Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Van Bommel verður ekki með gegn Milan Hollenski miðjumaðurinn Mark van Bommel hjá Bayern Munchen mun að öllum líkindum missa af báðum leikjunum við AC Milan í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Van Bommel var í dag dæmdur í tveggja leikja bann af aganefnd knattspyrnusambands Evrópu og eru forráðamenn Bayern mjög ósáttir við þessa niðurstöðu. 13.3.2007 21:00
Wenger: Meiðsli Henry eru franska landsliðinu að kenna Arsene Wenger segir þrálát meiðsli og lakari frammistöðu Thierry Henry á knattspyrnuvellinum í vetur skrifast á franska landsliðið. Henry hefur misst mikið úr með Arsenal í vetur og verður ekki meira með liðinu á þessari leiktíð vegna meiðsa - en hann hefur spilað hvern einasta landsleik með Frökkum síðan um miðjan ágúst. 13.3.2007 20:45
Nýr þjálfari hjá Bobcats í sumar Michael Jordan, yfirmaður körfuboltamála hjá Charlotte Bobcats í NBA deildinni, tilkynnti í dag að þjálfarinn Bernie Bickerstaff fengi nýtt hlutverk hjá félaginu í sumar. Bickersteff hefur stýrt liðinu í þrjú ár og á að baki 67 sigra og 161 tap, en hann mun væntanlega taka sér sæti á skrifstofunni í sumar. 13.3.2007 20:15
Ferrari getur unnið án Schumachers Ross Brawn, fyrrum tæknistjóri Ferrari í Formúlu 1, segir að liðið sé í góðri aðstöðu til að vinna titil bílasmiða á komandi tímabili þó það njóti ekki lengur krafta hins magnaða Michael Schumachers. Hann segir liðið í góðum málum með þá Kimi Raikkönen og Felipa Massa við stýrið. 13.3.2007 19:15
Isiah Thomas fékk nýjan samning hjá Knicks Isiah Thomas, forseti og þjálfari New York Knicks, skrifaði undir nýjan samning við félagið um helgina. Þessi tíðindi komu nokkuð á óvart í ljósi þess að eigandi félagsins hafði áður sagt að hann ætlaði að taka ákvörðun um framtíð Thomas eftir að keppnistímabilinu lyki. 13.3.2007 19:08
Systir Ricardo Oliveira fundin heil á húfi Fimm mánaða langri martröð knattspyrnumannsins Ricardo Oliveira hjá AC Milan er nú lokið. Systur hans Mariu var rænt í Brasilíu í október en á heimasíðu Milan í dag var tilkynnt að hún væri komin til síns heima á ný eftir þessa óskemmtilegu lífsreynslu. Maria er sögð heil á húfi. 13.3.2007 18:15
Henry: Ég fer aldrei frá Arsenal Thierry Henry segist ákveðinn í að ljúka ferlinum hjá Arsenal þrátt fyrir þrálátan orðróm um annað í blöðum undanfarna mánuði. Henry verður ekki meira með liði sínu á leiktíðinni vegna meiðsla, en hann segist aldrei ætla að fara frá félaginu. 13.3.2007 17:30
Thomas Doll tekur við Dortmund Thomas Doll hefur verið ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðsins Dortmund í Þýskalandi og tekur við af Jörgen Röber sem var rekinn í gær. Dortmund er í bullandi fallbaráttu í úrvalsdeildinni. Doll var síðast hjá liði Hamburg í úrvalsdeildinni en þar var hann rekinn í febrúar þar sem liðið sat í botnsætinu. Doll hefur skrifað undir eins árs samning við félagið, sem varð Evrópumeistari fyrir tíu árum. 13.3.2007 17:15
Man Utd mætir Evrópuúrvalinu í kvöld Í kvöld verður hátíðarleikur Manchester United gegn úrvalsliði Evrópu sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 19:30. Hér er á ferðinni sérstakur afmælisleikur til að minnast 50 ára afmæli Rómarsáttmálans og þáttöku United í Evrópukeppninni og margar af helstu knattspyrnustjörnum heims verða á leikskýrslunni. 13.3.2007 17:12
