Fleiri fréttir

Spilar fyrir vinkonu sína

„Hún er alin upp í Eyjum og það hefur alltaf mikil áhrif,“ segir Guðmunda Bjarnadóttir, móðir Margrétar Láru Viðarsdóttur, framherja íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Margrét Lára hefur farið mikinn í íslenskri kvennaknattspyrnu undanfarin ár og nú er svo komið að þessi 21 árs gamla knattspyrnukona er orðin markahæsti leikmaður liðsins frá upphafi.

Ráku rangan mann

Leikarinn Isaiah Washington, sem var rekinn úr læknaþættinum Grey"s Anatomy vegna ummæla sinna um samkynhneigða, segir sjónvarpsstöðina ABC hafa rekið rangan náunga.

Pitt kom Jolie á óvart

Leikkonan Angelina Jolie féll gjörsamlega fyrir Brad Pitt skömmu eftir að hún kynntist honum við tökur á myndinni Mr. & Mrs Smith. Kom það henni á óvart hversu margbrotinn persónuleiki hann var.

Vildi ekki fleiri partí

Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir segist hafa flutt frá London vegna þess að hún vildi ekki enda sem algjör partígella. „Þessi þrjú ár þar sem mér leið eins og súperstjarna var mjög skemmtileg reynsla,“ segir Björk.

Paris Hilton þakklát

Paris Hilton þreytist ekki á að veita viðtöl úr fangelsinu og nú er hún alveg sannfærð um að hún sé orðin miklu betri manneskja eftir alla þessa fangelsisdvöl. American Idol kappinn Ryan Seacrest spjallaði við Paris sem sagðist vera miklu þakklátari núna.

Flóttinn var eins og gott sumarfrí

Davíð Garðarsson hefur margoft hlotið dóma fyrir ýmis afbrot. Hann hóf afplánun á 31 mánaðar nauðgunardómi 1. apríl síðastliðinn sem hann var dæmdur fyrir í desember árið 2005. Sigríður Hjálmarsdóttir fékk að skyggnast inn í líf mannsins.

Einfarinn í eldhúsinu

Matarbiblía Íslendinga var um margra ára skeið ljósritað hefti sem Nanna Rögnvaldardóttir hafði útbúið fyrir sjálfa sig og ýmsa vini sína. Forstjóri Iðunnar fann einn daginn heftið í ljósritunarvélinni og sagði Nönnu að nú skyldi eldhúsviska hennar gefin Nönnu að nú skyldi eldhúsviska hennar gefin út. Júlía Margrét Alexandersdóttir hitti konuna sem stendur að baki bróðurparti íslenskra matarskrifa og segist hún löngu vera búin að sætta sig við að vera eilítið öðruvísi en aðrir.

Eyþór í það heilaga

Eyþór Arnalds hyggst ganga að eiga unnustu sína, Dagmar Unu Ólafsdóttur, í Selfosskirkju laugardaginn þrítugasta júní. Þetta staðfesti Eyþór í samtali við Fréttablaðið en vildi að öðru leyti lítið láta hafa eftir sér. „Við viljum ekkert vera að auglýsa þetta,“ sagði Eyþór.

Rokk og sólgleraugu

Sólgleraugu eru fylgihlutur sem æpir: a. Dulúð (vegna þess að þú getur falið þig undir þeim), b. Glamúr (Hollywood-stjörnurnar bera þau) c. Kúl (uppgötvaðu þinn innri rokkara) og d. Bruðl (sólgleraugu eru orðin stöðutákn tískufríksins). Rokkarar eru alltaf með sólgleraugu, og hafa leyfi til að vera með þau innanhúss og uppi á sviði.

Ingó töfrarmaður fór á kostum

Ingó töframaður lék á alls oddi þegar hann beygði skeiðar og gaffla úr mötuneyti 365 með hugarorkunni í Íslandi í dag í kvöld. Friðrika Hjördís Geirsdóttir og Sölvi Tryggvason fylgdust dolfallin með og áttu vart til orð yfir töfrum Ingó.

Lögregla berst gegn siðleysinu

Lögregla í Srinagar, höfuðborg Kashmírhéraðs, þar sem sjálfsmorðsárásir og mannrán eru algeng, hafa fengið nýtt verkefni. Þeim hefur verið falið að uppræta kelerí ungmenna í almenningsgörðum á veitingastöðum og internetkaffihúsum.

Gerviprestur reynir að skíra barn

Maður sem þóttist vera prestur var handtekinn af lögreglu þar sem hann bjó sig undir að skíra barn í smábæ í norður-Portúgal í síðustu viku. ,,Um leið og hann sleppti orðunum ,,Í nafni Föðurins, Sonarins og hins Heilaga Anda" kom lögreglan inn og greip hann" sagði einn kirkjugesta við dagblað bæjarins Jornal de Noticias.

Pamela Anderson ætlar að opna nektardansstað

Baywatch leikkonan fyrrverandi, sem átti finnskan langafa, hefur verið á ferðalagi um Finnland með pabba sínum og ætlar að heiðra uppruna sinn með nýrri viðskiptahugmynd.

Ætlar að hlaupa lengur en sólarhring

Ofurmaraþonhlauparinn Dean Karnazes ætlar að reyna að slá heimsmetið í því að hlaupa á hlaupabretti með því að hlaupa tæpa 250 kílómetra á hlaupabretti á Times Square í New York.

Pamela Anderson skammar Finna fyrir loðdýrarækt

,,Finnland þarf að ganga inn í 21 öldina og hætta loðdýrarækt." Þetta eru skilaboðin frá Pamelu Anderson til forseta landsins. Í opnu bréfi til Tarja Halonen, forseta Finnlands, segir Anderson: ,,Ég er stolt af finnskum rótum fjölskyldu minnar, en ég var vonsvikin þegar ég komst að því að fleiri refir eru drepnir í Finnlandi en nokkurs staðar annars staðar í heiminum."

Paris Hilton er þakklát fyrir litlu hlutina í lífinu

Paris Hilton segir að fangelsisvistin hafi gert hana þakklátari fyrir litlu hlutina í lífinu. Hótelkeðjuerfinginn á nú einungis nokkra daga eftir af fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir að brjóta skilorð með því að keyra án ökuréttinda.

Retro Stefson á föstudagstónleikum 12 tóna

Hljómsveitin Retro Stefson treður upp á föstudagstónleikum 12 tóna í dag. Sveitin lýsir tónlist sinni sem blöndu af Retro-Latin-Surf-Soul-Powerpoppi og eiga meðlimir rætur sínar að rekja um allan heim, þó einkum til rómanskra málsvæða sem endurspeglast bæði í tónlist þeirra, textagerð og klæðnaði.

Höfðar til barnssálarinnar

Breski tónlistarmaðurinn Jarvis Cocker les upp úr íslensku þjóðsögunni Búkollu á tónlistarsíðunni Daytrotter.com. Árni Björnsson þjóðháttafræðingur segir söguna í uppáhaldi hjá mörgum.

Réði nýjan lögfræðing

Pamela Bach, fyrrverandi eiginkona „strandvarðarins“ Davids Hasselhoff, hefur ráðið sér nýjan lögfræðing í forræðisdeilu sinni við Hasselhoff. Bach ákvað að reka síðasta lögmann sinn skömmu eftir að Hasselhoff hlaut forræði yfir tveimur dætrum þeirra, þrátt fyrir að myndir hafi verið birtar af honum á netinu ofurölvi. Bach hefur áfrýjað málinu og ætlar sér ekki að tapa í þetta sinn.

Blístrar eins og teketill

„Ég er búinn að gera þetta margoft með humra og krabba. Þeir eru soðnir lifandi. Ég veit ekki hvernig humar finnur til eða krabbi eða hvers kyns skepnur þetta eru en þær lamast um leið og þær fara ofan í,“ segir matreiðslumaðurinn Siggi Hall.

Æfir með meistaraflokki Vals að Hlíðarenda

„Mér finnst bara helvíta gaman í fótbolta og graslyktin er alltaf jafn góð,“ segir Ólafur Stefánsson, einn besti handknattleiksmaður Íslands og heims, en hann æfir um þessar mundir með meistaraflokki Vals í knattspyrnu.

Nýju ljósi varpað á Díönu

Hefur ekki allt verið skrifað, myndað og sagt um Díönu Spencer, prinsessuna af Wales? Það finnst fyrrum glanstímaritaritstjóranum Tinu Brown ekki og nýlega gaf hún út bókina Diana‘s Chronicle sem er sögð varpa nýju ljósi á prinsessu fólksins.

Vilhjálmur bretaprins 25 ára með milljónir á mánuði

Prinsinn ætti að minnsta kosti ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að eiga ekki fyrir 25 ára afmælisveislunni, því hann fær á afmælisdaginn aðgang að vöxtum á arfi eftir Díönu móður sína. Arfurinn er metinn á 6.5 milljónir punda eða rúmar 800 milljón krónur. Fjármálasérfræðingar reikna með að vextirnir nemi á milli 30 og 43 milljónum króna á ári.

Búsið gæti drepið Britney

John Sundahl, áfengisráðgjafi Britney Spears, hefur varað hana við því að hætti hún ekki að drekka gæti hún dáið. ,,Ég sagði henni að ef hún falli, haldi ég ekki að hún lifi það af" sagði Sundahl. ,,Ef þú vilt ekki að verða edrú fyrir sjálfa þig, gerðu það þá fyrir börnin þín"

Jónsmessurganga um Elliðarárdal

Jónsmessuganga verður farin um Elliðaárdal á föstudagskvöldið klukkan 22:30. Minjasafn Reykjavíkur og Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur standa fyrir göngunni um þetta einstaka útivistarsvæði í miðju Reykjavíkur.

Vilja skýra barn sitt ,,4real"

Nýsjálenskt par berst nú fyrir réttinum til að skýra son sinn ,,4real", sem gæti útlagst ,,í alvöru", en yfirvöld eru ekki hrifin. Pat og Sheena Wheaton ákváðu nafnið þegar þau sáu barnið fyrst í ómskoðun og áttuðu sig á því að þau væru ,,í alvöru" að verða foreldrar.

Bannar Kryddpíunum að verða óléttar

Simon Fuller, heilinn á bak við endurkomu kryddpíanna, ætlar ekki að standa í neinu rugli. Hann hefur þess vegna sett þeim nokkrar reglur, sem þær þurfa að fara eftir í samstarfinu.

Kate Moss mætti ein í afmæli McCartneys

Kate Moss skildi vandræðagemsann sinn, Pete Doherty, eftir heima þegar hún mætti í 65 ára afmæli bítilsins Paul McCartney í gær. Súpermódelið líktist helst Hollywood-dívu af gamla skólanum þegar hún mætti til veislunnar að heimili McCartneys í St John's Wood í skósíðum hvítum silkikjól.

Vill að Amy Winehouse semji næsta Bond-lag

Tónskáldið David Arnold, sem séð hefur um tónlistina í síðustu fjórum Bond-myndunum vill fá vandræðabarnið Amy Winehouse til að semja næsta Bond-lag.

Fær bætur fyrir að bera brjóstin

Ung kona sem var handtekin fyrir að spóka sig berbrjósta á götum New York fær tæpar tvær milljónir í bætur frá borginni. Jill Coccaroo, 27 ára listamaður, var þann fjórða ágúst árið 2005 á listasýningu í East Village. Henni varð heitt, og brá á það ráð að leysa niður um sig efri hluta samfestings sem hún var í, og tölta svo um ber að ofan til að kæla sig.

Nicole Richie ekki á leið í steininn strax

Réttarhöldum yfir raunveruleikaþáttastjörnunni Nicole Richie fyrir að keyra undir áhrifum var í gær frestað til 11. júlí. Richie var handtekin þar sem hún keyrði á röngum vegarhelmingi á hraðbraut í Los Angeles. Lögregla sagði að hún hefði viðurkennt að vera undir áhrifum kannabisefna og verkjalyfsins vicodin.

Sólstöðuganga í Hrísey

Sólstöðuganga verður farin í Hrísey annað kvöld, fimmtudagskvöldið 21. júní klukkan 20.00. Ferðin er á vegum minjasafnsins á Akureyri. Þorsteinn Þorsteinsson leiðir gönguna og mun segja frá Hrísey fyrr og nú. Allir eru velkomnir í gönguna sem er ókeypis.

Visir býður á Die Hard 4.0 í London

Berglind Anna er á leiðinni á rauða dregilinn í London að hitta stjörnurnar úr stórmyndinni Die Hard 4.0 á heimsfrumsýningu myndarinnar í dag, miðvikudag. Þar mun hún vera í félagsskap með frægðarfólki eins og Bruce Willis, Timothy Olyphant, Justin Long, Maggie Q, Kevin Smith og fleirum.

