Stórviðburður í tónlistarlífinu 15. janúar 2005 00:01
Á síðustu árum hefur umfang Íslensku tónlistarverðlaunanna aukist og eru þau nú glæsileg uppskeruhátíð alls tónlistarfólks í landinu. Í fyrra mældi Gallup áhorf á útsendingu Sjónvarpsins frá síðustu verðlaunahátíð og mældist samanlagt áhorf á útsendinguna 51 prósent. það er staðfesting á því að verðlaunin njóta virðingar ekki bara hjá tónlistarfólki heldur þjóðinni allri. Samstarfsaðilar Íslensku tónlistarverðlaunanna á þessu ári eru Icelandair, Landsbanki Íslands og Vísir. Exton Hljóð og Exton Kastljós leggja verðlaununum tæknilegan stuðning. Tónlist.is fjallar ítarlega um verðlaunin og tónlistarfólkið. Verðlaunin njóta einnig stuðnings frá Menntamálaráðuneyti, Iðnaðaráðuneyti, Menningarmálanefnd Reykjavíkur og ÍTR.Undanfari Íslensku tónlistarverðlaunannaFyrsti vísir að íslenskum tónlistarverðlaunum var árið 1939 þegar efnt var til keppni um vinsælasta danslagið á Hótel Íslandi. Síðan leið og beið fram til ársins 1950 að Skemmtiklúbbur templara efndi til árlegrar keppni um vinsælustu lögin í tveimur flokkum, nýju dönsunum og gömlu dönsunum. Þessi keppni stóð óslitið til ársins 1962. Frá 1955 til 1960 stóð Félag íslenskra dægurlagahöfunda fyrir samskonar keppni. Á svipuðum tíma hélt Svavar Gests úti poppsíðu í vikublaðinu Ásnum þar sem kosnir voru vinsælustu tónlistarmenn landsins. Eftir að Ásinn leið undir lok tók Svavar upp þráðinn hjá Vikunni árið1962. Saga Íslenskra tónlistarverðlauna hefur þó verið slitrótt og ekki dró til tíðinda aftur fyrr en árið 1967 þegar Vikan endurvakti verðlaunin í samstarfi við tískuvöruverslunina Karnabæ. Í Laugardalshöll, árið 1969 var það svo Björgvin Halldórsson sem var valin poppstjarna ársins og hljómsveit hans, Ævintýri, sló út ekki ómerkari hljómsveit en Trúbrot. Eftir þessa sögulegu keppni í Laugardagshöll um árið Varð langt hlé þar til Dagblaðið stóð fyrir Störnumessu en þær voru haldnar í nokkur ár eða frá 1977 til 1981. Eftir að Stjörnumessan var lögð af hélt umræðan um sameiginleg íslensk tónlistarverðlaun áfram. Það var svo ekki fyrr en árið 1993 að stjórn Rokkdeildar Félags íslenskra hljómlistarmanna kallaði saman undirbúningshóp sem hélt uppskeruhátíð í ársbyrjun 1994 og var þá verðlaunað fyrir starfsárið 1993. Þetta var í raun í fyrsta sinn sem Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent. Það ber sérstaklega að þakka framlag þessarar aðila sem ruddu brautina en þar fóru fremst Eiður Arnarson, Stefán Hjörleifsson Anna Björk Birgisdóttir, Jónatan Garðarson, Sigurgeir Sigmundsson, Markús Guðmundsson og Steinar Viktorsson. Þessir aðilar unnu ósérhlýfið starf í þágu stéttarinnar í fjölda ára og löngu tímabært að þakka þeim innilega fyrir það. Árið 2001 tóku félögin sem standa að Samtón við stjórn verðlaunanna. Síðan þá hafa verðlaunin verið í beinni útsendingu í Sjónvarpinu og á Rás 2 og síðan þá hafa íslensku tónlistarverðlaunin stækkað og dafnað og njóta nú virðingar meðal almennings og tónlistarfólks. Verðlaunin eru orðin einn vinsælasti viðburður í íslensku sjónvarpi. Á þessum árum hafa verðlaunin þróast ár frá og ári og ýmsar breytingar verið gerðar með það að leiðarljósi að gera verðlaunin sem marktækust og sem glæsilegust. Verðlaunin eru ekki hafin yfir gagnrýni og öllum þeim tilmælum um breytingar hefur verið vel tekið og reynt í hvívetna að bæta verðlaunin.
Íslensku tónlistarverðlaunin Mest lesið Tók sex ólíka stera fyrir hjartastoppið: „Þannig ég segi nei við sterum“ Lífið Balta bregst bogalistin Gagnrýni Glæsibústaðir yfir hundrað milljónum Lífið Segir Candy hafa séð að faðir hans væri „skrímsli“ á undan öðrum Lífið „Stolt af því að hafa ekki gefist upp á sjálfri mér“ Lífið Yfir sig ástfangin og býr bæði á Spáni og Íslandi Lífið Friðrik Þór og Guðrún selja 225 milljón króna parhús í Hlíðunum Lífið Glæsihöll Livar og Sverris á Arnarnesi til sölu Lífið Enn ástfangnari að sjá maka sinn í foreldrahlutverkinu Lífið Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Tónlist Fleiri fréttir Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“