Flöskukastarinn kærður og settur í bann Þrítugur ársmiðahafi hjá spænska liðinu Real Betis hefur verið settur í bann af félaginu og kærður til lögreglu fyrir að kasta plastflösku í Juande Ramos þjálfara Sevilla í bikarleik liðanna á dögunum. Leikurinn var flautaður af eftir að Sevilla hafði náð 1-0 forystu, en honum verður haldið áfram fyrir luktum dyrum á heimavelli Getafe þann 20. mars næstkomandi. 13.3.2007 16:42
Kahn gæti framlengt við Bayern Svo gæti farið að markvörðurinn Oliver Kahn framlengi samning sinn við Þýskalandsmeistara Bayern Munchen ef marka má orð framkvæmdastjóra félagsins. Mistök markvarðarins urðu til þess að Bayern náði aðeins 1-1 jafntefli við Bremen í stórleik helgarinnar í Þýskalandi, en Karl-Heinz Rummenigge segir hann eiga nóg eftir. 13.3.2007 16:25
Vörn Tottenham orðin götótt Miðvörðurinn Anthony Gardner hjá Tottenham getur ekki spilað með liðinu næstu sex vikurnar eftir að hann brákaði bein í fæti sínum í leiknum gegn Chelsea um helgina. 13.3.2007 16:14
David Gill: Ronaldo mun framlengja við United David Gill, framkvæmdastjóri Manchester United, er ekki í nokkrum vafa um að Cristiano Ronaldo muni framlengja samning sinn við félagið. Ronaldo er 22 ára gamall og er samningsbundinn United til 2010, en vill gjarnan skrifa undir nýjan samning. Ronaldo hefur mikið verið orðaður við lið á Spáni að undanförnu. 13.3.2007 15:15
Framtíðin óljós hjá Makelele Franskir fjölmiðlar greina frá því í dag að framtíð miðjumannsins Claude Makelele hjá Chelsea sé nú óráðin eftir að forráðamenn Chelsea neituðu að framlengja núverandi samning hans um tvö ár. Samningur hins 34 ára gamla varnartengiliðs rennur út á næsta ári, en sagt er að hann vilji tvö ár í viðbót en Chelsea sé aðeins tilbúið að framlengja um eitt ár. 13.3.2007 14:31
Wenger: Henry hreyfir sig ekki fyrr en í júní Arsene Wenger, stjóri Arsenal, staðfesti í dag að framherjinn Thierry Henry muni ekki æfa með liðinu fyrr en það hefur æfingar á ný eftir sumarleyfi í júní. Henry mieddist á nára og í maga fyrir nokkrum dögum og verður alveg settur á hilluna fram á sumar. Óvíst er hvort hann verður orðinn klár í slaginn þegar deildarkeppnin hefst á ný í lok sumars. 13.3.2007 14:26
Joey Barton handtekinn Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Manchester City í ensku úrvalsdeildinni hefur verið handtekinn og yfirheyrður af lögreglu í tengslum við líkamsárás á leigubílstjóra í Liverpool í síðasta mánuði. Barton var látinn laus gegn tryggingu en málið er í rannsókn. 13.3.2007 14:22
Golden State batt enda á sigurgöngu Dallas Sautján leikja sigurgöngu Dallas Mavericks í NBA deildinni lauk í nótt þegar liðið steinlá á útivelli fyrir Golden State Warriors 117-100. Sigurganga Dallas var sú sjöunda besta í sögu deildarinnar og var tapið aðeins það þriðja hjá liðinu á síðustu þremur mánuðum. 13.3.2007 13:28
Hjólum stolið útum allan bæ Mikið hefur verið upp á síðkastið að hjólum hafi verið stolið, hvort sem þau hafi verið inn í bílskúr, fyrir utan eða inn í geymslum. Aðfaranótt föstudagsins 9. mars var hjóli stolið fyrir utan Jórufell í Breiðholti og svo aðfaranótt sunnudagsins 11. mars var brotist inn í bílskúr í Árbænum og stolið þar öllu motocrossdótinu sem eigandinn og hans börn áttu. 13.3.2007 09:24