Ferðamenn fara úr hvalaskoðun í hvalkjötsát

„Þeir koma hér til mín og gleypa þetta í sig alveg hreint," segir Kjartan Halldórsson sem rekur veitingastaðinn Sægreifann við Reykjavíkurhöfn. Hann segir það daglegt brauð að erlendir ferðamenn komi til hans að smakka hvalkjöt eftir að hafa farið í hvalaskoðun. „Þeir fara út að skoða hvalina og svo blæs hvalurinn framan í þá og þá koma þeir gráðugir til mín að borða," segir sægreifinn og hlær.

Kvæðakonan Camilla á blogginu

Steinunn Camilla úr stúlknasveitinni Nylon hefur opnað bloggsíðuna manzana.blog.is sem væri ef til vill ekki til frásögur færandi nema þar sýnir söngkonan hæfileika sína með kveðskap og ljóðagerð. „Ég hef nú skrifað ljóð síðan að ég var níu ára,“ segir Steinunn sem tók bloggið í sína þjónustu í síðustu viku.

Fóstran með kærasta

Daisy Wright, barnfóstran sem leikarinn Jude Law hélt framhjá með er hann var enn með Siennu Miller, er byrjuð með Maxi Jazz, söngvara Faithless. Wright, sem er 28 ára, og Maxi, sem er nýorðinn fimmtugur, sáust láta vel hvort að öðru á Wire­less-hátíðinni sem var haldin í Bretlandi um síðustu helgi.

Tiger Woods fjölgar mannkyninu

Síðustu misseri hafa verið erfið fyrir Tiger Woods. Hann missti pabba sinn, Earl Woods, á síðasta ári en þeir voru mjög nánir vinir. Þrátt fyrir tap á US-Open um helgina gafst Woods tækifæri til að fagna sínum stærsta sigri á mánudeginum.

VR skoðar mál FL Media

„Við reiknum með því að fá reikningana frá Rottweiler í dag og þá munum við fara yfir málin,“ segir Ómar Vilhelmsson, framkvæmdarstjóri Flass.net. Fréttablaðið hefur að undanförnu fjallað um meintar vanefndir viðburðarfyrirtækisins FL Media hvað launamál varðar í kjölfar þess að rapphljómsveitin XXX Rottweiler setti upp heimasíðuna oskaraxelskuldarpening.blogspot.com.

Konur yfirsnyrtar?

Snyrtifræðingur með yfir 20 ára starfsreynslu segir það færast mjög í aukana að konur fari í svokallað Brasilískt vax. Hún segir að staðan sé að breytast þannig að konur treysti sér varla í almenningssturtur lengur nema vel snyrtar.

Velgengni Vesturports

Leikhópurinn Vesturport hefur slegið í gegn í leikhúsum í Bretlandi eins og hér á landi og ekki má gleyma kvikmyndunum Foreldrar og Börn. Hópurinn undirbýr nú kvikmynd sem byggist á leikritinu Brim en þangað til það gerist heldur vöxturinn í Bretlandi áfram.

Át sautján metra af brenninetlu

Ellefta heimsmeistarakeppnin í brenninetluáti fór fram í enska smáþorpinu Marshwood á laugardaginn. Keppnin er haldin laugardag fyrir sumarsólstöður ár hvert, og dró í ár að sér keppendur alla leið frá Ástralíu og Rússlandi.

Stefnir í drullubað á Glastonbury

Gangi spár eftir verður rigning á Glastonbury hátíðinni í ár. ,,Vikan verður vætusöm, svo þetta verður sami drullupytturinn og venjulega" sagði veðurfræðingurinn Stewart Wortley við BBC. Upphafsmaður hátíðarinnar, Michael Eavis mun opna hlið landareignar sinnar í Somerset fyrir hátíðargestum á miðvikudag en hátíðin sjálf stendur frá föstudegi til sunnudags.

Þriðja barn Juliu Roberts kemur í heiminn

Julia Roberts eignaðist þriðja barn sitt og eiginmannsins Danny Moder í Los Angeles í gær. Barnið, 15 marka drengur, fær nafnið Henry Daniel. Talsmaður fjölskyldunnar sagði að móður og barni heilsaðist vel.

Enginn lítill K-Fed á leiðinni

Shar Jackson, fyrrverandi kærasta og barnsmóðir Kevin Federline er æf yfir sögusögnum um að hún gangi með þriðja barn þeirra skötuhjúa.Hún hyggst nú kæra Star tímaritið sem sagði fyrst frá hinni meintu þungun og vitnaði í vini Jackson sögunni til stuðnings.

Sjá næstu 50 fréttir