Fleiri fréttir

Britney og Madonna vinna saman

Britney og Madonna munu vinna saman á ný. Britney hefur samþykkt að tala fyrir eina persónuna í nýrri mynd Madonnu.

Pamela svekkt

Pamela Anderson sér virkilega eftir því að hafa hafnað hlutverki í sjónvarpsþáttaröðinni Desperate Housewives.

Kidman fær lág laun

Nicole Kidman mun einungis fá greidda 570 dollara á viku fyrir næstu mynd sína. Hún sættir sig við áströlsk lágmarkslaun fyrir myndina Eucalyptus þar sem hún leikur á móti Russell Crowe.

Jolie ósátt við sögusagnirnar

Angelina Jolie vill kveða niður sögusagnir þess eðlis að hún hafi eyðilagt hjónaband leikaranna Brads Pitts og Jennifer Aniston og segir sig einungis hafa veitt Pitt öxl til þess að gráta á.

Lélegir demparar valda óhöppum

"Það eru demparar í öllum bílum og minnst fjórir demparar í hverri bifreið - yfirleitt einn á hvert hjól. Það skiptir miklu máli að hafa demparana í lagi því lélegir demparar auka hemlunarvegalengd bílsins og gera aksturseiginleika þar af leiðandi lakari.

The Aviator bar sigur úr býtum

Kvikmyndin The Aviator í leikstjórn Martins Scorsese var sigurvegari Golden Globe-verðlaunahátíðarinnar í Hollywood í fyrrinótt. Hún var valin besta dramatíska myndin auk þess sem Leonardo DiCaprio var valinn besti dramatíski leikarinn og Howard Shore fékk verðlaun fyrir bestu tónlistina.

Myndrænt yfirgripsmikið bílablað

"Blaðið fæst í öllum bókavöruverslunum og bensínstöðvum þannig að sem flestir ættu að geta nálgast það. Satt best að segja er ég mjög hissa yfir þeim góðu viðtökum sem blaðið hefur fengið því oft er erfitt að koma tímaritum á laggirnar. Bílar & Sport hefur selst vel og margir hafa hringt inn og beðið um áskrift.

Lögmannsstarfið lifandi, krefjandi

"Mér fannst þetta spennandi nám og vissi að það myndi reyna á þá þætti sem ég taldi mig hafa hæfileika í. Það sem mér fannst skemmtilegast á þessum tíma var rökfræðin, en það er mikill skyldleiki milli rökfræði og lögfræði. Síðan voru aðrir þættir mikilvægir eins og að hafa örugga atvinnu að námi loknu, en aðallega fannst mér þetta spennnandi heimur.

Fer sína eigin leið

Bryndís Jakobsdóttir er ungur söngfugl enda dóttir Ragnhildur Gísladóttur og Jakobs Frímanns Magnússonar. Hún virðist hafa fengið tónlistaráhuga í vöggugjöf og eins og kom fram í DV í gær er hún á leið til London í vikunni að syngja fyrir nokkra í bransanum.

Leðurblökumaðurinn á Íslandi

Myndskeið úr stórmyndinni Upphaf Leðurblökumannsins eru nú sýnd í kvikmyndahúsum um allan heim. Þar sést ofurhetjan meðal annars spóka sig í rammíslensku landslagi.

Fann augnlinsu í sundlaug

Kristjáni Magnússyni, sundlaugarverði í Vesturbæjarlaug, tókst fyrir skömmu hið ótrúlega þegar hann fann augnlinsu í lauginni sem ítalskur ferðamaður hafði týnt. Ítalinn bað starfsmenn sundlaugarinnar um að koma sér til hjálpar enda var um svokallaða "eilífðarlinsu" að ræða, linsur sem eiga að endast von úr viti.

Trúi á annað líf

"Ég á nú ekki von á að vera hérna mikið lengur en dauðann óttast ég ekki. Ég trúi á annað líf og veit að maðurinn minn bíður eftir mér. Hann var alveg einstakur maður," segir Kristbjörg Kristjánsdóttir, sem er hundrað ára í dag.

Báru út póst á aðfangadagskvöld

"Menn gátu sett bréf í póst rétt fyrir hádegi á aðfangadag og merkt þau "jólakvöld" og voru bréfin þá borin út á aðfangadagskvöld eftir klukkan sex. Þess má geta að annar tveggja bréfbera í bænum þetta ár var Erlendur í Unuhúsi," segir Heimi Þorleifsson sagnfræðingur en hann er höfundur "Póstsögu Íslands 1873-1935" sem kom út nú fyrir jólin.

Sólin dofnaði og skín aldrei jafn skært á ný

Hafsteinn Númason var um borð í Bessa þegar snjóflóðið féll. Í landi voru Berglind Kristjánsdóttir eiginkona hans og litlu börnin þeirra þrjú. Börnin létust og Berglind slasaðist illa. Hafsteinn vildi helst hætta að anda eftir slysið.

Látinna minnst

Í dag eru liðin tíu ár síðan snjóflóð féll á Súðavík og hreif með sér fjórtán mannslíf. Minningarguðsþjónusta verður í íþróttahúsinu í Súðavík í dag og í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ í kvöld.

Hrannar sölustjóri 365

Hrannar B. Arnarsson hefur verið ráðinn sölustjóri áskriftarsölu hjá 365 - ljósvakamiðlum og lausasölu hjá 365 - prentmiðlum. Hrannar var áður markaðsstjóri hjá Eddu útgáfu. Hann mun hefja störf á morgun.

Það er ekki til frásagnar

"Bókaútgáfan hjá okkur gekk vel. Og það er eiginlega sama sagan hjá öllum sem ég hef talað við í greininni. En þessa dagana erum við að taka við bókum úr dreifingunni, skilunum. Mann svíður auðvitað í hjartað við hvern einasta kassa. En þetta var ágætt," segir Steingrímur Steinþórsson, bókaútgefandi í Skruddu, en hann er 54 ára í dag.

Meira popp á Saumastofunni

Það er meira popp í loftinu á Saumastofu Kjartans Ragnarssonar nú en fyrir þrjátíu árum. Á morgun gefst landsmönnum kostur á að kynnast saumastofunni á ný eftir langt hlé.

Nýtt óperuhús tekið í notkun

Mikið var um dýrðir þegar nýja óperuhúsið í Kaupmannahöfn var opnað á laugardag að viðstaddri drottningunni og fleira mektarfólki. Um 400 söngvarar, dansarar og leikarar skemmtu gestum í húsinu sem rúmar 1.700 gesti.

Stórviðburður í tónlistarlífinu

Á síðustu árum hefur umfang Íslensku tónlistarverðlaunanna aukist og eru þau nú glæsileg uppskeruhátíð alls tónlistarfólks í landinu.

Listin er að ætla sér ekki um of

Hjörleifur Guttormsson fékk úrskurði Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum álvers Alcoa í Reyðarfirði hnekkt, í bili í það minnsta. Ekki er öllum jafn mikið um baráttu Hjörleifs gefið og hefur honum jafnvel verið hótað af sveitungum sínum eystra.

Góður fiskur betri en vont kjöt

"Ég hugsa stundum um konurnar sem voru með kostgangara í gamla daga og gæti vel trúað að það hafi verið gaman. Ég er ekki mikið að halda eiginleg matarboð en ég bý miðsvæðis og fæ oft óvænta gesti og svo hringi ég stundum í fólk þegar ég er búin að elda til að athuga hvort það vill ekki kíkja," segir hún hlæjandi.

Sverðfiskur í bland við smjörfisk

"Það hefur verið mitt aðal í gegnum árin að bjóða upp á öðruvísi fisk," segir Kristján Berg, eigandi fiskbúðarinnar Varar. "Það er til dæmis gaman að segja frá því að í hitteðfyrra fékk ég tvo sportkafara til að kafa eftir öðuskel í Hvalfirðinum.

Sikileyjarpasta

Hollusta matarmenningarinnar við Miðjarðarhaf er margrómuð. Þessi réttur er innblásinn af þeirri hefð. Hér er gott gert betra og ennþá hollara með því að notast við spelt spaghetti og rómverskt kál, sem gerir réttinn fyllri og fjölbreyttari. Magnifico!

Harry heimsæki Auswitch

Karl Bretaprins ætlar að skipa Harry syni sínum að heimsækja fangabúðirnar í Auswitch eftir að fréttir bárust af því að Harry hefði klæðst armbandi með hakakrossi á í afmælisveislu um helgina. Æsifréttablaðið Sun segir Karl æfan af reiði yfir athæfi sonarins og hann vilji að Harry fræðist nánar um Helförina með því að heimsækja fangabúðirnar.

Þeir sprengja í kellingar

Það er kominn föstudagur og Fókus fylgir DV. Í blaðinu getur þú fundið út hver þú ert samkvæmt týpukerfi fókus og séð allt um bestu plöturnar sem eru væntanlegar Í viðtali við mestu hnakka landsins, kallana.is, segja þeir frá ljósabekkjareglum, mistökum í kynlífi og muninum á white-trash hnökkum og þeim.

Fókus býður í bíó

Það er kominn föstudagur og Fókus fylgir með DV. Eins og venjulega býður blaðið lesendum sínum að klippa út miða og skipta honum út fyrir alvöru bíómiða, að þessu sinni á hina eitursnjöllu Lemony Snicket´s A Series of Unfortunate Events. Þar fer Jim Carrey á kostum sem Olaf greifi, blanda af Fagin í Óliver, Beetlejuice og Glanna glæp.

Konur vilja bara kortér

Rekkjusögur úr Reykjavík, pistill Katrínar Rutar, er á sínum stað í Fókus sem fylgir með DV í dag. Þessa vikuna kemur hún upp um misskilning karla varðandi kynlífstíma. Eftir mikla athugun og kannanir komst hún að því að það er álit flestra kvenna að ekkert sé verra en að hjakkast klukkutímum saman.

Setja Saumastofuna sjálf upp

Fókus fylgir með DV í dag. Þar er ítarleg úttekt á skemmtanalífinu um helgina. Á djammkortinu er að finna alla staði miðbæjarins og úthverfanna, hvernig stemmningin er og hvað er að gerast. Á sunnudaginn verður leikritið Saumastofan frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Nokkrir leiklistarkrakkar tóku sig saman og uppfærðu 30 ára gamalt verk að nýjum tíma.

Allir velkomnir í Ígulker

Ein nýjasta búð miðbæjarins heitir Ígulker og er stödd á Laugavegi 60. Þar ræður ríkjum hin tvítuga, spænsk ættaða Carmen Jóhannsdóttir. Hún bjó í Barcelona og kynntist búðabransanum í gegnum vini sína. Carmen tók þá ákvörðun að demba sér sjálf í bransann, fór á námskeið, tók lán og stofnaði Ígulker. Hún sagði Fókus hvers fólk má vænta í búðinni.

Úr svínasúpu í blóðbað

Ólafur Egill Egilsson, Björn Thors, Björgvin Franz Gíslason og Auðunn Blöndal eru á meðal íslenskra leikara sem Eli Roth hefur skoðað með hlutverk í nýrri hryllingsmynd í huga.

Boða svita og geðveiki

Í Fókus sem fylgir DV á föstudögum er alltaf Djammkortið að finna. Þar eru viðburðir helgarinnar útlistaðir og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem þeir eru fimmtugir Kópavogsbúar eða tvítugar miðbæjarrottur. Í kvöld eru til dæmis rokktónleikar á Grandrokk. Þar stíga á stokk þrjár hljómsveitir og þar á meðal er rokkbandið Changer.

Emma á BBC

Plöggið er komið á fullt hjá Emilíönu Torrini, enda er stutt í að nýja platan komi út. Hún er því á ferð og flugi þessa dagana á tónleikum í Englandi og fékk m.a. fínan dóm fyrir það í The Guardian. Fókus fór á stúfana og komst einnig að því að á mánudaginn mætir hún til BBC í Lundúnum til að spjalla og spila nýju lögin sín í hljóðverinu.

