Lífið

Paris Hilton losnar í dag

Hótelerfinginn verður frjáls ferða sinna í dag.
Hótelerfinginn verður frjáls ferða sinna í dag.

Ólátabelgurinn og glamúrgellan Paris Hilton losnar úr steininum í dag og má reikna með miklum fjölmiðlasirkus fyrir framan Century Regional Detention Centre í Lynwood þar sem fyrirsætan hefur dvalist síðastliðna 23 daga. Að sögn Kathy Hilton, móður Parisar, er stúlkan að vonum mjög spennt fyrir því að losna úr fangelsi og lét móðirin hafa eftir sér að: „Paris væri orðin langþreytt á appelsínugula gallanum sínum.“



Fangelsisvist Parisar hefur þó ekki verið neinn dans á rósum en henni var sleppt að loknum 72 tímum þar sem læknar óttuðust um heilsufar hennar. Dómari í Kaliforníu sýndi hótelerfingjanum hins vegar enga miskunn og sendi hana rakleiðis aftur á bak við lás og slá. Paris var dæmd til fangelsisvistar fyrir síendurtekin umferðarlagabrot og ölvunarakstur.



Fjölmiðlar hafa mikið velt því fyrir sér hvernig Paris komi til með að líta út þegar hún snýr aftur útí hinn frjálsa heim. Í slúðurblöðum hefur því verið haldið fram að hún hafi misst þó nokkur kíló en vinir og vandamenn hafa vísað því á bug. „Hún hefur engu gleymt,“ sagði leikkonan Ashley Scott sem heimsótti hana í fangelsið.



Paris mun veita Larry King fyrsta viðtalið sitt en áður hafði NBC-sjónvarpsstöðin neitað að greiða eina milljón dollara eða 63 milljónir íslenskra fyrir slíkt viðtal. Paris mun hins vegar mæta frítt til Larry sem um árabil hefur þótt einhver besti spjallþáttastjórnandinn í bandarísku sjónvarpi undanfarin ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.