Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vilja banna nýnasistaflokkinn í Þýskalandi Komin er upp hávær krafa í Þýskalandi um að nýnasistaflokkurinn, NPD, verði bannaður með lögum þar í landi. Á vef danska ríkisútvarpsins segir að fjórir ríkisstjórar í Þýskalandi hafi að undanförnu farið fram á að flokkurinn verði bannaður og krefjast þess að bæði þýskir ráðherrar og þingmenn láti málið til sín taka. Torsten Albig, ríkisstjóri í Schleswig-Holsten, segir að flokkurinn berjist gegn gildum samfélagsins og við það sé ekki hægt að una. 14.8.2012 06:34
Vopnaþungi uppreisnarinnar meiri Sýrlenskir uppreisnarmenn segjast hafa skotið niður orrustuflugvél stjórnarhersins. Þeir halda flugmanni vélarinnar nú föngnum en sá náði að skjóta sér úr vélinni áður en hún varð eldi að bráð og hrapaði. Sýrlenski stjórnarherinn greindi frá því að flugmaðurinn hefði yfirgefið vélina en segja ástæðuna hafa verið bilun í vélinni. 14.8.2012 03:00
Barist við sex skógarelda á Spáni Tveir slökkviliðsmenn í Alicante á Spáni eru látnir eftir að hafa barist við skógarelda þar. Í gær var barist við sex skógarelda í landinu og hafa margir þurft að yfirgefa heimili sín vegna þessa. 14.8.2012 00:00
Fagna nýju ári með varðeldum Hundruð varðelda loga nú í kínversku borginni Xichang. Yi-þjóðflokkurinn fagnar nú nýju ári og kveður um leið ára og illa anda á brott. 13.8.2012 21:41
Skotárás við háskóla í Texas - þrír látnir Að minnsta kosti þrír eru látnir eftir að maður hóf skothríð í grennd við A&M háskólann í Texas í Bandaríkjunum síðdegis í dag. Einn af þeim látnu er lögregluþjónn samkvæmt New York Times. Mikil hræðsla greip um sig á meðal nemenda á svæðinu þegar maðurinn hóf skothríð við eina af byggingunum. Lögreglumaðurinn sem lést fór inn í hús byssumannsins eftir að tilkynnt var um skothríðina og var hann skotinn eftir að hann fór inn í íbúðina. AP fréttastofan hefur eftir lögreglu að byssumaðurinn hafi verið fluttur á spítala eftir að hafa orðið fyrir skoti en hafi látist af sárum sínum á spítala. 13.8.2012 20:29
Hárprúði borgarstjórinn dansaði við Spice Girls Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna, sló heldur betur í gegn á lokaathöfn Ólympíuleikanna í borginni þegar stúlknahljómsveitin Spice Girls steig óvænt á svið. Á myndskeiði sem birt hefur verið á Youtube.com sést borgarstjórinn dansa við lagið Spice Up Your Life en við hlið hans er David Cameron, forsætisráðherra landsins, ásamt eiginkonu sinni Samönthu. 13.8.2012 19:52
Bretar ánægðir með Ólympíuleikana Nýliðnir Ólympíuleikar í Lundúnum eru bestu Ólympíuleikar sögunnar. Þetta segir að minnsta kosti breska blaðið Daily Telegraph sem hefur skoðað fréttaumfjöllun miðla víða að úr heiminum um leikana. 13.8.2012 16:58
Stökkbreytt fiðrildi frá Fukushima Geislavirkni í kjölfar kjarnorkuslyssins í Fukushima í Japan virðist hafa leitt til stökkbreytinga hjá fiðrildum á svæðinu. Vísindamenn segja að fiðrildi á svæðinu hafi öðruvísi fætur, vængi og fálmara. 13.8.2012 16:41
Útilokar ekki afsögn vegna sannleiksskýrslunnar Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segist miður sín yfir því að björgunaraðgerðir hafi tekið of langan tíma þann 22. júlí í fyrra og að Anders Behring Breivik skyldi ekki hafa verið handtekinn fyrr en raunin varð. Þetta sagði hann á blaðamannafundi eftir að sannleiksskýrsla um atburðina var birt í dag. Hann lofar því að styrkja björgunarlið. 13.8.2012 15:31
Sjálfboðaliðar leita Sigrid í dag Rúm vika er síðan hin sextán ára gamla Sigrid hvarf sporlaust, steinsnar frá heimili sínu í Ósló. Hennar er nú leitað á alþjóðlegum vettvangi en grunur leikur á að hún hafi verið numin á brott þegar hún var á leið heim til sín aðfaranótt sunnudags. 13.8.2012 11:51
Hefði mátt koma í veg fyrir hryðjuverkin Það hefði mátt koma í veg fyrir hryðjuverkin í Noregi þann 22. júlí í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem kynnt var stjórnvöldum þar í landi í dag. Eins og kunnugt er varð fjöldamorðinginn Breivik 77 manns að bana. Skýrslan var birt á Netinu klukkan eitt að norskum tíma eða ellefu að íslenskum tíma. Helsta niðurstaðan er sú að með því að beita öryggisráðstöfunum sem norsk yfirvöld höfðu þegar tileinkað sér hefði verið hægt að koma í veg fyrir hryðjuverkin. 13.8.2012 11:28
Þriðja tegund manns fundin Rannsóknir á steingervingum frá norðurhluta Kenía benda til þess að fundin sé ný ættkvísl manna sem lifðu í Afríku fyrir um tveimur milljónum ára. Uppgötvunin bendir því til þess að þrjár ótengdar tegundir manna hafi lifað á sama tíma, án vitneskju um hverja aðra. 13.8.2012 00:15
Giffords flytur aftur á heimaslóðir Gabrielle Giffords, fyrrverandi þingmaður á bandaríkjaþingi, og eiginmaður hennar flytja aftur til Tucson á næstunni. Giffords hefur búið í Houston í um eitt og hálft ár þar sem hún hefur undirgengist líkams- og talþjálfun. Hún var hætt komin þegar hún var skotin í höfuðið á pólitískri samkomu í byrjun síðasta árs, en Giffords var ein af nítján sem var skotin. Sex manns fórust í árásinni. 13.8.2012 08:48
Simpansi gekk um götur Las Vegas Simpansi, sem ráfaði um götur Las Vegas í síðasta mánuði, eiganda sínum til mikillar armæðu, slap aftur úr búri sínu í gær og á götur borgarinnar. Eigandi simpansans, Timmi De Rosa, sagði í samtali við Associated Press fréttastofuna að einhver óprúttinn aðili hljóti að hafa hleypt honum úr búri sínu. Svo rammgert væri það að hann kæmist ekki þaðan sjálfur. Apinn náðist fljótlega eftir að hann slap úr búri sínu. Hann fær ekki að vera áfram á heimili eiganda sins heldur verður hann sendur í dýragarð í Oregon. 13.8.2012 08:19
Hélt afmælisveislu fyrir helstu stuðningsmenn Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hélt í gær veislu á heimili sínu í Chicago fyrir helstu stuðningsmenn sína til að afla fjár fyrir forsetakosningarnar. Obama, átti afmæli í síðustu viku, og var því um nokkurskonar afmælisveislu að ræða. 75 gestum var boðið í veisluna, en Obama segist hafa þekkt flesta þeirra mjög lengi eða frá því áður en hann eignaðist sín fyrstu jakkaföt. 13.8.2012 08:15
Upplýsingum um Breivik haldið leyndum í 60 ár Stærstur hluti þeirra upplýsinga sem norsk yfirvöld hafa um fjöldamorðingjann Anders Behring Breivik og ástæðurnar að baki morðunum í Ósló og í Útey í fyrra munu ekki birtast almenningi fyrr en eftir sextíu ár. Þetta kemur fram á vef Jyllands Posten í dag. Ný skýrsla um atburðina verður kynnt yfirvöldum í dag og verður haldinn blaðamannafundur í framhaldi af því. Skýrslan lak í fjölmiðla á föstudag, en þar kemur meðal annars fram hörð gagnrýni á viðbrögð lögreglunnar þennan örlagaríka dag. 13.8.2012 08:12
Búist við margmenni á Heathrow Um sex þúsund íþróttamenn munu fara um flugstöð sem var sett upp sérstaklega vegna Ólympíuleikana, eftir því sem fram kemur í fréttum Daily Mail í dag. 13.8.2012 08:02
Verður ákærður fyrir að reyna að myrða dætur sínar Karlmaður sem stakk fjögurra ára gamlar tvíburadætur sínar á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn í gær verður ákærður fyrir tvöfalda morðtilraun. Báðar telpurnar særðust alvarlega í árásinni og var á tímabili talið að minnsta kosti önnur þeirra væri í lífshættu. Þær eru núna í öndunarvél en ástand þeirra er stöðugt. Telpurnar höfðu verið með foreldrum sínum á spítalanum um skeið, en önnur þeirra hafði átt við langvarandi veikindi að stríða. Faðirinn hefur ekki verið yfirheyrður og því er ekki vitað hvað honum gekk til með árásinni. 13.8.2012 07:22
Harry mætti með mágkonunni Ólympíuleikunum lauk í Lundúnum í gær með glæsilegri lokaathöfn. Þar komu fram margar af skærustu stjörnum heimsins, eins og The Who, Pet Shop Boys, Muse, Take That, og fleiri. Um áttatíu þúsund manns voru viðstaddir athöfnina. Harry Bretaprins var þar, sem fulltrúi bresku konungsfjölskyldunnar, en hann mætti með Kate Middleton, mágkonu sína upp á arminn. Vilhjálmur bróðir hans og eiginmaður Kate var hins vegar fjarri góðu gamni og sömu sögu er að segja af drottningunni Elísabetu, ömmu þeirra. 13.8.2012 07:02
Rúmlega 40 ára aldursmunur á parinu Auðjöfurinn og fjárfestirinn George Soros fagnaði áttatíu og tveggja ára afmæli um helgina með því að bjóða nánustu vinum og ættingjum til veislu. Í veislunni tilkynntu hann og unnusta hans að þau hyggjast gifta sig. Unnustan heitir Tamiko Bolton, en hún er fjörutíu og tveimur árum yngri en hann. Soros og Bolton hafa verið par frá árinu 2008. Þetta er þriðja hjónaband Soros og annað hjónaband Bolton. 13.8.2012 06:51
Cameron ræðir fæðuskort með íþróttamönnum David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, mun funda með stjórnmálamönnum frá Brasilíu, Keníu og Indlandi ásamt nokkrum þekktum íþróttamönnum. 12.8.2012 16:36
Fimmtíu þúsund flóttamenn í Tyrklandi Tugþúsundir Sýrlendinga hafa flúið yfir landamærin til Tyrklands og annarra nágrannaríkja frá því stjórnarbylting hófst í Sýrlandi á síðasta ári. Yfirvöld í Tyrklandi áætla að rúmlega fimmtíu þúsund flóttamenn séu nú í landinu. 12.8.2012 12:38
Skiptar skoðanir um Ryan Skiptar skoðanir eru um þá ákvörðun repúblikanans Mitt Romney að tilnefna hinn 42 ára gamla fulltrúardeildarþingmann Paul Ryan sem varaforsetaefni sitt, en Ryan, sem hefur setið 14 ár í fulltrúadeildinni hefur allan sinn feril einbeitt sér að einu máli, fjárlögum bandaríska ríkisins. 12.8.2012 12:00
Arababandalagið frestar fundi Fulltrúar Arababandalagið hafa frestað fundi sínum í Sádí-Arabíu þar sem ræða átti málefni Sýrlands. 12.8.2012 11:30
Barn steig á jarðsprengju Sex ára drengur lét lífið í Bosníu í gær eftir að hafa stigið á jarðsprengju í skógi sem eru um 30 kílómetra norður frá höfuðborg landsins Sarajevó. 12.8.2012 11:00
Íranir hraða smíði kjarnavopns Stjórnvöld í Íran hafa látið hraða vinnu við smíði kjarnaodds, að því er ísraelska dagblaðið Haaretz greindi frá um helgina. Blaðið byggir frétt sína á heimildarmönnum innan úr stjórnkerfi Ísrael og gögnum frá bandarísku leyniþjónustunni. 12.8.2012 10:30
Á þriðja hundrað látnir í Íran Áætlað er að um 250 liggi í valnum eftir tvo snarpa jarðskjálfta sem riðu yfir norðvesturhluta Íran í gær. Yfirvöld telja að um tvö þúsund hafi slasast og að eignatjón sé stórfellt. 12.8.2012 09:12
Hátt í fimm þúsund yfirgefa heimili sín á Kanaríeyjum 4700 íbúar á Kanaríeyjum hafa þurft að yfirgefa heimili sín eftir að skógareldar kviknuðu á Kanaríeyjum fyrir um viku síðan. 12.8.2012 11:30
Lést í Iron Man-keppninni Keppandi í Ironman-keppninni í New York lést í gær eftir að hafa átt í erfiðleikum þegar hann þreytti sund hluta keppninnar í Hudson ánni milli New York-borgar og New Jersey, að því er fréttaveitan Reuters greinir frá. 12.8.2012 11:15
Fundu drukkinn Norðmann við gegnumlýsingu Flugmálayfirvöld á Ítalíu sæta nú gagnrýni eftir að norskur ferðamaður sofnaði á farangursfæribandi Fiumicino flughafnarinnar í Róm. 11.8.2012 15:38
Ólympíuleikunum lýkur með stærsta teiti allra tíma Lokaathöfn Ólympíuleikanna fer fram á morgun. Líkt og með setningarathöfn leikanna hvílir mikil leynd yfir dagskránni á morgun. Stephen Daldry, leikstjóri lokaathafnarinnar, lofar ótrúlegri sýningu og besta teiti fyrr og síðar, eins og hann orðaði það. 11.8.2012 14:15
Breti vann 28 milljarða króna Heppinn Breti vann 148 milljónir punda í Euromillions happdrættinu í gær. Vinningsupphæðin nemur tæpum 28 milljörðum íslenskra króna. 11.8.2012 13:55
Mansal eykst í Noregi Fullyrt er að vændi í Noregi sé bæði orðið skipulagðara og alvarlegra eftir að lög sem banna kaup á vændi tóku í gildi árið 2009. Sambærileg lög eru í gildi á Íslandi en þau eru að sænskri fyrirmynd. 11.8.2012 12:45
Sex féllu í Afganistan Þrír bandarískir hermenn voru í gærkvöldi skotnir til bana af afgönskum verkamanni í herstöð í Gamsir-héraði í suðurhluta landsins. 11.8.2012 10:30
Clinton ræðir framtíð Sýrlands Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er stödd í Tyrklandi til að ræða við þarlend stjórnvöld um harðnandi átök í Sýrlandi og vaxandi straum flóttamanna. 11.8.2012 10:30
Mitt Romney velur Paul Ryan sem varaforsetaefni Mitt Romney, forsetaefni repúblikanaflokksins, hyggst tilnefna fulltrúardeildarþingmanninn Paul Ryan frá Wisconsin sem varaforsetaefni sitt í dag, að því er Reuters greinir frá. 11.8.2012 09:59
Harmleikur í Indlandi Hátt í fjörutíu fórust í rútuslysi í norður Indlandi í nótt. Atvikið átti sér stað á fjallvegi í Himachal Pradash-héraðinu. 11.8.2012 09:49
Harður jarðskjálfti í Íran Snarpur jarðskjálfti reið yfir norðvesturhluta Íran í dag. Skjálftinn var að stærðinni 6.2 en upptök hans voru í 60 kílómetra fjarlægð frá borginni Tabriz. 11.8.2012 15:16
60 látnir eftir flóð í Maníla Talið er að sextíu manns hið minnsta hafi týnt lífinu í flóðunum í Maníla, höfuðborg Filippseyja, í vikunni. Öllum þeim rúmlega 360 þúsund manns sem höfðu leitað í neyðarskýli var leyft að snúa til síns heima í gær. 11.8.2012 06:00
Missti aðgang að Facebook-síðu Schjetne Lögreglan í Noregi komst inn á Facebook-aðgang Sigrid Giskegjerde Schjetne, sem hefur verið saknað síðan á aðfaranótt sunnudagsins. 11.8.2012 04:15
Röng dánarorsök oft gefin Læknar á Bretlandi gefa ófullnægjandi upplýsingar um dánarorsök í fjórðungi tilfella. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem gerð var innan breska heilbrigðiskerfisins. Þar kemur einnig fram að í tíu prósentum tilfella sé röng dánarorsök skráð. Guardian segir frá þessu. 11.8.2012 04:00
Óvinur Gaddafi kjörinn forseti Hið nýstofnaða líbíska þing kaus bráðabirgðaforseta landsins í gærmorgun. Nýr forseti heitir Mohammed el-Megarif en hann var leiðtogi stærsta og rótgrónasta stjórnarandstöðuflokksins í Líbíu á meðan Moammar Gaddafi var enn einræðisherra í Líbíu. El-Megarif hefur verið í útlegð í Bandaríkjunum síðan á níunda áratugnum. Hann mun sitja þar til ný stjórnarskrá hefur verið samþykkt á næsta ári. 11.8.2012 04:00
Vildi sprengja ráðhús í Esbjerg Ungur Dani hefur nú setið í gæsluvarðhaldi í níu mánuði eftir að hafa skipulagt að sprengja upp ráðhúsið í Esbjerg. 11.8.2012 03:00
Þrír létust við brotlendingu Þrír létust þegar flugvél af gerðinni Cessna 172 brotlenti í fjallshlíð við Søvatnet í Noregi. 11.8.2012 02:30
Vopnabirgðir uppreisnarmanna þverra Sýrlenskir uppreisnarmenn eiga við vanda að etja því skotfæri þeirra eru nú af skornum skammti. Stjórnarher Bashars al-Assad gerir enn þungar árásir á virkisborgina Aleppo í norðurhluta landsins. 11.8.2012 02:00