Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
ETA sprengir á Spáni Sprengja sprakk í bænum Laredo á Norður-Spáni í morgun. Fjölmiðlar þar í landi segja að ETA, aðskilnaðarsamtök Baska séu á bakvið tilræðið. 20.7.2008 11:13
Þýsku ferðamennirnir heilir á húfi Þremur þýskum ferðamönnum sem rænt var í Tyrklandi í byrjun mánaðarins hefur verið bjargað. 20.7.2008 10:38
Næst stærsta skemmtiferðaskip heims tilbúið Næst stærsta skemmtiferðaskip heims liggur við höfn í Zeebrugge í Belgíu tilbúið í ævintýraferðir um höfin blá. Skipið tekur tvö þúsund farþega. 19.7.2008 22:00
Obama ætlar að fjölga bandarískum hermönnum um í Afganistan um tíu þúsund Barack Obama forsetaframbjóðandi Demókrata ætlar að fjölga bandarískum hermönnum um í Afganistan um tíu þúsund ef hann nær kjöri í haust. Obama hóf ferð sína um Mið-Austurlönd með heimsókn til Afganistans í dag. 19.7.2008 21:00
Óskýr svör Írana Stjórnvöld í Íran gáfu óskýr svör um framhald kjarnorkuáætlunar sinnar á fundi í Genf í dag. Þrýst er á Írana að hætta auðgun úrans en Íranar segja það ekki koma til greina. 19.7.2008 20:00
Brandenburgardeila Obama leyst Bandaríski forsetaframbjóðandinn Barack Obama flytur ræðu við Sigursúluna þegar hann kemur til Berlín í næstu viku, ekki við Brandenburgarhliðið. 19.7.2008 17:45
Tímamótafundur í Genf Tímamótafundur verður um kjarnorkuáætlun Írans í Genf í dag. Bjartsýni hefur ríkt fyrir fundinn og svo virðist sem stjórnvöld í Bandríkjunum hafi slakað á þeim kröfum sem þau hafa sett fram varðandi kjarnorkuáætlunina. 19.7.2008 13:02
Brown í Írak Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, kom óvænt til Írak í morgun og ræddi við Nuri al-Maliki forsætisráðherra um stöðu mála í landinu. 19.7.2008 11:47
Sprengjuefni stolið í Frakklandi Franskir sérsveitarmenn leita nú að 28 kílóum af sprengiefnum sem hurfu úr öryggisgeymslu við Corbas, nærri borginni Lyon. Breska Ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir frönsku lögreglunni að um sé að ræða Semtex, öflugt plastsprengiefni, sem erfitt er að greina. 18.7.2008 22:17
Hægt að grennast með hugsuninni einni saman Samkvæmt nýjustu rannsóknum gæti hugi manns skipt grundvallarmáli í megrun. Þannig gæti verið mögulegt að „hugsa" sig grannan með því að einbeita sér að nýlegri máltíð frekar en hlaupa út í búð eftir súkkulaðistykki. 18.7.2008 16:50
Sjóræningjar hindra mataraðstoð til Sómalíu Matvælaaðstoð Sameinuðu Þjóðanna (WFP) hefur lýst því yfir að matvælasendingar til Sómalíu sé við það að stoppa. Er það vegna þess hve fáir eru tilbúnir til þess að fylgja skipum sem sigla með matarsendingar til Sómalíu en mikið er um sjóræningjaárásir út fyrir Sómalíu. Hét WFP á ríkisstjórnir heimsins að leggja til skipt til fylgdar þeim sem færðu íbúum Sómalíu matar. 18.7.2008 15:56
Bannað að mismuna aðstandendum fatlaðra Evrópudómstóllinn hefur kveðið upp þann úrskurð að samkvæmt vinnulöggjöf Evrópusambandsins er vinnuveitindum bannað að mismuna foreldrum fatlaðra. 18.7.2008 15:44
Konungur Belgíu samþykkir ekki afsögn forsætisráðherra Albert II, konungur Belgíu, samþykkir ekki af afsögn Yves Leterme, forsætisráðherra Belgíu, frá því á mánudaginn. Albert kallar eftir sátt á milli andstæðra fylkinga og heitir á Leterme að beita sér ennfrekar að sameiginlegu samkomulagi. 18.7.2008 13:08
Súdan samþykkir tengsl að nýju við Chad Forseti Súdan, Omar Hassan al-Bashir hefur samþykkt að taka aftur upp stjornmálatengsl við Chad. Skorið var á þau tengsl í maí þegar uppreisnaseggir frá Chad réðust á Khartorum höfuðborg Súdan. 18.7.2008 12:39
Bílstjóri bin Laden fyrir dómstóla í Guantanamo Meintur bílstjóri og samverkamaður Osama bin Laden, Salim Hamdan að nafni, verður leiddur fyrir bandarískan herdómstól í Guantanamo fangabúðunum á Kúbu eftir helgi. Dómsmálið er það fyrsta í sögu bandarísks herdómstóls síðan í seinni heimstyrjöldinni. 18.7.2008 12:20
Íranar bjartsýnir á viðræður um kjarnorkumál Utanríkisráðherra Íran, Manouchehr Mottaki sagðist í dag vera bjartsýnn á viðræður sem hefjast á morgun í Sviss um kjarorkuáætlun Írana og taldi hann þær gefa vísbendingar góða þróun þeirra mála framundan. 18.7.2008 11:02
Máli Madeleine lokað á mánudag Kate og Gerry McCann verða hreinsuðu af öllum grunsemdum á hvarfi dóttur þeirra á mánudag. Þau fengu stöðu grunaðra í málinu fljótlega eftir að rannsókn hófst, stúlkan hefur ekki enn fundist. Hjónin verða formlega hreinsuðu af öllum grunsemdum og mun koma yfirlýsing um að ekki sé hægt að tengja þau við hvarfið á mánudag. 18.7.2008 09:55
Sviku fé út úr bönkum til að senda bíla úr landi Tveir menn á fimmtugsaldri hafa verið ákærðir fyrir að svíkja töluverðar fjárupphæðir út úr fjórum bönkum í borginni Des Plaines í Illinois-ríki í Bandaríkjunum 18.7.2008 08:08
Grunaður um að hafa myrt fyrrum unnustu Lögregla í Vestur-Gautlandi í Svíþjóð rannsakar nú hugsanlegt morðmál eftir að 26 ára gömul kona fannst látin í íbúð fyrrverandi unnusta síns. 18.7.2008 08:03
Gaddafi yngri og frú handtekin á hóteli í Genf Hannibal Gaddafi, yngsti sonur Líbýuleiðtogans Muammar Gaddafi, og eiginkona hans, sem er á barmi þess að fæða barn þeirra hjóna, voru handtekin á þriðjudag eftir meintar barsmíðar sem áttu sér stað á lúxussvítu hótels í Genf í Sviss. 18.7.2008 07:54
Lestarsprengjumenn sýknaðir á Spáni Hæstiréttur Spánar hefur sýknað fjóra sakborninga sem undirréttur fann seka um að hafa átt þátt í neðanjarðarlestarsprengjutilræðunum í Madrid árið 2004 þar sem 191 lét lífið. 18.7.2008 07:25
Ekkert klám á dönskum lögreglustöðvum Landssamband lögreglumanna í Danmörku hefur nú tekið með öllu fyrir það að myndir og dagatöl með léttklæddum eða nöktum konum prýði veggi danskra lögreglustöðva. 18.7.2008 07:16
Miklu stolið úr rússneskum söfnum Rannsókn yfirvalda í Rússlandi hefur leitt í ljós að tæplega 50.000 gripir eru horfnir úr almenningssöfnum þar í landi. Hlutirnir sem umræðir hafa horfið hvort heldur úr listasöfnum eða söfnum sem geyma sögulega gripi. 17.7.2008 22:45
Veik staða Olmerts Lögfræðingar Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, reyndu í dag að gera framburð lykilvitnis í meintu spillingarmáli ótrúverðugan. Olmert er ásakaður um að hafa þegið fleiri hundruð þúsund dollara til að standa undir lúxus lífsstíl á meðan hann var borgarstjóri í Jerúsalem á árunum 1993-2003. 17.7.2008 20:00
Rússar minnast aftöku keisarafjölskyldunnar Tugþúsundir Rússa minnast þess í dag að 90 ár eru liðin frá aftöku síðustu rússnesku keisarafjölskyldunnar. Pílagrímar víðsvegar að úr Rússlandi eru komnir til borgarinnar Yekaterinburg í Úralfjöllum þar sem Nikulás annar og fjölskylda hans var tekin af lífi í upphafi stjórnar Bolsévikka. 17.7.2008 20:15
Spenna á landamærum Thailands og Kambódíu Vaxandi spenna er á landamærum Thailands og Kambódíu og standa hermenn beggja ríkjanna nú gráir fyrir járnum sitt hvoru megin við landamærin. Deilan snýst um hvort ríkið eigi tilkall til forns búddahofs sem stendur þar í rjóðri. 17.7.2008 21:15
Ólíkir tvíburar Þeir eru tvíburar - og þeir eru af sitt hvorum kynþættinum - rétt eins og foreldrarnir. Starfsfólk sjúkrahúss í Berlín rak upp stór augu þegar kona nokkur ól þar tvö börn - annað hvítt og hitt svart. 17.7.2008 19:30
Leiðtogi í Malasíu laus úr haldi Anwar Ibrahim, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Malasíu, var látinn laus í morgun eftir átta tíma yfirheyrslur löreglu. Hann er sakaður um ónáttúrulegt athæfi, en það er lagamál um samkynhneigð í múslimaríkinu Malasíu. 17.7.2008 18:45
Pútín enn með völd í utanríkismálum Forseti Rússlands, Dmitry Medvedev hefur látið forsætisráðherra landsins, Vladimir Pútín í hendur völd í utanríkismálum landsins. Er þetta í fyrsta sinn í sögu Rússlands sem forsætisráðherra landsins getur tekið þátt í að móta utanríkisstefnu Rússlands. 17.7.2008 16:32
Skattahækkunum á landbúnarvörum í Argentínu hafnað Öldungardeildaþing Argentínu hefur hafnað skattahækkunum á landbúnaðarvörum sem ætlaðar eru til útflutnings. Mikil framleiðsla er í Argentínu á landbúnaðarvörum og fær gott verð á heimsmörkuðum. Þær tekjur sem ríkið hefði getað fengið við að hækka skattana átti að fara í að byggja upp landið og berjast gegn fátækt í Argentínu. 17.7.2008 14:27
Nelson Mandela níræður á morgun Hinn heimsþekkti Suður-Afríkumaður Nelson Mandela verður níræður á morgun. Mandela er þekktur fyrir að hafa barist gegn aðskilnaðarstefnu hvítra og svartra í Suður-Afríku og eytt 27 árum í fangelsi vegna þeirrar baráttu sinnar. 17.7.2008 12:53
Obama gengur vel að safna í kosningasjóðinn Frambjóðandi Demókrataflokksins til bandarísku forsetakosninganna, Barack Obama, safnaði alls 52 milljónum dala, sem jafngildir um fjórum milljörðum íslenskra króna, í kosningasjóð sinn í júní. Það er vel rúmlega tvöfalt meira en forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, John McCain, safnaði í sinn sjóð en McCain krækti sér „aðeins“ í 22 milljónir dala en hefur þó aldrei safnað eins miklum pening í einum mánuði. 17.7.2008 12:49
NATO í tilvistarkreppu - Ræður ímyndarsérfræðing frá Coke Stjórnarherrar Atlantshafsbandalagsins (NATO) hafa ákveðið að ráðast í markaðsherferð til þess að styrkja ímynd bandalagsins. Bandalagið virðist svo sannarlega í einhvers konar tilvistarkreppu því til að hjálpa sér hefur það fengið til liðs við sig einn aðalímyndarsérfræðing Coca-Cola fyrirtækisins. 17.7.2008 12:02
Páfinn gagnrýnir harkalega neyslumenningu Benedikt XVI páfi gagnrýndi harkalega neysluhyggju og dægurmenningu í ræðu yfir mörgum tugum þúsunda ungra kaþólikka í Sydney í dag. Páfinn varaði einnig við ofnotkun á náttúruauðlindum heimsins og boðaði verndun þeirra fyrir komandi kynslóðir. 17.7.2008 10:48
Hinar áttfættu sennilega ekki fleiri en í meðalári „Þessi spurning er borin upp á hverju einasta ári,“ sagði Þóra Hrafnsdóttir, líffræðingur hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs, innt eftir því hvort eitthvað væri hæft í því að óvenjumikið væri um kóngulær á landinu í ár. 17.7.2008 09:56
Leigðu sér togara til að komast á fótboltaleik Tólf manna hópur aðdáenda enska fótboltaliðsins Manchester City greip til þess ráðs að leigja sér togara til að komast á leik liðsins gegn færeyska liðinu Streymur í Þórshöfn í dag. 17.7.2008 07:43
Ronnie Wood kominn í meðferð Ronnie Wood gítarleikari hljómsveitarinnar Rolling Stone er kominn í meðferð gegn áfengissýki. 17.7.2008 07:37
Suður Afríka íhugar að lögleiða vændi fyrir HM í fótbolta Fyrirætlanir stjórnvalda í Suður-Afríku um að lögleiða vændi fyrir heimsmeistarakeppnina í fótbolta þar í landi árið 2010 mæta mikilli mótstöðu innan stjórnarandstöðunnar í landinu sem og ýmissa trúfélaga. 17.7.2008 07:28
Írar æfir út í Sarkozy Frakklandsforseta Írskir stjórnmálamenn eru æfareiðir eftir að Nicolas Sarkozy forseti Frakklands lagði til að írska þjóðin ætti að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um Lissabon sáttmálann. 17.7.2008 07:24
Veikum meðlim Mansonfjölskyldunnar neitað um náðun Susan Atkins sem tilheyrði Mansonfjölskyldunni illræmdu var neitað um náðun í gær þriðjudag. Hin 60 ára Atkins er alvarlega veik og hefur verið greind með heilaæxli. Áður hafði henni verið neitað um reynslulausn 11 sinnum. 16.7.2008 23:15
Kaþólikkar djamma í Sydney Hátt í 200.000 kaþólsk ungmenni hvaðanæva úr heiminum eru þessa dagana samankomin í Sydney Ástralíu á hátíð sem hefur verið kölluð ,,Woodstock" kaþólsku kirkjunnar. 16.7.2008 21:15
Enska biskupakirkjan logar í illdeilum Enska biskupakirkjan logar í illdeilum vegna afstöðunnar til samkynheigðra biskupa og hvort víga eigi konur til prestþjónustu og einir 250 biskupar hafa kosið að sitja heima í mótmælaskyni við þá þróun sem uppi er. 16.7.2008 20:15
Umhverfisvænir orkugjafar orsaka hærra matvælaverð Það er ekki olían sem veldur hærra matvælaverði um allan heim. Það er heldur ekki aukin eftirspurn eftir mat, veik staða dollarans, vont veður, samdráttur í útflutningi eða hlutabréfamarkaðir - heldur er það framleiðsla á svo kölluðum umhverfisvænum orkugjöfum, það er að segja olíu sem framleidd er úr korni og grænmeti. 16.7.2008 19:00
Verðbólgan í Simbabve 2.200.000% Verðbólga í Simbabve er nú komin í 2,200,000% samkvæmt opinberum gögnum þar í landi. Þetta eru fyrstu verðbólgutölur í landinu frá því í febrúar síðastliðnum, en þá stóð hún í 165 þúsund prósentum. 16.7.2008 14:54
Aðalritari SÞ hvetur Súdan til samvinnu Ban Ki-moon, aðalritari Sameinuðu þjóðanna (SÞ), hefur hvatt stjórnvöld í Súdan til að vinna með SÞ að öryggi friðargæsluliða og annar sjálfboðaliða í Darfur og ýta þannig undir frið í landinu. 16.7.2008 13:33