé átt við þátttöku í ERM II myntsamstarfinu í kjölfar inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru í kjölfarið, enda einhliða upptaka á öðrum gjaldmiðli mun síðri kostur og fastgengisstefna með krónu nánast ómöguleg. Hér er um mikil tíðindi að ræða, en Seðlabankinn hefur verið á verðbólgumarkmiði frá því lögum um bankann var breytt snemma árs 2001.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira