Viðskipti innlent

Skil­málarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu

Árni Sæberg skrifar
Lögmenn Neytendasamtakanna fara yfir dóminn rétt eftir dómsuppsögu.
Lögmenn Neytendasamtakanna fara yfir dóminn rétt eftir dómsuppsögu. Vísir/Lýður Valberg

Hæstiréttur hefur sýknað Arion banka af öllum kröfum neytenda í máli sem sneri að skilmálum í lánasamningi um verðtryggt lán með breytilegum vöxtum. Um eitt vaxtamálanna svokölluðu var að ræða og Arion banki taldi 4,5 milljarða króna vera undir.

Hæstiréttur kvað upp dóm þess efnis klukkan 14. Dóminn má lesa hér.

Í honum segir að neytendurnir hafi höfðað mál og krafist endurgreiðslu á hluta þeirra vaxta sem þeir hefðu greitt af verðtryggðu húsnæðisláni með breytilegum vöxtum samkvæmt veðskuldabréfi sem þeir gáfu út í byrjun árs 2017 og greiddu upp í mars 2021. 

Samkvæmt skilmálum þess skyldi við ákvarðanir um breytingar á vöxtum horfa til „breytinga á ávöxtunarkröfu verðtryggðra skuldabréfa útgefinna m.a. af Íbúðalánasjóði, bönkum og fjármálastofnunum á Íslandi, ríkissjóði Íslands eða sveitarfélögum, breytinga á fjármögnunarkostnaði, rekstrarkostnaði, smásöluálagningu bankans og álagningu bankans vegna útlánaáhættu.“

Töldu skilmálann ógagnsæjan 

Neytendurnir hafi talið skilmálann ekki uppfylla kröfur um gagnsæi samkvæmt þágildandi lögum um neytendalán og að hann væri ósanngjarn í skilningi samningalaga, eins og lögin væru skýrð í ljósi Evróputilskipana um neytendavernd.

Hæstiréttur tók fram að skilmálinn hefði í mikilvægum atriðum verið ólíkur þeim sem var til umfjöllunar í dómi réttarins í máli neytenda á hendur Íslandsbanka, auk þess sem leyst hefði verið úr því máli á grundvelli núgildandi laga um fasteignalán til neytenda. 

Skilmálinn skýr og skiljanlegur

Í dóminum segir að Hæstiréttur hafi litið til þess að í skilmála Arion banka hafi skilyrði vaxtabreytinga verið tæmandi talin og þágildandi lög gerðu ekki ríkari kröfur til lýsingar á málsmeðferð við vaxtaákvörðun en fram kæmi í honum. 

Jafnframt var litið til þess að skilmálinn hefði verið á skýru og skiljanlegu máli með útskýringum á hverju og einu skilyrða vaxtabreytinga. Hæstiréttur taldi að skilmálinn uppfyllti gagnsæiskröfur laga um neytendalán. 

Ekki yrði séð að Arion banki hefði nýtt sér aðstöðumun við samningsgerðina eða að jafnvægi milli réttinda og skyldna samningsaðila hefði verið raskað til muna. Yrði sú krafa ekki leidd af ákvæði samningalaga um jafnvægi milli samningsaðila að fyllilega þyrfti að vera fyrirsjáanlegt hvaða vexti lántaki myndi greiða af láni með breytilegum vöxtum þegar kröfur um lögmæti skilmála væru að öðru leyti uppfylltar. 

Þá var horft til þess að lántökum hafi verið tryggð ákveðin mótvægisúrræði vegna ófyrirsjáanleika skilmálans. Því var ekki fallist á með neytendunum að skilmálinn væri ósanngjarn í skilningi samningalaga. Niðurstaða Landsréttar um sýknu Arion banka af kröfum neytendanna var því staðfest.

Dómurinn vonbrigði en hafi takmarkað fordæmisgildi

Málið er eitt fjögurra sem neytendur höfðuðu á hendur viðskiptabönkunum með fulltingi Neytendasamtakanna. Dómur féll í því fyrsta í október síðastliðnum og hafði gríðarleg áhrif á lánamarkað. 

Það mál var á hendur Íslandsbanka og varðaði skilmála í lánasamningi um óverðtryggt lán á breytilegum vöxtum. Hæstiréttur ógilti þá skilmála sem heimilaði bankanum að breyta vöxtum byggt á öðrum þáttum en stýrivöxtum Seðlabanka Íslands. Hins vegar féllst dómurinn ekki á að Íslandsbanki skyldi greiða neytendum sem höfðuðu málið skaðabætur, þar sem þeir urðu ekki fyrir tjóni.

Ljóst var fyrir uppkvaðningu dóms í dag að vextir verðtryggðra lána yrðu ekki bundnir stýrivöxtum.

Breki Karlsson, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir dóminn vonbrigði. Þessi dómur ólíkt Íslandsbankadómnum hafi þó ekki fordæmisgildi fyrir lán sem verið sé að veita núna, enda hafi hann snúið að lánasamningi sem gerður var fyrir gildistöku núgildandi laga um neytendalán.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Hulunni svipt af vaxtaviðmiðinu

Seðlabankinn hefur ákveðið að hefja birtingu á föstum lánstímavöxtum frá og með deginum í dag. Seðlabankinn mun framvegis birta vextina alla viðskiptadaga fyrir klukkan 11:00.

Óvissu á lánamarkaði eytt í byrjun næsta árs

Síðustu tvö vaxtamálin svokölluðu eru komin á dagskrá Hæstaréttar. Það síðara er á dagskrá þann 8. desember og því má reikna með því að dómur verði kveðinn upp í því ekki síðar en 5. janúar næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×