Fleiri fréttir

Sameinuðu þjóðirnar kalla eftirlitsmennina heim

Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að draga eftirlitsmenn sína í Sýrlandi brott úr landinu. Umboð eftirlitsmannanna rennur út á sunnudaginn og stefnt er að því að síðasti eftirlitsmaðurinn verði farinn úr landinu á föstudaginn næsta.

New York búar vilja draga úr áfengisneyslu

Meirihluti New York-búa vill að borgaryfirvöld hefji aðgerðir til að draga úr áfengisneyslu í borginni. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var í gær.

Crowe mun fá pláss á Menningarnótt

Russell Crowe hafði ekki haft samband við höfuðborgarstofu í Reykjavík til að falast eftir tónleikastað, þegar Vísir spurðist fyrir um það í morgun. Á Twittersíðu sinni segir hann frá því að góðvinur sinn, kanadíski leikarinn og tónlistarmaðurinn Alan Doyle, er nú landinu og segir Crowe að þeir vilji halda stutta tónleika um helgina.

Neyðarfundur og fordæmingar vegna Assange

Samtök Ameríkuríkja boðuðu til neyðarfundar í gær vegna ákvörðunar yfirvalda í Ekvador að veita Julian Assange, stofnanda WikiLeaks, pólitískt hæli.

Sat í fangelsi í 49 ár

Hin sjötíu ára gamla Betty Smithey var leyst úr fangelsi í Arizona í Bandaríkjunum í gær. Síðustu fjörutíu og níu hefur nú setið bak við lás og slá en hún var fundinn sek um að hafa banað fimmtán mánaða gömlu barni árið 1963.

IKEA stefnir á hótelrekstur

Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA stefnir nú á hótelrekstur. Talsmaður fyrirtækisins sagði sænskum fréttamiðlum í gær að markmið IKEA væri að reka rúmlega hundrað hótel í Evrópu.

Dómur yfir Pussy Riot í dag

Dómur verður kveðinn upp yfir meðlimum pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot í dag. Stúlkurnar þrjár eru ákærðar fyrir óspektir og guðlast en þær stóðu fyrir svokallaðri pönkbæn í dómkirkju í Moskvu í febrúar.

Umboð friðargæslu rennur út

Í staðinn fyrir friðargæslu Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í Sýrlandi, sem hættir um helgina, verður opnuð þar skrifstofa til að sjá um samskiptin við stjórnvöld.

Minntust þess að 35 ár eru liðin frá andláti Presley

Priscilla Presley, fyrrverandi eiginkona rokkgoðsins Elvis Presley, og Lisa Marie einkadóttir þeirra vöktu gríðarlega hrifningu þegar þær birtust óvænt í Graceland þar sem þess var minnst í gær að 35 ár eru liðin frá því að Elvis lést.

Assange veitt hæli í Ekvador

Julian Assange, stofnanda upplýsingaveitunnar WikiLeaks, hefur verið veitt hæli í Ekvador. Þetta tilkynnti Ricardo Patino, utanríkisráðherra Ekvador fyrir stuttu.

Ákvörðun ráðamanna í Ekvador væntanleg

Yfirvöld í Bretlandi munu koma í veg fyrir að Julian Assange, stofnandi upplýsingaveitunnar WikiLeaks, fari úr landi þó svo að stjórnvöld í Ekvador veiti honum hæli. Ráðamenn í Ekvador munu tilkynna um ákvörðun sína í dag.

Skotárás á herflugvelli í Pakistan

Íslamskir vígamenn réðust á einn stærsta herflugvöll Pakistans í nótt. Tveir hermenn og sex ódæðismenn létust í átökunum en skotbardaginn stóð yfir í nokkrar klukkustundir.

Tugir fórust í námuslysi

Að minnsta kosti sextíu verkamenn fórust þegar gullnáma í Kongó hrundi. Mennirnir voru á rúmlega hundrað metra dýpi. Slysið átti sér stað í suðurhluta Kongó.

Fönix - Fæðingardeild stjarnanna

Vísindamenn við Tækniháskólann í Massachusetts hafa uppgötvað risavaxna þyrpingu vetrarbrauta þar sem hundruð nýrra stjarna vakna til lífsins á ári hverju.

Bandaríkjamenn óðir í Kalashnikov

Bandaríkjamenn eru nú á meðal stærstu viðskiptavina rússneskra vopnaframleiðenda. Izhevsk vopnaverksmiðjan í Rússland hefur séð betri tíma.

Skip Robert Falcon Scotts fundið við Grænland

Hópur fræðimanna rannsakar nú skipsflak sem fannst undan suðvesturströnd Grænlands fyrir nokkru. Grunur leikur á að flakið sé hið fornfræga SS Terra Nova sem flutti breska landkönnuðinn Robert Scott að Suðurskautinu fyrir rúmri öld síðan.

