Óttaðist að liðþófinn væri farinn 3. desember 2007 14:04 Sigfús Sigurðsson fékk góðar fréttir NordicPhotos/GettyImages
Harðjaxlinn Sigfús Sigurðsson verður frá keppni næstu 3-4 vikurnar hjá liði sínu Ademar Leon á Spáni eftir að hafa gengist undir litla hnéaðgerð á dögunum. "Ég er nú bara að fara til að láta spretta saumunum úr þessu núna eftir tvær mínútur," sagði Sigufús þegar Vísir náði tali af honum í dag. "Ég var að láta laga aðeins á mér vinstra hnéð. Það er búið að vera að stríða mér í eitt eða tvö ár þar sem það hafði brotnað aðeins upp úr hnéskelinni og brjóskinu. Þetta var að hamla réttum hreyfingum á hnénu og gerði það að verkum að þegar ég var að hlaupa var að koma vitlaust átak og ég var að skaða vöðvana í kring. Þetta var hreinsað og pússað upp og nú er það bara að koma sér í stand aftur," sagði línumaðurinn. Hann reiknar með að verða frá keppni í nokkrar vikur en stefnir á að ná að vera með liði sínu í Asobal-bikarkeppninni dagana fyrir jól. "Venjulega þegar menn lenda í svona þá er liðþófinn farinn líka, sérstaklega þegar menn eru búnir að djöflast svona á þessu og liðböndin gjarnan sködduð líka. Ég var svo heppinn að það var ekkert slíkt að finna hjá mér og þetta var miklu minna mál en reiknað var með fyrst. Menn sáu jafnvel fyrir sér að þetta kostaði sex vikur til þrjá mánuði, en nú reikna menn með 3-4 vikum eftir að búið er að opna þetta og skoða það," sagði Sigfús. Hann segist hafa verið farinn að hugsa um landsliðið og lífið eftir handboltann. "Það er auðvitað ýmislegt búið að ganga á hjá manni í gegn um tíðina hvað varðar meiðsli. Það fyrsta sem kom upp í hugann var að láta laga þetta, en þó ég hafi ekki verið að spila mikið fyrir landsliðið í síðustu leikjum, vissi ég að ég gæti takmarkað spilað fyrir landsliðið í þessu standi sem ég var í. Ég hefði kannski geta spilað 3-4 leiki en ég hefði aldrei náð að halda út heilt mót." "Ég hugsaði með mér að ég myndi kannski ná EM ef ég færi í aðgerðina núna og því vildi ég fara strax í aðgerðina frekar en að bíða með það eins og félagið vildi helst. Þetta lítur allt miklu betur út en maður þorði að vona," sagði Sigfús léttur í bragði.
Handbolti Mest lesið Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Fótbolti Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Uppgjör Þór Ak. - KR | 3-3. Endurkoma hjá KR Íslenski boltinn Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Körfubolti Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - KA 3-2| Endurkomusigur hjá Víkingum sem þurfti að hafa vel fyrir því Íslenski boltinn