McLaren sagður vilja breytingar Steve McLaren er nú sagður allt annað en sáttur út í vinnuveitendur sína hjá enska knattspyrnusambandinu, en allt útlit er fyrir að 14 leikmenn í landsliðshóp hans verði uppteknir við að spila endurtekin leik í ensku bikarkeppninni - aðeins fimm dögum áður en enska liðið spilar afar mikilvægan leik í undankeppni EM. 12.3.2007 20:39
Essien ánægður með nýjan samning Michael Essien, miðjumaður Chelsea, skrifaði í dag undir nýjan fimm ára samning við félagið. Essien kveðst mjög ánægður í herbúðum Chelsea og útilokar ekki að ljúka ferlinum í London. Forráðamenn Chelsea eru einnig hæstaánægðir með að hafa tryggt sér þjónustu Essien næstu fimm árin. 12.3.2007 20:15
Foster fær ekki að spila gegn Man. Utd. Markvörðurinn Ben Foster mun ekki leika með Watford gegn Manchester United, fari svo að liðin mætist í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar. Ef Man. Utd. sigrar Middlesbrough í síðari viðureign liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar mætir það Watford í undanúrslitum. Foster er í láni hjá Watford frá Man. Utd og má ekki spila gegn liðinu, sama í hvaða keppni um ræðir. 12.3.2007 19:15
Cocu: Rimman við Liverpool verður stríð Philip Cocu, fyrirliði PSV í Hollandi, lýsir væntanlegri rimmu liðsins við Liverpool í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sem “stríði”. Cocu býst við tveimur afar hörðum leikjum, enda séu bæði lið hungruð í árangur í keppninni. 12.3.2007 18:00
Frábær frammistaða íslenska kvennalandsliðsins Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann glæstan sigur á heimamönnum í Portúgal í Algarve-bikarnum í dag, 5-1. Hólmfríður Magnúsdóttir átti stórleik fyrir íslenska landsliðið og skoraði þrennu. 12.3.2007 17:47
Rúnar Kristinsson í KR? Rúnar Kristinsson, fyrrum landsliðsmaður í knattspyrnu og núverandi atvinnumaður hjá Lokeren í Belgíu, er við það að ganga í raðir KR og mun leika með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar. Steingrímur Sævarr Ólafsson, ritstjóri Íslands í dag, heldur þessu fram á bloggsíðu sinni og segir ekki langt að bíða þar til tilkynnt verður opinberlega um komu Rúnars í Vesturbæinn. 12.3.2007 17:02
Zidane vildi ekki spila með Evrópuúrvalinu Zinedine Zidane afþakkaði að spila með Evrópuúrvali Marcelo Lippi í góðgerðarleik sem fram fer á Old Trafford annað kvöld. Áður hafði Marco Materazzi, varnarmaður Inter Milan og sá er Zidane skallaði eftirminnilega í úrslitaleik Frakka og Ítala á HM í sumar, staðfest komu sína í leikinn en þó er það ekki talin ástæða þess að Zidane afþakkaði boðið. 12.3.2007 16:57
Í bann út tímabilið eftir hrottabrot - Með myndbandi Chris Simon, leikmaður NY Islanders í NHL-deildinni í íshokkí í Bandaríkjunum, hefur verið dæmdur í leikbann sem gildir út leiktíðina fyrir viðurstyggilegt brot á Ryan Hollweg, leikmanni NY Rangers. Atvikið átti sér stað í leik liðanna á fimmtudag og sló Simon Hollweg með kylfunni, beint í andlitið. 12.3.2007 16:00
Mourinho sleppur við refsingu Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sleppur við ákæru frá enska knattspyrnusambandinu þrátt fyrir að hafa kallað Mike Riley, dómara leiks Chelsea og Tottenham í bikarnum í gær, það sem á góðri íslensku myndi þýðast sem "tíkar-sonur". Riley minntist ekki á atvikið í skýrslu sinni og Mourinho segist ekkert hafa meint með orðum sínum. 12.3.2007 15:00
