Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Heimamenn skora lítið í úrvalsdeildinni Englendingar hafa skorað aðeins 31,3% þeirra marka sem skoruð hafa verið í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni til þessa. Arsenal kemur verst út úr þessari samantekt þar sem enginn Englendingur hefur náð að skora til þessa. 4.12.2007 16:14
Rauða spjaldið stendur Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur vísað áfrýjun Tottenham á brottvísun Robbie Keane um helgina frá og því fer leikmaðurinn í þriggja leikja bann. Keane var vísað af velli fyrir tæklingu á Fabrice Muamba, en þetta þótti nokkuð strangur dómur. 4.12.2007 16:02
Coppell íhugar að hætta hjá Reading Steve Coppell, stjóri Reading í ensku úrvalsdeildinni, segist ætla að taka sér frí frá boltanum í nánustu framtíð. 4.12.2007 15:49
Það á að taka menn eins og Diouf úr umferð Fyrrum úrvalsdeildardómarinn Jeff Winter segir að enska knattspyrnusambandið ætti að breyta reglum sínum svo hægt sé að taka menn eins og El Hadji Diouf hjá Bolton úr umferð ef þeir gera sig sekir um hættulegar og glórulausar tæklingar. 4.12.2007 14:43
Fyrsta verkefni Englendinga staðfest Fyrsti leikur næsta landsliðsþjálfara Englendinga verður vináttuleikur við Svisslendinga á Wembley þann 6. febrúar á næsta ári. Enska knattspyrnusambandið er nú upptekið við að koma á æfingaleikjum eftir að liðið náði ekki að tryggja sér sæti á EM í sumar. 4.12.2007 14:22
Kristinn dæmir í beinni á Sýn annað kvöld Íslendingar munu eiga fulltrúa á Goodison Park í Liverpool annað kvöld þegar Everton tekur á móti læsiveinum Dick Advocaat í Zenit frá Pétursborg í Evrópukeppni félagsliða. 4.12.2007 13:52
Meiðsli Duncan ekki alvarleg Framherjinn Tim Duncan hjá San Antonio mun missa af leik liðsins við Dallas Mavericks í NBA deildinni annað kvöld, en meiðslin sem hann varð fyrir í leik gegn Portland í fyrrakvöld voru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu. 4.12.2007 13:36
Tveir leikir í Meistaradeildinni í kvöld Keppni í D-riðli Meistaradeildar Evrópu lýkur í kvöld með tveimur leikjum, en þeim var flýtt vegna þátttöku AC Milan á HM félagsliða í Japan. 4.12.2007 11:56
Lýsingarbikarinn fær vefsíðu Sérstakri heimasíðu í kring um Lýsingarbikarinn í körfubolta hefur nú verið ýtt úr vör. Þetta er áhugaverð síða fyrir körfuknattleiksaðdáendur þar sem fram koma upplýsingar um allt mögulegt sem tengist bikarkeppninni. 4.12.2007 11:48
Fáðu þér kók Franski vængmaðurinn Florent Malouda hjá Chelsea segist hafa fengið áfall þegar hann kynntist enskri knattspyrnu og neysluvenjum knattspyrnumanna þar í landi. 4.12.2007 11:37
Allardyce veit að starf hans er í hættu Sam Allardyce, stjóri Newcastle, segist gera sér fulla grein fyrir því að hann fái ekki mikið lengri tíma til að koma liði sínu á sigurbraut eftir afleitt gengi á leiktíðinni. 4.12.2007 11:23
Sloan stefnir á þriðja áratuginn hjá Jazz Þjálfarinn Jerry Sloan hefur framlengt samning sinn við Utah Jazz út næstu leiktíð, en hann hefur verið lengur hjá saman liðinu en nokkur annar þjálfari í fjórum stærstu hópíþróttagreinum Bandaríkjanna. 4.12.2007 11:11
Boozer og Howard bestir í nóvember Carlos Boozer hjá Utah Jazz og Dwight Howard hjá Orlando Magic hafa verið útnefndir leikmenn nóvembermánaðar í Vestur- og Austurdeildinni í NBA. 4.12.2007 10:56
Shevchenko er ekki þunglyndur Avram Grant hefur lýst því yfir að úkraínski framherjinn Andriy Shevchenko sé partur af framtíðarplönum sínum hjá Chelsea og á ekki von á því að versla mikið þegar janúarglugginn opnar. 4.12.2007 10:22
David Bentley er leikmaður 15. umferðar Vængmaðurinn David Bentley hjá Blackburn fór mikinn í 3-1 sigri Blackburn á Newcastle í úrvalsdeildinni um nýliðna helgi. Bentley skoraði tvö glæsileg mörk í leiknum og sallaði enn meiri pressu á Sam Allardyce, stjóra Newcastle. 4.12.2007 09:47
Outlaw tryggði Portland sigur á flautukörfu Sex leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Travis Outlaw var hetja Portland þegar hann tryggði liði sínu 106-105 útisigur á Memphis með skoti um leið og leiktíminn rann út. 4.12.2007 09:23
Fram vann Stjörnuna í mögnuðum leik Framarar eru komnir í undanúrslit Eimskips-bikars karla í handbolta eftir að hafa unnið Stjörnuna í mögnuðum leik í Safamýri. Fram vann 33-32 í leik sem tvívegis var framlengdur. 3.12.2007 22:27
Ronaldo sá um Fulham Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk Manchester United sem vann 2-0 sigur á Fulham í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. United byrjaði leikinn á Old Trafford af miklum krafti og komst yfir eftir tíu mínútna leik. 3.12.2007 21:53
Walsh: Berbatov vill fara Paul Walsh, fyrrum leikmaður Tottenham, segir að Dimitar Berbatov vilji greinilega yfirgefa félagið. Hann segir að Berbatov sé ekki að sýna sínar bestu hliðar því hugur hans sé hjá Manchester United. 3.12.2007 21:15
Bjartsýni hjá Boro Middlesbrough virðist ætla að skáka Birmingham í samkeppni um bjartsýnisverðlaunin fyrir árið 2007. Samkvæmt fréttum frá Spáni hefur Middlesbrough, sem er í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar, gert tilboð í Ronaldinho hjá Barcelona. 3.12.2007 20:30
Arsenal vill Afellay Arsenal hefur áhuga á miðjumanninum Ibrahim Afellay sem leikur með PSV Eindhoven í Hollandi. Þessi 21. árs leikmaður hefur spilað mjög vel í hollensku deildinni en hann kemur upp úr unglingastarfi PSV. 3.12.2007 19:30
Lehmann til Wolfsburg? Talið er að þýska liðið Wolfsburg hafi áhuga á því að fá þýska markvörðinn Jens Lehmann til sín í janúar. 3.12.2007 18:30
Coventry á leið í greiðslustöðvun Stjórn Coventry City hefur tilkynnt að félagið sé líklega á leið í greiðslustöðvun. Vonir standa þó til þess að fjárfestar verði búnir að taka yfir félagið áður en kemur að greiðslustöðvun. Coventry fær tíu daga til að ganga frá því. 3.12.2007 18:00
Kann ekki að spila upp á jafntefli Gordon Strachan, knattspyrnustjóri Glasgow Celtic, segir að stefnan sé sett á sigur gegn AC Milan á morgun. Þá fara fram síðustu leikirnir í D-riðli Meistaradeildar Evrópu og þarf Celtic að ná jafntefli gegn AC Milan á útivelli til að vera öruggt áfram. 3.12.2007 17:28
Ásthildur Helgadóttir leggur skóna á hilluna Ásthildur Helgadóttir, ein besta knattspyrnukona Íslendingar hafa átt, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. 3.12.2007 16:05
Barton óttast ekki að lenda í grjótinu Joey Barton, leikmaður Newcastle, segist ekki óttast að þurfa að sitja í fangelsi ef hann verður sakfelldur fyrir líkamsárás á fyrrum liðsfélaga sinn hjá Manchester City. 3.12.2007 14:31
England kemur til greina hjá Mourinho Jose Mourinho er tilbúinn að skoða þann möguleika að gerast landsliðsþjálfari Englendinga. Þetta segir ráðgjafi portúgalska þjálfarans. 3.12.2007 14:25
Óttaðist að liðþófinn væri farinn Harðjaxlinn Sigfús Sigurðsson verður frá keppni næstu 3-4 vikurnar hjá liði sínu Ademar Leon á Spáni eftir að hafa gengist undir litla hnéaðgerð á dögunum. 3.12.2007 14:04
Snorri skoraði tvö fyrir heimsliðið Snorri Steinn Guðjónsson skoraði tvö mörk í gær þegar heimsúrval handboltamanna lagði landslið Egypta með 40 mörkum gegn 39 í leik sem spilaður var í tilefni af 50 ára afmæli egypska handknattleikssambandsins. 3.12.2007 13:28
Rooney verður með í kvöld Framherjinn Wayne Rooney verður í liði Manchester United á ný eftir meiðsli þegar liðið tekur á móti Fulham í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Þá gætu þeir Ryan Giggs, Wes Brown, Owen Hargreaves og Edwin van der Sar allir komið aftur inn í lið United. 3.12.2007 12:43