Risapottur í bandarísku happdrætti

Einn var með allar tölur réttar í bandaríska Powerball happdrættinu í gær. Það var til mikils að vinna enda var potturinn einn sá stærsti í sögu Norður-Ameríku.

Hóta að ráðast inn í sendiráð Ekvador

Yfirvöld í Bretlandi hafa hótað að brjótast inn í sendiráðsbyggingu Ekvador í Lundúnum. Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, hefur búið í sendiráðinu frá því að hann bað um hæli í Ekvador fyrir nokkru.

Dökkt súkkulaði gott við háþrýstingi

Niðurstöður nýlegrar rannsóknar gefa til kynna að dökkt súkkulaði geti verið mikil heilsubót fyrir þá sem þjást af háþrýstingi. Það var hópur ástralska vísindamanna sem stóð fyrir rannsókninni.

Þúsundir vilja fá atvinnuleyfi

Hundruð þúsunda ólöglegra innflytjenda sækja um dvalarleyfi í Bandaríkjunum eftir að reglur voru rýmkaðar nú í vikunni.

Ábyrgðin sögð liggja hjá Sýrlandsstjórn

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna sakar Sýrlandsstjórn um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. Uppreisnarmenn hafa einnig gerst sekir um morð, pyntingar og kynferðisofbeldi, en þó í minna mæli en stjórnarliðar.

Mikil innspýting í brasilíska hagkerfið

Dilma Rousseff, forseti Brasilíu, kynnti í gær áform um umfangsmiklar efnahagslegar örvunaraðgerðir í landinu. Hyggst ríkisstjórn hennar verja jafngildi tæplega 8.000 milljarða íslenskra króna í fjárfestingar í innviðum landsins, svo sem í gatna- og járnbrautarkerfi.

Vaxandi harka í deilu um eyjar

Enn á ný deila Japanar og Suður-Kóreumenn hart um yfirráð nokkurra lítilla eyja í hafinu á milli þeirra. Spenna milli ríkjanna hefur vaxið eftir að Lee Myung-bak, forsætisráðherra Suður-Kóreu, sigldi í síðustu viku til eyjanna, sem nefnast Takeshima á japönsku en Dokdo á kóresku.

Fús til að veita Grikkjum frest

Guido Westerwelle, utanríkisráðherra Þýskalands, segist alveg til í að veita Grikkjum lengri frest til að ná fram ströngum sparnaði í ríkisútgjöldum. Frá þessu er skýrt í þýskum fjölmiðlum á Netinu.

Ströng lög um tóbak staðfest

Hæstiréttur Ástralíu hefur staðfest að ströngustu lög heims um tóbakssölu standist stjórnarskrá landsins.

Svindlaði í Scrabble-móti - faldi auða skífu innanklæða

Ungur þátttakandi í alþjóðlegru Scrabble-móti sem fer nú fram í Bandaríkjunum var vísað úr keppni eftir að dómarar urðu þess varir að hann faldi auða-skífu innanklæða. Á skífunum eru bókstafir og gefa þeir mismikið af stigum en í spilinu eru einnig nokkrar auðar skífur, sem gilda sem allir bókstafir.

Maðurinn sem sá um yfirheyrslur yfir Breivik verið kallaður til

Leitin að hinni sextán ára gömlu Sigrid Scjetne sem hvarf sporlaust í Noregi síðustu viku hefur engan árangur borið. Fjöldi sjálfboðaliða hefur aðstoðað lögreglu við leitina en einn helsti sérfræðingur landsins á sviði réttarsálfræði og yfirheyrslna hefur verið kallaður til.

Bill Gates leitar að framúrstefnulegum klósettum

Klósett sem notar örbylgjur til að breyta kúk í rafmagn, klósett sem breytir hægðum í kol og klósett sem er sólarorkuknúið voru meðal númera á hönnunarsýningu sem Bill og Melinda Gates stóðu fyrir í því skyni að bæta hreinlæti í heiminum.

Segja sýrlensk stjórnvöld bera ábyrgð á blóðbaðinu í Houla

Rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hafa gefið út skýrslu þar sem fram kemur að sýrlensk stjórnvöld beri ábyrgð á blóðbaðinu í Houla fyrr í sumar. Fréttavefur BBC greinir frá því að rannsakendur hafi rætt við yfir 700 manns, meðal annars hermenn sem hafa flúið land og óbreytta borgara.

Sprengjuárás í höfuðborg Sýrlands

Mikil sprenging varð í höfuðborg Sýrlands, Damaskus, í dag. Sprengjuárásin var nærri hóteli sem hefur verið notað að undanförnu af starfsmönnum Sameinuðu Þjóðanna.

Grunaðir um að kaupa þjónustu ólögráða vændiskonu

Frönsku knattspyrnumennirnir Franck Ribery og Karim Benzema hafa verið ákærðir fyrir að kaupa þjónustu vændiskonu sem var undir lögaldri. Mennirnir áttu báðir að leika fyrir franska landsliðið gegn Úrúgvæ í dag. Þeir hafa verið til rannsóknar hjá lögreglunni í tvö ár, en báðir neita þeir ásökununum. Vændiskonan sem þeir voru í viðskiptum við segir að hvorugur þeirra hafi vitað að hún hafi einungis verið sextán ára þegar þeir voru í samskiptum við hana.

„Sænska leiðin“ hefur ekki skilað árangri

Tilraun sænskra stjórnvalda til að stemma stigu við vændi með því að gera kaup á kynlífsþjónustu refsiverð hefur ekki skilað tilætluðum árangri, hvorki í baráttu gegn mansali né gegn útbreiðslu HIV-veirunnar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var á ráðstefnu í Washington í síðasta mánuði.

Ástralska ríkið hafði betur gegn tóbaksframleiðendum

Hæstiréttur í Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að lög sem nýlega voru sett þar í landi um merkingar á tóbakspakkningum standist stjórnarskrá. Samkvæmt nýju lögunum má ekki selja sígarettu öðruvísi en í ólífulituðum pakkningum með viðvörunum um skaðsemi reykinga. Hefðbundnar pakkningar sígarettuframleiðendanna verða bannaðar. Helstu tóbaksframleiðendur í heimi létu reyna á þessi lög fyrir dómstólum en lutu í lægra haldi fyrir ástralska ríkinu. Nýju lögin munu því taka gildi 1. desember næstkomandi.

Auglýsa eftir sjálfsmorðsárásarmönnum á Netinu

Hryðjuverkasamtökin al-Qaeda óska eftir fólki til að gera sjálfsmorðsárás í atvinnuauglýsingu sem birt er á lokuðu svæði á veraldarvefnum. Á vefnum The Times of Israel er fjallað um málið. Þar segir að í auglýsingunni sé óskað eftir andlega þroskuðum múslimum sem geti helgað sig verkefninu, eins og það er orðað. Vefsíðan sem auglýsingin er birt á heitir Sjumuk al-islam og er sagt eitt helsta málgagn Al Qaeda á Netinu.

Verður ekki framseldur

Níræður karlmaður að nafni Charles Zentai vann í gær mál gegn áströlskum stjórnvöldum sem hugðust framselja hann til Ungverjalands. Hann er grunaður um stríðsglæpi með því að hafa starfað fyrir Nasista í Seinni heimsstyrjöld og að hafa pyntað og myrt ungling í Budapest, höfuðborg Ungverjalands árið 1944. Hæstiréttur í Ástralíu komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að það hefðu ekki verið til nein lagaákvæði um stríðsglæpi árið 1944 og því bæri stjórnvöldum ekki að framselja hann. Maðurinn neitar öllum sökum sem bornar eru á hann.

Norðmenn vilja Stoltenberg áfram

Meirihluti almennings í Noregi vill ekki að Jens Stoltenberg, forsætisráðherra landsins, segi af sér embætti, þrátt fyrir að stjórnvöld í landinu hafi beðið mikinn álitshnekki eftir að sannleiksskýrsla um fjöldamorðin í Osló og Útey kom út í fyrradag.

Segir stjórnina í Sýrlandi að falli komna

„Stjórnin er að falli komin, bæði siðferðislega og efnahagslega, fyrir utan þá bresti sem komnir eru í herinn,“ sagði Riad Hijab, fyrrverandi forsætisráðherra Sýrlands, á blaðamannafundi í Jórdaníu í gær.

Fíkniefnaverksmiðja neðanjarðar

Ítalska lögreglan gerði 340 kíló af kannabis upptæk á yfirgefinni neðanjarðarlestarstöð í borginni Róm í dag. Stöðin var byggð á fjórða áratug síðustu aldar af einræðisherranum Mussolini.

Fundu 5 kíló af fíkniefnum við leitina að Sigrid

Þótt leitin að hinni sextán ára gömlu Sigrid Schjetne í Osló hafi ekki skilað tilætluðum árangri, hefur hún ekki verið til einskis. Sigrid hefur verið saknað frá því aðfararnótt sunnudagsins í síðustu viku. Við leit að henni fundust fimm kíló af fíkniefnum sem eru tugmilljónavirði, að því er segir í norska blaðinu VG.

Assange bíður eftir svari

Rafael Correa, forseti Ekvador, ætlar að tilkynna það fljótlega hvort hann muni veita Julian Assange pólitískt hæli. Correa sagði við ríkisfjölmiðla í landinu að það þyrfti að skoða mörg lagaleg álitamál áður en ákvörðun yrði tekin. Assange flúði í sendiráð Ekvadors í Lundúnum þann 19. júní síðastliðinn. Það gerði hann til að forðast það að verða framseldur til Svíþjóðar þar sem hann er eftirlýstur vegna ásakana á hendur honum um kynferðisbrot.

Sjá næstu 50 fréttir