Fleiri fréttir

Verðið hækkaði um 100 prósent

Útflutningur á áli Alcoa í Reyðarfirði dróst saman um þrjú þúsund tonn í fyrra frá árinu 2009. Á sama tíma jókst verðmæti útflutningsins.

Landsframleiðslan jókst um 2% milli ársfjórðunga

Landsframleiðsla jókst um 2,0% að raungildi milli 4. ársfjórðungs 2010 og 1. ársfjórðungs 2011. Á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 5,1%, sem skýrist að mestu af mikilli aukningu birgða.

Miklar hækkanir á orkureikningum breskra heimila

Milljónir heimila í Bretlandi horfa nú fram á miklar hækkanir á orkureikningum sínum. Í frétt um málið í blaðinu Telegraph segir að reikna megi með að orkureikningar breskra heimila muni hækka að meðaltali um 200 pund eða rúmar 37 þúsund krónur á þessu ári.

Fyrsta skrefið í afléttingu hafta

Seðlabanki Íslands hélt í gær útboð á gjaldeyri fyrir eigendur aflandskróna. Alls bárust tilboð upp á rúmlega 60 milljarða króna en fimmtán milljarðar voru í boði að hámarki. Tilboðum var tekið fyrir 13,4 milljarða, á meðalverðinu 218,9 krónur fyrir evru.

Árleg fjárfesting var um tíu milljarðar

Fjárfesting í sjávarútvegi var um níutíu milljarðar króna frá 2001 fram til ársins 2009, að sögn Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum. Hann hafnar alfarið fullyrðingu Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar og varaformanns sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis, um að fjárfesting í sjávarútvegi hafi nánast engin verið um langt árabil.

Vilja losna á veiku gengi

Fyrsta gjaldeyrisútboði Seðlabankans er lokið og bárust tilboð fyrir sextíu og einn milljarð. Í tilkynningu frá bankanum segir að tilboðum hafi verið tekið fyrir 13,4 milljarða og var lágmarksverð samþykktra tilboða 215 krónur fyrir evru. Meðalverð nam hinsvegar tæpum 219 krónum á evru.

Ellefu íþróttafélög fengu alls 9 milljón króna styrk

Ellefu aðildarfélög Íþróttabandalags Hafnarfjarðar hlutu í gær samtals 9 milljóna króna styrki til eflingar barna- og unglingastarfs félaganna. Að styrkjunum standa Hafnarfjarðarbær og Rio Tinto Alcan á Íslandi og voru þeir afhentir í höfuðstöðvum álversins í Straumsvík. Um er að ræða fyrri afhendingu ársins á árlegum 15 milljóna króna styrk samkvæmt samstarfssamningi ÍBH, Rio Tinto Alcan og Hafnarfjarðarbæjar. Greiðir Rio Tinto Alcan 9 milljónir á ári og Hafnarfjarðarbær 6 milljónir. Samstarf þessara þriggja aðila hefur staðið frá árinu 2001. Fjárhæð vorúthlutunar skiptist á félögin eftir fjölda iðkenda 16 ára og yngri en við desemberúthlutun er útdeilt með hliðsjón af námskrám félaganna og menntunarstigi þjálfara. Eftirfarandi félög hlutu styrk í gær: Knattspyrnufélagið Haukar 2.737.023,- Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH) 2.188.456,- Fimleikafélagið Björk 2.014.000,- Sundfélag Hafnarfjarðar (SH) 604.781,- Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar (DÍH) 362.481,- Golfklúbburinn Keilir 354.728,- Badmintonfélag Hafnarfjarðar (BH) 323.713,- Siglingaklúbburinn Þytur 222.916,- Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar (HFH) 96.920,- Hestamannafélagið Sörli 58.152,- Íþróttafélagið Fjörður 36.830,- Rannveig Rist, forstjóri álversins, Guðmundur Rúnar Árnason bæjarstjóri og Hrafnkell Marinósson, formaður ÍBH, lögðu öll áherslu á mikilvægi þessa samstarfs fyrir íþróttalíf bæjarins, og þann margvíslega samfélagslega ávinning sem öflugt íþróttastarf hefur í för með sér. Hafði Rannveig jafnframt á orði að gullsöfnun hafnfirskra íþróttamanna væri orðin slík að móðurfélag álversins, Rio Tinto, væri farið að muna talsvert um hana, en gull er ein af afurðum fyrirtækisins. Á meðfylgjandi mynd eru Rannveig, Guðmundur Rúnar og Hrafnkell ásamt fulltrúum aðildarfélaga ÍBH við afhendingu styrkjanna í Straumsvík í gær.

Hádegisverður með Buffett kominn í 230 milljónir

Nýtt met hefur verið slegið á hinu árlega uppboði á eBay þar sem boðinn er upp hádegisverður með ofurfjárfestinum Warren Buffett. Hæsta boð er komið í 2 milljónir dollara eða um 230 milljónir kr.

Raungengi krónunnar lækkar áfram

Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,2% á milli apríl og maí síðastliðins á mælikvarða hlutfallslegs verðlags. Þessi lækkun er tilkomin vegna lækkunar á nafngengi krónunnar á tímabilinu, en hún lækkaði um 1,1% miðað við vísitölu meðalgengis í maí frá fyrri mánuði.

Deloitte samþykkt sem viðurkenndur ráðgjafi í Kauphöllinni

Kauphöllin hefur samþykkt að Deloitte hf. verði viðurkenndur ráðgjafi á First North Iceland. Hlutverk viðurkennds ráðgjafa felst í því að vera til ráðgjafar og aðstoðar fyrirtækjum við skráningu á First North og á meðan bréf þeirra eru í viðskiptum á markaðnum.

Fjarðarál flutti út ál fyrir 250 milljónir á dag

Fjarðaál flutti út ál fyrir tæplega 790 milljónir dollara, sem svarar til 94 milljarða króna á síðasta ári miðað við gengi bandaríkjadollars í desember síðastliðnum. Verðmæti útflutningsins nam því rúmlega 250 milljónum króna hvern dag. Um 33% útflutningstekna fyrirtækisins urðu eftir í landinu, eða rúmlega 31 milljarður króna.

Vöruskiptin hagstæð um 6 milljarða í apríl

Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 42,0 milljarða króna og inn fyrir tæpa 36,0 milljarða króna. Vöruskiptin í apríl voru því hagstæð um 6,0 milljarða króna. Í apríl 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 6,9 milljarða króna á sama gengi.

Skemmtiferðaskip skila milljörðum

Um 74 þúsund ferðamenn komu sjóleiðina til landsins í fyrra og hafa þeir aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram í Sjómannadagsblaðinu, en þar segir einnig að stöðug fjölgun skemmtiferðaskipa skili sífellt hærri upphæðum í gjaldeyristekjur.

Saudi Arabar hafa stóraukið olíuframleiðslu sína

Saudi Arabía, stærsti olíuframleiðandi heimsins, hefur hægt og rólega stóraukið olíuframleiðslu sína í maí síðastliðnum í viðleitni til að halda heimsmarkaðsverði á olíu í skefjum.

Fasteignakaup jukust um 97% milli ára í maí

Kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði um tæp 97% í maí síðastliðnum miðað við maí í fyrra. Veltan jókst um rúm 112% milli ára í maí.

Íslenska hagkerfið heldur áfram að rétta úr kútnum

Íslenska hagkerfið er áfram á batavegi og búist er við 2,25 prósenta hagvexti á árinu 2011. Þá eru öll skilyrði fyrir áframhaldandi framgangi samstarfsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) uppfyllt. Þetta er mat AGS sem birtist í nýrri starfsmannaskýrslu sjóðsins sem kom út í gær í kjölfar fimmtu endurskoðunar samstarfsáætlunarinnar.

Risar horfa til verslananna

Búast má við harðri baráttu um bresku matvöruverslanakeðjuna Iceland Foods, að sögn dagblaðsins The Telegraph.

Exxon Mobil sýnir Drekaútboðinu áhuga

Bandarísku olíurisarnir Exxon Mobil og Conoco Phillips, ásamt Statoil í Noregi og Total í Frakklandi, eru meðal þeirra átta olíufélaga sem sóttu kynningarfund um væntanlegt útboð Íslendinga á Drekasvæðinu, sem Orkustofnun stóð fyrir í Stafangri í Noregi í dag. Önnur félög sem sendu fulltrúa sína á fundinn eru Atlantic Petrolium í Færeyjum, Faroe Petrolium í Bretlandi, Sagex Petrolium í Noregi og Tullow Oil í Bretlandi.

AGS með strangt eftirlit á Íslandi eftir að áætlun lýkur

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) mun verða með í ráðum við öll helstu skref í afnámi gjaldeyrishafta, og ljóst að aðkoma sjóðsins hér á landi, a.m.k. hvað það varðar, mun standa mun lengur en efnahagsáætlunin sjálf. AGS vill tryggja endurheimtur lána sinna og mun í því sambandi áfram hafa strangt eftirlit með gangi mála hér.

