Fleiri fréttir

Háttsettur Bandaríkjamaður situr fund með Írönum

Háttsettur bandarískur embættismaður mun verða viðstaddur fund fulltrúa Evrópusambandsins og Íran í Sviss í dag þar sem ræða á svar Írana við tilboði Sameinuðu þjóðanna um að Íranir hætti við kjarnorkuáætlanir sínar.

Tölvukerfi San Francisco borgar er lamað

Tölvukerfi San Francisco borgar er nú lamað þar sem eini maðurinn sem hefur aðgangorðið að því situr í haldi lögreglunnar og neitar að gefa upp hvert aðgangorðið er.

Notuðu merki Rauða krossins við björgun gísla

Myndir frá því er leyniþjónustumenn frá kólombíska hernum björguðu gíslum úr haldi Farc-skæruliða þar í landi nýlega sýna að einn þeirra var með merki Rauða krossins á borða um handlegg sinn.

Romney líklegt varaforsetaefni

Talið er líklegt að John McCain forestaframbjóðandi Repúblikanaflokksins bjóði Mitt Romney, fyrrverandi fylkisstjóra í Massachusetts, að verða varaforsetaefni sitt.

30 fluttir á sjúkrahús í Gautaborg

Rúmlega 30 voru fluttir á sjúkrahús í kjölfar slyssins í skemmtigarðinum Liseberg í Gautaborg fyrr í dag í kjölfar þess að leiktæki sem sveiflar fólki til og frá féll til jarðar.

Kynning raunveruleikaþáttar fór úr böndunum

Þrír starfsmenn raunveruleikaþáttar í Indlandi hafa verið handteknir fyrir að hafa sett fólk í hættu þegar verið var að kynna þáttinn í verslunarmiðstöð í borginni Indore síðastliðinn sunnudag.

Niktótín gegn elliglöpum

Lyf með nikótíni geta hugsanlega nýst í baráttunni gegn elliglöpum. Tilraunir lækna við King College í London benda til þess að með notkun lyfja sem innihalda nikótín sé hægt að fresta því um allt að sex mánuði að sjúklingar með elliglöp þurfi að leggjast inn á sjúkrahús.

Sarkozy: Írar þurfa að kjósa aftur

Írar munu þurfa að hafa aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um endurbætur á stjórnarskrá Evrópusambandsins sagði Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti á fundi með stjórnmálaflokki sínum UMP í dag. Írar höfnuðu Lissabon sáttmálanum í þjóðaratkvæðagreiðslu í seinasta mánuði.

Handteknar fyrir keppni í munnmökum á grískri strönd

Níu breskar konur eiga yfir höfuð sér kæru eftir þær voru handteknar fyrir að taka þátt í keppni í munnmökun. Sex breskir og sex grískir karlmenn voru einnig handteknir fyrir þátttöku sína í keppninni.

Einn hinna grunuðu í Madeleine-málinu fær skaðabætur

Robert Murat hefur náð sáttum um skaðabætur og skriflega afsökunarbeiðni við 11 dagblöð og eina sjónvarpsstöð í Bretlandi fyrir meiðyrði. Murat er einn hinna grunuðu í rannsókn portúgölsku lögreglunnar á hvarfi hinnar þriggja ára Madeleine McCann sem hvarf í maí á síðasta ári á Portúgal.

Danski Múhameðsteiknarinn fagnar gæsluvarðhaldsúrskurði

Danski teiknarinn Kurt Westergaard segist ánægður með að Túnismennirnir tveir, sem grunaðir eru um að hafa skipulagt morðtilræði gagnvart honum, sæti gæsluvarðhandi þar til þeir verði sendir aftur til síns heima.

Fyrsta myndbandið frá Guantanamo gert opinbert

Lögfræðingar Kanadamannsins Omar Khadr hafa gert opinbert myndband sem sýnir yfirheyrslu yfir Khadr í Guantanamo-fangelsinu. Þetta er í fyrsta sinn sem myndband úr fangelsinu er gert opinbert.

X-Men stjarna verður raunverulegur prófessor

Hollywood-stjarnan Patrick Stewart sem leikur prófessor Xavier í X-Men myndunum er nú orðinn raunverulegur prófessor. Hann var gerður að prófessor í leiklist við Huddersfield háskólann við hátíðlega athöfn í gærdag.

Mannskæð sjálfsmorðsárás í Írak

23 létust og 68 særðust í bænum Baquba, norður af Bagdad, í dag eftir sjálfsmorðsárás tveggja manna á ráðningaskrifstofu íraska hersins.

Starfsfólk SÞ flutt frá Darfurhéraði

Sameinuðu þjóðirnar ákváðu í dag að flytja hluta af starfsliði sínu frá frá Darfurhéraði í Súdan. Ákvörðunin er tekin í kjölfar nýlegra árása á starfsmenn SÞ og vegna kröfu saksóknara stríðsglæpadómstóls SÞ um að handtökuskipun verði gefin út á hendur Omar al-Bashir, forseti Súdans, vegna þjóðarmorðs í héraðinu.

Gríðarleg áhrif leiðtogafundar í fátækustu löndunum

Þótt árangur af leiðtogafundi iðnríkjanna í Japan í síðustu viku hafi ekki verið mikill, er útlit fyrir að ákvarðanir þeirra geti haft gríðarleg áhrif þar sem síst skyldi - í fátækustu löndum heims.

Vísindamenn hafa hugsanlega uppgötvað lyf gegn malaríu

Ástralskir vísindamenn hafa gert uppgötvun sem hugsanlega gæti dugað í baráttunni við malaríu. Þeir hafa einangrað þann hluta bakteríunnar sem kemur í veg fyrir að ónæmiskerfi líkamans losi sig sjálfkrafa við sníkilinn.

Bush áætlar að létta banni við olíuborun við strendur BNA

Forseti Bandaríkjanna, George Bush áætlar að aflétta banni við því að bora eftir olíu við strendur landsins. Þing Bandaríkjanna þarf aftur á móti einnig að samþykkja að aflétta bannið til þess að mögulegt sé að bora eftir olíu við strendur Bandaríkjanna.

Leiðtogar í herskrúðgöngu í París

Leiðtogar frá Evrópu, Miðausturlöndum og Norður Afríku sóttu herskrúðgöngu á Bastilludeginum í Frakklandi í dag. Heiðursgestur skrúðgöngunnar var aðalritari Sameinuðu Þjóðanna, Ban Ki-moon. Tveir friðargæslumenn Sameinuðu Þjóðanna leiddu hergönguna sem hefð er fyrir á Bastilludeginum.

Misstu sjónina á rússnesku reifi

Tólf ungir Rússar misstu sjónina að hluta eftir ljósasýning brenndi í þeim augnhimnuna. Staðfest tilfelli eru tólf en rússnesska dagblaðið Kommersant segir að sautján einstaklingar til viðbótar hafi leitað sér aðstoðar vegna málsins.

Árás á Íran mun draga stóran dilk á eftir sér

Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, segir að árás á Íran muni verða Bandaríkjunum, Ísrael og heiminum öllum afar dýrkeypt. Þetta sagði Assad í viðtali við franska útvarpsstöð í morgun en forsetinn er staddur í Frakklandi á fundi nýstofnaðs Miðjarðarhafsbandalags.

Góður nætursvefn eflir minnið

Ný rannsókn leiðir í ljós að góður nætursvefn eflir minni manna daginn eftir. Jafnframt á viðkomandi auðveldara með að læra hluti.

Ungfrú Alheimur er frá Venesúela

Það var hin 22 ára gamla Dayana Mendoza frá Venesúela sem vann titilinn Ungfrú Alheimur í nótt en keppnina var haldin í Víetnam.

Danir setjast að á Skáni þúsundum saman

Tilkoma Eyrarsundsbrúarinnar hefur gert það að verkum að þúsundir Dana hafa sest að á Skáni í Svíþjóð og álíka fjöldi af Svíum sækir nú vinnu til Danmerkur.

Mjótt á munum milli Obama og McCain

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun tímaritsins Newsweek er nú mjótt á munum milli Barak Obama og John McCain í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum. Obama mælist með 44% en McCain með 41%.

Svarnir óvinir sitja við sama borð í París

Meðal ólíkindatóla sem nú sitja saman í París eru Michel Suleiman, forsætisráðhera Líbanons, Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels og Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna.

Dætur Íraks taka upp vopn

Íraskar konur taka vaxandi þátt í öryggisgæslu í landi sínu. Þær eru kallaðar Dætur Íraks og það ver verið að þjálfa þær á lögreglustöðvum víðsvegar um landið.

Helmingur óreykjandi Bandaríkjamanna veður reyk

Merki um óbeinar reykingar finnast í helmingi allra Bandaríkjamanna sem reykja ekki. Þetta kemur fram í rannsókn sem U.S. Center of Disease Control and Prevention birti fyrir helgina.

Sextíu ára gömul sprengja gerð óvirk í Japan

Um 5.400 íbúar voru fluttir á brott og akvegum lokað á meðan sprengjusérfræðingar japanska hersins gerðu sprengju frá tímum seinni heimsstyrjaldarinnar óvirka í Osaka í vesturhluta Japans í dag.

Fellibylurinn Berta

Gervihnöttur tók þessa mynd af fellibylnum Bertu þegar hann var nokkur hundruð kílómetra suðaustur af Bermúda á föstudaginn.

Sjá næstu 50 fréttir