Matur

Matur og skemmtan í febrúar

"Food and Fun" hátíðin haldin í fjórða sinn dagana 16. til 20. febrúar næstkomandi. Hátíðin er haldin í samstarfi við Reykjavíkurborg og er á sama tíma og vetrarhátíð sem borgin stendur fyrir, en hún er liður í markaðsstarfi Icelandair, í samstarfi við íslenskan landbúnað og Iceland Naturally.

"Með hátíðinni er stefnt að því að kynna gæði íslenskra matvæla og veitingamennsku á nýstárlegan hátt, svipað og íslensk tónlist hefur verið kynnt með Iceland Airwaves tónlistarhátíð Icelandair sem haldin er árlega," segir í tilkynningu, en "Food and Fun" hefur vakið mikla athygli erlendis og er gert ráð fyrir að tugir erlendra fréttamanna fylgist með hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×