Fleiri fréttir Þriðjudagsslúðrið á Englandi Breska blaðið The Sun segir að argentínski framherjinn Carlos Tevez muni fara frá West Ham til Real Madrid í sumar fyrir 30 milljónir punda og segir að Lundúnafélagið muni ekki fá eina krónu af kaupvirðinu. Þá segir Daily Express að framtíð leikmannsins muni ráðast í næstu viku. 15.5.2007 13:29 Hamilton mun setja nýja staðla Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McClaren mun setja nýja staðla í Formúlu 1 ef hann heldur áfram á sömu braut. Þetta sagði fyrrum heimsmeistarinn Jackie Stewart eftir að hann horfði á nýliðann ná efsta sætinu í keppni ökuþóra um helgina með því að ná öðru sætinu í spænska kappakstrinum um helgina. 15.5.2007 13:20 Gerrard tilbúinn að skrifa undir Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir viðræður um nýjan samning við félagið vera komnar langt á veg og segist muni skrifa undir um leið og pappírarnir komi á borðið. Gerrard á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið en mun væntanlega skrifa undir nýjan fjögurra ára samning fljótlega. Talið er að hann muni fá allt að 120,000 pund í vikulaun. 15.5.2007 13:14 Pearce: Ég var aðeins afleysingastjóri Stuart Pearce, fráfarandi knattspyrnustjóri Manchester City, segist ekki sjá eftir neinu í stjórnartíð sinni hjá félaginu, en segist þó hafa á tilfinningunni að hann hafi ekki verið annað en afleysingastjóri vegna þess hve lítið fé honum var veitt til að kaupa leikmenn. 15.5.2007 12:34 FIFA ætlar að rannsaka mál West Ham Alþjóða knattspyrnusambandið hefur gefið það út að það muni rannsaka hvort draga hefði átt stig af enska úrvalsdeildarliðinu West Ham í vor vegna félagaskipta þeirra Javier Mascherano og Carlos Tevez. 15.5.2007 12:29 Gríðarlega mikilvægur sigur hjá Phoenix Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA í nótt. Phoenix vann góðan útisigur á San Antonio 104-98 og jafnaði þar með metin í 2-2 í einvígi liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar og Cleveland komst í 3-1 gegn New Jersey með 87-85 sigri á útivelli. 15.5.2007 11:56 Allardyce ráðinn stjóri Newcastle Sam Allardyce hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Newcastle. Liðið skýrði frá þessu nú í morgun. Hann var ráðinn á þriggja ára samning. Allardyce var lengi vel framkvæmdastjóri Bolton. Hann fyllir nú skarðið sem Glenn Roeder skildi eftir sig en hann hætti sem framkvæmdastjóri Newcastle eftir slakan árangur liðsins í vetur en það endaði í 13. sæti ensku deildarinnar. 15.5.2007 09:59 Eiður Smári sagður á óskalista Curbishleys Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona og fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, er meðal þeirra sem eru á óskalista Alans Curbishleys, knattspyrnustjóra West Ham, fyrir næstu leiktíð. 15.5.2007 09:25 Verð áfram í Keflavík Magnús Þór Gunnarsson hefur samið við Keflavík til eins árs en hann skoðaði það einnig vandlega að ganga til liðs við Snæfell. „Ætli Keflavíkurhjartað hafi ekki slegið hraðar en Snæfellshjartað að þessu sinni,“ sagði Magnús við Fréttablaðið. 15.5.2007 00:01 Þjálfari KR ósáttur við tapið gegn Keflavík Teitur Þórðarson, þjálfari KR, var að vonum ósáttur við tap sinna manna gegn Keflavík fyrr í kvöld. Liðin áttust við á heimavelli KR í lokaleik fyrstu umferðar Landbankadeildar karla og lauk leiknum með sigri Keflavíkur, 1-2. 14.5.2007 22:57 Keflavík sigraði KR, 1-2 Keflavík bar sigurorð af KR í lokaleik fyrstu umferðar Landsbankadeildar karla í kvöld. Lokastaðan var 1-2 Keflavík í vil. Þrátt fyrir að KR-ingar hafi átt nokkrar góðar atlögur að marki Keflvíkinga voru Keflvíkingarnir ívið sterkari megnið af leiknum og áttu sigurinn verðskuldaðan. Leikurinn fór fram í blíðskaparveðri á heimavelli KR í Frostaskjóli. 14.5.2007 20:48 Everton losar sig við Wright og Pistone Úrvalsdeildarliðið enska Everton hefur losað sig við tvo leikmenn sína. Þá Richard Wright, markvörð, og varnarmanninn Alessandro Pistone. 14.5.2007 20:18 Sam Allardyce líklega næsti stjóri Newcastle Margt bendir til þess að Sam Allardyce verði næsti knattspyrnustjóri Newcastle. Umræður eru yfirstandandi milli Allardyce og stjórnar Newcastle og boðað hefur verið til blaðamannafundar á morgun þar sem skýrt verður frá stöðu mála. 14.5.2007 17:23 Ásthildur Helgadóttir ekki með gegn Englendingum Íslenska kvennalandsliðið verður án Ásthildar Helgadóttur þegar það mætir Englendingum á fimmtudaginn næstkomandi. Ásthildur Helgadóttir er meidd og getur því ekki leikið. Í Hennar stað kemur Guðný Petrína Þórðardóttir úr Keflavík. 14.5.2007 16:38 Rúnar Kristinsson verður til í slaginn í fjórðu umferð Knattspyrnukappinn Rúnar Kristinsson mun að öllum líkindum ekki leika sinn fyrsta leik með KR fyrr en í fjórðu umferð Íslandsmótsins. Þetta segir Jónasar Kristinssonar, formaður KR sport. 14.5.2007 16:11 Stuart Pearce rekinn frá Man. City Stuart Pearce hefur verið vikið úr starfi sem knattspyrnustjóri Manchester City eftir tvö ár í starfi. Hann stýrði liðinu í 14 sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk um helgina. 14.5.2007 15:45 Chris Hutchings tekur við Wigan Chris Hutchings verður næsti knattspyrnustjóri Wigan og tekur við af Paul Jewell sem hefur sagt upp. 14.5.2007 15:27 Paul Jewell hættur hjá Wigan Paul Jewell hefur sagt upp sem knattspyrnustjóri Wigan, þrátt fyrir að hafa um helgina bjargað liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. 14.5.2007 14:57 Phil Mickelson sigraði á Players Phil Mickelson fór með sigur af hólmi á Players meistaramótinu. Eftir glæsilegan lokahring endaði hann á 11 undir pari. Hlaut hann að launum 103 milljónir íslenskra króna. 14.5.2007 14:20 Barcelona og Real Madrid jöfn að stigum Barcelona missti unninn leik niður í jafntefli á lokamínútunni gegn Real Betis í gærkvöldi og deilir efsta sætinu með Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Real Madrid hafði náð toppnum á laugardagskvöldið og því var sigur mikilvægari er nokkurn tímann fyrir Barcelonamenn sem mættu gríðarlega ákveðnir til leiks. 14.5.2007 13:59 Ömurlegt að skilja strákana eftir í skítnum Hann var stuttur opnunarleikur Íslandsmótsins fyrir Skagamanninn Árna Thor Guðmundsson sem fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins 24 mínútna leik gegn Íslandmeisturum FH á laugardaginn. Árni Thor fékk þá sitt annað gula spjald en í því fyrra varði hann skot FH-ingsins Sigurvins Ólafssonar með hendi og gaf víti. 14.5.2007 13:00 Fylkir stal öllum stigunum Fylkir fór með þrjú stig úr Kópavoginum eftir 0-1 sigur á Blikum í gær. Blikar voru mun betri en Fylkir gerði það eina sem Blikum tókst ekki – að skora. 14.5.2007 12:30 Framarar stálu stigi í lokin Fyrsta mark Óðins Árnasonar í efstu deild í hans fyrsta leik með Fram tryggði Safamýrarliðinu 1-1 jafntefli gegn Val á Laugardalsvellinum í gær og sá til þess að Helgi Sigurðsson tryggði ekki Val sigur gegn sínum gömlu félögum. 14.5.2007 12:00 Engin skrautsýning í Víkinni Nýliðar HK fengu sitt fyrsta stig í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu í gær eftir litlaust jafntefli við Víkinga á útivelli. Gestirnir voru sprækari í fyrri hálfleik en Víkingar voru líklegri til að ná sigurmarkinu undir lok síðari hálfleiks. 14.5.2007 11:00 Carlos Tevez fullkomnaði draumaendasprett West Ham 14.5.2007 10:00 Bulls héldu velli Chicago Bulls og Detroit Pistons áttust við í fjórða leik liðanna í beinni útsendingu á Sýn í gær. Leikurinn fór fram í Chicago. Detroit var búið að vinna fyrstu þrjá leikina í seríunni og gátu endað hana en Bulls voru á öðru máli. 14.5.2007 09:26 Leita stuðnings til að höfða mál gegn West Ham Sheffield United, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni, hyggst leita stuðnings meðal annarra úrvalsdeildarfélaga til að höfða mál gegn West Ham í tengslum við málefni Argentínumannanna Carlosar Tevez og Javiers Mashcerano. 14.5.2007 09:22 Fylkir vann Breiðablik Fylkir bar sigurorð af Breiðabliki í Kópavoginum í kvöld með einu marki gegn engu. Markið kom í seinni hálfleik en blikar voru manni færri meirihluta leiks. Blikar gerðu harða hríð að marki fylkismanna án þess að það bæri árangur. Christian Christiansen skoraði mark Fylkis. 13.5.2007 21:10 Framarar jöfnuðu á lokamínútunum Óðinn Árnason jafnaði fyrir framara þegar um tvær mínútur voru eftir af leik Fram og Vals í Landsbankadeildinni. Áður hafði Helgi Sigurðsson, fyrrum leikmaður Fram, komið valsmönnum yfir. Leikurinn endaði því með janftefli, einu marki gegn einu. 13.5.2007 17:51 Helgi skoraði gegn gömlu félögunum Valsmenn eru yfir gegn Fram þegar rúmlega 20 mínútur eru liðnar af leiknum. Það var Helgi Sigurðsson, fyrrverandi leikmaður Fram sem skoraði um miðjan fyrri hálfleik. 13.5.2007 16:23 West Ham verður áfram í úrvalsdeildinni Íslendingaliðinu West Ham United tókst nú fyrir nokkrum mínútum að forða sér frá falli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var Carlos Tevez, argentínski sóknarmaðurinn sem tryggði áframhaldandi veru liðsins í deildinni. 13.5.2007 16:04 Benni McCarthy hugsar sér til hreyfings Benni McCarthy leikmaður Blackburn hefur lýst því yfir að hann vilji yfirgefa félag sitt ef stórlið eins og Chelsea sækist eftir honum. 12.5.2007 21:38 Kaka orðinn þreyttur Brasilíski knattspyrnumaðurinn Kaka hefur skrifað opinbert bréf til brasilíska knattspyrnusambandsins þar sem hann biðst undan því að leika með brasilíska landsliðinu á Copa America mótinu í sumar. Í bréfinu segist Kaka vera of þreyttur til að taka þátt af fullum krafti. 12.5.2007 19:56 FH sigraði í fyrsta leik Landsbankadeildarinnar Íslandsmeistararnir í FH sigruðu nú rétt í þessu ÍA með þremur mörkum gegn tveimur í hörkuspennandi fyrsta leik Landsbankadeildar karla. Leikurinn fór fram í hvassviðri á heimavelli ÍA á Akranesi. Ekki mátti á milli sjá hjá liðunum þrátt fyrir að ÍA hafi leikið mestanpart leiksins einum manni færri. 12.5.2007 17:23 Spennan magnast fyrir lokaumferð í enska boltanum Spennan fyrir lokaslaginn í fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni magnast nú stöðugt en lokaumferðin fer fram á morgun, sunnudag. Wigan, West ham og Sheffield United geta öll fylgt Charlton og Watford niður í fyrstu deild. 12.5.2007 16:17 Samningur undirritaður til eflingar kvennaknattspyrnunnar Tryggingamiðstöðin hefur heitið því að leggja sitt af mörkum til eflingar kvennaknattspyrnunnar á landinu. Til þess hefur hún gert risasamning við bestu knattspyrnukona landsins, Margréti Láru Viðarsdóttur. 12.5.2007 15:48 Birgir Leifur 10 höggum á eftir efsta manni í Andalúcíu Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék þriðja hringinn á Opna Andalúsíumótinu í morgun á tveimur höggum undir pari. Hann er núna 10 höggum á eftir efsta manni, Englendingnum Lee Westwood. 12.5.2007 15:20 Southampton 1-2 Derby Steve Howard var hetja Derby þegar liðið lagði Southampton 1:2 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn fór fram á heimavelli Southampton. 12.5.2007 15:07 Massa á ráspól Brasilíumaðurinn Felipe Massa, sem keyrir fyrir Ferrari, tryggði sér í dag ráspólinn í tímatöku fyrir Barselónu-kappaksturinn í Formúlu eitt. Tímatakan var æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokamínútunum. 12.5.2007 14:45 Pressan slátraði Börsungum Spænska pressan gekk af göflunum í gær eftir neyðarlegt 4-0 tap Barcelona fyrir Getafe í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar. Börsungar voru með 5-2 forystu eftir fyrri viðureign liðanna en eru nú úr leik. 12.5.2007 14:00 Hættur með Norður-Írland Lawrie Sanchez verður áfram stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Fulham og hættir því sem þjálfari Norður-Írska landsliðsins. Þetta tilkynnti hann í gær. 12.5.2007 13:30 Einar tekur við Fram-stelpum Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins verður Einar Jónsson næsti þjálfari kvennaliðs Fram. Einar tekur við starfinu af Magnúsi Kára Jónssyni sem mun sjá um þjálfun yngri flokka hjá félaginu. 12.5.2007 13:15 Á förum frá Liverpool Robbie Fowler mun um helgina leika sinn síðasta leik með Liverpool á ferlinum. Það staðfesti framherjinn í gær en hann fær ekki nýtt samningstilboð frá félaginu. 12.5.2007 13:00 Á toppnum í 44 umferðir í röð FH-ingar hafa setið samfellt í efsta sæti Landsbankadeildar karla í tvö og hálft tímabil og hafa með því fyrir löngu sett nýtt og glæsilegt met í tíu liða efstu deild. Þeir hafa verið á toppnum síðan 19. júlí 2004. 12.5.2007 13:00 Var síðast spáð 8. sætinu 1988 Skagamönnum var spáð 8. sætinu af fyrirliðum, þjálfurum og forráðamönnum Landsbankadeildar karla í fótbolta. Þetta verður tíunda tímabil þjálfara liðsins, Guðjóns Þórðarsonar, í efstu deild og honum hefur aðeins einu sinni áður verið spáð svo neðarlega í þessarri árlegu spá. 12.5.2007 12:45 Sjá næstu 50 fréttir
Þriðjudagsslúðrið á Englandi Breska blaðið The Sun segir að argentínski framherjinn Carlos Tevez muni fara frá West Ham til Real Madrid í sumar fyrir 30 milljónir punda og segir að Lundúnafélagið muni ekki fá eina krónu af kaupvirðinu. Þá segir Daily Express að framtíð leikmannsins muni ráðast í næstu viku. 15.5.2007 13:29
Hamilton mun setja nýja staðla Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McClaren mun setja nýja staðla í Formúlu 1 ef hann heldur áfram á sömu braut. Þetta sagði fyrrum heimsmeistarinn Jackie Stewart eftir að hann horfði á nýliðann ná efsta sætinu í keppni ökuþóra um helgina með því að ná öðru sætinu í spænska kappakstrinum um helgina. 15.5.2007 13:20
Gerrard tilbúinn að skrifa undir Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir viðræður um nýjan samning við félagið vera komnar langt á veg og segist muni skrifa undir um leið og pappírarnir komi á borðið. Gerrard á tvö ár eftir af samningi sínum við félagið en mun væntanlega skrifa undir nýjan fjögurra ára samning fljótlega. Talið er að hann muni fá allt að 120,000 pund í vikulaun. 15.5.2007 13:14
Pearce: Ég var aðeins afleysingastjóri Stuart Pearce, fráfarandi knattspyrnustjóri Manchester City, segist ekki sjá eftir neinu í stjórnartíð sinni hjá félaginu, en segist þó hafa á tilfinningunni að hann hafi ekki verið annað en afleysingastjóri vegna þess hve lítið fé honum var veitt til að kaupa leikmenn. 15.5.2007 12:34
FIFA ætlar að rannsaka mál West Ham Alþjóða knattspyrnusambandið hefur gefið það út að það muni rannsaka hvort draga hefði átt stig af enska úrvalsdeildarliðinu West Ham í vor vegna félagaskipta þeirra Javier Mascherano og Carlos Tevez. 15.5.2007 12:29
