„Sænska leiðin“ hefur ekki skilað árangri 15. ágúst 2012 10:30 Í skýrslu SÞ er mælst til þess að lagarammi vegna sölu á kynlífi verði endurskoðaður þar sem núverandi lög skili ekki árangri. NordicPhotos/AFP
Tilraun sænskra stjórnvalda til að stemma stigu við vændi með því að gera kaup á kynlífsþjónustu refsiverð hefur ekki skilað tilætluðum árangri, hvorki í baráttu gegn mansali né gegn útbreiðslu HIV-veirunnar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna sem kynnt var á ráðstefnu í Washington í síðasta mánuði. Skýrslan ber yfirskriftina HIV og löggjöf – Áhættur, réttindi og heilsa, er unnin af sérstakri nefnd sem Fernando Cardoso, fyrrum forseti Brasilíu, fer fyrir. Takmarkið var að bregða upp raunhæfri mynd af ástandi mála og koma með tillögur í baráttu alþjóðasamfélagsins gegn HIV. Þar segir í einum kafla að með strangri löggjöf þar sem kaup og sala vændis sé refsiverð sé staða þess sem selur kynlífsþjónustu oft afar slæm. Fólk í þeirri stöðu geti ekki snúið sér til lögreglu og er jafnvel ofsótt af lögreglu, sem verður til þess að kynlífsiðnaðurinn verði enn frekar dulinn. Í umfjöllun um „sænsku leiðina“, sem er í gildi hér á landi og víðar, segir að slíkt fyrirkomulag hafi engu skilað, þar sem tíðni vændis hefur ekki minnkað og ofbeldi og mansal milli landa hafi aukist. Á móti hafi sárafáir hlotið dóma fyrir kaup á vændi. Mælast höfundar skýrslunnar til þess að lög sem banni vændi verði afnumin. Í stað þeirra verði gerður greinarmunur á þeim sem þvinga fólk út í vændi og hins vegar þeim sem selja vændi af frjálsum vilja. Löggæsla skuli leggja áherslu á að uppræta fyrri hópinn, en aðstæður hinna síðarnefndu verði bættar með aukinni heilsugæslu og félagslegri þjónustu. - þj
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Sjá meira