Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
HK lagði ÍA í Kópavoginum Nýliðar HK unnu góðan sigur á ÍA í Landsbankadeild karla í kvöld. Leikurinn, sem fram fór á heimavelli HK í Kópavoginum, endaði 1-0 en það var Jón Þorgrímur Stefánsson sem skoraði eina mark leiksins á 39. mínútu. HK er með 4 stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en Skagamenn eru enn stigalausir. 21.5.2007 21:44
HK leiðir gegn ÍA í hálfleik Jón Þorgrímur Stefánsson hefur skorað eina markið í leik HK og ÍA í Landsbankadeildinni, en flautað hefur verið til hálfleiks á Kópavogsvellinum. Markið skoraði hann undir lok hálfleiksins en fram að þeim tíma höfðu gestirnir frá Akranesi verið sterkari aðilinn. Leikurinn er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. 21.5.2007 20:44
McLaren fagnar endurkomu Owen Steve McLaren, þjálfari enska landsliðsins, er alsæll með að sóknarmaðurinn Micheal Owen skuli loksins vera búinn að ná sér af meiðslunum sem hann varð fyrir á HM í Þýskalandi síðasta sumar. McLaren segir að öll lið sem ætli sér að verða sigursæl þurfi á markaskorara á borð við Owen að halda. 21.5.2007 18:30
Foster verður aðalmarkvörður Man. Utd. Nokkur götublaðanna í Englandi segja frá því í morgun að Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Man. Utd., hafi tilkynnt markverðinum Edwin van der Saar að hann muni verða varamaður fyrir Ben Foster á næstu leiktíð, en Foster snýr þá aftur til Man. Utd. úr láni hjá Watford. 21.5.2007 17:06
Portsmouth að klófesta Distin Harry Redknapp og félagar í Portsmouth eru við það að tryggja sér þjónustu varnarmannsins Silvain Distin næstu þrjú árin, en varnarmanninum hefur verið boðinn samningur sem færir honum rúmar fimm milljónir á viku. Distin fer til Portsmouth á frjálsri sölu, en samningur hans við Manchester City er að renna út. 21.5.2007 17:03
Robben áfram hjá Chelsea Hollenski vængmaðurinn Arjen Robben hefur fullvissað stuðningsmenn Chelsea um að hann verði áfram í herbúðum enska liðsins á næstu leiktíð, en hann hefur lengi verið orðaður við sölu frá félaginu. Robben segist enn fremur hafa fulla trú á að hann verði kominn aftur í sitt besta form áður en næsta tímabil hefst. 21.5.2007 15:45
Bellamy þráir að spila úrslitaleikinn Craig Bellamy, hinn velski framherji Liverpool, segist munu verða eyðilagður leikmaður, fari svo að hann fái ekki að taka neinn þátt í úrslitaleiknum við AC Milan í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Bellamy hefur ekki verið inn í myndinni hjá stjóranum Rafa Benitez síðustu vikur. 21.5.2007 14:30
Shevchenko vill spila í Bandaríkjunum Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hefur greint frá því að hann eigi þann draum heitastan að geta spilað í bandarísku atvinnumannadeildinni áður en ferill hans er á enda. Shevchenko segir mikla uppbyggingu vera að eiga sér stað þar vestra og hefur sóknarmaðurinn mikinn áhuga á að taka þátt í henni. 21.5.2007 13:30
Malouda bestur í Frakklandi Florent Malouda, leikmaður Lyon, hefur verið valinn besti leikmaður frönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, en það eru samtök leikmanna sem standa að hinu árlega kjöri. Gerard Houllier var valinn besti þjálfarinn. 21.5.2007 13:29
Carrick fagnar komu Hargreaves Michael Carrick, enski miðjumaðurinn hjá Man. Utd., segist munu bjóða landa sinn Owen Hargreaves velkominn til félagsins með opnum örmum, en Hargreaves mun líklega skrifa undir samning við ensku meistaranna síðar í vikunni. Carrick óttast ekki samkeppnina sem felst í komu Hargreaves til liðsins. 21.5.2007 13:15
Robson vill stýra Sheffield Utd. Bryan Robson, fyrrum þjálfari Middlesbrough og WBA, hefur staðfest að hann hafi mikinn áhuga á að taka við stjórn Sheffield United og er búist við því að hann verði formlega kynntur sem næsti knattspyrnustjóri liðsins á næstu tveimur sólarhringum. 21.5.2007 13:00
Hvatningarræða Drogba gerði útslagið Þótt að Didier Drogba hafi skorað markið sem réð úrslitum í bikarúrslitaleik Chelsea og Man. Utd. um helgina var það ekki síður ávarp hans til leikmanna fyrir leikinn sem hafði hvað mest áhrif á niðurstöðu leiksins, að því er fyrirliðinn John Terry heldur fram. Drogba hvatti leikmenn til að leggja sig alla fram fyrir hvorn annan. 21.5.2007 12:15
Romario skoraði 1000. markið Brasilíski framherjinn Romario náði loksins að skora sitt 1000. mark á ferlinum í gær þegar lið hans Vasco de Gama bar sigurorð af Recife í brasilísku úrvalsdeildinni í gær. Hinn 41 árs gamli Romario setti stefnuna á að skora 1000 mörk fyrir nokkrum árum og hefur nú loksins náð sínu æðsta markmiði. 21.5.2007 09:45
San Antonio vann fyrsta leikinn San Antonio vann fyrsta leikinn gegn Utah í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í nótt, 108-100. Tim Duncan gegndi lykilhlutverki í sigri San Antonio, en fjölmiðlar vestra segja hann sjaldan eða aldrei hafa spilað betur á sínum ferli. 21.5.2007 09:07
Barcelona hrökk í gang Leikmenn Barcelona sýndu mátt sinn gegn Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið gjörsigraði andstæðinga sína með sex mörkum gegn engu á útivelli. Eiður Smári Guðjohnsen lék síðustu 10 mínútur leiksins. Hin tvö liðin í toppbaráttunni, Sevilla og Real Madrid, unnu einnig góða útisigra. 20.5.2007 21:52
FH vann í Keflavík Íslandsmeistarar FH eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðir Landsbankadeildar karla í knattspyrnu en í kvöld vann liðið góðan sigur á Keflavík á útivelli, 2-1. Öll mörkin komu í síðari hálfleik en Matthías Guðmundsson skoraði sigurmarkið á 80. mínútu. 20.5.2007 21:50
Hvers virði er hestamennskan? Ágætur vinur minn til margra ára hringdi í mig eftir vikulanga dvöl í Rússlandi, búinn að lesa allt um sigurgöngu íslenska hestsins þar í landi. Danni getur þú ekki reddað mér ógurlegum gæðing? Sagði hann við mig í síma. Þessi ágæti maður er einn af þessum nýríku strákum sem hafa hagnast ógurlega á verðbréfaviðskiptum og halda að allt sé fallt fyrir aurinn, meira að segja hvernig eigi að sitja hest. 20.5.2007 21:32
Víkingur vann í Laugardalnum Víkingur vann frækinn 2-0 útisigur á Fram í Landsbankadeildinni í kvöld en KR-ingar náðu aðeins jafntefli gegn Blikum í Frostaskjólinu. Í Keflavík eigast við heimamenn og Íslandsmeistarar FH og er staðan enn markalaus þegar nokkuð er liðið á síðari hálfleik. 20.5.2007 21:17
