Fleiri fréttir

Vísar ásökunum Frakka á bug

Yfirmaður leyniþjónustumála í Bandaríkjunum James Clapper, segir að ásakanir um að Bandaríkjamenn hafi hlerað sjötíu milljón símtöl í Frakklandi á einum mánuði séu rangar. Það var franska stórblaðið Le Monde sem sagði frá málinu í byrjun vikunnar og byggir á gögnum Edward Snowdens, uppljóstrarans sem nú er í Rússlandi.

Berklasmitum fer fjölgandi í Danmörku

Berklasmitum fer fjölgandi meðal útigangsmanna í Kaupmannahöfn. Sjúkdómurinn er mun útbreiddari í Danmörku en hjá sama hópi í nágrannalöndunum.

Samdi lag til að berjast gegn glæpum

Breski lögreglumaðurinn Giles Dean fer heldur óhefðbundna leið til að berjast gegn glæpum. Hann samdi lag á banjó-ið sitt. Lagið heitir Þegar ég brýst inn í hús (e. When I'm Burgling Houses) og vill hann hvetja fólk til að tryggi öryggi húsa sinna og bíla.

Telja að Maria litla gæti verið dóttir þeirra

Bandarískt hjón hafa sagt frá því að þau hafa haft samband við lögregluyfirvöld í Grikklandi þar sem þau telja að Maria litla, sem var tekin af rómafólki um helgina, gæti verið dóttir þeirra.

Fallhlífarstökkvari í kröppum dansi

Myndband náðist af því þegar fallhlífarstökkvari lenti í kröppum dansi í mikilli hæð yfir Bretlandi. James Dobb var við það að stökkva úr þyrlu þegar fallhlíf hans opnaðist of snemma og flæktist í þyrlunni.

Fjöldaslagsmál í réttarsal

Dómsmáli gegn þrettán meðlimum glæpagengis var frestað í Glostrup í morgun eftir að hópslagsmál brutust þar út.

Facebook afléttir banni á myndskeiðum sem sýna morð

Samskiptasíðan Facebook hefur ákveðið að aflétta banni sem sett var á myndbönd sem sýna þegar fólk er myrt á hrottalegan hátt, til að mynda hálshöggvið. Facebook ákvað í maí að banna alfarið slík myndbönd eftir að fjölmargar kvartanir bárust en nú segja forsvarsmenn síðunnar að notendur eigi að geta horft á slíkar aðfarir, til þess að hægt sé að fordæma þær.

Reyna að fá uppreisnarmenn til að mæta til friðarviðræðna

Utanríkisráðherrar vesturveldanna og nokkurra arabaríkja hitta forsvarsmenn Sýrlenskra uppreisnarmanna á fundi í London í dag til þess að reyna að sannfæra þá um að mæta til friðarviðræðna sem halda átti í Sviss í næsta mánuði.

Kennarinn reyndi að tala drenginn til

Kennari í grunnskóla í Nevada í Bandaríkjunum var skotinn til bana í gær þegar nemandi hóf þar skothríð fyrirvaralaust. Tveir nemendur eru í lífshættu eftir að hafa orðið fyrir skoti. Nemandinn virðist hafa komist yfir byssuna hjá foreldrum sínum og áður en yfir lauk beindi hann henni að sjálfum sér og framdi sjálfsmorð.

Sprengdi sig í loft upp í strætisvagni

Sex létust og um þrjátíu liggja sárir eftir að kona sprengdi sig í loft upp um borð í strætisvagni í suðurhluta Rússlands í gærkvöldi.

Myndband vekur upp reiði netverja

„Það þarf að slá svona vitleysinga utan undir," segir einn af fjölmörgum notendum samskiptasíðunnar Twitter um myndband þar sem tveir unglingar sjást hrinda skemmtikrafti í miðborg Birmingham á Englandi.

Skotárás í grunnskóla

Starfsmaður í grunnskóla í Nevada í Bandaríkjunum var skotinn til bana í dag þegar nemandi hóf þar skothríð fyrirvaralaust. Tveir nemendur eru í lífshættu eftir að hafa orðið fyrir skoti.

Seldu Maríu mögulega í barnavændi

Lögmaður sígaunaparsins, sem grunað er um að hafa rænt stelpunni Maríu, segir skjólstæðinga sína halda því fram að þau hafi ekki rænt Maríu, heldur ættleiddu þau barnið á hátt sem var ekki löglegur, því líffræðileg móðir hennar hafi ekki getað séð um Maríu.

Fimm látnir í sprengingu í Rússlandi

Að minnsta kosti fimm manns féllu og og meira en tólf manns særðurst þegar sprengja sprakk í Volgograd í suður-Rússlandi. Talið er að um sprengjuárás sé að ræða.

Draga grænmetisát Neanderdalsmanna í efa

Ekki er víst að Neanderdalsmenn hafi lifað jafn heilsusamlegu lífi og vísindamenn hafa gert skóna, og ástæða til að efast um að þeir hafi borðað grænmeti að nokkru ráði segja vísindamenn við breska náttúruvísindasafnið í London.

Parið ákært fyrir mannrán

Par úr hópi Rómafólks í Grikklandi verður ákært fyrir mannrán í máli hinnar fjögurra ára gömlu Maríu sem vakið hefur athygli víða um heim.

Hafís á Suðurskautinu í hámarki

Meðan hafísinn á Norðurskautinu bráðnar þá hefur hafísinn umhverfis Suðurskautslandið ekki mælst meiri frá upphafi mælinga.

Komu fram við Mariu litlu eins og "dansandi björn“

Fyrir þremur vikum síðan var tekið myndband af Mari litlu, þar sem hún sést dansa ásamt fullorðnu fólki. Stúlkan sem talið er að sé um fjögurra ára þykir ekki sýnast hamingjusöm þar sem hún stígur dansinn.

Utanríkisráðherra Frakka segir njósnir NSA "óásættanlegar"

Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands, hefur kallað bandaríska sendiherrann í Frakklandi til fundar vegna meintra njósna. Frétt í Le Monde í morgun leiðir í ljós að bandaríska Þjóðaröryggisstofnunin, NSA, safnaði saman gögnum um fleiri en 70 milljónir símtala í Frakklandi á mánaðar tímabili um og eftir síðustu áramót.

Vænta má harðari stefnu

Carl I. Hagen, fyrrverandi formaður Framfaraflokksins í Noregi, segir stjórnmálamenn flokksins með innflytjendabakgrunn munu taka harðar á málefnum hælisleitenda en nú er gert.

Átta ára telpa skotin til bana

Þrír voru myrtir, þar á meðal átta ára gömul telpa, þegar byssumenn á mótorhjólum skutu á hóp brúðkaupsgesta fyrir utan kirkju í Kaíró í gærkvöldi. Að minnsta kosti tíu liggja sárir eftir en ekki er ljóst hverjir stóðu að ódæðinu.

Svakaleg mengun í Kína

Svo mikil mengun er nú á stórum svæðum í Kína að í morgun þurfti að aflýsa um fjörutíu flugferðum frá flugvellinum í borginni Harbin, sem er nyrst í landinu. Mengunin er alla jafna verst yfir vetrartímann, þegar kuldi og stillur eru ríkjandi.

Eldar kvikna enn í Ástralíu

Óttast er að nokkrir kjarr- og skógareldar sem nú loga í Nýja Suður Wales fylki í Ástralíu séu við það að renna saman í einn risastóran eld. Fjöldi slökkviliðsmanna hefur síðastliðna daga barist við eldana en veðurspár gera nú ráð fyrir enn meiri hita og þurrki sem lofar ekki góðu fyrir slökkvistarfið.

Hauskúpa kollvarpar kenningum

Kenningar um fjölda tegunda fornmanna standa völtum fótum eftir að heilleg hauskúpa sem fannst í Georgíu sýndi fram á mikinn mun á mönnum sömu tegundar. Áfall fyrir suma fræðimenn, segir mannfræðingur. Stendur ekki undir svona stórum fullyrðingum, segir annar.

Rasmussen í vandræðum vegna hás ferðakostnaðar

Lars Lökke Rasmussen, fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, er í miklum fjölmiðlastormi í heimalandinu eftir að gríðarlegur ferðakostnaður af ferðalögum hans fyrir umhverfissamtök var gerður opinber.

410 metra breitt smástirni gæti skollið á Jörðina

Úkraínskir stjörnufræðingar hafa uppgötvað fjögur hundruð og tíu metra breitt smástirni sem gæti skollið á Jörðinni þann tuttugasta og sjötta ágúst árið tvö þúsund þrjátíu og tvö.

Titanic-fiðla fer fyrir metfé

Fiðlan, sú hin sama og leikið var á þegar Titanic sökk, var seld í dag á uppboði og fór fiðlan á rúmar 175 milljónir króna.

450 borgarar hafi fallið í drónaárásum

Samkvæmt skýrsludrögum frá Sameinuðu þjóðunum er talið að um 450 óbreyttir borgarar hafi fallið í árásum sem Bandaríkjamenn hafa gert með ómönnuðum loftförum í baráttu sinni gegn hryðjuverkamönnum.

Sjá næstu 50 fréttir