Gríðarlega mikilvægur sigur hjá Phoenix Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA í nótt. Phoenix vann góðan útisigur á San Antonio 104-98 og jafnaði þar með metin í 2-2 í einvígi liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar og Cleveland komst í 3-1 gegn New Jersey með 87-85 sigri á útivelli. 15.5.2007 11:56
Allardyce ráðinn stjóri Newcastle Sam Allardyce hefur verið skipaður framkvæmdastjóri Newcastle. Liðið skýrði frá þessu nú í morgun. Hann var ráðinn á þriggja ára samning. Allardyce var lengi vel framkvæmdastjóri Bolton. Hann fyllir nú skarðið sem Glenn Roeder skildi eftir sig en hann hætti sem framkvæmdastjóri Newcastle eftir slakan árangur liðsins í vetur en það endaði í 13. sæti ensku deildarinnar. 15.5.2007 09:59
Eiður Smári sagður á óskalista Curbishleys Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona og fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu, er meðal þeirra sem eru á óskalista Alans Curbishleys, knattspyrnustjóra West Ham, fyrir næstu leiktíð. 15.5.2007 09:25
Verð áfram í Keflavík Magnús Þór Gunnarsson hefur samið við Keflavík til eins árs en hann skoðaði það einnig vandlega að ganga til liðs við Snæfell. „Ætli Keflavíkurhjartað hafi ekki slegið hraðar en Snæfellshjartað að þessu sinni,“ sagði Magnús við Fréttablaðið. 15.5.2007 00:01
Þjálfari KR ósáttur við tapið gegn Keflavík Teitur Þórðarson, þjálfari KR, var að vonum ósáttur við tap sinna manna gegn Keflavík fyrr í kvöld. Liðin áttust við á heimavelli KR í lokaleik fyrstu umferðar Landbankadeildar karla og lauk leiknum með sigri Keflavíkur, 1-2. 14.5.2007 22:57
Keflavík sigraði KR, 1-2 Keflavík bar sigurorð af KR í lokaleik fyrstu umferðar Landsbankadeildar karla í kvöld. Lokastaðan var 1-2 Keflavík í vil. Þrátt fyrir að KR-ingar hafi átt nokkrar góðar atlögur að marki Keflvíkinga voru Keflvíkingarnir ívið sterkari megnið af leiknum og áttu sigurinn verðskuldaðan. Leikurinn fór fram í blíðskaparveðri á heimavelli KR í Frostaskjóli. 14.5.2007 20:48
Everton losar sig við Wright og Pistone Úrvalsdeildarliðið enska Everton hefur losað sig við tvo leikmenn sína. Þá Richard Wright, markvörð, og varnarmanninn Alessandro Pistone. 14.5.2007 20:18
Sam Allardyce líklega næsti stjóri Newcastle Margt bendir til þess að Sam Allardyce verði næsti knattspyrnustjóri Newcastle. Umræður eru yfirstandandi milli Allardyce og stjórnar Newcastle og boðað hefur verið til blaðamannafundar á morgun þar sem skýrt verður frá stöðu mála. 14.5.2007 17:23
Ásthildur Helgadóttir ekki með gegn Englendingum Íslenska kvennalandsliðið verður án Ásthildar Helgadóttur þegar það mætir Englendingum á fimmtudaginn næstkomandi. Ásthildur Helgadóttir er meidd og getur því ekki leikið. Í Hennar stað kemur Guðný Petrína Þórðardóttir úr Keflavík. 14.5.2007 16:38
Rúnar Kristinsson verður til í slaginn í fjórðu umferð Knattspyrnukappinn Rúnar Kristinsson mun að öllum líkindum ekki leika sinn fyrsta leik með KR fyrr en í fjórðu umferð Íslandsmótsins. Þetta segir Jónasar Kristinssonar, formaður KR sport. 14.5.2007 16:11
Stuart Pearce rekinn frá Man. City Stuart Pearce hefur verið vikið úr starfi sem knattspyrnustjóri Manchester City eftir tvö ár í starfi. Hann stýrði liðinu í 14 sæti ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk um helgina. 14.5.2007 15:45
Chris Hutchings tekur við Wigan Chris Hutchings verður næsti knattspyrnustjóri Wigan og tekur við af Paul Jewell sem hefur sagt upp. 14.5.2007 15:27
Paul Jewell hættur hjá Wigan Paul Jewell hefur sagt upp sem knattspyrnustjóri Wigan, þrátt fyrir að hafa um helgina bjargað liðinu frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. 14.5.2007 14:57
Phil Mickelson sigraði á Players Phil Mickelson fór með sigur af hólmi á Players meistaramótinu. Eftir glæsilegan lokahring endaði hann á 11 undir pari. Hlaut hann að launum 103 milljónir íslenskra króna. 14.5.2007 14:20
Barcelona og Real Madrid jöfn að stigum Barcelona missti unninn leik niður í jafntefli á lokamínútunni gegn Real Betis í gærkvöldi og deilir efsta sætinu með Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Real Madrid hafði náð toppnum á laugardagskvöldið og því var sigur mikilvægari er nokkurn tímann fyrir Barcelonamenn sem mættu gríðarlega ákveðnir til leiks. 14.5.2007 13:59
Ömurlegt að skilja strákana eftir í skítnum Hann var stuttur opnunarleikur Íslandsmótsins fyrir Skagamanninn Árna Thor Guðmundsson sem fékk að líta rauða spjaldið eftir aðeins 24 mínútna leik gegn Íslandmeisturum FH á laugardaginn. Árni Thor fékk þá sitt annað gula spjald en í því fyrra varði hann skot FH-ingsins Sigurvins Ólafssonar með hendi og gaf víti. 14.5.2007 13:00
Fylkir stal öllum stigunum Fylkir fór með þrjú stig úr Kópavoginum eftir 0-1 sigur á Blikum í gær. Blikar voru mun betri en Fylkir gerði það eina sem Blikum tókst ekki – að skora. 14.5.2007 12:30
Framarar stálu stigi í lokin Fyrsta mark Óðins Árnasonar í efstu deild í hans fyrsta leik með Fram tryggði Safamýrarliðinu 1-1 jafntefli gegn Val á Laugardalsvellinum í gær og sá til þess að Helgi Sigurðsson tryggði ekki Val sigur gegn sínum gömlu félögum. 14.5.2007 12:00
Engin skrautsýning í Víkinni Nýliðar HK fengu sitt fyrsta stig í efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu í gær eftir litlaust jafntefli við Víkinga á útivelli. Gestirnir voru sprækari í fyrri hálfleik en Víkingar voru líklegri til að ná sigurmarkinu undir lok síðari hálfleiks. 14.5.2007 11:00
Bulls héldu velli Chicago Bulls og Detroit Pistons áttust við í fjórða leik liðanna í beinni útsendingu á Sýn í gær. Leikurinn fór fram í Chicago. Detroit var búið að vinna fyrstu þrjá leikina í seríunni og gátu endað hana en Bulls voru á öðru máli. 14.5.2007 09:26
Leita stuðnings til að höfða mál gegn West Ham Sheffield United, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni, hyggst leita stuðnings meðal annarra úrvalsdeildarfélaga til að höfða mál gegn West Ham í tengslum við málefni Argentínumannanna Carlosar Tevez og Javiers Mashcerano. 14.5.2007 09:22
Fylkir vann Breiðablik Fylkir bar sigurorð af Breiðabliki í Kópavoginum í kvöld með einu marki gegn engu. Markið kom í seinni hálfleik en blikar voru manni færri meirihluta leiks. Blikar gerðu harða hríð að marki fylkismanna án þess að það bæri árangur. Christian Christiansen skoraði mark Fylkis. 13.5.2007 21:10
Framarar jöfnuðu á lokamínútunum Óðinn Árnason jafnaði fyrir framara þegar um tvær mínútur voru eftir af leik Fram og Vals í Landsbankadeildinni. Áður hafði Helgi Sigurðsson, fyrrum leikmaður Fram, komið valsmönnum yfir. Leikurinn endaði því með janftefli, einu marki gegn einu. 13.5.2007 17:51
Helgi skoraði gegn gömlu félögunum Valsmenn eru yfir gegn Fram þegar rúmlega 20 mínútur eru liðnar af leiknum. Það var Helgi Sigurðsson, fyrrverandi leikmaður Fram sem skoraði um miðjan fyrri hálfleik. 13.5.2007 16:23
West Ham verður áfram í úrvalsdeildinni Íslendingaliðinu West Ham United tókst nú fyrir nokkrum mínútum að forða sér frá falli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var Carlos Tevez, argentínski sóknarmaðurinn sem tryggði áframhaldandi veru liðsins í deildinni. 13.5.2007 16:04
Benni McCarthy hugsar sér til hreyfings Benni McCarthy leikmaður Blackburn hefur lýst því yfir að hann vilji yfirgefa félag sitt ef stórlið eins og Chelsea sækist eftir honum. 12.5.2007 21:38