Man. Utd. og Chelsea mætast ekki í undanúrslitum Draumaúrslitaleikur Manchester United og Chelsea í ensku bikarkeppninni er ennþá mögulegur eftir að ljóst var að þessi tvö efstu lið úrvalsdeildarinnar drógust ekki gegn hvort öðru í undanúrslitum. Blackburn mætir sigurvegaranum úr viðureign Chelsea og Tottenham og Watford mætir annaðhvort Man. Utd. eða Middlesbrough. 12.3.2007 14:37
Louis van Gaal orðaður við ástralska landsliðið Hollenski þjálfarinn Louis van Gaal, þjálfari Grétars Steinssonar og félaga hjá AZ Alkmaar, er nú sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá ástralska landsliðinu í knattspyrnu. Van Gaal er hins vegar ekki svo áhugasamur þar sem hann telur að ástralska liðið geti ekki unnið HM í knattspyrnu. 12.3.2007 14:15
Supercross Daytona úrslit. Gríðarleg stemming var á Daytona um helgina þar sem menn áttu vona á hörku baráttu á milli James Stewaert og Ricky Carmichael. 12.3.2007 13:27
Supecross lites úrslit Monster / Kawasaki ökumaðurinn Ben Townley gerði sér lítið fyrir og vann á Daytona nú um helgina. 12.3.2007 13:17
Mourinho: Yrði heiður að þjálfa Real Madrid Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að það væri mikill heiður fyrir sig ef hann fengi einhverntímann að þjálfa stórlið Real Madrid á Spáni. Framtíð portúgalska þjálfarans hjá Chelsea hefur verið mikil til umræðu síðustu vikur og segja margir að leið hans liggi til Spánar fari svo að hann verði látinn fara frá Chelsea. 12.3.2007 13:15
Loksins tapaði Federer Svisslendingurinn Roger Federer tapaði sínum fyrsta leik síðan í ágúst þegar hann beið í lægri hlut fyrir Guillermo Canas í annari umferð Indian Wells meistaramótsins í dag. Federer tapaði í tveimur lotum, 7-5 og 6-2, en áður hafði hann unnið 41 viðureign í röð. 12.3.2007 13:05
Barcelona vill fá Robben Forráðamenn Barcelona eru sagðir vera að undirbúa tilboð í hollenska vængmanninn Arjen Robben frá Chelsea. Samkvæmt spænskum fjölmiðlum er Barcelona búið að gefa upp vonina á að fá Cristiano Ronaldo frá Man. Utd. og hefur félagið því snúið sér að Robben, sem hefur ekki átt fast sæti í liði Chelsea á tímabilinu. 12.3.2007 12:30
Versta tap í sögu LA Lakers á heimavelli Ekkert lát er á sigurgöngu Dallas í NBA-deildinni í körfubolta og í nótt vann liðið yfirburðasigur á LA Lakers, 108-72, útivelli. Þetta var 17. sigur Dallas í röð og hefur liðið nú unnið 52 af 61 leik sínum í vetur. Þetta var jafnframt versta tap Lakers í sögu félagsins síðan það flutti frá Minneapolis til Los Angeles árið 1960. 12.3.2007 11:41
Motocross æfingar á langasandi. Vélhjólaíþrótta klúbbur Akranes fékk leyfi fyrir að halda æfingu á langasandi síðastliðinn sunnudag 12.3.2007 11:12
FH og Breiðablik á toppnum Breiðablik er í fyrsta sæti sínum riðli Lengjubikarsins í knattspyrnu eftir sigur á Þrótti 4-1 í gær. Breiðablik hefur unnið alla 3 leiki sína og er með 9 stig. Fram og KR eru með 6 stig en liðin hafa sigrað í báðum sínum leikjum. Keflavík er einnig með 6 stig en eftir 3 leiki. 12.3.2007 09:33
Romairo með þrennu Gamla brýnið, Romario, er enn að enda þótt hann sé orðinn 41. árs. Brasilíski kappinn skoraði þrennu í gær þegar Vasco da Gama sigraði Madureira 4-1. Romario er þá búinn að skora 995 mörk og vantar því aðeins 5 til þess að ná takmarki sínu að skora 1000 mörk á ferlinum. 12.3.2007 09:32
Robben á leið til Barcelona? Enska blaðið The Sun segir að hollenski útherjinn, Arjen Robben, sé orðinn leiður á vistinni hjá Englandsmeisturum Chelsea. Blaðið segir að Txiki Begiristain yfirmaður knattspyrnumála hjá Spánarmeisturum Barcelona beini nú kastljósinu að Robben. Barcelona hefur í nokkurn tíma sagt ætla að freista þess að kaupa Portúgalann Ronaldo hjá Manchester United. Ronaldo verður væntanlega áfram í herbúðum United og þess vegna skoðar Barcelona möguleikann á því að fá Arjen Robben í sínar raðir. 12.3.2007 09:19
Mourinho í klípu Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea neitar að hafa viðhaft ósæmilegt orðbragð við Mike Riley dómara í leik Chelsea og Tottenham í gær. Mourinho á að hafa sagt „hórusonur“ þegar hann var á leið til búningsherbergja í hálfleik. Knattspyrnustjórinn neitar að hafa beint orðum sínum að dómaranum en ekki fór á milli mála að Mourinho mislíkaðir margar ákvarðanir Rileys. Knattspyrnustjórinn segir í samtali við enska fjölmiðla að hann beiti þessu tungutaki mörgum sinnum bæði á æfingum og í leikjum. Enska knattspyrnusambandið á væntanlega eftir að krefjast skýrslu um málið og hugsanlega refsað knattspyrnustjóranum. 12.3.2007 09:16
Ósigur eftir flautukörfu annan leikinn í röð Washington Wizards tapaði öðrum leiknum í röð á flautukörfu. Á laugardag skoraði Steve Francis sigurkörfu New York Knicks gegn Wizards og í gærkvöldi endurtók sagan sig þegar Udonis Haslem skoraði fyrir Miami í 106-104 sigri. Haslem skoraði þegar aðeins 0,3 sekúndur voru til leiksloka. Gilbertas Arenas var stigahæstur hjá Wizards með 33 stig en Gary Payton skoraði 17 fyrir Miami. Shaquille O´Neal skoraði 12 stig fyrir Miami. 12.3.2007 09:13
Yao Ming óstöðvandi Kínverski risinn Yao Ming skoraði 37 stig í gærkvöldi þegar Houston Rockets sigraði Orlando Magic 103-92. Ming er nýstaðinn upp úr erfiðum meiðslum og var aðeins að spila fjórða leik sinn eftir að hafa misst af 32 leikjum eftir að hafa fótbrotnað fyrr á leiktíðinni. Tracy McGrady var einnig atkvæðamikill í liði Houston, skoraði 19 stig og var með 10 stoðsendingar. Í síðustu 10 leikjum hefur Houston haft betur í rimmunni við Orlando í 9 þeirra. 12.3.2007 09:11
Óeirðaseggir hugsanlega útilokaðir frá leikjum Framkvæmdastjóri handknattleikssambands Íslands segir að óeirðaseggirnir sem stofnuðu til slagsmála á bikarúrslitaleik Stjörnunnar og Fram í gær, verði útilokaðir frá handboltaleikjum í framtíðinni. 11.3.2007 22:15
Mourinho spilar fótbolta með syni sínum og vinum hans Það skemmtilegasta sem Jose Mourinho gerir er ekki að vinna titla með Chelsea. Hann fær mesta ánægju af því að spila fótbolta með syni sínum og vinum hans, en það gera þeir vikulega á heimili portúgölsku fjölskyldunnar í London. Skemmst er frá því að segja að sonurinn vill ekki vera með pabba sínum í liði. 11.3.2007 20:30
Watford í undanúrslit Watford varð í kvöld annað liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu þegar það bar sigurorð af 1. deildarliði Plymouth á útivelli. Fyrr í dag hafði Blackburn tryggt sig áfram en Man. Utd. og Middlesbrough þurfa að mætast að nýju, líkt og Chelsea og Tottenham. 11.3.2007 20:15