KR yfir í hálfleik gegn Breiðablik Eitt mark hefur verið skorað í fyrri hálfleik í þeim leikjum Landsbankadeildar karla sem fram fara í kvöld. Sigmundur Kristjánsson gerði það fyrir KR gegn Breiðablik en markið skoraði hann strax á 7. mínútu. Enn er markalaust er á Laugardalsvelli þar sem Framarar og Víkingar eigast við. 20.5.2007 20:05
Hefndin drífur leikmenn Milan áfram Ryan Giggs, leikmaður Man. Utd., segir ómögulegt að spá fyrir um hver muni standa uppi sem sigurvegari í Meistaradeild Evrópu í ár. Giggs hallast þó frekar að sigri AC Milan gegn Liverpool, þar sem leikmenn ítalska liðsins þrái ekkert heitar en að ná fram hefndum frá því í Istanbúl fyrir tveimur árum. 20.5.2007 19:00
Federer hlakkar til Opna franska Tenniskappinn Roger Federer er í skýjunum með að hafa yfirstigið þá hindrun sem Rafael Nadal er fyrir hann á leirvelli, en fyrr í dag hafði Svisslendingurinn betur í úrslitaleik meistaramótsins í Hamborg. Federer kveðst ekki geta beðið eftir að hefja leik á Opna franska, þar sem leikið er á leiryfirborði, en það hefst næsta sunnudag. 20.5.2007 18:30
Valur vann Fylki í Árbænum Tvö mörk Valsmanna á síðasta stundarfjórðungnum tryggðu liðinu frækinn 2-1 útisigur á Fylki í Landsbankadeild karla. Það var danski leikmaðurinn Rene Carlsen sem skoraði sigurmarkið á 83. mínútu en áður hafði Halldór Hilmisson komið Fylki yfir. Annar Dani í lið Vals, Dennis Bo Mortensen, hafði áður jafnað metin. 20.5.2007 17:55
NBA: Undanúrslitin hefjast í nótt Úrslitin í Vesturdeild NBA-deildarinnar hefjast í kvöld þegar San Antonio fær Utah í heimsókn. Sigurvegarinn í rimmu liðanna fer í úrslit deildarinnar þar sem mótherjarnir verða annaðhvort Cleveland eða Detroit. Utah hefur ekki unnið í San Antonio síðan árið 1999 en í leikjum liðanna á núverandi leiktíð skiptu þau sigrunum á milli sín. 20.5.2007 17:00
Theódór Elmar spilaði allan leikinn Theódór Elmar Bjarnason, unglingalandsliðsmaður í knattspyrnu, spilaði allan leikinn fyrir lið sitt Celtic í skosku úrvalsdeildinni þegar liðið tapaði 2-1 fyrir Hibernain í dag. Þetta var í fyrsta sinn sem Theódór Elmar kemur við sögu hjá aðalliði Celtic í úrvalsdeildinni. 20.5.2007 16:05
Yrði fínt að fara í vítaspyrnukeppni Xabi Alonso, hinn spænski miðjumaður Liverpool, segir að leikmenn liðsins vilji gjarnan að úrslitaleikurinn gegn AC Milan í Meistaradeildinni ráðist í vítaspyrnukeppni. Alonso segir að markvörðurinn Pepe Reina sé besti vítabani í heiminum í dag og með hann á milli stanganna geti ekki mörg lið staðist Liverpool snúning í vítaspyrnukeppni. 20.5.2007 15:25
Grétar lék allan leikinn í sigri AZ Grétar Rafn Steinsson og félagar í AZ Alkmaar í Hollandi hafa 2-1 forystu eftir fyrri viðureign sína við Ajax um laust sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Grétar lék allan leikinn fyrir AZ í dag en framherjinn Shota Arveladze skoraði sigurmarkið á 90. mínútu. 20.5.2007 15:19
Gallas: Það vantar reynslu í Arsenal Franski varnarmaðurinn William Gallas hjá Arsenal segir að liðinu skorti sárlega reynslu í leikmannahópinn til að ná betri árangri en þeim sem liðið náði á þessu tímabili. Gallas er ómyrkur í máli og segir liðið ekki hafa tekið neinum framförum á nýafstaðinni leiktíð í ensku úrvalsdeildinni. 20.5.2007 15:04
Federer lagði Nadal á leirvelli Svisslendingurinn Roger Federer batt í dag enda á 81 leikja sigurgöngu Rafael Nadal á leirvelli í tennis þegar hann lagði Spánverjann sannfærandi af velli í úrslitaviðureign Meistaramótsins í Hamborg. 20.5.2007 14:50
Segir Stuttgart eiga titilinn skilinn Armin Veh, þjálfari nýkrýndra Þýskalandsmeistara Stuttgart, segir fráleitt að halda því fram að lið hans eigi titilinn ekki skilið. Leikmenn og forráðamenn Schalke létu hafa eftir sér eftir lokaumferðina í gær að lið sem væri á toppnum í þrjár vikur af 34 vikna tímabili ætti ekki skilið að standa uppi sigurvegari. Schalke var á toppi deildarinnar í 15 vikur í vetur. 20.5.2007 14:24
Heimsmet á kynbótasýningu í Þýskalandi Garri frá Reykjavík toppaði Stála frá Kjarri og setti þar með nýtt heimsmet, en klárinn hjá Jóa Skúla sem sýndur var nú í yfirliti á kynbótasýningu í Þýskalandi kom út með 8,77 í aðaleinkunn. Jói sagði í samtali við Hestafréttir nú rétt í þessu að munurinn á þessum stóðhestum gæti ekki hafa verið minni en það munar á þeim 0.01, en Stáli er með 8.76 í aðaleinkunn. 20.5.2007 14:04
Mourinho: Mikel var kóngurinn Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að frammistaða nígeríska miðjumannsins John Obi Mikel í bikarúrslitaleiknum gegn Chelsea í gær hafi verið ótrúleg og að “strákurinn” hafi verið kóngurinn í leiknum. Mourinho hélt einnig áfram að tala um hvernig tímabilið hjá liði sínu hefði getað orðið án meiðslavandræða. 20.5.2007 13:38
Ballack og Shevchenko verða ekki seldir Peter Kenyon, stjórnarformaður Chelsea, segir að félagið muni losa sig við þrjá leikmenn í sumar og að þrír til fjórir leikmenn munu koma til liðsins í staðinn. Að sögn stjórnarformannsins mun líklega enginn þeirra þó vera stórstjarna og þá staðfesti hann að hvorki Andriy Shevchenko né Michael Ballack væru á leið frá félaginu. 20.5.2007 13:36
Beckenbauer staðfestir brottför Hargreaves Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen í Þýskalandi, tilkynnti stuðningsmönnum liðsins í morgun að enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves væri á förum frá liðinu til Englandsmeistara Manchester United. Hann staðfesti þar með fréttirnar sem birtust í þýskum fjölmiðlum í gær. 20.5.2007 12:19
Allt frágengið á milli Bayern og Man. Utd.? Allt útlit er fyrir að Owen Hargreaves verði orðinn leikmaður Manchester United innan fárra daga, að því er þýskir fjölmiðlar halda fram. Sagt er að Bayern Munchen hafi samþykkt 17 milljón punda tilboð Man. Utd. í enska landsliðsmanninn og að það sé aðeins formsatriði fyrir hann að ná samkomulagi við sitt nýja félag. 20.5.2007 11:18
Alexander og Snorri Steinn með stórleik Alexander Petersson skoraði níu mörk þegar lið hans Grosswallstadt vann stórsigur á Wilhelmshavener í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-19. Snorri Steinn Guðjónsson gerði enn betur og skoraði 10 mörk þegar Minden tapaði fyrir TuS N-Lübbecke, 31-30, og þá lagði Íslendingaliðið Gummersbach lið Balingen af velli, 38-28. 19.5.2007 20:49
Elli Sig rétt að byrja Erling Sigurðsson er búinn að vera viðloðandi hestamennsku í hálfa öld, hvort sem það er á keppnisvellinum eða í kennslu. Elli Sig eins og flestir þekkja hann keppti fyrst í stökki árið 1958 og þá byrjaði eiginlegur ferill Ella Sig. Það voru tímamót í lífi þessa stórsnillings í dag þegar hann keppti í síðasta skipti á hesti sínum Feld frá Lauganesi. 19.5.2007 20:41
Zenden meiddur – Kewell í byrjunarliðið? Hollenski vængmaðurinn Boudewijn Zenden styðst nú við hækjur eftir að hafa orðið fyrir meiðslum í æfingabúðum Liverpool í La Manga á Spáni, þar sem liðið undirbýr sig nú af kappi fyrir úrslitaleikinn gegn AC Milan í Meistaradeildinni á miðvikudag. Ólíklegt er að Zenden verði orðinn leikfær og því hafa dyrnar í byrjunarliðið opnast fyrir Harry Kewell. 19.5.2007 19:15
Finnan fær nýjan samning hjá Liverpool Írski varnarmaðurinn Steve Finnan hjá Liverpool mun væntanlega skrifa undir nýjan samning við félagið fljótlega eftir úrslitaleik Meistaradeildarinnar í næstu viku. Finnan er einn af fimm leikmönnum sem þjálfarinn Rafael Benitez hefur boðið nýjan samning, en talið er að nokkrar breytingar verði á leikmannahóp Liverpool í sumar. 19.5.2007 18:45
Mourinho: Áttum sigurinn skilinn Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði að sínir menn hefðu átti sigurinn á Man. Utd. í bikarkeppninni í dag skilinn, bæði vegna þess að þeir hafi verið betri í leiknum en ekki síður vegna þess hvernig þeir hafa svarað mótlætinu sem hann telur liðið hefur lent í á tímabilinu – með því að vinna tvo titla. 19.5.2007 18:11
Ferguson: Leikmenn voru of þreyttir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagði að allur sá fjöldi leikja sem sitt lið hefur spilað í vetur hafi átt stóran þátt í tapi liðsins gegn Chelsea í úrslitaleiknum í dag. Ferguson fannst einstaka leikmenn sínir þreyttir eftir langt og strangt tímabil og að liðið hefði að þeim sökum ekki verið upp á sitt besta. 19.5.2007 18:08
Kaka: Mikilvægasti leikurinn á ferlinum Brasilíski miðjumaðurinn Kaka hjá AC Milan segir að leikurinn gegn Liverpool í Meistaradeildinni á miðvikudaginn sé sá mikilvægasti hingað til á sínum ferli. Kaka var í liðinu sem beið lægri hlut gegn Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar fyrir tveimur árum og vill með engu móti endurupplifa þá tilfinningu. 19.5.2007 18:00
Mótahald um helgina Mikið er um mótahald nú um helgina og má þar nefna þrjú íþróttamót. Eitt er haldið hjá Herði í Mosfellsbæ, hjá Andvara í Garðabæ og hjá Gusturum í Kópavogi. Íþróttamót hefst síðan á morgun sunnudag hjá Geysi á Hellu. 19.5.2007 17:46
Hestarnir alltaf vinsælastir Stöð 2 hélt heljarinnar veislu í Húsdýragarðinum í dag og var talið að um 20.000 manns hafi lagt leið sína í garðinn. Þrátt fyrir skemmtilegar lestaferðir, hoppukastala og annað afþreyingarefni þá var röðin í hestana sú allra lengsta. 19.5.2007 17:35
Wade á batavegi eftir tvær aðgerðir Dwayne Wade, leikmaður Miami Heat í NBA-deildinni, er á góðum batavegi eftir að hafa gengist undir tvær aðgerðir í vikunni, annars vegar á öxl og hins vegar á hné. Wade segist líða vel, bæði líkamlega og andlega, og stefnir á að verða klár í slaginn þegar næsta tímabil í NBA hefst. 19.5.2007 17:05
Van Gundy rekinn frá Houston Jeff Van Gundy var í gær rekinn úr starfi sínu sem þjálfari Houston Rockets í NBA-deildinni, en lærisveinar hans féllu úr keppni í fyrstu umferð úrslitakeppninnar fyrr í þessum mánuði. Svo slakur árangur var með öllu óviðunandi að mati forráðamanna liðsins, en í liðinu er að finna stjörnuleikmenn á borð við Yao Ming og Tracy McGrady. 19.5.2007 17:00