Lífið

Kate Moss mætti ein í afmæli McCartneys

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir skrifar
Hin 33ja ára Kate Moss hefur margoft verið kosin best klædda konan.
Hin 33ja ára Kate Moss hefur margoft verið kosin best klædda konan.
Kate Moss skildi vandræðagemsann sinn, Pete Doherty, eftir heima þegar hún mætti í 65 ára afmæli bítilsins Paul McCartney í gær. Súpermódelið líktist helst Hollywood-dívu af gamla skólanum þegar hún mætti til veislunnar að heimili McCartneys í St John's Wood í skósíðum hvítum silkikjól.

Moss eyddi kvöldinu með vinkonu sinni Stellu McCarney, dóttur popparans, og leikkonunni Natalie Portman. Meðal annarra gesta voru Elton John, ljósmyndarinn David Bailey, ,,fimmti bítillinn" Sir George Martin og fyrrverandi kærasti Moss, Jefferson Hacks. Þau eru góðir vinir, en þau eiga dótturina Lilu Grace saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.