Roma í annað sætið Lottomatica Roma skellti sér í annað sætið í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta í gærkvöld eftir auðveldan 86-62 sigur á Bologna í gærkvöldi. Jón Arnór Stefánsson skoraði 7 stig fyrir Roma sem er sex stigum á eftir toppliði Siena í deildinni. 3.12.2007 11:50
GOG í bikarúrslit í 12. sinn Íslendingalið GOG Svendborg tryggði sér um helgina sæti í bikarúrslitaleiknum í danska handboltanum með því að leggja Silkeborg 31-27 í undanúrslitum. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 7 mörk fyrir GOG og Snorri Steinn Guðjónsson 3. 3.12.2007 11:43
Stórleikur í þýska bikarnum Nú er búið að draga í fjórðungsúrslit þýsku bikarkeppninnar í handbolta. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Hamburg og Gummersbach. Þá fá Heiðmar Felixson og félagar hans í Hannover erfiðan útileik á móti spútnikliði Rhein-Neckar Löwen. 3.12.2007 11:38
Cuper rekinn frá Betis Spænska félagið Real Betis rak í dag þjálfara sinn Hector Cuper úr starfi eftir að liðið tapaði 2-0 fyrir Atletico á heimavelli í gær. Liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar og þar með líkur aðeins rúmlega fjögurra mánaða starfi Cuper hjá félaginu. 3.12.2007 11:34
Engin kaup á dagskránni hjá Ferguson Sir Alex Ferguson segir ólíklegt að hann muni styrkja hóp Manchester United með leikmannakaupum í janúarglugganum. Hann segir hóp sinn nógu sterkan eins og staðan er í dag. 3.12.2007 11:29
Mourinho til AC Milan? Breska blaðið News of the World er fullt af góðu slúðri um helgina og þar kemur fram að Jermain Defoe hjá Tottenham sé búinn að lofa að framlengja samning sinn við félagið eftir miklar vangaveltur. 3.12.2007 11:22
Klæmist á netinu fyrir leiki Enski landsliðsmaðurinn Ashley Young tók bókstaflega til hendinni áður en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Englendinga gegn Rússum í síðasta mánuði. Hinn 22 ára gamli Young skellti sér þannig á netið og átti frjálsleg samskipti við stúlku. 3.12.2007 10:40
Ætla að áfrýja brottvísun Keane Tottenham ætlar að áfrýja rauða spjaldinu sem fyrirliðinn Robbie Keane fékk að líta hjá Phil Dowd dómara í leiknum gegn Birmingham í gær. Dómurinn þótti nokkuð harður og spilaði nokkurn þátt í því að heimamenn töpuðu enn einum leiknum í deildinni. 3.12.2007 10:23
Endurkoma Deco slæm tíðindi fyrir Eið Smára Spænskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að nú styttist óðum í endurkomu þeirra Deco og Samuel Eto´o inn í byrjunarlið Barcelona, en þeir hafa báðir átt við meiðsli að stríða að undanförnu. 3.12.2007 10:05
Orlando vinnur enn á útivelli Það var nóg um að vera í NBA deildinni í nótt eins og venjulega þar sem átta leikir voru á dagskrá. Orlando hefur unnið 10 af 12 útileikjum sínum í upphafi leiktíðar eftir góðan sigur á Lakers í Los Angeles í nótt 104-89. 3.12.2007 09:26
Tölfræðin úr leikjum gærkvöldsins Fjórir leikir fóru fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Hér fyrir neðan gefur að líta atkvæðamestu menn kvöldsins. 3.12.2007 09:13
Bröndby náði jafntefli gegn FCK Stefán Gíslason lék allan leikinn fyrir Bröndby sem gerði 1-1 jafntefli við FC Kaupmannahöfn á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í dag. 2.12.2007 19:16
Villarreal mistókst að saxa á forskot Real Madrid Real Madrid er nú með fjögurra stiga forskot á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir að Valladolid vann Villarreal á heimavelli, 2-0. 2.12.2007 18:47
Valdimar með fjögur í tapleik Íslenskir handboltakappar voru á fleygiferð með liðum sínum í Svíþjóð, Þýskalandi og Noregi í dag. 2.12.2007 18:38
Ekkert gengur hjá AZ AZ Alkmaar er í tíunda sæti hollensku úrvalsdeildarinnar eftir að liðið tapaði fyrir Twente á útivelli í dag. 2.12.2007 18:28