Hæstiréttur troðfullur í gengisdómamáli

Áhorfendapallar í sal Hæstaréttar Íslands voru fullir þegar að sjö manna dómur kom þar saman í fyrsta sinn í sjö ár klukkan eitt í dag. Þar tókust á lögmaður Landsbanka Íslands og lögmaður þrotabús Motormax.

Gjaldeyrishöftin tefja fyrir bata

Þó svo að efnahagsbati á Íslandi hafi verið ótrúlega góður eftir eitt mesta hrun sögunnar standa gjaldeyrishöft nú í vegi fyrir frekari bata. Þetta kemur fram í grein eftir Þorvald Gylfason, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, sem birtist á hagfræðivefnum Vox fyrir helgi.

Aðalsteinn Leifsson formaður stjórnar FME

Aðalsteinn Leifsson, lektor, hefur tekið við sem nýr formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins (FME) og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent, hefur tekið við sem varaformaður. Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, situr áfram í stjórn Fjármálaeftirlitsins.

Asda ræður Lazard til að skoða Iceland

Asda önnur stærsta stórmarkaðakeðja Bretlands hefur ráðið fjárfestingarbankann Lazard til að meta möguleikana á að gera kauptilboð í Iceland Foods verslunarkeðjuna. Lazard er framarlega í ráðgjafaþjónustu og eignastýringu í Bretlandi og víðar. Asda er í eigu Wal-Mart stærstu verslunarkeðju heimsins.

Kortavelta eykst töluvert á milli ára

Kreditkortavelta heimila jókst um 7,4% í janúar–apríl í ár miðað við janúar–apríl í fyrra. Debetkortavelta jókst um 1,6% á sama tíma. Samtals jókst greiðslukortavelta heimila í janúar–apríl í ár um 4,7% miðað við janúar–apríl í fyrra.

AGS vill hraða skuldaúrlausnum fyrir heimili og fyrirtæki

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) segir að íslensk stjórnvöldi eigi að hraða endurskipulagningu skulda heimila og fyrirtækja. Nýjar úrlausnir sem kynntar hafa verið eigi að komast í gagnið eins fljótt og auðið er.

Lykilríki innan OPEC berjast fyrir lækkun olíuverðs

Lykilríki innan OPEC, samtaka olíuframleiðenda, munu berjast fyrir því að olíuframleiðsla á vegum samtakanna verði aukin á næstunni með það fyrir augum að koma heimsmarkaðsverði á olíu aftur niður fyrir 100 dollara. Sem stendur kostar tunna af Brent olíunni tæpa 116 dollara.

Fjárfestu ekki skynsamlega

„Útgerðarmenn hafa verið áhættusæknir í fjárfestingum sínum sem margar hafa gefist illa. Það er óvarlegt að draga þær ályktanir að breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu hafi neikvæð áhrif á raungengið,“ segir ÞórólfurMatthíasson, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands.

Fjárfesting löngum lítil í sjávarútvegi

„Fjárfesting í sjávarútvegi hefur nánast ekki verið nein í tíu ár,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis.

Átti að sækja um 160 undanþágur

„Ég er á móti því að einn fái undanþágu en ekki annar,“ segir Lúðvík Júlíusson. Hann hefur staðið í stappi við Seðlabankann um nokkurra mánaða skeið til að fá gjaldeyrishöftunum breytt. Hann vill láta gera þau mannlegri, fólk sé ekki reitir í excel-skjali.

Heildarkröfur á fjórða milljarð

„Nú er loks búið að koma þessari skuldastöðu hafnarinnar fyrir horn. Þetta hefur tekið langan tíma og málið farið nokkra hringi,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ.

Með mestu veltuna á skuldabréfamarkaði

Íslandsbanki var með mestu veltuna á skuldabréfamarkaði í maí, með 27% hlutdeild, samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Alls nam veltan 216,4 milljörðum króna sem er rúmlega 20 milljörðum meira en meðaltal þessa árs.

Fjórar hópuppsagnir í maí kosta 81 vinnuna

Vinnumálastofnun bárust 4 tilkynningar um hópuppsagnir í maí síðastliðnum. Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í mannvirkjagerð, hugbúnaðargerð, upplýsingastarfsemi og sjávarútvegi. Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 81 manns.

Tískukóngurinn Kevin Stanford klórar í bakkann

Fyrir aðeins tveimur árum horfði tískukóngurinn Kevin Stanford fram á eitt stærsta persónulega gjaldþrot sögunnar í Bretlandi. Þessum fyrrum viðskiptafélaga Baugs og einum af stærstu skuldurum Kaupþings hefur hinsvegar tekist að klóra svo vel í bakkann að hann heldur enn hluta af fyrra veldi sínu.

Sjá næstu 50 fréttir