Og þá var kátt í höllinni 5. júlí 2011 06:00 Íslensku forsetahjónin voru glæsileg þegar þau mættu í athöfnina í Mónakó.
Einn frægasti kvennabósi heims, Albert prins, gekk að eiga sunddrottninguna Charlene Wittstock á laugardaginn við hátíðlega athöfn. Varla varð þverfótað fyrir fyrirmönnum í smáríkinu Mónakó þegar hjónavígslan fór fram en meðal gesta voru íslensku forsetahjónin Ólafur Ragnar og Dorrit Moussaieff. Albert prins er sá maður sem kemst næst því að teljast Casanova nútímans, slíkur er fjöldi ástkvenna hans. Franskir fjölmiðlar voru uppfullir af fréttum fyrir og eftir brúðkaupið um að kvensemi í fortíð prinsins væri þrándur í götu hjónabandsins og Le Journal du Dimanche birti magnaða frásögn af því að Wittstock hefði þrívegis reynt að flýja af hólmi; í París þegar hún átti að máta brúðarkjólinn, þegar Formúlu 1-keppnin fór fram í furstaríkinu og loks viku áður en athöfnin átti að fara fram. En alltaf hefði prinsinum eða starfsfólki hans tekist að sannfæra frú Wittstock um að gefast ekki upp. Ekkert fararsnið virtist hins vegar vera á brúðinni þegar hún var gefin Alberti, hún þótti þvert á móti glæsileg í Armani-kjólnum sínum. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Bríet ældi á miðjum tónleikum Lífið Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Lífið Ískaldir IceGuys jólatónleikar Lífið Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt Lífið Fleiri fréttir Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Katie Melua með tónleika í Hörpu í júní Segir síðasta ár hafa verið strembið Snjókorn falla eins og þú hefur aldrei heyrt það Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Draumadís Þórhildar og Hjalta skírð Ískaldir IceGuys jólatónleikar Bríet ældi á miðjum tónleikum Hver mínúta tók heilan mánuð af vinnu Þátttökulöndin ekki færri síðan 2003 Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Sjá meira