Landsbankinn segist hafa átt fyrir Icesave innistæðum 8. nóvember 2008 18:14
Fyrrverandi stjórnendur Landsbankans segja eignir bankans hafa verið vel umfram innistæður á svokölluðum Icesave reikningum í Bretlandi. Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings sagði í Markaðnum á Stöð 2 í morgun að eignir Landsbankans hefðu ekki dugað fyrir innistæðunum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrrum stjórnendur Landsbankans sendu frá sér fyrir stundu. Yfirlýsinguna má sjá hér að neðan: „Vegna ítrekaðra umræðna um að aðgerðir breskra yfirvalda gegn dótturfélagi Kaupþings, Singer & Friedlander, tengdist á einhvern hátt málefnum Landsbankans og umræðum um Icesave reikningana á opinberum vettvangi, vilja fyrrverandi stjórnendur Landsbankans taka eftirfarandi fram: 1. Af umræðum, má ráða að Landsbankinn hafi ekki haft eignir til að setja á móti Icesave innistæðum og því ekki orðið af dótturfélagavæðingu reikninganna. Þetta er alrangt. Uppgjör bankans staðfesta að staðan var traust og eignir vel umfram skuldir, enda eigið fé og víkjandi lán bankans um 350 milljarðar skv. síðasta birta uppgjöri bankans þann 30.6.2008. Enda náðist fullt samkomulag við bresk yfirvöld (FSA) 29. maí um meðferð reikninganna, lausafjárstýringu og tilhögun markaðssetningar í framhaldi af þeirri umræðu sem varð á vormánuðum í tengslum við Icesave reikningana í breskum fjölmiðlum. Meðfylgjandi yfirlit sýnir glöggt að ávallt var til nægilegt safn eigna til að mæta öllum skuldbindingum, þ.m.t. innlendum og erlendum innlánum,. Eftir að lögin frá 6. október tryggðu forgangsröðun innlána má líta svo á að allt eignasafn bankans hafi fyrst og fremst staðið á móti innlánum. Ástæðan fyrir því að ekki var búið að klára þá vinnu sem hófst í haust að umbreyta útibúi bankans í dótturfélag var því ekki að eignir væru ekki nægar. Umræður strönduðu á lagalegum atriðum. Breskt yfirvöld voru því miður ekki tilbúin til að koma til móts við Landsbankann um að leyfa bankanum að mynda jafnvægi milli inn- og útlána í skrefum og þannig tryggja að lánasamningar bankans stæðust. Ef bankinn hefði gengið að kröfum Breta um að færa útlánasafn yfir í dótturfélag í einu lagi hefði það verið brot á lánasamningum bankans og öll fjármögnun bankans verið í uppnámi með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Umræður um að Icesave kröfur lendi á þjóðarbúinu 2. Innlán sem nú eru, ásamt endurhverfum viðskiptum, forgangskröfur í heildareignir gömlu bankanna námu í tilviki Landsbankans um 50% af heildareignum. Miðað við 30. sept. 2008 nam sú fjárhæð um 2.200 milljörðum, þar af eru um 1.300 milljarðar í erlendum innlánum og tæplega 500 milljarðar innlendum innlánum. Eignir bankans á þessum tíma voru hins vegar um 4.400 milljarðar eða langt umfram ofannefnda fjárhæð. 3. Umræður um að Icesave kröfur lendi á þjóðarbúinu á nokkrum misskilningi byggðar, burtséð frá deilum íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda um réttarstöðu innlánseigenda í Bretlandi og Hollandi og greiðsluskyldu íslenska Tryggingarsjóðsins. Þetta sést gleggst á því að þótt tjónið af hruni bankanna með þeirri aðferð sem beitt var við þjóðnýtingu bankanna og ólögmætar og óréttmætar aðgerðir Breta sé mikið, þurfa 50% af eignum bankans, sem voru um 4.400 milljarðar miðað við 30. sept. 2008, að glatast til þess að ekki séu nægar eignir til að mæta forgangskröfum gagnvart bankanum. Hins vegar er ljóst að þessar eignir eru ekki lausafé og því er eðlilegt að það þurfi lántökur í ákveðinn tíma á meðan eignunum er komið í verð og lánasafn bankans innheimtist. Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að ætlast til þess af lánþegum bankans að þeir greiði upp sín lán fyrir gjalddaga. Vönduð vinna við sölu eigna og aðra úrvinnslu á lánasafni bankans skiptir því miklu máli um niðurstöðu málsins. Efnahagslegt skaðaverk Breta á íslenskum hagsmunum: 4. Aðgerðir breskra yfirvalda gegn Landsbankanum að morgni 8. október síðastliðinn, þegar Heritable bankinn, dótturfélag Landsbankans, og útibú hans í London, voru yfirtekin, eiga sér enga hliðstæðu og hafi valdið ómældu tjóni. Í bresku lögunum sem beitt var eru sett þau skilyrði fyrir beitingu þeirra að aðgerðir hafi verið framkvæmdar eða eru líklegar til að vera framkvæmdar sem að mati ríkisstjórnarinnar eru til þess fallnar að valda tjóni á efnahag Bretlands. Bresk stjórnvöld fóru langt út fyrir valdsvið sitt þegar þau beittu lögunum gegn Landsbankanum. Til dæmis má nefna að innlán Landsbankans í Bretlandi námu aðeins um 0,5% heildarinnlána og því langt frá því að geta ógnað efnahagslegum stöðugleika. Þá voru ekki yfirvofandi neinar fjárhagslegar tilfærslur sem mögulega gætu ógnað efnahagslegum stöðugleika í Bretlandi. Þvert á móti var Landsbankinn að færa fjármagn til breska útibúsins fyrir umrædda helgi og æðstu ráðamenn Bretlands vissu það. Aðgerðir breskra yfirvalda gegn dótturfélagi Kaupþings, Singer & Friedlander, síðar þá viku voru á eigin forsendum og tengdust ekki málefnum Landsbankans eins og kom fram m.a. á breska þinginu." Að lokum segir í tilkynningunni að vonandi munu þeir sem nú bera ábyrgð á því verki að koma eignum bankans í verð og innheimta lánasafn bankans sem og aðrar kröfur, þ.e. starfsmenn nýja bankans og skilanefnd Landsbankans ná að varðveita nægjanlegar eignir til að tryggja að þetta gangi fram. „Hins vegar er ljóst að eftir hrun kerfsins og þær víðtæku afleiðingar sem það kemur nú til með að hafa á efnahagslíf okkar Íslendinga skiptir miklu máli við endanlega niðurstöðu á mati á eignum."
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira