Fleiri fréttir

Fjarstýrir skemmtistað í Köben úr 101 Reykjavík

"Það er æðislegt að vera komin heim,“ segir Dóra Takefusa, athafnakona og eigandi skemmtistaðarins Jolene í Kaupmannahöfn, en hún er flutt heim að nýju eftir fjögurra ára dvöl í Danmörku.

Elma Lísa og María Heba lofa mögnuðum markaði

Það verður nóg um að vera um helgina út um allt land. Í miðbænum er einnig ýmislegt á döfinni, þar á meðal fatamarkaður leikkvennanna Elmu Lísu og Maríu Hegu, og má búast við því að margar af pæjum bæjarins eigi eftir að legga leið sína þangað.

Bon Jovi og fjölskylda orðlaus yfir Íslandsdvölinni

Rokksöngvarinn Jon Bon Jovi dvaldi á Íslandi í vikunni ásamt fjölskyldu sinni, eins og fram hefur komið í fjölmiðlum. Hann var gríðarlega ánægður með dvölina, samkvæmt skipuleggjanda ferðalagsins.

Kvenfélagskonur fækka fötum á ný

"Við erum að sýna konurnar eins og þær eru, engar þvengmjóar fyrirsætur heldur venjulegar konur,“ segir Sigríður Sigurfinnsdóttir, ein af konunum í kvenfélagi Biskupstungna.

Öðruvísi efni frá Incubus

Von er á sjöundu breiðskífu Incubus í næstu viku en liðsmenn hljómsveitarinnar segja plötuna allt öðruvísi en það sem áður hefur komið frá bandinu.

Plata frá Noel Gallagher

Noel Gallagher, rólegi Gallagher-bróðirinn, sendir frá sér sólóplötuna Noel Gallagher‘s High Flying Birds í október.

Ný ofurgrúppa Jagger

Mick Jagger er hvergi af baki dottinn þótt elli kerling sé farin að narta rækilega í hælana á söngvaranum. Hann hefur stofnað nýja ofurgrúppu ásamt sálarsöngkonunni Joss Stone, Damian Marley, syni Bob Marley, Dave Stewart úr Eurythmics og tónskáldinu A.R. Rahman, en sá á heiðurinn af tónlistinni í Slumdog Millionaire. Von er á nýrri smáskífu á næstunni sem hægt verður að hlaða niður af netinu og síðan er ráðgert að breiðskífa komi út í september.

Enginn vill gefa út Morrissey

Þrátt fyrir að hafa verið að og notið vinsælda í tæp 30 ár á tónlistarmaðurinn Morrissey í vandræðum með að finna útgáfufyrirtæki sem vill gefa út nýju plötuna hans. Hann segir útgáfurnar spenntari fyrir nýjum hljómsveitum.

Feitu fyndnu karlarnir

Það er alltaf pláss fyrir þéttvaxna ameríska brandarakarla á hvíta tjaldinu, kannski af því að Bandaríkjamenn eru meðal feitustu þjóða heims. Og húmorinn er fremur einfaldur; hann gengur út á át, búkhljóð og líkamsbygginguna.

Leikkonur loðnar um lófana

Leikkonurnar Angelina Jolie og Sarah Jessica Parker eru launahæstu leikkonurnar í Hollywood samkvæmt útreikningum Forbes-tímaritsins. Jolie hefur átt ágætu gengi að fagna á hvíta tjaldinu en kvikmyndirnar Salt og The Tourist nutu báðar mikillar hylli í miðasölu. Forbes heldur því fram að Jolie hafi þénað 30 milljónir dollara eða tæplega þrjá og hálfan milljarð íslenskra króna frá því í maí á síðasta ári til maí á þessu ári.

Justin finnur ástina á ný

Justin Timberlake og Jessica Biel hættu saman í mars en nú segja slúðurmiðlar vestanhafs að þau séu að taka saman aftur. „Þau eru að hittast á laun,“ sagði heimildarmaður og annar bætti við: „Þau hafa verið í sambandi alveg síðan þau hættu saman og ákváðu að gefa þessu annað tækifæri.“

Johnny Depp gerir númer fimm

Johnny Depp hefur augljóslega ekki fengið nóg af því að vera þvoglumæltur á hvíta tjaldinu. Samkvæmt bandarískum kvikmyndavefjum er leikarinn á góðri leið með að ná samkomulagi um að leika í fimmtu myndinni um Jack Sparrow og sjóræningja Karíbahafsins.

Frúin ánægð með Robbie

Ayda Field, eiginkona Robbie Williams, er ákaflega ánægð með eiginmanninn sinn og lýsir honum sem einhverri fyndnustu, mest heillandi og frumlegustu manneskju sem hún hafi hitt.

Cheryl er kröfuhörð

Cheryl Cole er búin að krefjast þess að fá nýtt hús og fullkomið hljóðver frá fyrrverandi eiginmanninum, Ashley Cole, ef hann ætlar að vinna hana á sitt band á nýjan leik.

Krakkarnir elska Skálmöld

Hljómsveitin Skálmöld kom tvisvar fram á Sódómu á þriðjudag ásamt færeysku hljómsveitinni Hamferð. Fyrri tónleikarnir voru fyrir alla aldurshópa og þeir seinni fyrir þá eldri. Ljósmyndari Fréttablaðsins var á svæðinu á fyrri tónleikunum og myndaði einlæga gleði viðstaddra.

Nýtt lag á leiðinni frá Þorvaldi Davíð

Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari hefur tekið upp nýtt lag sem verður gefið út með haustinu. Þorvaldur er sjálfur farinn til Los Angeles en félagi hans Sólmundur Hólm, skemmtikraftur og rithöfundur, aðstoðaði Þorvald við textasmíð í laginu, sem ekki hefur fengið neitt nafn.

Fagurt handbragð í París

Sýningar á Haute Couture, eða hátískunni eins og það nefnist á íslensku, fara fram þessa dagana í París. Sýningarnar, sem gefa sköpunargáfu hönnuða frjálsan tauminn, einkennast af fáguðu handbragði og íburðarmiklum flíkum fyrir veturinn 2011.

Linda Björg í nýjum raunveruleikaþætti

Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands, tekur sæti dómara í nýjum raunveruleikaþætti sem hefst um áramótin á Stöð 2. Þáttunum hefur verið gefið nafnið Hannað fyrir Ísland og eru runnir undan rifjum Sigurjóns Sighvatssonar, kvikmyndaframleiðanda og eiganda útivistarmerkisins 66 gráður norður. Þættirnir eiga að gefa ungum, íslenskum hönnuðum tækifæri til að koma sjálfum sér á framfæri. "Og það er engin leið betri til þess en í gegnum sjónvarp,“ segir Sigurjón. Byrjað verður að auglýsa eftir þátttakendum í næsta mánuði.

Bjóða í Húsdýragarðinn

Atlantsolía býður öllum handhöfum dælulykils fyrirtækisins til veislu í Húsdýragarðinum í dag. Í tilkynningu frá Atlantsolíu segir að þetta sé í þriðja sinn sem dagurinn er haldinn og er búist við fjölmenni. Síðast mættu um sex þúsund gestir. Boðið verður upp á Leikhópinn Lottu auk þess sem fulltrúar Latabæjar mæta og yngstu gestirnir fá frostpinna og blöðrur. Dalurinn opnar klukkan 10 en skemmtiatriðin byrja klukkan 15.00 og frítt er fyrir dælulykilshafa Atlantsolíu.

Sturtusápa væntanleg frá Silver

„Logi er ekki alveg hættur, ég er bara búinn að kaupa hans hlut og er því einn eigandi fyrirtækisins. Logi verður áfram stjórnarformaður og andlit fyrirtækisins,“ segir Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta og snyrtivörumógúll.

Boyle hefur augastað á Firth

Danny Boyle er að safna liði fyrir kvikmynd sína Trance en leikstjórinn hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár með kvikmyndum sínum Slumdog Millionaire og 127 Hours.

Kravitz féll í stafi yfir Sruli

Bandaríski tónlistarmaðurinn Lenny Kravitz féll fyrir hönnun Sruli Recht þegar ný herralína hans var frumsýnd í París fyrir skemmstu.

Átti ekki að fara í fangelsi

Lindsay Lohan lætur vaða á súðum í viðtali við Vanity Fair og segir að réttarkerfið í Bandaríkjunum hafi komið illa fram við sig. Hún hefði til að mynda aldrei átt að fara í fangelsi.

Skemmtigarður fyrir börnin

„Við sáum svona innanhússafþreyingargarða fyrir börn þegar við bjuggum í Noregi og gripum strax hugmyndina,“ segir Hrefna Björk Sverrisdóttir, en hún hefur opnað leiksvæðið Ævintýragarðinn ásamt kærasta sínum Bjarna Sigurðssyni.

Ferskir á ferð um Evrópu

Strákarnir í hljómsveitinni Agent Fresco ferðast nú um Evrópu. Þeir hafa komið víða við og krefjast þess að komast í sturtu eftir hverja tónleika, sem gerir lyktina í rútunni bærilegri.

Drottning úthafanna á leið til landsins

Seglskipið Statsraad Lehmkuhl, stærsta og glæsilegasta þrímastra skip heimsins er á leið til Reykjavíkurhafnar en það lagði úr höfn í Noregi þann fjórða júlí. Skipið kemur til Reykjavíkur 9. júlí og verður það opið gestum við bryggjuna á Miðbakka á sunnudaginn kemur frá klukkan 12 til 15.

Leggur í langferð á vespunni

Arngrímur Borgþórsson, landshornaflakkari og vespugæi, ætlar nú í vikunni að leggja upp í langferð frá Norðurmýrinni í Reykjavík og rúlla sér alla leið á Lónsöræfi austan Vatnajökuls. Arngrímur ætlar að pakka litlu fyrir ferðina; verður með svefnpoka á bögglaberanum og kaffibrúsa og smurt nesti í bakpoka. Hann gefur puttaferðalöngum líklega ekki far, allavega ekki lengri leiðir, enda hægir vespan á sér ef tvímennt er á henni. Á leiðinni austur á Arngrímur von á því að upplifa þjóðveginn og landslagið í meiri nálægð en bílafólkið sem tekur fram úr honum en sjálfur tekur hann fram úr hjólatúristum.

Aniston ætlar að taka sér frí til að einbeita sér að ástinni

Jennifer Aniston sem sló í gegn í Friends og hefur verið fastur gestur á síðum slúðurblaðanna frá því hún fór að slá sér upp með Brad Pitt, hefur í hyggju að taka sér frí frá leiklistinni. Hún byrjaði með leikaranum Justin Theroux fyrir nokkrum mánuðum og heimildir Marie Clair herma að hún ætli sér ekkert að leika í bíómyndum næsta árið. Í staðinn ætlar hún að vera "kærasta í fullu starfi" eins og það er orðað.

Maria Shriver sækir lögformlega um skilnað

Maria Shriver eiginkona Arnolds Schvarzenegger hefur sótt lögformlega um skilnað eftir að hafa verið gift stjörnunni í 25 ár. Sex vikur eru nú liðnar frá því að upp komst um framhjáhald vöðvatröllsins en hann eignaðist son með húshjálpinni á heimilinu fyrir mörgum árum síðan. Hjónin tilkynntu fyrst um að þau væru skilin að borði og sæng og skömmu síðar greindi Schwarzenegger sjálfur frá lausaleikskróganum.

Halda í víking til Noregs

"Félagi minn sagði einu sinni við mig að þar sem peningarnir eru þar gerast hlutirnir. Fjörið er búið hér á Íslandi og í Danmörku. Nú tekur Noregur við,“ segir Jói Kjartans ljósmyndari og grafískur hönnuður en hann hyggst leggja land undir fót í haust og flytja til Noregs ásamt kærustu sinni Hildi Hermannsdóttur en hún er þegar komin út.

Logi Geirs hættur í Silver

„Ég er hættur, seldi minn hlut í desember,“ segir Logi Geirsson, leikmaður FH í handbolta. Hann er hættur afskiptum af hárgels-fyrirtækinu Silver sem hann stofnaði ásamt Björgvin Páli Gústavssyni, markverði íslenska landsliðsins.

