Lífið

Nýtt lag á leiðinni frá Þorvaldi Davíð

Þorvaldur Davíð skellti sér í stúdíó og tók upp lag áður en hann hélt á vit ævintýranna í Los Angeles. Hér er hann á tökustað á kvikmyndinni Svartur á leik.
Þorvaldur Davíð skellti sér í stúdíó og tók upp lag áður en hann hélt á vit ævintýranna í Los Angeles. Hér er hann á tökustað á kvikmyndinni Svartur á leik.
Textasmiðurinn Sólmundur Hólm skrifaði textann við nýja lagið. Fyrir tveimur árum gáfu félagarnir út lagið Sumarsaga.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari hefur tekið upp nýtt lag sem verður gefið út með haustinu. Þorvaldur er sjálfur farinn til Los Angeles en félagi hans Sólmundur Hólm, skemmtikraftur og rithöfundur, aðstoðaði Þorvald við textasmíð í laginu, sem ekki hefur fengið neitt nafn.

„Þorvaldur var búinn að semja þetta lag og vildi gera eitthvað meira úr því. Þess vegna ákvað hann að taka það upp áður en hann færi út," segir Sólmundur, sem eyddi öllum miðvikudeginum í stúdíó Geimsteini í Keflavík ásamt Þorvaldi. „Við brunuðum til Keflavíkur daginn áður en hann fór út og tókum upp hljóðfæraleik en svo ætlar hann að syngja það inn úti," segir Sóli en Björgvin Ívar Baldursson úr hljómsveitinni Lifun stjórnaði upptökum.

Sólmundur og Þorvaldur eru æskuvinir og er þetta ekki í fyrsta sinn sem félagarnir stilla saman strengi sína en þeir sendu frá sér smellinn Sumarsaga fyrir tveimur árum. „Þetta lag er ekkert „júhúbúmmbarambei" heldur svífur meiri angurværð yfir vötnum í þetta sinn."

Eins og kunnugt er hefur Þorvaldur Davíð verið staddur hér á landi í nokkra mánuði við tökur á íslensku myndinni Svartur á leik en hann útskrifaðist frá hinum virta leiklistarskóla Juilliard í vor.

Þessa dagana er hann að flytja frá New York til Los Angeles ásamt unnustu sinni, Hrafntinnu Karlsdóttur, en Þorvaldur landaði samningi við virta umboðsskrifstofu í mekka kvikmyndaiðnaðarins og ætlar að láta reyna á stóra drauminn. Spilamennskan er því í aukahlutverki hjá Þorvaldi en greinilegt að fleira togar í hann en leiklistin.

- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.