Lag um óvenjulegan dans

Dúettinn Hot Damn, með Jenna úr Brain Police og Smára Tarfi í broddi fylkingar, kom nýlega fram í sjónvarpsþættinum Óp og spilaði nýtt lag sem heitir Butt Bumpin Boogie.

Aðgangseyrir til Asíu

Bjarmaland, framleiðslufyrirtæki kvikmyndarinnar Í takt við tímann, og Skífan létu aðgangseyri af öllum sýningum kvikmyndarinnar í Regnboganum í gær renna óskiptan til söfnunarinnar Neyðarhjálp úr norðri.

Segir Jackson hafa fróað honum

Drengurinn sem hefur sakað popparann Michael Jackson um að hafa misnotað sig kynferðislega, sagði fyrir rétti í Kaliforniu í fyrra að Jackson hefði fróað honum er hann var 13 ára á heimili Jacksons, Neverland.

Hatturinn hans Dúdda á uppboði

Söfnunin Neyðarhjálp úr Norðri nær hámarki klukkan 19:40 í kvöld þegar sjónvarpsstöðvarnar Skjár Einn, Stöð 2 og Sjónvarpið senda allar út þennan söfnunarþátt til styrktar fórnarlömbum flóðbylgjunnar í Asíu.

Sammi er tískudrós

Samuel L. Jackson hefur viðurkennt að hann sé ansi hégómafullur. Stjarnan segist alltaf skipuleggja fötin sín jafnvel þó hann sé einungis að fara að spila golf.

Eastwood hótar Moore

Clint Eastwood lýsti því yfir á verðlaunahátíð í New York á dögunum að hann myndi "drepa" kvikmyndagerðarmanninn Michael Moore ef hann birtist einhvern tíma í dyragættinni hans með myndavél.

Matur og skemmtan í febrúar

"Food and Fun" hátíðin haldin í fjórða sinn dagana 16. til 20. febrúar næstkomandi. Hátíðin er haldin í samstarfi við Reykjavíkurborg og er á sama tíma og vetrarhátíð sem borgin stendur fyrir, en hún er liður í markaðsstarfi Icelandair, í samstarfi við íslenskan landbúnað og Iceland Naturally.

Nanna Kristín féll út úr Idol

Nanna Kristín Jóhannsdóttir varð fyrst til að falla út úr úrslitakeppni Idol stjörnuleitarinnar í kvöld. Fyrsti þáttur úrslitanna var í beinni útsendingu Stöðvar 2 frá Vetrargarðinum í Smáralind í kvöld og sungu tíu þátttakendur lög að eigin vali.

Upprennandi stjarna

Á hverju ári velur Europian Film Promotion hóp ungra leikara sem vakið hafa sérstaka athygli á árinu. Nú hefur Álfrún Örnólfsdóttir verið valin í "Shooting Star" hópinn 2005. Alls er 21 ungur leikari og leikkona frá Evrópu valin í þennan hóp sem er kynntur á hverju ári á kvikmyndahátíðinni í Berlín sem hefst í byrjun febrúar.

Harry með hakakrossarmband

Harry Bretaprins, sonur Karls og Díönu, bar armband með hakakrossi á í afmælisveislu vinar síns um helgina. Æsifréttablaðið Sun komst á snoðir um málið eins og þess er von og vísa. Mynd af Harry með sígarettu í munni og hakakross á handleggnum prýðir forsíðu blaðsins í dag.

Idol - Stjörnuleit heldur áfram

Keppni í Idol - Stjörnuleit heldur áfram á Stöð 2 morgun en þá hefjast 10 manna úrslit í beinni útsendingu frá Smáralind í Kópavogi. Frá því að 32 manna úrslitum lauk í desember hafa þeir keppendur sem eftir eru búið sig af kappi undir úrslitin, fundið lög og útsett þau í samstarfi við Jón Ólafsson, tónlistarstjóra keppninnar.

Sjá næstu 50 fréttir