Skin og skúrir á Hróarskeldu

Hróarskelduhátíðin fór fram um helgina, en þessi danska tónlistarhátíð er meðal stærstu hátíða í heiminum í dag og telur um 80.000 gesti. Tískan er jafn fjölbreytt og mannlífið en ef marka má myndir af útpældum hátíðargestum má sjá að gúmmístígvél og gallastuttbuxur voru ríkjandi tískubóla meðal gesta. Röndóttir bolir, blómakjólar og klútar í hári voru einnig áberandi.

Ashley nær í Cheryl aftur

Hið ótrúlega hefur gerst; Ashley og Cheryl Cole eru byrjuð aftur saman. Breskir fjölmiðlar vita varla í hvorn fótinn þeir eiga að stíga því endurnýjaðar örvar Amors koma eins og þruma úr heiðskíru lofti.

Madonna í hljóðver á ný

Poppdrottningin Madonna er byrjuð að taka upp nýja plötu. Þrjú ár eru liðin frá útgáfu síðustu plötu hennar, sem sló í gegn um allan heim.

Bíladellan er ákveðinn genagalli

Áhugi á kraftmiklum farartækjum blundar í fjölskyldunni og er líklega ákveðinn genagalli,“ segir Gunnar Pálmi Pétursson, bifvélavirki og fyrrum torfærukappi hlæjandi. Hann er nýbúinn að kaupa sér Mercedes Benz AMG sportbíl, þann eina hérlendis með sex strokka 360 hestafla vél, og sýndi flotta takta í spyrnukeppni Bíladaga á Akureyri nýlega.

Steed Lord leikur og leikstýrir auglýsingu

Hljómsveitin Steed Lord leikstýrir og leikur í nýrri auglýsingu fyrir sænska tískumerkið WeSC. Auk þess heyrist lag sveitarinnar, Don‘t Hurt Love, í auglýsingunni. Auglýsingin er fyrir sólgleraugu sem WeSC hannar í samstarfi við ítalska fyrirtækið Super. Svala Björgvinsdóttir, söngkona sveitarinnar, segir tökurnar hafa gengið vel og að fyrirtækin tvö séu himinlifandi yfir afrakstrinum.

Börnin njóta myndanna

Bergrún Íris Sævarsdóttir málaði herbergi fyrir son sinn þegar hún var ólétt. Málunin hefur undið upp á sig og hefur hún síðan gert barnaherbergi víðar. Bergrún segir að hvert herbergi eigi að vera einstakt.

Frikki Weiss á flótta

"Það kom smá í kjallarann og við vorum alveg fimm tíma að þrífa það. En sem betur fer var þetta bara hreint vatn og því fylgdu engar rottur,“ segir Friðrik Weisshappel, veitingamaður á The Laundromat Café í Kaupmannahöfn. Verslanir í nágrenni við veitingastaði Friðriks voru ekki alveg jafn heppnar og veitingamaðurinn aðstoðaði verslunareigendur eftir fremsta megni.

Og þá var kátt í höllinni

Einn frægasti kvennabósi heims, Albert prins, gekk að eiga sunddrottninguna Charlene Wittstock á laugardaginn við hátíðlega athöfn. Varla varð þverfótað fyrir fyrirmönnum í smáríkinu Mónakó þegar hjónavígslan fór fram en meðal gesta voru íslensku forsetahjónin Ólafur Ragnar og Dorrit Moussaieff.

Með vatnspoka á bakinu hjá Björk

„Það er búið að ganga mjög vel og ótrúleg tilfinning að taka þátt í þessu,“ segir Jóna G. Kolbrúnardóttir um tónleika Bjarkar Guðmundsdóttur í Manchester en Jóna er hluti af kórnum Graduale Nobili sem syngur bakraddir hjá Björk. Núna er tveimur tónleikum lokið af sex en kórinn verður í Manchester í tæpan mánuð ásamt stórstjörnunni og fylgdarliði hennar.

Sjá næstu 50 fréttir