Lífeyrissjóðirnir tapa tugum milljarða króna á bankabréfum 10. nóvember 2008 13:00
Allt útlit er fyrir að lífeyrissjóðirnir muni tapa tugum milljarða króna á eign sinni í skuldabréfum banka og sparisjóða hér á landi. Áður en bankakerfið hrundi lágu lífeyrissjóðirnir með 80-90 milljarða króna í þessum skuldabréfum í eignasöfnum sínum. Þetta tap mun bætast við tap upp á um 70 milljarða króna sem lífeyrissjóðirnir máttu þola af hlutafjáreign sinni í bönkunum þremur, Glitni, Landsbankanum og Kaupþingi þegar þeir fóru allir í þrot í haust. Arnar Sigurmundsson, formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að menn þar á bæ geri sér grein fyrir vandanum hvað skuldabréfin varðar þar sem þau muni falla undir almennar kröfur í þrotabú bankanna. Hins vegar sé heildartjónið ekki ljóst þar sem hugsanlega megi nota eitthvað af bréfum þessum til skuldajöfnunar. „Við reiknum með að umtalsverður hluti þess fjár sem bundinn var í skuldabréfum bankanna muni tapast," segir Arnar en bendir jafnframt á að upphæðin liggi ekki ljós fyrir fyrr en skiptum í þrotabú bankanna er lokið. Lífeyrissjóðirnir hafa haft þá stefnu að fjárfesta í skuldabréfum banka og sparisjóða fyrir um 4 til 5 prósent af fjárfestingafé sínu. Sem fyrr segir er talan um 80 til 90 milljarðar króna fyrir sjóðina í heild. Sem dæmi má taka að Lífeyrissjóður verslunnarmanna var með rúmlega 17 milljarða króna í þessum bréfum m.v. ársskýrslu fyrir árið 2007 og Gildi var með 10,6 milljarða króna í þessum bréfum. Eins og kunnugt er af fréttum á Vísi í síðustu viku voru haldin þrjú uppboð á skuldatryggingum íslensku bankanna. Uppboðin gáfu til kynna hvað þeir rúmlega 160 erlendur bankar, sjóðir og fjárfestar reikna með að fá fyrir skuldabréf íslensku bankanna. Það reyndist ekki mikið. Hjá Landsbankanum var reiknað með að 1,25 prósent fengist upp í kröfurnar, hjá Glitni voru þetta þrjú prósent og hjá Kaupþingi voru þetta 6,6 prósent. Miðað við þessi hlutföll er augljóst að tap lífeyrissjóðanna af þessum bréfum mun hlaupa á tugum milljarða króna.
Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Sjá meira