Fleiri fréttir

Víðförlar plastendur á leið til Englands

Upphaflega var þeim ætlað að fljóta í baðkörum í heimahúsum, en á síðustu fimmtán árum hafa þær flotið alla leið frá Kyrrahafinu að Bretlandi. Gámi sem innihélt 29 þúsund plastleikföng skolaði fyrir borð á flutningaskipi í óveðri á miðju kyrrahafinu árið 1992. Gámurinn tærðist í sjónum og von bráðar flutu gular endur, bláar skjaldbökur og grænir froskar um heimsins höf.

Svaf á skrifstofunni til að spara pening

Blankur starfsmaður British Airways svaf í skáp á skrifstofunni í tæpa átta mánuði. Hinn þrítugi Stephen McNally faldi sig á milli ljósritunarvéla og tölva til að forðast öryggisverði í þjónustuverinu þar sem hann vann í Newcastle á Bretlandi.

Heitt í Fótógrafí

Laugardaginn 30. júní frá 12 til 18 verður opnuð sýning á Afríkumyndum Páls Stefánssonar ljósmyndara í ljósmyndagalleríinu Fótógrafí Skólavörðustíg 4a. Páll kýs að kalla sýninguna ,,Heitt".

Minnisvarði um Lennon og George

Minnisvarði um Bítlana fyrrverandi, John Lennon og George Harrison, var afhjúpaður í Las Vegas vegna framlags þeirra til söngleikjarins Love sem hefur notið mikilla vinsælda í flutningi Cirque du Soleil.

Hara-systir stjórnar sjónvarpsþætti

Rakel Magnúsdóttir úr Hara-flokknum hefur verið ráðin til starfa hjá sjónvarpsstöðvunum Sirkus og Popp TV. Þar mun söngkonan kynna tíu vinsælustu lög Skífunnar og jafnvel bregða á leik með áhorfendum. Rakel var að vonum spennt fyrir nýja starfinu enda segist hún lengi hafa gengið með þann draum í maganum að komast í sjónvarp.

Spenntur fyrir Einari Áskeli

„Ég hlakka til að hitta Gunillu og sjá hvað við getum gert saman, það er samt allt á samningastigi enn," segir brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik sem mun mögulega gera brúður fyrir sjónvarpsþætti um Einar Áskel.

Pálmi slasaður eftir hestaferð

„Hann er bara að vakna eftir aðgerðina núna. Þetta fór sem betur fer ekki verr,“ segir Sigurlaug Halldórsdóttir, kona Pálma Gestssonar leikara. Pálmi slasaði sig í hestaferð í byrjun vikunnar og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur á þriðjudag. Leikarinn góðkunni var í níu daga hestaferð með erlendum ferðamönnum á Norðausturlandi, var reiðmaður með 70 hrossa stóði.

Misheppnuð typpastækkun veldur sjálfsmorði

Yfirvöld í Kambódíu vöruðu í gær þarlenda karlmenn við því að reyna heimatilbúnar aðferðir til typpastækkana. Þetta var gert í kjölfar þess að maður framdi sjálfsmorð í kjölfar misheppnaðrar typpastækkunar.

Heimsmeistari í kappáti með gigt í kjálka

Heimsmeistari í kappáti gæti misst titilinn vegna gigtar - í kjálkanum. Hinn 29 ára Takeru Kobayashi stefndi á sjöunda sigur sinn í pulsuátkeppni sem fer fram 4. júlí ár hvert í Brooklyn. Hann líður hins vegar svo miklar kvalir vegna gigtarinnar að hann á í vandræðum með að opna munninn.

Glímukappi myrðir eiginkonu sína og barn

Glímukappinn Chris Benoit kyrkti konu sína, kæfði sjö ára son sinn og kom biblíu fyrir við hlið líka þeirra áður en hann hengdi sig í snúru í lyftingatæki á heimili sínu í Fayettville í Georgíu. Benoit var fertugur kanadískur ríkisborgari, og þekktur sem ,,The Canadian Crippler" í fjölbragðaglímuheiminum.

Goldie heldur tónleika á NASA

Þann 14. júlí næstkomandi mun tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Goldie koma fram á Breakbeat.is klúbbakvöldi á NASA. Heimsókn Goldie er liður í kynningaferð fyrir nýjustu breiðskífu hans, Malice in Wonderland, sem kom út fyrir skömmu undir listamannsnafninu Rufige Kru.

Angelina Jolie hló í fæðingunni

Margar konur öskra, veina eða gráta á meðan þær fæða börn. Ekki Angelina Jolie. Á meðan dóttir hennar Shiloh Nouvel var tekin með keisaraskurði á sjúkrahúsi í Namibíu fékk hún hláturskast. Og Brad Pitt náði því öllu saman á myndband.

Krá verður sendiráð og sleppur við reykingabann

Uppfinningasamur bareigandi á Bretlandi hefur fundið leið framhjá reykingabanni sem tekur gildi þar á sunnudaginn. Bob Beech hefur gert krá sína, Wellington Arms, í Southampton að sendiráði fyrir Redonda, pínulítla óbyggða eyju í Karabíska hafinu, um 35 sjómílur frá Antigua.

Aukatónleikar Sinfoníuhljómsveitarinnar og Dúndurfrétta

Uppselt er á tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar og Dúndurfrétta í Laugardalshöll á föstudag, þar sem sveitirnar flytja eitt þekktasta verk rokksögunnar, The Wall eftir Pink Floyd. Vegna þessa hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum fimmtudaginn 28. júní klukkan 19:30.

Paris brosir breitt

Hótelerfinginn Paris Hilton brosti sínu blíðasta er hún yfirgaf fangelsið sem hún hafði mátt dúsa í frá því í upphafi mánaðarins þar til henni var sleppt úr haldi rétt fyrir miðnætti í fyrradag. Hilton hafði þá afplánað 23 daga af 45 daga dómi en vegna góðrar hegðunar og plássleysis í fangelsinu var hún látin laus fyrr en áætlað var.

Cruise í vanda

Þýsk yfirvöld hafa meinað Tom Cruise að taka upp senur í nýjustu kvikmynd hans á grundvelli trúarskoðana Cruise. Samstarfskona Cruise segir trúarbrögð leikarans ekkert hafa með myndina að gera.

Bullock í rómantík

Thomas Haden Church er í viðræðum um að leika á móti Söndru Bullock í rómantísku gamanmyndinni All About Steve. Bullock leikur snjallan krossgátufræðing sem verður yfir sig ástfanginn að myndatökumanni sjónvarpsstöðvarinnar CNN eftir aðeins eitt stefnumót.

Sizemore í steininn

Leikarinn Tom Sizemore hefur verið dæmdur í sextán mánaða fangelsi eftir að fíkniefni fundust í bíl hans. Þar með braut hann skilorð sitt eftir að hafa áður verið handtekinn með fíkniefni í fórum sínum.

Staðfestu rétt dæmds nauðgara til kláms

Dæmdir kynferðisafbrotamenn í Svíþjóð mega skoða klámblöð að vild. Þetta segja þarlendir dómstólar, sem komust að þeirri niðurstöðu að sænsku fangelsismálastofnuninni væri ekki stætt á því að neita dæmdum nauðgara um klámblöðin hans.

Moore er of feitur til að fjalla um heilbrigðismál

Dýraverndunarsamtökin PETA eru ekki hrifin af Michael Moore og nýjustu mynd hans ,,Sicko", sem fjallar um heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum. Þau segja hinn frjálslega vaxna leikstjóra ekki í neinni aðstöðu til að fjalla um heilbrigðismál, þegar hann sé sjálfur afar óheilbrigður.

Brasilísk skutla týndi naflanum

Sérlega duglegur grafískur hönnuður, harðákveðinn í að fjarlægja hverja einustu misfellu af líkama brasilískrar fyrirsætu, máði nafla hennar af mynd sem birtist í Playboy tímaritinu.

Vildi fá kostnað vegna tilhugalífsins bættann

Hryggbrotinn kærasti ætlaði ekki að láta vaða yfir sig á skítugum skónum, og fór í mál við unnustu sína fyrrverandi til að fá kostnað vegna rómantískra helgarferða, gjafa og ófrjósemisaðgerðar bættann.

Hyggst hlæja í eigin aftöku

Maður í Texas sem á að lífláta í dag vill deyja hlæjandi. Vinur Patrick Knight auglýsti eftir bröndurum á Myspace og bárust hundruðir tillagna. Knight hyggst svo lesa einn þeirra áður en hann verður líflátinn með eitursprautu. Talskona fangelsisyfirvalda, Michelle Lyons, sagði að hann vildi hafa létta stemningu við aftökuna.

Barnsmóðir 50 Cent sættir sig ekki við klink

Ein og hálf milljón á mánuði er ekki nóg til að ala upp barn og halda heimili. Að minnsta kosti vill barnsmóðir 50 Cent, Shaniqua Tompkins, meina það en rapparinn greiðir mánaðarlega 1.5 milljónir í meðlag með syni sínum.

Bannað að mynda vegna trúarbragða Tom Cruise

Þýskaland bannaði framleiðendum myndar um tilraun til að ráða Adolf Hitler af dögum að mynda á svæðum þýska hersins vegna þess að Tom Cruise, stjarna myndarinnar, er meðlimur vísindakirkjunnar.

Erfið vika hjá Venna

„Ég lenti í viku frá helvíti,“ segir sjónvarpsmaðurinn og fasteignasalinn Vernharð Þorleifsson sem er þessa dagana að jafna sig eftir þrjú áföll sem gerðust í lífi hans með skömmu millibili.

Kvikmynd um Hugh Hefner

Til stendur að gera kvikmynd um Hugh Hefner, stofnanda karlatímaritsins Playboy. Leikstjóri verður Brett Ratner sem á að baki Rush Hour-myndirnar og X-Men: The Last Stand.

Prjónateppi á Austurvelli

Hönnunarhópurinn Títa ætlar að sauma og prjóna út um allan bæ í sumar. Hópurinn starfar á vegum Hins Hússins og er liður í verkefninu Skapandi sumarstörf.

Paris Hilton losnar í dag

Ólátabelgurinn og glamúrgellan Paris Hilton losnar úr steininum í dag og má reikna með miklum fjölmiðlasirkus fyrir framan Century Regional Detention Centre í Lynwood þar sem fyrirsætan hefur dvalist síðastliðna 23 daga. Að sögn Kathy Hilton, móður Parisar, er stúlkan að vonum mjög spennt fyrir því að losna úr fangelsi og lét móðirin hafa eftir sér að: „Paris væri orðin langþreytt á appelsínugula gallanum sínum.“

Diaz biðst afsökunar

Leikkonan Cameron Diaz hefur beðist afsökunar á því að hafa borið tösku með pólitískum slagorðum sem hafa vakið upp slæmar minningar á meðal íbúa Perú.

Timberlake hrækti á Svíana

Svíar eru með böggum hildar eftir skammarlega framkomu söngvarans Justin Timberlake í garð aðdáenda sinna þar í landi. Timberlake hélt tónleika í Gautaborg í gærkvöldi en söngvarinn var eitthvað illa upplagður þegar hann kom til Gautaborgar á sunnudag eftir vel heppnaða tónleika í Kaupmannahöfn. Er hann kom á hótel sitt í Gautaborg biðu hans fjölmargir aðdáendur og svo fór að söngvarinn missti hreinlega stjórn á skapi sínu.

Fullyrt að Miller sé hommi

Fjölmiðlar í Bandaríkjunum sögðu í gær frá því að leikarinn Wentworth Miller, sem slegið hefur í gegn í þáttunum Prison Break, hafi átt í ástarsambandi við annan karlkyns leikara síðasta hálfa árið. Orðrómur um að Miller sé samkynheigður hefur lengi verið uppi en sjálfur hefur leikarinn neitað því harðlega.

Fær greiddar bætur

Sátt hefur náðst í máli sem Victoria Beckham höfðaði gegn slúðurblaðinu Star. Kryddpían fær greiddar bætur og birt verður afsökunarbeiðni. Málið snýst um frétt sem Star Magazine birti um vandamál við gerð raunveruleikaþáttar um flutning Beckham-hjónanna til Bandaríkjanna.

Posh Spice vinnur meiðyrðamál

Victoriu Beckham hafa í hæstarétti í London verið dæmdar bætur fyrir meiðyrði. Í grein sem birtist í Star tímaritinu lýsti meðlimur í kvikmyndatökuliði nýs raunveruleikaþáttar hennar því að Victoria væri smámunasöm, frek og dónaleg. Hún væri sjálfumglöð og ekki mjög viðkunnaleg.

Vilhjálmur og Kate byrjuð saman aftur

Vilhjálmur bretaprins og Kate Middleton eru byrjuð saman aftur ef marka má bresku pressuna, sem hefur smjattað á málinu um helgina. Prinsinn og Middleton hættu saman í apríl eftir margra ára samband. Orðrómur um að þau hefðu tekið saman aftur fór á flug þegar þau sáust saman í samkvæmi í herbúðum Vilhjálms í Dorset fyrr í mánuðinum.

Cameron Diaz særir Perúbúa

Cameron Diaz hefur baðst í gær afsökunar á tösku með pólitísku slagorði sem hún bar á blaðamannafundi í Perú. Diaz mætti á fundinn með tösku með áprentaðri rauðri stjörnu og Maóista slagorðinu ,,Þjónaðu fólkinu" á kínversku.

Dísarpáfagauksins Drizzt Do'Urden Hagalín saknað

Dísarpáfagaukur flaug á vit ævintýranna frá heimili sínu á Klapparási á laugardagskvöldið síðastliðið. Hans er eðlilega sárt saknað af eigendum, sem sendu fréttastofu eftirfarandi tilkynningu:

Grillaðir grísir í skrúðgöngu

Það er ekki bannað að leika sér með matinn sinn í smábænum Balayan á Filippseyjum. Lechon, eða grillað svín er hátíðamatur á Filippseyjum og hátíð heilags Jóns er fagnað með skrúðgöngu safaríkra grillaðra grísa.

Fáklæddar fyrirsætur í flugvélum

Tíu ára gamlir Friends þættir og þriðja klassa bíómyndir eru ekki eitthvað sem lítið flugfélag í Ekvador ætlar að bjóða viðskiptavinum sínum. Það fer heldur óvenjulegar leiðir til að laða að viðskiptavini, en hjá þeim spranga fáklæddar fyrirsætur um gangana.

Vill frekar drepa Lindsey Lohan en Paris Hilton

Söngvari Korn, Jonathan Davis, myndi frekar vilja drepa Lindsey Lohan en Paris Hilton. Lohan væri reyndar bara óskafórnarlamb Davis í hryllingsmynd, vegna þess að hún er ,,að minnsta kosti flott, og er með rass."

Eddie Murphy er pabbinn

Langri bið Melanie Brown er loks á enda því nýlega var henni tilkynnt að pabbi hinnar þriggja mánaða gömlu Angel Iris væri gamanleikarinn Eddie Murphy.

Ósátt við móður sína

Britney Spears virðist vera eitthvað ósátt við móður sína og íhugar nú að sækja um nálgunarbann á hana. Britney heimsótti víst lögfræðing sinn fyrr í vikunni til þess að spyrjast fyrir um bannið en þá yrði Lynne, móður Britneys, bannað að nálgast börn dóttur sinnar.

Eignaðist sitt fyrsta barn

Mick Hucknall, söngvari Simply Red, hefur eignast dóttur með kærustu sinni, Gabriellu Wesberry. Þetta er fyrsta barn Hucknall, sem er 47 ára. Hucknall og Wesberry hittust fyrst snemma á tíunda áratugnum en hættu saman 1995. Árið 2003 byrjuðu þau síðan aftur saman. Hucknall hefur verið kenndur við ýmsar konur í gegnum tíðina, þar á meðal Catherine Zeta-Jones og Helenu Christensen.

Háð ísraelskum húðvörum

Söngkonan Madonna er að eigin sögn algjörlega háð vissum ísraelskum húðvörum. Madonna er orðin 48 ára og lítur vissulega ekki út fyrir það enda hugsar hún mjög vel um líkamann.

Fimm fræknir læknanemar í Kenía

Fimm stúlkur sem stunda nám í læknisfræði í Háskóla Íslands dvelja nú í Kenía þar sem þær vinna hjálparstarf. „Við höfum verið að vinna á heilsugæslustöðvunum í Naíróbí,“ segir Helga Tryggvadóttir, ein hinna fimm fræknu.

Sjá næstu 50 fréttir