Fleiri fréttir

Skoða lögmæti fjármögnunar ríkisbankanna

Verið er að kanna hvort endurfjármögnun bankanna síðasta sumar stangist á við reglur Evrópska Efnahagssvæðisins (EES) og flokkist sem ólöglegur ríkisstuðningur. ESA (Eftirlitstofnun EFTA) er nú með málið til skoðunar.

Stefna að opnu og gagnsæju ferli

Arion banki leggur á það mat í hverju máli fyrir sig hvaða kostur sé heppilegastur þegar koma á í verð eignarhlutum í fyrirtækjum sem bankinn hefur þurft að taka yfir í þeim tilgangi að tryggja fullnustu eigna.

Verð hækkar þar til evra fer í 140 krónur

Neytendur þurfa að bíða þar til evran lækkar í um 140 krónur áður en verðlag kemst í jafnvægi. Samtök atvinnulífsins hafa reyndar talið að enn sé inni verðhækkun upp á um tíu prósent. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, formaður samtakanna.

Viðskiptajöfnuður óhagstæður um 27 milljarða

Viðskiptajöfnuður var óhagstæður um 27 milljarða króna á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 1 milljarð afgang á sama tímabili árið áður. Þetta kemur fram í frétt frá Seðlabankanum.

Landsbankinn uppfyllir kröfur FME

Landsbankinn vill árétta vegna þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika sem kynnt var í gær, og sagt hefur verið frá í fréttum, að bankinn uppfyllir allar kröfur FME um stórar áhættuskuldbindingar, segir í yfirlýsingu.

GAMMA: Skuldabréfavísitalan hækkaði

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,2% í dag í 6,3 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,2% í 2,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi:

Google gerir 25 ára mann ríkan

Google hefur keypt netfyrirtæki af hinum 25 ára gamla Nat Turner og hermt er að verðið hafi verið um 70 milljónir dollara eða um níu milljarða króna. Þetta kemur fram í frétt Business Insider.

Ávöxtunarkrafa á aflahlutdeild hefur minnkað verulega frá 1992

Óvissa um framtíð stjórnunar fiskveiða getur bæði haft áhrif á verð á aflamarki og aflahlutdeildum. Mikilvægt er að lágmarka þá óvissu og fastmóta stefnu til framtíðar sem ekki er hvikað frá. Þetta kemur fram í skýrslu frá Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu sem ber heitið Skilvirkni markaða fyrir aflaheimildir.

Spáir jákvæðum tóni hjá matsfyrirtækjum í garð Íslands

Greining Íslandsbanka telur líklegt að tónninn hjá matsfyrirtækjunum í garð Íslands á næstunni verði frekar jákvæðari en áður. Telur greiningin ólíklegt að lánshæfismat ríkissjóðs versni, nema verulegt bakslag verði í þróun gjaldeyrismála hér á landi og lausn Icesave deilunnar dragist enn á langinn.

Tæp 15% fækkun erlendra gesta í maí

Um 28 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í maímánuði síðastliðnum samkvæmt brottfarartalningum Ferðamálastofu í Leifsstöð og er því um að ræða 19% fækkun frá því í maí á síðasta ári. Að meðtöldum 1.300 brottförum erlendra gesta um Akureyrarflugvöll nemur fækkun erlendra gesta 14,8% milli ára.

JP Morgan fær risasekt í Bretlandi

Breska fjármálaeftirlitið (FSA) hefur skellt risavaxinni sekt á JP Morgan Securites. Sektarupphæðin nemur 33,3 miljónum punda eða um 6,3 milljörðum kr. Í frétt um málið á BBC segir að þetta sé hæsta sekt sinnar tegundar í sögu Bretlands.

Seðlabankinn opinn fyrir gjaldmiðlaskiptasamningum

Seðlabankinn segir að ekki sé loku fyrir það skotið að hann komi tímabundið að lausn mála varðandi misvægi gjaldeyriseigna og -skulda. Yrði það að öllum líkindum gert með vaxta- og gjaldmiðlaskiptasamningum af einhverjum toga þar sem bankinn yrði milliliður á milli bankanna og innlendra aðila með öfugt ójafnvægi.

Stjórn Spkef styrkir innra eftirlit

Stjórn SpKef sparisjóðs hefur gengið frá ráðningu Mjallar Flosadóttur í stöðu innri endurskoðanda sparisjóðsins. Mjöll mun taka við af Evu Stefánsdóttur sem senn fer í barneignarleyfi.

Warren Buffett til varnar Moody´s

Ofurfjárfestirinn Warren Buffett, sem er stærsti hluthafinn í matsfyrirtækinu Moody´s, kom fyrirtækinu til varnar í yfirheyrslum fyrir bandarískri þingnefnd í gærkvöldi.

Áhætta fylgir markaðsskráningu

Viðskipti Mikill ábyrgðarhlutur er að setja fyrirtæki í almenna sölu á hlutabréfamarkaði og bjóða þannig öðrum en fagfjárfestum að kaupa vegna áhættunnar sem fylgir slíkum kaupum, segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.

Auður reisir skjaldborg um kröfuhafa

Auður Capital hefur stofnað nokkur fyrirtæki sem bera nöfnin Skjaldborg kröfuhafafélag og svo númer hvað það er; 1, 2, 3 og þar fram eftir götunum. Margir hugsa ef til vill í kjölfarið til skjaldborgarinnar margumtöluðu um heimilin, sem þetta er jú ekki.

Skuldabréfavísitölur hækkuðu lítillega

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 12,2 milljarða króna viðskiptum og er 189 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá GAM Management.

Hlutabréf Marels hækka um 1,3 prósent

Gengi hlutabréfa Marels hækkaði um 1,3 prósent í Kauphöllinni í dag. Á eftir fylgdi gengi bréfa Össurar, sem fór upp um 0,82 prósent. Önnur hlutabréf á Aðallista hreyfðust ekki úr stað.

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7%

Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,7% í dag og er 891 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá verðbréfavefnum Keldunni. Marel hækkaði um 1,3% og Össur um 0,8%. Ekkert félag lækkaði.

Seðlabankastjóri: Stutt í botninn

Líklega er stutt í að botninum í efnahagsumsvifum sé náð, segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Hann segir þó að efnahagsbatinn hafi tafist og „forsendur varanlegs hagvaxtar séu um sumt enn ótraustar."

Íslandsbanki afskrifar 4 milljarða kúlulán starfsmanna

Kúlulán níu núverandi starfsmanna Íslandsbanka, uppá ríflega fjóra milljarða króna, verða afskrifuð. Starfsmennirnir fengu lánin hjá Glitni til hlutafjárkaupa í bankanum sjálfum í gegnum einkahlutafélög. Stjórn Íslandsbanka hefur óskað eftir því að starfsmennirnir gefi félög sín upp til gjaldþrotaskipta, segir í frétt RÚV.

Landsbankinn telur launakjör starfsmanna eðlileg

Landsbankinn telur launakjör starfsmanna sinna, sem eru með hærri laun en forsætisráðherra, eðlileg og vísar til eigendastefnu ríkisins sem gefin var út af Bankasýslunni á síðasta ári.

Dæmdir fyrir að selja ýsu sem þorsk og keilu sem steinbít

Starfsmaður og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Nordic Gourmet hafa verið dæmdir í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að tilgreina ranglega allt að þúsund tonn af sjávarafurðum til útflutnings, en þeir merktu ýsu sem þorsk og keilu sem steinbít. Þannig blekktu þeir útlendinga en brotin eru talin alvarleg.

Segir bleikjueldi Samherja vaxa hratt

„Markaðssetning er kostnaðarsöm og eitt árið var 19% af veltunni varið til markaðs- og kynningastarfs á bleikjunni sem var og er víða óþekkt vara," sagði Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja, á almennum atvinnumálafundi fyrirtækisins á Akureyri.

Mjög góð aflabrögð á karfamiðunum

Aflabrögð hafa verið mjög góð á karfamiðunum hjá togurum HB Granda og má heita að full vinnsla hafi verið um borð í skipunum frá fyrsta degi vertíðarinnar en afkastageta þeirra er um 40 til 50 tonn af fiski upp úr sjó á sólarhring.

