Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Algjör eyðilegging“ vegna Fionu Hitabeltisstormurinn Fiona hefur valdið mikilli eyðileggingu á húsum og vegum á Atlantshafsströnd Kanada. smábæjar á Nýfundnalandi segir algjöra eyðileggingu hafa átt sér stað í bænum 24.9.2022 21:48
Geti átt yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir að flýja herkvaðningu Pútín tilkynnti rússnesku þjóðinni á miðvikudag að grípa skildi til herkvaðningar til þess að vernda Rússa á „frelsuðum svæðum.“ Lítið virðist vitað um hversu margir verði skikkaðir í herinn og hafa karlmenn haldið á flótta frá landinu vegna þessa. Pútín er sagður hafa gripið til lagabreytinga sem refsi þeim sem flýi herkvaðninguna. 24.9.2022 15:31
Ríki ESB fleygja rúmlega 150 milljónum tonna af mat á ári Ríki Evrópusambandsins sóa meiri mat en þau flytja inn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu umhverfissamtakanna Feedback EU. Stefnt er að því að draga úr matarsóun um helming á næstu 8 árum. 24.9.2022 14:30
Hægriflokkarnir stefna á stórsigur með öfgahægrikonu í fararbroddi Ítalir ganga til þingkosninga á morgun og er baráttan hörð á milli flokkanna á hægri og vinstri vængnum. Væntanleg orkukreppa og stríðið í Úkraínu hafa áhrif á kosningarnar í ár en allt stefnir í að öfgahægriflokkur fái forsætisráðherrastólinn í fyrsta sinn frá því að Mussolini var í embætti. Kona gæti í fyrsta sinn í sögunni orðið forsætisráðherra Ítalíu. 24.9.2022 10:00
Rússar flýi herkvaðningu Pútíns Mikil örtröð er sögð hafa myndast á landamærum Rússlands í kjölfar herkvaðningar Pútíns. Mikill fjöldi karlmanna bíði í bílaröð á landamærunum og freisti þess að komast hjá því að vera skikkaðir í herinn. 23.9.2022 19:59
Japan opnar landamærin í október og styrkir ferðaþjónustu Langt hlé hefur verið á ferðamennsku í Japan vegna kórónuveirufaraldursins en nú er útlit fyrir að varúðarráðstafanir vegna faraldursins verði látnar niður falla og landamærin opnuð á ný. 23.9.2022 18:05
Segja íbúa hersetinna svæða þvingaða til að greiða atkvæði Stjórnvöld í Kænugarði fullyrða að íbúar á hersetnum svæðum hafi verið hótað refsingum taki þeir ekki þátt í atkvæðagreiðslu sem leppstjórnir Rússa halda nú um helgina um hvort svæðin skuli innlimuð í Rússland. 23.9.2022 16:20
Tugir farandfólks fórust undan ströndum Sýrlands Leitarlið hefur fundið 71 lík eftir að bátur með á annað hundrað farandfólks sökk undan ströndum Sýrlands í gær. Björgunaraðgerðir standa enn yfir en tuttugu manns hafa fundist á lífi til þessa og verið fluttir á sjúkrahús í Sýrlandi. 23.9.2022 14:55
SÞ: Stríðsglæpir framdir á hersetnu svæðunum í Úkraínu Nauðganir, pyntingar og einangrunarvistun barna á sér stað á hersetnum svæðum Rússa í Úkraínu, að sögn yfirmanns rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Vísbendingar hafa fundist um fjölda aftaka þar sem fólk hefur verið skorið á háls eða skotið í höfuðið. 23.9.2022 12:36
Fegurðardrottning föst á flugvelli Mjanmarska fegurðardrottningin Han Lay hefur nú verið föst á flugvellinum í Bangkok í þrjá daga. Hún fær ekki að komast út af flugvellinum nema hún fljúgi til Mjanmar. Hún óttast að hún verði handtekin þar fyrir að hafa mótmælt herstjórninni. 23.9.2022 08:36
Afboðuðu viðtal við forseta Íran vegna slæðukröfu Bandaríski fréttamiðillinn CNN afboðaði viðtal við Ebrahim Raisi, forseta Íran, eftir að hann krafðist þess að sjónvarpskonan Christiane Amanpour klæddist höfuðslæðu í viðtalinu. 23.9.2022 08:28
Riverdale-leikari dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð á móður sinni Kanadíski leikarinn og fyrrverandi barnastjarnan Ryan Grantham hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt móður sína árið 2020. 23.9.2022 08:06
Rússneskir miðlar segja atkvæðagreiðslu um innlimun hafna Samkvæmt ríkismiðlum í Rússlandi er atkvæðagreiðsla hafin á sumum þeirra hernumdu svæða í Úkraínu þar sem til stendur að halda íbúakosningu um innlimun nú um helgina. 23.9.2022 07:09
Herkvaðningin mun umfangsmeiri en Rússar segja Umfang herkvaðningar í Rússlandi gæti orðið þrisvar sinnum meira en ráðamenn hafa sagt. Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, sagði í gær að til stæði að kveðja þrjú hundruð þúsund manns í herinn og Dimítrí Peskov, talsmaður Vladimírs Pútins, forseta, staðfesti það. 22.9.2022 22:30
Raisi hætti við viðtalið eftir að Amanpour neitaði að bera höfuðklút Forseti Írans, Ebrahim Raisi neitaði að mæta í viðtal við fréttakonu CNN, Christiane Amanpour vegna þess að hún neitaði að bera höfuðklút á meðan á viðtalinu stæði. 22.9.2022 21:14
Telur forseta geta aflétt leynd með huganum einum Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, réttlætti vörslu sína á aragrúa leyniskjala með því að forseti gæti aflétt leynd af gögnum með því einu að hugsa um það í sjónvarpsviðtali í gær. Þá kallaði hann málaferli gegn honum í New York pólitískar nornaveiðar. 22.9.2022 11:51
Að minnsta kosti níu látnir í mótmælunum í Íran Ekkert lát er á mótmælunum í Íran en mótmælendur kveiktu í lögreglustöðvum og bílum í höfuðborginni og öðrum borgum í dag. Minnst níu eru sagðir hafa látist eftir að mótmælin brutust út um helgina og hefur ríkisstjórnin lokað á samfélagsmiðla til að reyna að koma í veg fyrir að mótmælendur nái að tala sig saman. 22.9.2022 10:52
Ríkisstjórnin gekk út vegna samsæriskenninga umdeilds þingmanns Samsæriskenningar þar sem ýjað var að því að fjármálaráðherra Hollands væri njósnari á vegum vestrænna ríkja sem viðraðar voru í þingræðu í Hollandi í gær varð til þess að öll hollenska ríkisstjórnin gekk af þingfundi í mótmælaskyni. 22.9.2022 10:44
Kaþólikkar orðnir fleiri en mótmælendur á Norður-Írlandi Fleiri Norður-Írar telja sig nú kaþólikka en mótmælendur í fyrsta skipti samkvæmt nýbirtu manntali. Tölurnar eru taldar verða vatn á myllu þeirra sem berjast fyrir sameiningu Írlands. 22.9.2022 10:35
Stefna ríkisstjóra fyrir að senda þá á sumardvalareyju Venesúelskir hælisleitendur sem ríkisstjóri Flórída í Bandaríkjunum lét fljúga með frá Texas til lítils sumardvalarstaðar í Massachusetts hafa stefnt honum fyrir blekkingar og mismunun. Lögmaður þeirra sakar ríkisstjórann um notfæra sér þá sem pólitísk peð. 22.9.2022 09:15
Sagði mikilvægt að gefa Rússum ekki andrými til að efla varnir sínar Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti virðist ekki gefa mikið fyrir tilraunir Rússa til að stigmagna átökin í Úkraínu með því að boða til herkvaðningar. 22.9.2022 07:23
„Held að íbúar í Íran séu komnir með meira en nóg af ríkisstjórninni“ Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í Íran undanfarna daga eftir að ung kúrdísk kona dó í haldi lögreglu. Hún hafði verið handtekin fyrir að vera ekki klædd samkvæmt ströngum reglum klerkastjórnar Írans og dó í síðustu viku. 21.9.2022 23:03
Segir Pútín hafa gert „stór mistök“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO) segir hótanir Vladimírs Pútins, forseta Rússlands, um notkun kjarnorkuvopna vera „hættulegan og óábyrgan“ áróður. Hann segir að eina leiðin til að binda enda á stríðið í Úkraínu sé að sýna Rússum það og sanna að þeir geti ekki sigrað í Úkraínu. 21.9.2022 20:27
