Samþykktu að selja allt stofnfé SPM til Nýja Kaupþings 10. nóvember 2008 11:02
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum á föstudaginn var að taka tilboði frá Nýja Kaupþingi í allt stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu (SPM). Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki stjórnar Nýja Kaupþings. Þá þarf Fjármálaeftirlit og Samkeppnisstofnun einnig að samþykkja samninginn sem og lánveitendur SPM. Með þessu segja fulltrúar Nýja Kaupþings og Borgarbyggðar að búið sé að draga úr óvissu varðandi afdrif Sparisjóðs Mýrasýslu og að kaupin séu þannig liður í endurskipulagningu sjóðsins. Greint er frá þessu á vefsíðunni skessuhorn.is. Þar segir að bókfært verð stofnfjár sveitarfélagsins í sjóðnum var rúmar 500 milljónir króna en eins og fram hefur komið hefur afkoma sjóðsins verið afar slæm á þessu ári og eigið fé í raun uppurið. Fyrir gjaldþrot Kaupþings lá fyrir tilboð um kaup á nýju stofnfé í sjóðnum en það hafði ekki fengist staðfest af Fjármálaeftirlitinu áður en til gjaldþrots bankans kom. Forsvarsmenn Borgarbyggðar og stjórn Sparisjóðsins hafa undanfarnar vikur unnið stíft að lausn á framtíð rekstrar og eignarhalds í SPM og er niðurstaðan þessi að Borgarbyggð selur allt stofnféð. Vonast menn til að stjórn Nýja Kaupþings og ríkisvaldið meti það svo til lengri tíma litið að vænlegt verði að sparisjóðir verði áfram reknir í landinu. Hinsvegar verður tíminn einn að leiða í ljós hver afdrif SPM verður eftir að hann fer að öllu leyti í eigu ríkisbanka.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira