Icesave viðvörunarbjöllur byrjuðu að hringja í mars 8. nóvember 2008 17:00 Sigurður Einarsson
Viðvörunarbjöllur varðandi Icesave í Bretlandi fóru að hringja í marsmánuði ef marka má orð Sigurðar Einarssonar fyrrum stjórnarformanns Kaupþings í Markaðnum á Stöð 2 í morgun. Hann segir vanta svör við ýmsu tengdu Icesave sem hann segir að hafi komið niður á Kaupþingi í Bretlandi. „Í marsmánuði var það orðið ljóst að Icesave gat ekki gengið í því formi sem það var og þyrfti að breyta útibúinu í London í dótturfélag. Það var hinsvegar ekki hægt þar sem eignir bankans dugðu ekki fyrir þeim miklu innlánum sem Landsbankinn var búinn að safna," segir Sigurður og bætir því við að þá þegar hefði átt að stoppa að lágmarki frekari innlánssöfnun ef ekki Iceasve reikningana yfir höfuð. „Það gerist hinsvegar ekki þrátt fyrir að Fjármálaeftirlitið í Bretlandi og bankamálaráðuneytið hafi haft þessa vitneskju. Þeir halda því frekar áfram að auglýsa og safna fleiri innlánum. Ég skil ekki afhverju þetta var ekki stoppað. Síðan hittir bankamálaráðherrann okkar fjármálaráðherrann í Bretlandi á fundi en ekkert gerist. Það er mér ennþá óskiljanlegra." Aðspurður um þær upplýsingar sem borist hafa undanfarið vegna lána til starfsmanna vegna hlutabréfakaupa í bankanum segir Sigurður að margt mjög misvísandi og beinlínis rangt hafi komið fram um þessi mál. „Ef þetta er skoðað af einhverri sanngirni þá er nauðsynlegt að skoða forsögu málsins sem rekja má til ársins 2004. Það er ákveðið á aðalfundi og það rætt á hluthafafundi að samþykkja að veita kaup- og sölurétti á bréfum sem nema allt að 9% af hlutafé bankans. Þetta er samþykkt og send út tilkynning til Kauphallarinnar. Það var ekki verið að leyna neinu. Það er ekki verið að mismuna neinum því þarna eru veitt lán gegn tryggingum en ekki sjálfskuldaábyrgð manna. Eftir á að hyggja má hinsvegar gagnrýna hversu stórar upphæðir þetta voru. En tryggingarstaða starfsmanna var mjög góð," sagði Sigurður. „Eftir á að hyggja voru það mistök að gera þetta ekki öðruvísi. En að halda því fram að gamla stjórn Kaupþings hafi ekki tekið þessa ákvörðun með hagsmuni bankans að leiðarljósi fær ekki staðist." Sigurður sagðist einnig hissa á ummælum yfirmanns efnahagsbrotadeildar að við þessu gætu legið fangelsisrefsingar. „Ég var mjög hissa og í raun gáttaður þegar ég heyrði þessi ummæli hans Helga Magnúsar. Þau hljóta að hafa verið sögð í fljótfærni og ég geri ráð fyrir að hann hafi ekki skoðað forsögu málsins. Það er heldur alls ekki við hæfi að hann sé með slíkar yfirlýsingar." Sigurður sagði einnig í viðtalinu að hann hefði aldrei ætlað að fara í viðtöl sem þessi svona snemma en það moldviðri sem staðið hefur að starfsmönnum Kaupþings séu út úr kortinu. „Mér sárnar það gríðarlega að fólk sem byggt hefur upp þetta frábæra fyrirtæki sé að verða fyrir aðkasti og ættingjar þess og makar, það má ekki viðgangast. Menn verða að gæta að því hvað þeir segja í því umhverfi sem nú er." Að lokum sagðist Sigurður hafa brugðist. „Þetta eru margir samverkandi þættir en lykilatriðið er að við töldum okkur vel undirbúna. Þegar sú atburðarrás sem síðan fer í gang kemur í ljós að við ráðum ekki við eitt né neitt. Við hefðum átt að undirbúa okkur ennþá betur."
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira