Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bayern valtaði yfir Viktoria Plzen og Marseille sýndi tíu mönnum Sporting enga miskunn Tveimur leikjum í þriðju umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu er nú lokið þar sem Þýskalandsmeistara Bayern München unnu öruggan 5-0 sigur gegn Viktoria Plzen í C-riðli og í D-riðli vann Marseille 4-1 sigur gegn Sporting. 4.10.2022 19:05
Íslendingalið Kolstad úr leik eftir tap í vítakastkeppni | Teitur og félagar örugglega áfram Janus Daði Smárason, Sigvaldi Björn Guðjónsson og félögum þeirra í norska liðinu Kolstad tókst ekki að tryggja sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handbolta eftir tap í vítakastkeppni gegn spænska liðinu Bidusoa Irun í kvöld. 4.10.2022 18:37
Einar Þorsteinn skoraði eitt í naumum sigri Fredericia Handboltamaðurinn Einar Þorsteinn Ólafsson og félagar hans í Fredericia unnu nauman tveggja marka sigur er liðið tók á móti SønderjyskE í dönsku úrvasldeildinni í handbolta í dag, 34-32. 4.10.2022 18:14
Franskar stórborgir sniðganga HM í Katar Borgaryfirvöld í París, höfuðborg Frakklands, tilkynntu í gærkvöld að borgin muni sniðganga heimsmeistaramót karla í fótbolta í Katar í vetur. Engir risaskjáir verða settir upp í borginni líkt og hefð er fyrir. 4.10.2022 17:15
Margrét skorar á Eyjamenn: „Þær munu bara sitja eftir“ Margrét Lára Viðarsdóttir flutta eldræðu um aðstöðuna sem knattspyrnulið ÍBV hafa yfir vetrartímann, í lokaþætti Bestu markanna á Stöð 2 Sport, og Mist Rúnarsdóttir sagðist vonast til þess að bæjarstjórnin í Vestmannaeyjum fengi ræðuna senda. 4.10.2022 16:30
Einar í bann fyrir að vega að heilindum eigin leikmanns Aganefnd HSÍ hefur úrskurðað Einar Jónsson, þjálfara karlaliðs Fram í handbolta, í eins leiks bann vegna ummæla hans eftir leikinn gegn FH á föstudaginn. 4.10.2022 15:52
Þegar Eyjafjallajökull og Mourinho stöðvuðu draumalið Guardiolas Inter og Barcelona eigast við í stórleik dagsins í Meistaradeild Evrópu. Inter hefur aðeins einu sinni unnið Barcelona í tíu leikjum í Meistaradeildinni og sá sigur var eftirminnilegur. 4.10.2022 15:30
Íslensku stelpurnar jöfnuðu gegn Ítölum á tveimur mínútum Íslenska U17-landsliðið í knattspyrnu kvenna náði að knýja fram 3-3 jafntefli gegn heimakonum á Ítalíu í dag í undankeppni EM. 4.10.2022 15:01
Ísak Snær mættur til Þrándheims Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks, er mættur til Þrándheims í Noregi og mun líklega ganga frá skiptum til Rosenborgar. Hann mun þá ganga til liðs við félagið þegar félagsskiptaglugginn opnar á ný um áramótin. 4.10.2022 14:30
Vilja fá Úkraínu með sér að halda HM 2030 Úkraína er sagt ætla að sækjast eftir því að halda heimsmeistaramót karla í fótbolta ásamt Spáni og Portúgal árið 2030. 4.10.2022 14:01
Vildu ekki starfa saman og voru báðir látnir fara Perry Mclachlan og Jón Stefán Jónsson, sem í fyrra voru ráðnir til þriggja ára sem þjálfarar knattspyrnuliðs Þórs/KA, hafa báðir látið af störfum. Jón Stefán segir stjórn Þórs/KA hafa tekið þá ákvörðun þar sem þeir vildu ekki starfa saman. 4.10.2022 13:30
Starfið undir í stórleiknum í kvöld? Stórleikur er á dagskrá í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Inter tekur á móti Barcelona á Giuseppe Meazza leikvanginum í Mílanó en leikurinn gæti haft mikið að segja um hvort liðanna fari í 16-liða úrslit og einnig um framtíð Simone Inzaghi hjá ítalska liðinu. 4.10.2022 13:01
Besta liðið og markasyrpan: „Lúxushöfuðverkur hve margar gera tilkall“ Lið ársins, besti leikmaður og þjálfari voru valin í veglegum uppgjörsþætti Bestu markanna eftir að leiktíðinni lauk um helgina í Bestu deild kvenna í fótbolta. Myndband til heiðurs meisturum Vals og markasyrpa sumarsins voru einnig sýnd í þættinum. 4.10.2022 12:30
Þórsarar fengu Hernández á brostnum forsendum | KKÍ breytti reglunni Þór frá Þorlákshöfn samdi í sumar við Spánverjann Pablo Hernández á grundvelli skriflegra svara KKÍ þess efnis að hann yrði undanþeginn því að vera talinn sem erlendur leikmaður í Subway-deild karla. Breyting varð svo á því síðar í sumar, eftir að Þór hafði samið við leikmanninn. 4.10.2022 12:01
Arnar Daði reiður þegar hann sá spjaldið sitt: „Ekkert eðlilega léleg heimavinna“ „Ég kem ekki hingað aftur,“ sagði Arnar Daði Arnarsson og strunsaði út úr síðasta þætti af Seinni bylgjunni eftir að þeir Theodór Ingi Pálmason höfðu skipst á að gefa hvor öðrum einkunnaspjald um handboltagetu. 4.10.2022 11:30
Börn með tárin í augunum meðal drukkinna stuðningsmanna Faðir sem fór með börnin sín tvö á bikarúrslitaleik Víkings og FH segir að drukknir áhorfendur hafi sett svartan blett á upplifunina. Honum fannst öryggisgæslu á leiknum ábótavant. Samskiptastjóri KSÍ segir að hún hafi verið með hefðbundnum hætti og erfitt sé að koma í veg fyrir skrílslæti stuðningsmanna. 4.10.2022 11:06
Keppir á einu stærsta hermikappakstursmóti heims Hákon Darri Jökulsson, mun í þessum mánuði keppa fyrir Íslands hönd á FIA Motorsport Games í Frakklandi. Mótið er eitt stærstu alþjóðamótið þar sem keppt er í hermikappakstri en Hákon segir það samfélag hafa stækkað mjög hér á landi. 4.10.2022 10:53
Baulað á Hákon sem þurfti bara nýja skó Eftir að hafa fengið á sig eitt mark í bláum skóm hélt Hákon Rafn Valdimarsson marki sínu hreinu í rauðum skóm í góðum 3-1 sigri Elfsborg gegn IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. 4.10.2022 10:31
Kross 4. umferðar: Bjarni Hinn og vitsugan Björgvin Páll Fjórða umferð Olís-deildar karla í handbolta fór fram í síðustu viku. Hverjir áttu góðan dag og hverjir slæman? Hverjir þurfa að hafa áhyggjur og hvað sagði tölfræðin? Vísir fer yfir umferðina á léttum og gagnrýnum nótum. 4.10.2022 10:00
Benítez gæti verið á leið aftur í enska boltann Knattspyrnustjórinn Rafa Benítez virðist vera efstur á blaði hjá forráðamönnum enska úrvalsdeildarfélagsins Nottingham Forest yfir þá sem gætu tekið við af Steve Cooper verði hann rekinn. 4.10.2022 09:31
Spila á Dalvík vegna árshátíðar Karlalið Þórs í handbolta bregður nú á sama ráð og karlalið KA í fótbolta þurfti að gera á síðustu misserum, með því að spila heimaleik á Dalvík vegna aðstöðuleysis á Akureyri. 4.10.2022 09:02
Gæsaveiðin gengur vel í rokinu Það eru ekki allir sem kvarta yfir því að fá smá rok og rigningu en þetta er einmitt veður sem gæsaskyttur segja eitt það besta fyrir skotveiði. 4.10.2022 08:43