Samtök fyrirtækja í grænni tækni stofnuð

Búið er að stofna Samtök fyrirtækja í grænni tækni, Clean Tech Iceland. Að stofnuninni stóðu Samtök iðnaðarins og fyrirtæki fyrirtæki sem vinna að þróun og markaðssetningu á grænni tækni. Samtökin munu starfa sem starfsgreinahópur innan SI.

Þröstur Sigurðsson til Capacent

Þröstur Sigurðsson hefur gengið til liðs við Capacent á Íslandi. Hann er reynslumikill ráðgjafi og hefur m.a. yfirgripsmikla þekkingu á rekstri sveitarfélaga, orkumálum og starfsemi fasteignafélaga.

Þjónustujöfnuður neikvæður um 3,6 milljarða

Útflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi 2010 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 57,3 milljarðar en innflutningur á þjónustu 60,9 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á fyrsta ársfjórðungi var því neikvæður um 3,6 milljarða króna.

Næstum hundrað bankar á hliðina

Tryggingasjóður innstæðueigenda í Bandaríkjunum (FDIC) tók yfir fimm banka um síðustu helgi. Þrír þeirra eru í Flórída, einn í Nevada og annar í Kaliforníu. Bankarnir höfðu lánað mikið til íbúðakaupa og fóru því illa út úr hruni á fasteignamarkaðinum.

Hvetja lánþega til að sniðganga frumvarp Árna Páls

„Samtök lánþega telja að hag lánþega sé best borgið með því að sniðganga með öllu þau úrræði sem boðið er uppá í nýframlögðu frumvarpi félagsmálaráðherra, vilji svo ólíklega til að það verði samþykkt á Alþingi."

Greining spáir vægari samdrætti í ár á Íslandi

Greining Arion banka gerir ráð fyrir vægari samdrætti á þessu ári eða 1,5% samdrætti, í stað 2,4% eins og fyrri spá greiningarinnar gerði ráð fyrir. Á móti kemur að spáin fyrir árið 2011 hefur verið lækkuð og er nú gert ráð fyrir 1,7% vexti á árinu 2011, í stað 3,9% vaxtar. Fyrir árið 2012 er gert ráð fyrir að vöxturinn verði kominn rétt yfir 4% á því ári.

Reynsluboltar stýra sjóðum MP Banka

„Við vinnum vel saman. Það sem við gerðum með Teton kom vel út og því ákváðum við að fara dýpra inn í stýringuna,“ segir Styrmir Guðmundsson sem ásamt Ragnari Páli Dyer hefur gengið til liðs við MP Banka um sjóðastýringu rekstrarfélags sjóða bankans. Þeir munu jafnframt eiga hlut í rekstrarfélaginu.

Herra Dómsdagur vill gjaldeyrishöft

Nouriel Roubini, prófessor í hagfræði við New York-háskóla í Bandaríkjunum, segir stjórnvöld í Brasilíu verða að innleiða gjaldeyrishöft ætli þau að koma í veg fyrir gengishrun brasilíska realsins.

Græn framtíð í færeyskum farsímum

„Það er gaman að sjá íslenskt hugvit fara út fyrir landsteinana og farsíma öðlast framhaldslíf,“ segir Bjartmar Alexandersson, framkvæmdastjóri Grænnar framtíðar.

Auglýst eftir fólki - ekki hugmyndum

„Það vantar ekki hugmyndir, heldur fólk til að gera þær að veruleika,“ segir Eyþór Ívar Jónsson, framkvæmdastjóri Klaks – nýsköpunarmiðstöðvar atvinnulífsins, sem rekur Viðskiptasmiðjuna í félagi við Háskólann í Reykjavík. Viðskiptasmiðjan gefur frumkvöðlum möguleika á að stofna ný fyrirtæki eða koma fyrirtækjum sínum á rétta braut.

Erum reynslunni ríkari eftir hrunið

Forstjóri Kauphallarinnar dregur í efa að sjónarmið í þá veru að hlutabréfamarkaður sé ónýtur og verði í mörg ár að rétta úr kútnum eigi við rök að styðjast.

Sjá næstu 50 fréttir