Kaka orðinn þreyttur Brasilíski knattspyrnumaðurinn Kaka hefur skrifað opinbert bréf til brasilíska knattspyrnusambandsins þar sem hann biðst undan því að leika með brasilíska landsliðinu á Copa America mótinu í sumar. Í bréfinu segist Kaka vera of þreyttur til að taka þátt af fullum krafti. 12.5.2007 19:56
FH sigraði í fyrsta leik Landsbankadeildarinnar Íslandsmeistararnir í FH sigruðu nú rétt í þessu ÍA með þremur mörkum gegn tveimur í hörkuspennandi fyrsta leik Landsbankadeildar karla. Leikurinn fór fram í hvassviðri á heimavelli ÍA á Akranesi. Ekki mátti á milli sjá hjá liðunum þrátt fyrir að ÍA hafi leikið mestanpart leiksins einum manni færri. 12.5.2007 17:23
Spennan magnast fyrir lokaumferð í enska boltanum Spennan fyrir lokaslaginn í fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni magnast nú stöðugt en lokaumferðin fer fram á morgun, sunnudag. Wigan, West ham og Sheffield United geta öll fylgt Charlton og Watford niður í fyrstu deild. 12.5.2007 16:17
Samningur undirritaður til eflingar kvennaknattspyrnunnar Tryggingamiðstöðin hefur heitið því að leggja sitt af mörkum til eflingar kvennaknattspyrnunnar á landinu. Til þess hefur hún gert risasamning við bestu knattspyrnukona landsins, Margréti Láru Viðarsdóttur. 12.5.2007 15:48
Birgir Leifur 10 höggum á eftir efsta manni í Andalúcíu Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék þriðja hringinn á Opna Andalúsíumótinu í morgun á tveimur höggum undir pari. Hann er núna 10 höggum á eftir efsta manni, Englendingnum Lee Westwood. 12.5.2007 15:20
Southampton 1-2 Derby Steve Howard var hetja Derby þegar liðið lagði Southampton 1:2 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn fór fram á heimavelli Southampton. 12.5.2007 15:07
Massa á ráspól Brasilíumaðurinn Felipe Massa, sem keyrir fyrir Ferrari, tryggði sér í dag ráspólinn í tímatöku fyrir Barselónu-kappaksturinn í Formúlu eitt. Tímatakan var æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokamínútunum. 12.5.2007 14:45
Pressan slátraði Börsungum Spænska pressan gekk af göflunum í gær eftir neyðarlegt 4-0 tap Barcelona fyrir Getafe í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar. Börsungar voru með 5-2 forystu eftir fyrri viðureign liðanna en eru nú úr leik. 12.5.2007 14:00
Hættur með Norður-Írland Lawrie Sanchez verður áfram stjóri enska úrvalsdeildarliðsins Fulham og hættir því sem þjálfari Norður-Írska landsliðsins. Þetta tilkynnti hann í gær. 12.5.2007 13:30
Einar tekur við Fram-stelpum Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins verður Einar Jónsson næsti þjálfari kvennaliðs Fram. Einar tekur við starfinu af Magnúsi Kára Jónssyni sem mun sjá um þjálfun yngri flokka hjá félaginu. 12.5.2007 13:15
Á förum frá Liverpool Robbie Fowler mun um helgina leika sinn síðasta leik með Liverpool á ferlinum. Það staðfesti framherjinn í gær en hann fær ekki nýtt samningstilboð frá félaginu. 12.5.2007 13:00
Á toppnum í 44 umferðir í röð FH-ingar hafa setið samfellt í efsta sæti Landsbankadeildar karla í tvö og hálft tímabil og hafa með því fyrir löngu sett nýtt og glæsilegt met í tíu liða efstu deild. Þeir hafa verið á toppnum síðan 19. júlí 2004. 12.5.2007 13:00
Var síðast spáð 8. sætinu 1988 Skagamönnum var spáð 8. sætinu af fyrirliðum, þjálfurum og forráðamönnum Landsbankadeildar karla í fótbolta. Þetta verður tíunda tímabil þjálfara liðsins, Guðjóns Þórðarsonar, í efstu deild og honum hefur aðeins einu sinni áður verið spáð svo neðarlega í þessarri árlegu spá. 12.5.2007 12:45