Fer sína eigin leið 17. janúar 2005 00:01
Bryndís Jakobsdóttir er ungur söngfugl enda dóttir Ragnhildur Gísladóttur og Jakobs Frímanns Magnússonar. Hún virðist hafa fengið tónlistaráhuga í vöggugjöf og eins og kom fram í DV í gær er hún á leið til London í vikunni að syngja fyrir nokkra í bransanum. "Þetta eru einungis frumþreifingar kornungrar stúlku á þessu sviði. Áhugi landans á hljómi raddar hennar er ef til vill skiljanlegur en þetta er gríðarleg pressa á ungan og óharnaðan ungling og því viljum við sem minnst að um þetta sé fjallað á þessu stigi, þó að DV hafi haft eyrað jafn nálægt grassverðinum og raun ber vitni," segir Jakob Frímann Magnússon. Jakob segir fyrirtækið Sony Music Publishing hafa sýnt áhuga á að vinna með henni. "Svona ferli getur tekið allt frá einu ári og upp í fimm ár svo þetta er rétt að byrja. Þetta eru allt einungis hugmyndir og drög og það kemur í ljós hvort þetta verður að veruleika. Menn geta orðið sammála því að semja en svo getur það gerst að ekkert verði af samningum." Bryndís hefur verið syngjandi síðan hún var lítil og lærði bæði á píanó og selló. Hún var einnig orðuð við Nylon hópinn þegar hann var skipaður. "Það kom til tals að hún væri í Nylon en kaus að feta sína eigin leið. Einari Bárðarsyni hugnaðist mjög vel það sem hann sá og heyrði og í kjölfarið fórum við að skoða hvað hægt væri að gera. Hún kaus svo að gera þetta og semja þá tegund af músík sem er byggð á hennar eigin músíkáhrifum. Þetta er samt allt nýtt og skammt á veg komið. Það gæti verið hálft ár eða lengra í að komi út lag," segir Jakob.
Menning Mest lesið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? Menning Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira