Viðskipti innlent

Þjónustujöfnuður neikvæður um 3,6 milljarða

Útflutningur á þjónustu á fyrsta ársfjórðungi 2010 var, samkvæmt bráðabirgðatölum, 57,3 milljarðar en innflutningur á þjónustu 60,9 milljarðar króna. Þjónustujöfnuður við útlönd á fyrsta ársfjórðungi var því neikvæður um 3,6 milljarða króna.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að samgöngur eru stærsti þjónustuliður í útflutningi á þjónustu og afgangur vegna þeirrar þjónustu var um 6,8 milljarðar kr.

Önnur þjónusta er stærsti liður í innflutningi og nam halli á þeirri þjónustu um 2,3 milljörðum kr. Halli á ferðaþjónustu var um 8,1 milljarður kr.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×