Var trillaður af velli því hann þurfti að tefla við páfann Stólpagrín hefur verið gert af DK Metcalf, útherja Seattle Seahawks í NFL-deildinni í amerískum fótbolta, eftir að sjúkrabörur þurfti til að koma honum af velli í leik Seahawks við Detroit Lions á sunnudagskvöldið. Metcalf hefur staðfest að ástæða þess sé sú að hann þurfti að hægja sér og gat ekki haldið í sér. 4.10.2022 08:31
Fjölbreytnin fer illa með íslenskan fótbolta Um leið og það ætti kannski að vera gleðiefni að kvennalið Stjörnunnar og karlalið KA nái þeim tímamótum að komast í Evrópukeppni í fótbolta þá má segja að það sé alls ekki hagur íslensks fótbolta. Það er vegna fyrirkomulags UEFA, knattspyrnusambands Evrópu, sem þjónar hag stærstu knattspyrnuvelda álfunnar. 4.10.2022 08:00
„Skiljum ekki alltaf konur en skilningurinn hefur aukist“ Kristján Guðmundsson vitnaði í Arsene Wenger, setti stefnuna á Íslandsmeistaratitil og útskýrði hvernig námskeið í að tala við stelpur hefur hjálpað honum, í viðtali eftir frábæran árangur kvennaliðs Stjörnunnar í fótbolta undir hans stjórn. 4.10.2022 07:31
Guardiola: Haaland fær allt, Messi gat skapað allt Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, neyddist til að bera saman þá Erling Haaland og Lionel Messi, þar sem hann sagði Messi hafa ákveðið forskot á þann norska. 4.10.2022 07:00
Dagskráin: Meistaradeildin og rafíþróttir Það eru níu beinar útsendingar á sport rásum Stöðvar 2 Sport í dag þar sem Meistaradeild Evrópu í fótbolta er í forgrunni. 4.10.2022 06:00
Steven Gerrard flæktur inn í írskt glæpagengi Steven Gerrard, fyrrum leikmaður Liverpool og núverandi knattspyrnustjóri Aston Villa, er á forsíðum breska fjölmiðla þessa stundina vegna tegnsla við glæpagengi í Írlandi. 3.10.2022 23:01
„Þeir þurftu að hafa fyrir sínum mörkum“ Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var sáttur með sigur sinna manna er þeir tóku á móti Fram í 16. umferð Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Leikurinn var jafn framan af en Valsmenn tóku yfir í seinni hálfleik og unnu leikinn með sjö mörkum, 34-27. 3.10.2022 22:30
Rodgers hafði betur í baráttunni um uppsögnina Leicester City vann sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu í kvöld með 4-0 sigur á nágrönnum sínum í Nottingham Forest. Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Leicester, gæti hafa bjargað starfi sínu með sigri á meðan útlitið er verra hjá Steve Cooper, knattspyrnustjóra Nottingham Forest. 3.10.2022 22:00
„Verðum að bera meiri virðingu fyrir færunum okkar“ .Breiðablik vann sannfærandi 3-0 sigur á Stjörnunni í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með frammistöðu Breiðabliks. 3.10.2022 21:45
Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Stjarnan 3-0 | Toppliðið byrjar úrslitakeppnina á sigri Breiðablik sem er á toppi deildarinnar byrjaði úrslitakeppnina á 3-0 sigri gegn Stjörnunni. Breiðablik stýrði leiknum og eftir að Dagur Dan Þórhallsson braut ísinn á 12. mínútu gerði Stjarnan aldrei tilkall til að skora. 3.10.2022 21:15
Úrslitaleikur Sambandsdeildarinnar vinsælli en úrslitaleikur Evrópudeildarinnar Aleksander Ceferin, forseti evrópska knattspyrnusambandsins UEFA, barðist fyrir því á sínum tíma að fá Sambandsdeildina samþykkta, deild sem varð svo vinsælli en Evrópudeildin, samkvæmt honum sjálfum. 3.10.2022 20:31
