Straumur segir mun á eignum og áhættu vera einn milljarð evra 6. nóvember 2008 14:16
Straumur hefur unnið að því að minnka efnahagsreikning og áhættu bankans, vernda eigið fé og bæta lausafjárstöðu. Þann 31. október sl. voru heildareignir Straums undir 5 milljörðum evra og áhættugrunnur bankans undir 4 milljörðum evra. Munurinn er því einn milljarður evra eða 166 milljarðar kr.. Nú í byrjun nóvember nýtti Straumur tækifæri á markaði til að styrkja tekjuskapandi hluta rekstursins í London með því að ráða nokkra af fyrrverandi starfsmönnum Teathers og kaupa vörumerkið Teathers. Þetta kemur m.a. fram í greinargerð frá Straumi sem unnin var að beiðni Fjármálaeftirlitsins. Þar segir ennfremur að Straumur hefur á síðustu mánuðum haldið áfram að auka hlutfall tekna vegna þjónustu við viðskiptavini og draga úr áhættu í efnahagsreikningi, að því leyti sem mögulegt er. Efnahagsreikningur bankans og eigið fé hefur óhjákvæmilega rýrnað vegna lækkunar á verði eigna, bæði fjáreigna og útlána. Straumur hafði nokkrar eigna-, skulda- og afleiðustöður gagnvart Landsbanka Íslands hf., Glitni banka hf. og Kaupþing banka hf., þegar rekstur þeirra voru teknir yfir af Fjármálaeftirlitinu. Straumur telur að eftir uppgjör á þessum samningum séu samanlögð áhrif á eignastöðu Straums jákvæð. Uppgjör reikninga Straums er í evrum og ver bankinn eignir sínar í evrum. Hins vegar á bankinn töluvert af eignum og skuldum í öðrum gjaldmiðlum, þar á meðal íslenskum krónum. Bankinn hefur þó ekki getað sinnt hefðbundnum gjaldeyrisvörnum undanfarna mánuði vegna lokunar gjaldeyrismarkaðar á Íslandi. Á þessum tíma hefur bankinn neyðst til stöðutöku í mismunandi myntum. Þegar markaðsaðstæður leyfa mun bankinn taka upp fyrri aðferðir við gjaldeyrisvarnir. Með hliðsjón af framangreindu getur Straumur staðfest að veiking íslensku krónunnar hefur ekki haft veruleg áhrif á eignastöðu bankans. Síðustu mánuði hefur bankinn staðið við allar sínar skuldbindingar og mun gera það framvegis. Síðustu atburðir á Íslandi hafa hins vegar orðið til þess að lánshæfismat bankans hefur verið lækkað af lánshæfisfyrirtækinu Fitch Ratings, í langtímaeinkunnina "B". Straumur hefur á þessu tímabili haldið góðu sambandi við lánardrottna bankans og unnið að því að tryggja lausafjárstöðu hans.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira