Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hækkar sig í meiðslunum Ragna Ingólfsdóttir er komin upp í 43. sæti á heimslistanum í einliðaleik kvenna og hefur hækkað sig um þrjú sæti frá því að hún meddist á opna hollenska meistaramótinu. 12.5.2007 12:30
Búið að afskrifa okkur Skagamenn Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, segir að búið sé að afskrifa sína menn fyrir opnunarleik Íslandsmótsins í dag en þá mæta Skagamenn Íslandsmeisturum FH á heimavelli. Mikillar tilhlökkunar gætir fyrir leikinn. 12.5.2007 12:30
Ætlar sér sigur á heimavelli Spánverjinn Fernando Alonso ætlar sér sigur í Spánar kappakstrinum sem fram fer um helgina. 12.5.2007 12:00
Leikmenn eiga ekki að veðja á eigin leiki Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, telur ekki eðlilegt að leikmenn í Landsbankadeildinni veðji á eigin leiki og hvað þá á opinberum vettvangi. Á vefsíðunni fótbolti.net hófst í gær nýr liður undir nafninu Tippað á Lengjuna. 12.5.2007 12:00
Skrifaði undir hjá Blikum Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær þá hefur Breiðablik ráðið Einar Árna Jóhannsson, fyrrum þjálfara Njarðvíkur, sem þjálfara hjá sér. Einar Árni skrifaði undir samning við Blika í gær en hann mun þjálfa meistaraflokk félagsins ásamt að vera yfirþjálfari unglingaflokka hjá félaginu. 12.5.2007 11:45
Sagt að vitna gegn Lance Floyd Landis greindi frá því í gær að honum hefði verið boðinn mildari dómur í lyfjamáli sínu ef hann myndi gefa saknæman vitnisburð um hjólreiðagoðsögnina Lance Armstrong. 12.5.2007 11:30
Hafði ekkert heyrt þar til í gær Norskir fjölmiðlar birtu í fyrradag fréttir um að danska stórliðið Bröndby og stórt lið frá Tyrklandi hefðu augastað á Kristjáni Erni Sigurðssyni, leikmanni Brann. Fréttablaðið greindi frá þessu í gær. 12.5.2007 11:00
Væri að ljúga ef ég segði leikinn ekki sérstakan Leikur ÍA og FH í dag er sérstakur fyrir þær sakir að tvíburabræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir snúa aftur á sínar heimaslóðir í sínum fyrsta deildarleik með FH. Bræðurnir gengu til liðs við Hafnfirðinga í haust eftir að hafa bjargað ÍA frá falli síðastliðið sumar sem spilandi þjálfarar. 12.5.2007 10:45
Fá mörk í síðustu opnunarleikjum Landsbankadeild karla hefst í dag með leik ÍA og FH upp á Akranesi. Þetta verður sautjánda sinn sem deildin opnar með sérstökum leik síðan að hún innihélt fyrst tíu lið sumarið 1977. Mótið hefur byrjað á fleirum en einum leik í fjögur af síðustu fimm skiptum en á árunum 1991 til 2001 var sérstakur opunarleikur á níu af ellefu tímabilum. 12.5.2007 10:15
Byrjar sjötta sumarið á leik við FH Guðjón Þórðarson stjórnar í dag sínum fyrsta leik í íslensku deildinni í tæp ellefu ár þegar Skagamenn fá Íslandsmeistara FH-inga í heimsókn upp á Akranes. 12.5.2007 10:00
Birgir komst í gegnum niðurskurðinn Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að gera það gott á Evrópumótaröðinni en í gær komst hann í gegnum niðurskurð á móti sem fram fer á Spáni. Birgir Leifur lék á fjórum höggum undir pari í gær og er samtals á þrem höggum undir pari. Það setur hann í 30. sæti mótsins ásamt nokkrum öðrum kylfingum. 12.5.2007 09:00
Ein breyting á reglunum Aðeins ein veruleg breyting hefur verið gerð á knattspyrnulögunum fyrir tímabilið sem hefst nú í dag. Hún snýst um búningamál en ef leikmenn ætla að klæðast flíkum innan undir búning sinn, bæði treyju og buxur, verða þær að vera í sama meginlit og búningurinn. 12.5.2007 08:00
Einar Árni til Breiðabliks Körfuknattleiksdeild Breiðabliks og Einar Árni Jóhannsson hafa komist að samkomulagi um að Einar Árni þjálfi lið meistaraflokks karla hjá Breiðablik ásamt með að vera yfirþjálfari unglingaflokka hjá félaginu. 11.5.2007 19:11
Lögregla yfirheyrir Barton vegna árásar á liðsfélaga Lögregla í Manchester-borg hyggst yfirheyra Joey Barton, leikmann Manchester City, vegna slagsmála við félaga hans, Ousmane Dabo, á æfingu. 11.5.2007 17:01
Sigur á Liechtenstein á EM í blaki Íslenska kvennalandsliði í blaki sigraði í dag Liechtenstein 3-1 í leik í lokakeppni Evrópumóts smáþjóða sem fram fer í Galsgow í Skotlandi. 11.5.2007 16:19
Einar Árni ráðinn þjálfari Breiðabliks Einar Árni Jóhannsson, fyrrverandi þjálfari Njarðvíkur í körfuknattleik, hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Breiðabliks. Greint var frá þessu á blaðamannafundi í dag. 11.5.2007 16:06
Boltinn byrjar að rúlla í Landsbankadeildinni á morgun Íslandsmótið í knattspyrnu hefst á morgun. FH-ingar hefja titilvörn sína á Akranesi í beinni útsendingu á Sýn. Formaður KSÍ segir á næstu 4-5 árum verði bylting í íslenskri knattspyrnu. 11.5.2007 15:40
Fowler kveður Anfield á sunnudaginn Markahrókurinn Robbie Fowler, leikmaður Liverpool, kveður Anfield á sunnudag þegar liðið leikur sinn síðasta leik í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á þessari leiktíð gegn Charlton. 11.5.2007 14:22
Sanchez hættir með Norður-Íra Lawrie Sanchez var í dag ráðinn knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Fulham um óákveðinn tíma og mun hætta sem þjálfari norðurírska landsliðsins í kjölfarið. 11.5.2007 14:09
Keppti í F1 í Singapúr að nóttu til á næsta ári Keppt verður í Formúlu 1 kappakstri í Singapúr á næsta ári og það að nóttu til. Frá þessu greindu forsvarsmenn kappakstursins í dag. Ekið verður um hafnarsvæðið í Singapúr og búist við að mótið verði í september eða október 2008. 11.5.2007 13:57
Dawson framlengir samning sinn við Tottenham Michael Dawson, varnarmaður Tottenham, hefur framlegt samning sinn við félagið til ársins 2012. Fyrri samningur var til ársins 2011 en félagið vildi verðlaun hann fyrir góða frammistöðu á tímabilinu. 11.5.2007 12:24
Tiger langt frá sínu besta á Players Besti kylfingur heims, Tiger Woods, var langt frá sínu besta á fyrsta hringnum á Players-meistaramótinu í golfi. Woods lék á 3 höggum yfir pari og er í 58.-74. sæti. Bein útsending verður á Sýn annað kvöld og á sunnudagskvöld. 11.5.2007 11:26
Pistons aðeins einum leik frá úrslitum í austurdeildinni Detroit Pistons þarf nú aðeins einn sigur til þess að spila til úrslita í austurdeildinni í NBA körfuboltanum. Pistons vann öruggan sigur á Chicago í gærkvöldi. 11.5.2007 11:20
Birgir Leifur nokkuð öruggur áfram í Andalúsíu Birgir Leifur Hafþórsson er á þremur höggum undir pari eftir annan keppnisdag á Andalúsíumótinu í golfi á Spáni í dag. Hann er sem stendur í 22. sæti og er öruggur áfram í gegnum niðurskurðinn. 11.5.2007 11:14
FH: Í sérflokki síðustu sumur Fréttablaðið hefur síðustu daga talið niður að Íslandsmótinu í knattspyrnu og við spáum FH-ingum Íslandsmeistaratitlinum. FH-ingar eru á eftir sínum fjórða titli í röð og margt bendir til þess að Íslandsbikarinn verði áfram í Krikanum. Liðið er frábært, breiddin einstök, umgjörðin glæsileg og ofan á allt heldur Hafnarfjarðarmafían uppi taktinum og stemningunni í kringum liðið. 10.5.2007 23:45
Tottenham og Blackburn skildu jöfn Tottenham er í vænlegri stöðu með að tryggja sér sjálfkrafa þáttökurétt í Evrópukeppni félagsliða á næsta tímabili eftir 1-1 jafntefli við Blackburn á heimavelli sínum í kvöld. Benni McCarthy kom gestunum yfir eftir 32 mínútur eftir laglega sendingu frá Morten Gamst Pedersen, en Jermain Defoe jafnaði fyrir heimamenn í síðari hálfleik. 10.5.2007 21:03
Getafe burstaði Barcelona Smálið Getafe gerði sér lítið fyrir og burstaði Barcelona 4-0 í síðari leik liðanna í spænska konungsbikarnum í kvöld og tryggði sér þar með sæti í úrslitum þar sem liðið mætir Sevilla. Börsungar unnu fyrri leikinn 5-2 og því reiknuðu fáir með hetjulegri endurkomu Getafe í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðasta hálftímann í leiknum eftir að hafa komið inn sem varamaður. 10.5.2007 20:56
Úrvalslið ársins í NBA tilkynnt í dag Í dag var tilkynnt hvaða leikmenn skipa úrvalslið ársins í NBA deildinni. Það er nefnd fjölmiðlamanna í Bandaríkjunum og Kanada sem stendur að valinu. Nokkur ný andlit voru í liðunum í ár í bland við gamalkunnug. 10.5.2007 19:13
Brown og Ball í þriggja leikja bann Michael Brown hjá Fulham og Michael Ball hjá Manchester City voru í dag dæmdir í þriggja leikja bann í ensku úrvalsdeildinni fyrir fólskuleg brot í leik með liðum sínum á dögunum. Brown skallaði Xabi Alonso hjá Liverpool og Ball traðkaði á Cristiano Ronaldo hjá Manchester United. Báðir verða í banni í lokaleik liða sinna um helgina og í fyrstu tveimur leikjunum á næstu leiktíð. 10.5.2007 18:34
De la Hoya - Mayweather rakaði inn 7,6 milljarða Bardagi þeirra Oscar de la Hoya og Floyd Mayweather á dögunum stóð undir væntingum þegar litið er á fjármálahliðina en nú hefur verið staðfest að bardaginn rakaði 7,6 milljörðum króna í kassann og er því dýrasti bardagi allra tíma. 10.5.2007 17:15
Owen valinn í B-lið Englands Michael Owen gæti spilað með enska landsliðinu á ný síðar í þessum mánuði eftir að hann var valinn í B-landsliðshópinn sem mætir Albönum. Ólíklegt verður að teljast að stjórnarformaður Newcastle verði hrifinn af þessu þar sem hann stendur enn í skaðabótamáli vegna meiðsla Owen á HM í sumar. Hér fyrir neðan má sjá enska B-hópinn. 10.5.2007 16:20
Birgir Leifur á höggi yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson lék fyrsta hringinn á Opna Andalúsíumótinu á Spáni í dag á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari. Hann lék fyrri níu á 37 höggum og seinni níu á 36 höggum. Hann fékk 3 fugla á hringnum, 12 pör, 2 skolla og einn skramba, sem kom á 7. braut. Hann er sem stendur í 81. - 94. sæti, en margir keppendur eiga eftir að ljúka leik í dag. 10.5.2007 16:09
Ferdinand líkir Ronaldo við hasarblaðahetju Rio Ferdinand, leikmaður Manchester United, segir að hann hafi oftar en einu sinni verið farinn að óttast um að liðinu tækist ekki að halda efsta sætinu í úrvalsdeildinni í vetur. Hann segir að mark frá Ronaldo hafi endanlega stimplað trú inn í mannskapinn og líkti tilþrifum Portúgalans við tilburði hasarblaðahetjunnar Roy of the Rovers. 10.5.2007 15:11
Frings hafnaði Juventus Þýski landsliðsmaðurinn Torsten Frings hefur framlengt samning sinn við Werder Bremen í Þýskalandi og því verður ekkert af fyrirhugaðri för hans til ítalska liðsins Juventus eins og til stóð. "Ég fékk fínt tilboð frá Juventus en hjartað sagði mér að vera áfram hjá Bremen," sagði Frings sem er nú samningsbundinn félaginu til 2011. 10.5.2007 15:02
Jol: Fólk er búið að gleyma Tottenham Martin Jol og hans menn í Tottenham taka á móti Blackburn í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Jol segir að fólk sé búið að gleyma því síðustu vikur að hans menn eigi góða möguleika á að ná viðunandi árangri í deildinni í vor þó staðan hafi ekki verið glæsileg síðustu vikur. 10.5.2007 14:53
Sidwell fer líklega frá Reading Nú er útlit fyrir að miðjumaðurinn efnilegt Steve Sidwell muni fara frá Reading í sumar, en hann er með lausa samninga hjá félaginu og hefur enn ekki skrifað undir nýjan. Hann er 24 ára gamall og hefur staðið sig vel með liðinu í vetur. Sidwell hefur verið orðaður við Chelsea, Manchester United og Newcastle í bresku blöðunum undanfarið. 10.5.2007 14:41
Shepherd segir Owen að halda sig við Newcastle Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle, var alls ekki kátur með fréttaflutning bresku blaðanna í dag þar sem slúðrað hefur verið um brottför Michael Owen frá félaginu í sumar. Shepherd hvetur Owen til að sýna félaginu hollustu eftir að hafa aðeins spilað 13 leiki með því síðan hann var keyptur fyrir metfé árið 2005. 10.5.2007 14:25
Vill staðfestingu á að Tevez megi spila Stjórnarformaður Wigan hefur ritað forráðamönnum ensku úrvalsdeildarinnar bréf þar sem hann krefst því að fá skriflega staðfestingu á því frá deildarmönnum að Argentínumaðurinn Carlos Tevez sé löglegur með West Ham. Wigan á í harðri fallbaráttu við West Ham og örlög liðanna ráðast á sunnudaginn í lokaumferðinni. 10.5.2007 14:16
Draumadeild Landsbankans og Vísis komin á fullt Nú er hin árlega Draumadeild Landsbankans og Vísis komin í loftið. Deildin hefur verið uppfærð mikið frá síðasta ári og nú geta þátttakendur slkipt meira um menn í sínu liði og kominn er SMS virkni og fleira. Skráning fyrstu dagana hefur verið góð, þegar hafa 2.000 lið skráð sig til þátttöku og bætist við með hverri mínútu. 10.5.2007 13:42
Mikil dramatík í Utah Utah hefur náð 2-0 forystu í einvígi sínu við Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir dramatískan sigur í framlengingu í nótt 127-117. Derek Fisher mætti ekki í leikinn fyrr en í síðari hálfleik eftir að hafa flogið frá New York þar sem dóttir hans var í lífshættulegri aðgerð. Fisher spilaði stóra rullu undir lokin og skoraði öll fimm stig sín í framlengingunni. 10.5.2007 04:29
Barcelona undir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í síðari undanúrslitaleik Getafe og Barcelona í spænska konungsbikarnum og hefur Getafe forystu 2-0. Eiður Smári er á bekknum hjá Barclelona en nú vantar Getafe aðeins eitt mark til að fara áfram í úrslitin. Þá hefur Blackburn yfir 1-0 á útivelli gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni þar sem Benni McCarthy skoraði mark gestanna. 10.5.2007 20:00
HK deildarbikarmeistari HK menn urðu í kvöld deildarbikarmeistarar í handbolta þegar þeir báru sigurorð af Stjörnunni í oddaleik í Digranesi 29-28. Augustas Strasdas og Valdimar Þórsson skoruðu 8 mörk hvor fyrir heimamenn en Guðmundur Guðmundsson skoraði 6 fyrir gestina. 9.5.2007 21:20
Bragðdauft á Brúnni Chelsea og Manchester United gerðu markalaust jafntefli á Stamford Bridge í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. United hafði þegar tryggt sér titilinn og því tefldu bæði lið fram mörgum varaskeifum í leiknum í kvöld og hvíldu lykilmenn fyrir átökin í bikarúrslitaleiknum. 9.5.2007 21:08
Utah - Golden State í beinni í nótt Annar leikur Utah Jazz og Golden State Warriors í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt í nótt. Fyrsti leikur liðanna var æsispennandi og lauk með naumum sigri heimamanna. Hér fyrir neðan má sjá leikina sem sýndir verða næstu daga. 9.5.2007 20:27
Roma valtaði yfir Inter Roma er í góðri stöðu eftir fyrri úrslitaleik sinn við Inter Milan í ítalska bikarnum. Roma vann 6-2 stórsigur á Mílanóliðinu í dag. Totti, De Rossi og Perrota komu Roma í 3-0 eftir stundarfjórðung og Amantino Manchini og Panucci (2) bættu við mörkum. Hernan Crespo skoraði bæði mörk gestanna. 9.5.2007 18:33