Ógnvænleg tölfræði Haaland vekur athygli Erling Haaland, leikmaður Manchester City, hefur verið óstöðvandi í upphafi leiktímabils í ensku úrvalsdeildinni. Með álíka áframhaldi mun Norðmaðurinn bæta öll helstu markamet deildarinnar. 3.10.2022 19:45
Hákon Rafn stóð vaktina í mikilvægum sigri Elfsborg Hákon Rafn Valdimarsson og Sveinn Aron Guðjohnsen, leikmenn Elfsborg, unnu 1-3 sigur á útivelli gegn IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. 3.10.2022 19:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Fram 34-27| Valsmenn halda áfram sigurgöngunni Valsmenn fengu Fram í heimsókn í 16. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan 16-15 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik tóku Valsmenn leikinn yfir og unnu með sjö mörkum 34-27. 3.10.2022 18:45
Leikur upp á líf og dauða milli Cooper og Rodgers Seinna í kvöld fer fram leikur Leicester City og Nottingham Forest, viðureign sem breskir miðlar fullyrða að verði sá síðasti hjá knattspyrnustjóra annars hvors liðs. 3.10.2022 17:45
Sá besti í Þýskalandi fer til Chelsea næsta sumar Chelsea hefur fest kaup á Frakkanum Christopher Nkunku og mun hann ganga til liðs við félagið frá RB Leipzig í Þýskalandi næsta sumar. 3.10.2022 17:00
Vildi vera eins og Ronaldo: „Hann var bestur, þó hann hafi verið feitur“ Pierre-Emerick Aubameyang segist hafa drukkið í sig kunnáttu heimsklassa framherja í AC Milan þegar hann var þar á mála sem ungur leikmaður. Mest leit hann upp til Brasilíumannsins Ronaldo, sem var kominn af léttasta skeiði þegar hann samdi við félagið. 3.10.2022 16:31
Sagði að strákarnir hans Gerrards spiluðu á hraða snigilsins Jesse Marsch, knattspyrnustjóri Leeds United, gagnrýndi leikstíl Aston Villa eftir markalaust jafntefli liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær. 3.10.2022 16:01
Einar biðst afsökunar á ummælum sínum Einar Jónsson, þjálfari Fram, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum eftir jafnteflið við FH í Olís-deild karla á föstudaginn. 3.10.2022 15:26
Klopp um Núñez: Liðið er ekki að hjálpa honum Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kveðst hafa litlar áhyggjur af úrúgvæska framherjanum Darwin Núñez þrátt fyrir brösuga byrjun hans í Bítlaborginni. 3.10.2022 15:00
Sú besta var á leið úr landi og átti bara eftir að skrifa nafnið sitt Besti leikmaðurinn og efnilegasti leikmaður Bestu deildar kvenna í fótbolta í sumar mættu sem gestir í uppgjörsþátt Bestu markanna eftir lokaumferðina á laugardag. 3.10.2022 14:33
„Egill Magnússon er týndur og tröllum gefinn“ Sérfræðingarnir í Seinni bylgjunni ræddu í síðasta þætti um vandræði FH-inga og sérstaklega framlag Egils Magnússonar sem skoraði ekki mark, úr sjö skotum, í 25-25 jafnteflinu við Fram í Olís-deildinni í handbolta. 3.10.2022 14:00
Eva Margrét kjörin formaður Rafíþróttasamtaka Íslands Eva Margrét Guðnadóttir var kjörin formaður Rafíþróttasambands Íslands á aðalfundi sambandsins á föstudaginn. 3.10.2022 13:45
Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti
Umfjöllun: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti