Lífið

Prjónateppi á Austurvelli

Stelpurnar sauma og prjóna út um allan bæ í sumar og fá gangandi vegfarendur í lið með sér.
Stelpurnar sauma og prjóna út um allan bæ í sumar og fá gangandi vegfarendur í lið með sér.

Hönnunarhópurinn Títa ætlar að sauma og prjóna út um allan bæ í sumar. Hópurinn starfar á vegum Hins Hússins og er liður í verkefninu Skapandi sumarstörf.



„Við erum að hanna og sauma alls kyns fatnað sem við munum svo sýna á stórri tískusýningu á menningarnótt," segir Særós Rannveig Björnsdóttir í hönnunarhópnum Títu. Auk hennar eru þær Edda Sif Eyjólfsdóttir, Svandís Friðleifsdóttir, Sandra Borg Bjarnadóttir og Elfa Steinarsdóttir í hópnum sem starfar á vegum Skapandi sumarstarfa Hins hússins.



„Við erum líka með stórt prjónaverkefni í gangi og erum á Austurvelli hvern fimmtudag og annan hvern föstudag. Þá fáum við fólk til að prjóna með okkur, hver prjónar einn bút og þeir verða svo saumaðir saman í stórt teppi. Við höfum fengið fyrirtæki til að gefa áheiti á prjónateppið og ágóðinn er til styrktar hjartveikum börnum," segir Særós Rannveig en stúlkurnar kynntust í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. „Við vorum allar í textíl og fatahönnun í FB og tvær okkar eru búnar að klára. Við stefnum svo allar á áframhaldandi nám á þessu sviði."



Á föstudaginn kemur munu stúlkurnar verða með viðburð sem þær kalla „Kusur flakka um bæinn". En þá munu þær sýna alls kyns fatnað úr gervifeldi sem líkist beljuhúð. Fleiri upplýsingar um Hönnunarhópinn Títu má sjá á vefsíðunni www.myspace.com/titadesign.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.