Saka Trump og börn hans um umfangsmikil fjársvik Letitia James, ríkissaksóknari New York-ríkis, hefur höfðað mál gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og þremur elstu börnum hans, þeim Donald Trump yngri, Ivönku Trump og Eric Trump. Þau eru sökuð um umfangsmikil skatt- og bankasvik. 21.9.2022 18:29
Skýrasta myndin af Neptúnusi í þrjátíu ár Ekki frá því að könnunarfarið Voyager 2 flaug fram hjá fyrir meira en þrjátíu árum hafa menn fengið eins skarpa mynd af ísrisanum Neptúnusi og James Webb-geimsjónaukinn náði nýlega af honum. Hringir plánetunnar og stærstu tungl eru greinileg á myndinni. 21.9.2022 14:55
Gefið í skyn að aðgerðum á hernumdum svæðum verði svarað fullum hálsi Orðræða rússneskra stjórnvalda hefur stigmagnast að mati sérfræðings í utanríkismálum, þar sem gefið er í skyn að hernaðaraðgerðum í úkraínskum héröðum sem Rússar hyggjast innlima verði svarað með öllum tiltækum ráðum. Tilkynnt var um herkvaðningu í Rússlandi í morgun. 21.9.2022 12:05
Gagnrýndur fyrir að syngja Bohemian Rhapsody stuttu fyrir jarðarförina Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, hefur verið gagnrýndur síðustu daga fyrir að hafa sungið lag með hljómsveitinni Queen í hótelanddyri í London, tveimur dögum fyrir jarðarför Elísabetar II Bretlandsdrottningar. 21.9.2022 11:21
Danadrottning greinist með Covid í annað sinn Margrét Þórhildur Danadrottning hefur greinst með kórónuveiruna í annað sinn. 21.9.2022 10:40
Vaktin: Skiptu á verjendum Maríupól fyrir vin Pútíns Mikil eftirspurn er eftir flugferðum aðra leiðina frá Rússlandi eftir að Vladímír Pútín forseti tilkynnti í sjónvarpsávarpi að um 300.000 manns yrði kvaddir í herinn vegna stríðsins í Úkraínu í morgun. 21.9.2022 10:26
Segja herkvaðninguna til marks um misheppnaða aðgerð Rússa Ákvörðun Vladimir Pútín Rússlandsforseta að grípa til herkvaðningar er viðurkenning á því að innrásin í Úkraínu hefur ekki gengið eins og Rússar ætluðu. Þetta segja bæði talsmenn Úkraínustjórnar og Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands. 21.9.2022 08:33
Kveikti í sér til að mótmæla ríkisútför Abe Karlmaður á áttræðisaldri kveikti í sér nærri skrifstofu forsætisráðherra Japan til að mótmæla því að Shinzo Abe, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, fái ríkisútför. Ríkisútfarir í Japan kosta um það bil 1,4 milljarð íslenskra króna. 21.9.2022 08:07
Hundruð hvala stranda við Tasmaníu Um 230 grindhvalir hafa strandað á Ocean-ströndinni á Tasmaníu síðustu daga. Um helmingur þeirra er enn á lífi og verið er að vinna í því að koma þeim aftur í sjóinn. 21.9.2022 07:40
Konur brenna slæður sínar í Íran Íranskar konur hafa undanfarin fimm kvöld mótmælt hijab-lögum landsins eftir að 22 ára gömul kona lést í haldi lögreglu. Hún var handtekin fyrir að nota ekki hijab-slæðu á almannafæri en lést degi síðar. 21.9.2022 07:13
Fer aftur í mál við Trump vegna meintrar nauðgunar Rithöfundurinn E. Jean Carroll ætlar aftur í mál við Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna meintrar nauðgunar. Carroll skrifaði um meint atvik í bók sinni What Do We Need Men For? A Modest Proposalsem kom út árið 2019 en Trump sakaði hana um að ljúga um atvikið til að selja fleiri eintök af bókinni. 21.9.2022 06:38
Boðar herkvaðningu og hótar kjarnorkustríði Vesturlönd hafa sýnt að þau vilja ekki frið milli Rússlands og Úkraínu, sagði Vladimir Pútín Rússlandsforseti í ávarpi sínu til rússnesku þjóðarinnar í morgun. Hann sagði Vesturlönd vilja tortíma Rússlandi og sakaði þau um að nota Úkraínumenn sem fallbyssufóður. 21.9.2022 06:20
Neita að reyna að sanna hvort Trump hafi svipt leynd af gögnunum Alríkisdómari sem fenginn var til að fara yfir opinber og leynileg gögn sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) tóku af Donald Trump, fyrrverandi forseta, í ágúst þrýsti á dómara Trumps í dómsal í dag. Hann vildi að þeir færðu sannanir fyrir því að Trump hefði svipt leynd af gögnum sem hann tók með sér úr Hvíta húsinu og hvaða gögn um væri að ræða. 20.9.2022 22:53
Frestuðu ávarpi Pútíns um innlimun til morguns Vladimír Pútín, forseti Rússlands, ætlaði að ávarpa þjóðina í kvöld en svo virðist sem hætt hafi verið við að birta ávarpið. Fyrst átti að ávarpið, sem ku hafa verið tekið upp fyrr í dag, klukkan fimm að íslenskum tíma. 20.9.2022 22:30
Rannsaka hreppaflutninga vonarstjörnu repúblikana á hælisleitendum Lögreglustjóri í Texas ætlar að kanna hvort að lög hafi verið brotin þegar ríkisstjóri Flórída lét fljúga tugum venesúelskra hælisleitenda þvert yfir landið til Massachusetts í síðustu viku. Vísbendingar hafa komið fram um að fólkið hafi verið beitt blekkingum um hvað biði þess þar. 20.9.2022 21:03
Ætla sér að kjósa um innlimun í Rússland Embættismenn í hersetnum héruðum í austan- og sunnanverðri Úkraínu ætla sér að halda atkvæðagreiðslu um að þau verði hluti af Rússlandi um helgina. Fyrrverandi forseti Rússlands segir innlimunina nauðsynlega til þess að hægt sé að beita öllum brögðum til að verja svæðin. 20.9.2022 14:54
Trump skipar Íslandi í flokk þriðja heims ríkja Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, gagnrýnir að Bandaríkjaforseta hafi verið skipað á bekk með þriðja heims leiðtogum við útför Bretadrottningar í gær. Bandarísku forsetahjónin sátu rétt fyrir aftan þau íslensku í kirkjunni. Trump telur að Bandaríkin hafi mátt þola vanvirðu sökum þessa. 20.9.2022 10:36
Foreldrar Madeleine McCann töpuðu hjá Mannréttindadómstólnum Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að foreldrar Madeleine McCann hafi fengið réttláta málsmeðferð í meiðyrðamáli sem þeir höfðuðu gegn lögreglumanni í Portúgal. 20.9.2022 09:21
Geimmiðstöð skemmdist þegar Nanmadol gekk yfir Japan Tveir eru látnir og yfir hundrað slasaðir eftir að hitabeltislægðin Nanmadol gekk yfir Japan. Samgöngur eru í lamasessi og víða er rafmagnslaust eftir óveðrið. Þá urðu skemmdir á eldflaugaverksmiðju japönsku geimstofnunarinnar JAXA. 20.9.2022 08:50
Lögreglubíll varð fyrir lest með handtekna konu í aftursætinu Kona sem lögregluþjónar í Colorado í Bandaríkjunum handtóku á föstudaginn slasaðist þegar lögreglubíll sem hún var í varð fyrir lest. Hún var ein í bílnum en lögregluþjónarnir höfðu lagt honum á lestarteinum, án þess að taka eftir því. 20.9.2022 08:00
Andlát Amini „óheppilegt atvik“ Lögreglan í Íran segir að dauði 22 ára konu sem lést í haldi lögreglu sé „óheppilegt atvik“. Lögreglan neitar að hafa beitt hana ofbeldi er hún var í haldi og segist hafa gert allt sem hægt var til að bjarga lífi hennar. 20.9.2022 07:56
Herinn í Mjanmar skaut sex skólabörn til bana Sex börn eru látin og sautján slösuð eftir að þyrla mjanmarska hersins skaut á skóla á Sagaing-svæðinu á föstudaginn. Herinn heldur því fram að uppreisnarmenn hafi notað skólann til að ráðast á hermenn. 20.9.2022 07:07